Morgunblaðið - 07.11.1986, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986
Olafía Jochums-
dóttir - Minning
Fædd 18. september 1912
Dáinn 29. október 1986
Mig langar með örfáum orðum
að minnast vinkonu minnar, Ólafíu
Jochumsdóttur, eða Lóu eins og hún
var jafnan kölluð. Við Lóa kynnt-
umst fyrir rúmum tveimur árum
þegar ég fluttist ásamt fjölskyldu
minni í húsið á Melhaga 13 þar sem
hún hafði búið í 10 ár. Þótt rúm-
iega 40 ár skildu okkur að tókst
fljótlega með okkur náin og kær
vinátta. Við áttum sameiginleg
áhugamál og umtalsefni, ekki síst
blómarækt. Lóa var mikil áhuga-
manneskja og fús að miðla af
þekkingu sinni. Það voru ófáar
plöntumar sem hún kom á legg og
færði okkur síðan á efri hæðinni.
Lóa hafði sannarlega græna fingur
og í kringum hana óx allt og dafn-
aði. Allan þann tíma sem við
þekktumst barðist hún við erfiðan
sjúkdóm. Baráttan við sjúkdóminn
dró aldrei úr henni viljann að græða
upp. Hún gladdist alltaf yfír jurt
sem óx af græðlingi og blómstraði
fagurlega.
Á svölunum hennar Lóu sem
voru opnar fyrir hvassri suðvestan-
áttinni blómstruðu anemónur,
lóbelíur, rósir, begóníur og stjúpur.
Rétt eins og við sáum jurtimar sýna
sitt fegursta og besta við erfið skil-
yrði kynntumst við hjartalagi Lóu
og styrk í baráttunni við sjúkdóm-
inn. Það vakti aðdáun og furðu
hversu ósérhlífin og dugleg hún gat
verið á erfiðum stundum.
Þótt Lóa hafi sjálf verið bamlaus
bar öll hennar umgengni við þriggja
ára gamla vinkonu sína á efri hæð-
inni vott um næman skilning á
bömum og umhyggju. Henni var
lagið að rækta ýmislegt fleira en
plöntumar.
Við sem horfum nú á eftir kærri
vinkonu eigum erfitt með að sætta
okkur við skarðið sem hún skilur
eftir sig. Hildur litla á erfitt með
að hugsa sér fjögurra ára afmælis-
veislu eftir nokkra daga án vinkonu
sinnar.
Ég og fjölskylda mín vottum
ættingjum Lóu samúð.
Kristín Ingólfsdóttir
í dag verður til moldar borin
frænka mín Ólafía Jochumsdóttir,
eða Lóa, eins og ættingjar og vinir
kölluðu hana. Lóa lést 30. okt. sl.
eftir að hafa átt við veikindi að
stríða síðustu 2—3 árin.
Lóa ól allan sinn aldur í
Reykjavík. Hún fæddist 17. sept
1912, dóttir hjónanna Diljár Tómas-
dóttur frá Esjubergi á Kjalamesi
og Jochums Þórðarsonar frá Móum
á Kjalamesi. Var hún ein af 8 böm-
um þeirra hjóna, hin vom: Matthías,
Tómas, Þóra eldri sem lést mjög
ung, Asta, Karítas, Magnús og
Þóra yngri. Þau sem eftir lifa og
fylgja systur sinni til grafar í dag
eru Matthías, Ásta og Magnús.
Lóa hefur verið u.þ.b. tveggja
ára þegar faðir hennar lést, en hann
var sjómaður og drukknaði, þá var
yngsta bamið ekki fætt. Það þarf
ekki að íjölyrða um hvemig það
hefur verið fyrir móður í þá daga
að standa ein uppi með 7 böm,
enda fór svo að amma varð að koma
bömum sínum í fóstur, sum fóru
til vandalausra, önnur til skyld-
menna. Lóa fór til móðurskyldfólks
síns, þeirra Guðbjargar Jónsdóttur
og Guðjóns Þórólfssonar og ólst hún
upp ásamt bömum þeirra, þeim
Jóni, Þorbimi og Guðrúnu, sem þá
buggu við Lindargötuna. Eg held
að Lóa hafí átt góða æsku því hún
mat uppeldisforeldra sína mjög
mikils, eins var hún mjög tengd
uppeldissystkinum sínum sem vom
mun eldri en hún. Lóa starfaði við
verslunarstörf fram til þess að hún
giftist.
Þann 18. sept. 1942 gekk Lóa
að eiga mann sinn, Sigvalda Stef-
ánsson frá Kleifum í Gilsfirði, hann
lést í mars 1973. Sigvaldi var mik-
ill ágætismaður, bæði stilltur og
dagfarsprúður, og var sambúð
þeirra hjóna mjög góð. Enda þótt
þeim hjónum yrði ekki bama auðið
sóttu systkinaböm þeirra mjög til
þeirra, þá hafði Lóa gjaman á orði
að bömin væru að heimsækja Sig-
valda en ekki sig, því Sigvaldi væri
bamagælan á heimilinu.
Heimili Lóu og Sigvalda var
lengst af á Hagamel 6, þar bjuggu
þau i hartnær þijátíu ár ásamt
uppeldissystkinum Lóu. Þar var
gott að koma; húsráðendur virtust
laða að sér fólk, enda var gesta-
305----308
Peugeot 205. „Besti bíll í heimi"
Peugeot 205 hefur verið valinn „besti bíll í heimi’
annað árið í röð at hinu virta þýska bítablaði
„Auto Motor und Sport".
Peugeot 205 sameinar aksturseiginleika, þœgindi,
öryggi og sparneytni betur en nokkur annar bíll í sínum
verðflokki að mati kröfuharðra Þjóðverja.
Peugeot205 erframdrifinn, fjöðrun í sérflokki, kraftmikill
og hljóðlátur.
Komið, reynsluakið og sannfœrist.
Verð frá 297.000,-
Peugeot 309.
Nýr bíll frá Peugeot
Við bjóðum velkominn til íslands nýjan glœsilegan
fulltrúa frá Peugeot, Peugeot 309.
Miklar rannsóknir og reynsla af Peugeot 205,
hárnákvœm vinnubrögð, því hann er að mestu settur
saman af vélmennum, tTyggja hátœknileg gœði.
Peugeot 309 er 5 dyra framhjóladrifinn og með
fjöðrun í Peugeot gœðaflokki. Það ásamt eyðslu-
grönnum vélum og lágri bilanatíðni gera 309 að bíl fyrir
íslenskar aðstœður.
Verð frá 376.000 -