Morgunblaðið - 15.11.1986, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1986
?>
Ef 5o.it 5knl segja, þcL frétti eg,
ab þú hefðirfarið til útLandQ.”
erí þú sem ég vil.
TM Reg. U.S. Pat. Off.—all rights reserved
© 1986 Los Angeles Times Syndicate
Þarna sérðu, lögfræðingur.
Hann er svo afbrýðissamur að
hann bijálast i hvert skipti sem
karlmaður ávarpar mig.
HÖGNI HREKKVÍSI
Þessir hringdu .. .
Er tímaritið
„Smellir“ hætt
að koma út?
Valgerður hringdi:
Dóttir mín gerðist fyrir nokkru
áskrifandi að tímaritinu „Smell-
um“. Hún borgaði fyrirfram fyrir
fímm tölublöð en 1 dag er hún
aðeins búin að fá eitt. Ég hef
reynt að ná í eiganda tímaritsins
en ekki tekist. Nú er sú spuming
mín, fær dóttir mín blöðin fjögur
sem hún er búin að borga eða fær
hún endurgreiddan hluta áskrift-
argjaldsins? Viðkomandi er
vinsamlegast beðinn að hringja í
s. 71701 og taka af skarið.
Meira
íslenskt efni
Sif 11 ára hafði samband við
Velvakanda og hafði þetta að
segja: Mér finnst að miklu meira
ætti að vera af íslenskum fram-
haldsmyndaflokkum eins og
þættinum „Fastir liðir eins og
venjulega". Það myndi lífga svo-
lítið upp á, þar sem allir aðrir
þættir em erlendir.
Vilja menn bylt-
ingu eða hvað?
Óskar Þór Óskarsson hringdi:
Mér sýnist að spumingin sé nú
orðin sú hvort menn þama fyrir
sunnan vilja byltingu, því vita-
skuld verður fólki úti á lands-
byggðinni ekki lengur boðið upp
á það að þeir afli en Reykvíkingar
eyði. Fjölmörg mál hafa komið
upp að undanfömu, s.s. varðandi
Útvegsbankann og Hafskip, þar
sem þetta hefur orðið bert. Pen-
ingar streyma til höfuðborgarinn-
ar þar sem þeim er eytt, af
handahófi jafnvel og af misjafn-
lega vel innrættum mönnum. Nú
bendir allt til þess að meira að
segja þingmennimir okkar verði
innan einhverra ára allir orðnir
Reykvíkingar. Þingmannseftii úr
Reykjavík beita allra bragða til
að komast inn á þing og vfla ekki
fyrir sér að fara í framboð í kjör-
dæmum sem þeir hafa jafnvel
aldrei komið til.
Hliðartaska
týndist
á Hótel Borg*
Helga hringdi:
Laugardagskvöldið 8. nóvem-
ber týndi ég svartri leðurhliðar-
tösku á Hótel Borg. í henni voru
skilríki, subarú-bíllyklar (á kipp-
unni stendur „British Colombia")
og peningaveski. Finnandi vin-
samlegast hringi í s. 52256.
Víkverji skrifar
Sálumessa Mozarts verður flutt
í'Hallgrímskirkju annan sunnu-
dag. Þetta er meiriháttar viðburður
í menningarlífi höfuðborgarinnar.
Það er tilhlökkunarefni að fá tæki-
færi til þess að hlýða á þetta mikla
tónverk flutt hér. Víkveiji átti þess
kost að hlýða á flutning sálumes-
sunnar í Rómarborg fyrir tveimur
árum undir stjóm hins heimskunna
stjómanda Carlo Mario Giulanis og
er það ógleymanlegt.
Þá bíða menn þess með eftir-
væntingu hver reynsla verður af
slíkum tónlistarflutningi í Hallgrí-
mskirkju. Hörður Áskelsson,
söngstjóri, fjallar um hljómburð í
Hallgrímskirkju í tónleikaskrá og
gerir nokkra grein fyrir þeim ráð-
stöfunum, sem gerðar hafa verið
til þess að tryggja að hann verði
sem beztur og segir síðan: “Reynsl-
an ein mun skera úr um, hvemig
til hefur tekizt. Ekki verður unnt
að kveða neina dóma um það, fyrr
en margháttuð reynsla af tónlistar-
flutningi liggur fyrir og nákvæmar
mælingar hafa verið gerðar. Fyrstu
tónleikar í Hallgrímskirkju, flutn-
ingur á Sálumessu eftir Wolfgang
Amadeus Mozart, er eitt skref í þá
átt.“
XXX
Stjómmálamenn komast oft í
töluvert uppnám út af skoðana-
könnunum. Þótt þær gefi vafalaust
nokkuð rétta mynd af því hvernig
straumamir liggja meðal kjósenda
jafngilda þær þó ekki kosningum.
Reynslan sýnir að óhagstæð út-
koma í skoðanakönnunum getur ■
orðið stjómmálaflokki til góðs. Al-
þýðubandalagið stóð t.d. mjög illa
í kosningabaráttunni fyrir þing-
kosningar 1983. Þá birti Morgun-
blaðið skoðanakönnun, sem
Hagvangur hafði framkvæmt, sem
staðfesti það að staða Alþýðu-
bandalagsins var mjög veik.
Frambjóðendur þess notuðu þessa
skoðanakönnun hins vegar með ár-
angursríkum hætti til þess að ná
kjósendunum til sín aftur með því
einfaldlega að spyija þá, hvort þeir
ætluðu virkilega að láta “íhaldið"
leika Alþýðubandalagið svona
grátt. Á einni viku tókst Alþýðu-
bandalaginu að rétta hlut sinn
mjög.
Sjálfstæðismenn hafa náttúrlega
verulegar áhyggjur af niðurstöðu
skoðanakönnunar Félagsvísinda-
stofnunar. En auk þess að gefa
þeim tilefni til að íhuga eigin stöðu
og málatilbúnað veitir hún Sjálf-
stæðisflokknum tæifæri til að höfða
til stuðningsmanna sinna með svip-
uðum hætti og Alþýðubandalagið
gerði 1983. Kosningunum er ekki
lokið enn!
XXX
Víkveiji rakst á auglýsingu í
Morgunblaðinu þess efnis, að
Jón Baldvin Hannibalsson, formað-
ur Alþýðuflokksins mundi mæta á
fundi hjá Heimdalli. Þetta þykja
engin tíðindi. En margt hefur breyzt
á skömmum tíma. Fyrir rúmum
tveimur áratugum var Hannibal
Valdimarssyni, þáverandi forseta
Alþýðusambands íslands boðið að
flytja ræðu á hádegisverðarfundi í
sama félagi. Það var þá í fyrsta
skipti, sem pólitískur andstæðingur
Sjálfstæðisflokks talaði á þeim vett-
vangi og taldist til meiriháttar
tíðinda í pólitíkinni þá!