Morgunblaðið - 15.11.1986, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1986
47
Ýmsar harðgerðar innijurtir
geta prýtt mjög ganga og for-
sali, veitingahús, skrifstofur,
kirkjur, o.fl. opinberar bygg-
ingar. Sömuleiðis stofur langt
frá glugga. Þar sem birta og
hiti eru í sæmilegu lagi má
rækta á slíkum stöðum allmarg-
ar blaðjurtir með góðum
árangri.
Sem dæmi má nefna rifblöðku
(Monstera) aralíu, fíkjuviðarteg-
undir (gúmmítré), beinvið, berg-
Brassia maculata (t.v.) og Coleus blumei.
Blaðjurtir
fjarri glugga
fléttu, kóngavínvið, rússavínvið,
indíánaíjöður, húsfrið, appelsínu-
tré, gyðinginn gangandi og bróður
hans (Zebrina), veðhlauparann,
aronsskegg og ýmsa burkna. Þar
sem birtan er minnst má ráð-
leggja ákúbu og aspidistru.
Ákúban hefur falleg guldröfnótt
blöð og stundum kölluð rökkur-
lauf. Aspidistran eða maríulaufíð
með sín grængljáandi, leður-
kenndu blöð ætti ásamt rökkur-
laufinu að komast til vegs og
virðingar á ný.
Á stofuvegg gagnvart glugga
getur klifurjurtin kóngavínviður
sómt sér piýðilega og smám sam-
an þakið vegginn ef hún hefur
gamnet eða spotta til að klifra í.
Bergfléttan getur klifrað langt,
t.d. umhverfís dyr og glugga.
Mánagull, sem er hengijurt, þarf
heldur ekki mikla birtu og getur
teygt sig langt. Bjarmalauf (Cro-
ton) þrífst og vel út við vegg gegnt
glugga. Sú jurt er til í ýmsum
afbrigðum og slær margskonar
bjarma á laufíð. Hin flekkótta,
stórvaxna Dieffenbachia þarf ekki
mikla birtu og getur staðið langt
inni í stofu. Appelsínutré má
rækta upp af kjama. Á þessu má
sjá, að úr mörgu er að velja í
flokki blaðjurtanna. En jurtir, sem
bera eiga mikið af blómum, þurfa
langflestar góða birtu. Varasamt
er að flytja jurtir snögglega úr
stað í önnur skilyrði. Ef t.d. sólar-
jurt er látin í skugga verða hin
nýju blöð hennar smá, þunn og
laus í sér, sprotar fölir, langir,
grannir og veiklulegir. En ef
skuggajurt er skyndilega flutt á
sólríkan, bjartan stað fellir hún
oft blöð eða jafnvel sviðnar. Það
dregur úr vexti og sjúkdómar
sækja á. Mest ber á þessu í mikl-
um hita.
í glugga kemur birtan frá einni
hlið og jurtin snýr smám saman
blöðunum á móti birtunni. Má þá
snúa jurtapottunum dálítið öðru
hvoru. Sumar jurtir em þó við-
kvæmar fyrir þessu og fella
blómhnappa og jafnvel blöð ef
þeim er snúið, einkum í mikilli
birtu, t.d. er því oft þannig farið
um jólakaktus.
Hæfílega vökvun verða menn
að læra af reynslunni. Jurtir í litl-
um pottum þarf oft að vökva,
einkum leirpottum, og best er að
vökva með ylvolgu vatni því að
sárkalt vatn kælir mjög moldina.
Látið ekki vatn standa til lengdar
í undirskálinni. Til eru þó jurtir
sem best hæfír undirvökvun, t.d.
ef blaðmagnið er svo mikið að það
hylur moldina.
Félagar GÍ. — Munið
fræðslufundinn á Hótel Esju,
2. hæð, miðvikudaginn 19. nóv-
ember kl. 20.30. Þar verður
rætt um ræktun rósa og einnig
sýndar myndir frá Butchart-
Gardens á Vancouver-eyju í
Kanada.
Ingólfur Davíðsson
Styrkir úr minn-
ingarsjóði
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
stjórn minningarsjóðs Helgu Jóns-
dóttur og Sigurliða Kristjáns-
sonar:
Samkvæmt erfðaskrá hjónanna
Helgu Jónsdóttur og Sigurliða
Kristjánssonar, kaupmanns, var
stofnaður sjóður til styrktar efnileg-
um nemendum í verkfræði- og
raunvísindanámi.
Stofnfé sjóðsins var ákveðinn
hluti af eignum þeim er þau létu
eftir sig, en heimild er skv. skipu-
lagsskrá að veita styrki af þeim
vöxtum sem sjóðurinn ber.
Nú hefur verið úthlutað styrkjum
úr sjóðnum í þriðja sinn. Úthlutað
var 10 styrkjum hveijum að upp-
hæð kr. 80.000.00.
Eftirfarandi hlutu styrkina:
Eiríkur Álmar Grétarsson, flugvéla-
verkfræði, Hilmar Skarphéðinsson,
tölvunarfræði, Jóhanna Vigdís
Gísladóttir, rafmagnsverkfræði,
Jón Gunnar Jónsson, vélaverkfræði,
Kristján Bjöm Garðarsson, iðnaðar-
verkfræði, Reynir B. Eiríksson,
iðnaðarverkfræði, Stefán Guð-
laugsson, byggingaverkfræði,
Einar Steingrímsson, stærfræði,
Eiríkur Steingrímsson, líffræði og
Unnur Styrkársdóttir, líffræði.
Fyrirhugað er að veita nokkra
styrki úr minningarsjóðnum á
næsta ári og verður auglýst eftir
umsóknum í júnímánuði nk.
Hlutavelta og
kökusala
SUNNUDAGINN 16. nóvember
heldur kór Breiðholtskirkju
hlutaveltu og kökusölu í húsi
KFUM og K við Maríubakka og
hefst kl. 15.00.
Allir velunnarar kirkjunnar eru
hvattir til að mæta. Allur ágóði
rennur í orgelsjóð kirkjunnar.
(Fréttatilkynning)
GOTT VERÐ
Borð og fjórir stólar
á sértilboðsverði
kr. 9.900
Opið til kl. 4. í dag.
Smiðjuvegi 6, Kópavogi símar 45670 - 44544.
ÚRVALS-PARKET
í DÚKALANDI FÆRÐU PARKET FRÁ
VIÐURKENNDUM FRAMLEIÐENDUM
Opið laugardaga
kl. 9-16
Kahrs
Junckers
Hörning
Ef þú ert handhafi Eurocard get-
urðu fest kaup á parketi án
útborgunar með því að nota
greiðslukortið til að kaupa á
EUROKREDIT-kjörum.
Að sjálfsögðu kemstu líka að
góðum kjörum þótt þú sért ekki
með EUROCARD.
Hjá okkur
ná gæðin í gegn
ARGOTT GÓLFEFNI.
Teppaland Dúkaland
GRENSÁSVEGI 13, 108 R. SÍMAR 83577 OG 83430