Morgunblaðið - 07.11.1986, Side 30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986
30
Strax var tekið til við tunnurnar í Grindavík Morgunbiaðia/Kr.Ben.
Grindavík:
Fögnuður hjá
söltunarfólki
með samninginn
Verkalýðsfélag Húsavíkur 75 ára:
Hátíðardagskrá
á sunnudaginn
Afgreiðsla frá Alþýðubankanum opnað í dag
Gnndavik
MIKILL fögnuður braust út hjá
starfsfólki söltunarstöðvanna í
Grindavík á miðvikudaginn, þeg-
ar fréttin kom um sölu á 200
þús. tunnum til Rússlands. Þetta
þýðir óneitanlega meiri vinnu og
vonandi góðar tekjur.
Dauflegt hefur verið hér í allt
haust eins og áður hefur komið
fram í fréttum. Að vísu glæddist
heldur þegar bátamir fóru að
streyma að með sfld undanfamar
tvær vikur og hægt var að flaka
fyrir Svlþjóðarmarkað. Þessi sam-
ningur kemur á réttu augnabliki
því nú er flökun að ljúka og enn
hefur ekki verið samið við Þjóð-
veija um súrsfldarflök. Strax og
fréttin kom urðu allar sfmalínur til
Sfldarútvegsnefndar rauð-glóandi
því verkstjórar vildu fá staðfestingu
á að fréttin væri rétt og eins hvað
hægt væri að fá margar tunnur og
hvemig standa skyldi að söltun.
Fljótlega upp úr fjögur á mið-
vikudag voru tvær stöðvar famar
að keyra tunnum úr tunnugeymslu
Síladarútvegsnefndar hér á staðn-
um og gilti skömmtun, 1.500
tunnur á hveija stöð til að byija
með. í Þorbimi var léttara yfir
mannskapnum eftir að fréttin barst
og byijað að undirbúa söltun. Gjög-
ur var byijað að keyra tunnur en
Hóp og Hópsnes ætluðu að nota
daginn eftir, enda nægur tíminn
þar sem þeirra bátar voru nýfamir
á miðin. Veður er slæmt á miðunum
en þó gæti orðið veiði inni á fjörðun-
um. Lítið má því útaf bera hjá
Grindavíkurbátum sem þurfa að
fara langa leið af miðunum, svo að
síldin verði nægilega góð í söltun-
ina.
Kr.Ben.
VERKALÝÐSFÉLAG Húsavíkur
er 75 ára á þessu ári og er einna
helst hallast að því að afmælis-
dagurinn hafi verið 11. apríl sl.
En þar sem fyrsta fimdargerðar-
bókin hefur glatast, er afmælis-
dagurinn á reiki. Haldið verður
upp á tímamótin í félagsheimili
þeirra Húsvíkinga á sunnudag-
inn, 9. nóvember, og eru allir
félagsmenn velkomnir þangað
ásamt vinum og vandamönnum.
Formaður félagsins hefur verið
Helgi Bjamason síðan árið 1978,
en fyrsti formaður þess var Bene-
dikt Snædal. Hátíðardagskráin í
félagsheimilinu hefst kl. 14.00 með
ávarpi formannsins og því næst
flytur Ásmundur Stefánsson, for-
seti Alþýðusambands íslands,
ávarp. Þá flytja einnig ávörp Guð-
mundur J. Guðmundsson, formaður
Verkamannasambands íslands, og
Þóra Hjaltadóttir, formaður AI-
þýðusambands norðurlands. Katrín
Sigurðardóttir syngur einsöng og
félagar úr Leikfélagi Húsavíkur
flytja skemmtidagskrá úr sögu
Verkalýðsfélagsins.
Afgreiðsla Alþýðubankans verð-
ur opnuð kl. 10.00 í dag og verður
hún til húsa í félagsheimilinu. Af-
greiðslan verður framvegis opin á
virkum dögum frá kl. 10.00 til
12.00 og kl. 13.00 til 16.00. Kári
Kárason verður afgreiðslustjóri og
starfsmaður verður Rut Snædal
Jónsdóttir. Alþýðubankinn er með
tvö útibú í Reykjavík, eitt á Akur-
eyri og annað á Akranesi. Auk
afgreiðslu á Húsavík er verið að
opna þessa dagana útibú á Blöndu-
ósi og fyrirhugað er að opna
afgreiðslu á Egilsstöðum. Að sögn
Kára, er hugmyndin að stofnun
útibús Alþýðubankans á Húsavík
orðin nokkuð gömul, en ekki var
farið að ræða málið af alvöru fyrr
en á haustdögum. „Fulltrúaráð
verkalýðsfélaganna óskaði fyrst
eftir því að þessi möguleiki yrði
kannaður. Bankinn tók málaleitan-
inni mjög vel og varð úr að menn
undu sér í málið." Þau félög, sem
aðild eiga að fulltrúaráðinu eru auk
Verkalýðsfélagsins, Bygginga-
mannafélagið Árvakur, Verslunar-
mannafélag Húsavíkur og
Sveinafélag Jámiðnaðarmanna. Öll
þessi félög hafa sameiginlegt skrif-
stofuhald í Félagsheimili Húsavík-
ur, en í því á Verkalýðsfélag
Húsvíkur hlut ásamt Húsavíkur-
kaupstað og ýmsum félagasamtök-
um bænum.
Hamingju-
dunkarnir
í kærleiks-
gildrunni
Bók eftir Pálma
••
Orn Guðmundsson
ÚT ER komin bókin Hamingju-
dunkarnir i __ kærleiksgildrunni
eftir Pálma Öm Guðmundsson.
Bókin er „vísindaskáldsaga og
bamaævintýri" eins og segir á
titilsíðu bókarinnar.
Aðrar bækur eftir sama höfund
eru: Á öðru plani úr höndum blóma,
Veruleikasprenging í leikhúsinu og
Tunglspá. Hann hefur einnig þýtt
nokkur ljóð úr ensku.
Hjálmar Þorsteinsson
Kaupmannahöfn:
Haustlitir
Hjálmars
Þorsteinsson-
ar í Jónshúsi
Jónshúsi.
NÚ STENDUR yfir hér í félags-
heimilinu sýning Hjálmars
Þorsteinssonar listmálara og
mun hún standa til 21. nóvember.
Hjálmar hefur verið búsettur í
Danmörku sl. 5 ár og er nú nýkom-
inn að heiman eftir stutta haust-
dvöl. Má sjá afrakstur þeirrar
dvalar í vatnslitamyndum lista-
mannsins á sýningunni, en hann
nefnir þær: íslenzkir haustlitir, til-
brigði um stef. Og Hjálmar hefur
sannarlega lifað fagurt haustveður
heima, kyrrð og friður ríkir á mynd-
unum og litadýrðin er mild. Nokkur
olíumálverk eru líka á sýningunni,
en þau hafa verið aðalverkefni list-
málarans hingað til, og eru þau
einnig máluð á þessu ári.
í nóvember opnar Hjálmar Þor-
steinsson málverkasýningu á veit-
ingahúsinu Kaptajn Morgan á
Dragör, en þar á Drageyri er Hjálm-
ar búsettur. Þetta er nýjung í
veitingahúsinu, en eigandinn hefur
boðið listamanninum að sýna verk
sín þar eins og tíðkast víða á slíkum
stöðum í Kaupmannahöfn, þar sem
þekktir og lítt þekktir listamenn
sýna verk sín.
G.L.Ásg.
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Sendistarf Unglingur óskast til sendistarfa 2-3 klst á dag. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 11. þ.m. merktar: „Sendistarf — 1964". | | HAGVIRKI HF % SfMI 53999 Trésmiðir eða trésmiðaflokkar óskast til starfa nú þegar. Upplýsingar veittar í síma 53999. Afgreiðslustarf Óskum eftir að ráða nú þegar reglusaman starfskraft til afgreiðslustarfa í bílavarahluta- verslun okkar. Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá símaverði.
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á Heilsugæslustöð Þorláks- hafnar strax á næsta ári. Upplýsingar veitir hjúkrunarfræðingur á staðnum í síma 99-3838 og 99-3872. [h hekla hf
Laugavegi 170-172. Sími 695500.
Sýningafólk Fólk óskast til sýningastarfa í hópum (Pan). Góðar tekjur. Upplýsingar í síma 621625 milli kl. 10-12 í dag og á morgun.
Heimilisaðstoð Stúlka óskast á heimili í Vesturbæ til að gæta 4ra mánaða barns og vinna létt heimil- isstörf. Vinnutími frá kl. 13.00-17.00 fimm daga í viku. Laun samkvæmt samkomulagi. Umsóknir skilist á auglýsingadeild Mbl. merktar: „Aðstoð — 550“ fyrir 12. nóv.
Sölustörf fyrir húsmæður og f leiri Traust útgáfufyrirtæki í Reykjavík óskar eftir konum í Reykjavík og um land allt til þess að selja og kynna sérprentaða glæsilega bók með mataruppskriftum í heimahúsum og í fyrirtækjum frá 15. nóv. og til jóla. Lifandi starf og góðir tekjumöguleikar fyrir duglegt og útsjónarsamt fólk. Sölufólki verð- ur greitt visst fyrir eintakið og getur því hagrætt vinnutíma sínum að vild jafnt daga, kvöld sem helgar. Þeir sem hafa áhuga á frekari upplýsingum vinsamlega leggið inn á auglýsingadeiid Mbl. upplýsingar um nafn, heimilisfang og símanúmer merktar: „Uppgrip — 1965“ fyrir 14. nóv.
Fóstrur athugið Við leitum að fóstru fyrir leikskólann Barnabæ á Blönduósi. Fóstran þarf að leysa forstöðukonu af um að minnsta kosti 3ja mánaða skeið frá 1. desember nk. Barnabær er nýlegur leikskóli, vel búinn með 10 dag- heimilispláss og 60 leikskólapláss. Hafið samband við forstöðukonu í síma 95- 4530 eða undirritaðan í síma 95-4181 fyrir 15. nóvember nk. Sveitarstjóri.
Lögfræðingur óskast Opinber stofnun óskar eftir að ráða lög- fræðing til almennra lögfræðistarfa (inn- heimtur, samningagerðir o.fl.). Umsóknum sé skilað til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „Lögfræðingur — 1880“ fyrir lokun mánudagsins 10. þm.