Morgunblaðið - 15.11.1986, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 15.11.1986, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15.'NÓVBMBER 198e Metkuldi víða í Bandaríkjunum New York, AP. METKULDI mældist í mörgum bandariskum borgnin á fimmtu- dag. Dauði 20 manna er rakinn til kuldanna. Snjókoma var mikil á sléttunum miklu í norðanverð- um Bandaríkjunum. Á hádegi á fimmtudag mældist frostið 15 gráður á celcius í Chicago, 24 gráður í Casper í Wy- omingríki og 9 gráður í Louisville, Kentucky. Frostið er hið mesta í Chicago í 46 ár miðað við árstíma. Mældist metkuldi í 46 borgum eða bæjum. Veðurfræðingar segja orsökina fyrir kuldakastinu vera kröftuga heimskautavinda, sem blásið hafa niður yfir Kanada og inn á sléttum- ar miklu, niður Mississippidal, inn yfír vötnin miklu og Ohiodalinn. Kuldamir náðu allt suður til suð- austurríkjanna þar sem bændur reyndu að bjarga ökmm og upp- skem frá tjóni. Varað var við frostveðri í Virginíu, Karólínuríkj- unum, Tennessee, Georgíu, um allt Alabamaríki, mið- og norðurhluta Mississippi og norðurhluta Louis- iana. Hitastig var við frostmark í San Antonio í Texas. Suður-Afríka: Asakanir Rússa eru áróður einn Pik Botha veifar sönnunargögnum um samsærí gegn stjóm Malawi, sem hann segir hafa fundist í flaki flugvélar Machel. varnarmálaráðherra í stjórn Corazón Aquino, segði snim- hendis af sér. Vinstri-menn saka fylgismenn Enriles um að hafa myrt einn helsta verka- lýðsleiðtoga Filippseyja en lík hans fannst i fyrradag. Skæru- liðar hafa frestað vopnahlé- sviðræðum við stjórnina um óákveðinn tíma vegna morðs- ins. MannQöldinn hópaði slagorð gegn Enrile og krafðist afsagnar hans. Um 100 lögreglumenn vopnaðir bareflum voru við öllu búnir en ekki kom til teljandi átaka. Verkalýðsleiðtoganum, Go- lando Olalia var rænt á miðviku- dag. Á fimmtudagskvöldið fannst lík hans og hafði hann verið myrtur á hinn hroðalegasta hátt. Olalia var jafnframt leiðtogi stærsta vinstriflokksins sem heimilt er að starfa á Filippseyj- um. Verkalýðsfélögin hafa boðað til allsherjarverkfalls á mánudag. Funchal, Madeira.AF. P.W. BOTHA, forseti Suður- Afríku, sagði á miðvikudag að ásakanir Sovétstjómarinnar þess efnis að ríkisstjórn Iands síns ætti þátt í því að flugvél Samora Machel, forseta Mozambique, fórst í siðasta mánuði værí hreinn áróður. Botha, sem er á einkaferðalagi á Madeira sagði að sérstök rannsókn- amefnd er í væru sérfræðingar frá ýmsum löndum, væri nú að rann- saka málið og myndu niðurstöður hennar leiða hið sanna í ljós. Pik Botha, utanríkisráðherra Suður- Afríku, sem einnig er með í förinni, sagði fyrr í þessum mánuði að sov- éska flugvélin er flutti Machel, hafi verið búin úreltum tækjum, hin so- véska áhöfn virtist hafa virt að vettugi upplýsingar er fram komu á mælum vélarinnar og ennfremur hefði fundist áfengismagn í líkum nokkurra þeirra. Sovéski varaflug- málaráðherrann, Ivan Vasin, sagði á blaðamannafundi í Moskvu í gær, að þessi ummæli Pik Botha væru slúður eitt. Svisslendingar neituðu því í gær að þeir hefðu fallizt á að aðstoða Suður-Afríkumenn við að þýða upp- lýsingar á flugrita flugvélar Samora Machel, fyrrum forseta Mósambík, sem fórst skammt innan landamæra Suður-Afríku 19. október sl. Pik Botha, utanríkisráðherra Suður- Afríku, sagði í fyrradag að Sviss- lendingar hefðu boðist til að ráða fram úr upplýsingum á flugritan- um. Filippseyjar: Fj öldi manns krefst af- sagnar Juans Enrile Allsheijarverkfall á mánudag Manila, AP, Reuter. UM 5000 manns söfnuðust saman við höfuðstöðvar hers Filíppseyja i gær og kröfðust þess að Juan Ponce Enrile, Sovéskir útflyijendur snúa heim: Vilja aftur til Bandaríkj- anna eftir 4 daga í Moskvu Moskvu, AP. Útflytjendafjölskylda, sem snerí aftur til Sovétríkjanna frá Bandarikjunum á mánudag, vill flytjast á brott á nýjan Ieik. For- eldramir segja að böra, sem bæði eru á táningsaldri, þeirra séu óhamingjusöm í Sovétrikjun- um. Móðirin, Faina Gonta, kvaðst hafa fengið þær upplýsingar hjá bandaríska sendiráðinu f Moskvu að flölskyldan fengi að fara aftur með breska flugfélaginu British Airways til London í dag. Hún sagði að fjölskyldan hefði aftur á móti hvorki fengið vega- bréfsáritun né flugmiða í hendur. Jaroslav Vemer, talsmaður sendiráðsins, hefur staðfest að Gonta-fjölskyldan hafí farið þess á leit að fá að snúa aftur. Faina Gonta og maður hennar David fluttu frá Ukraínu fyrir tíu árum ásamt tveimur bömum og ömmu þeirra. Þegar þau komu til Sovétríkjanna á mánudag sögðu hjónin að í Bandarílgunum hefðu þau sýknt og heilagt verið minnt á að þau væru innflytjendur. Ekki hefði bætt úr skák að bömunum var strítt í skóla. Því hefðu þau ákveðið að flytja aftur til Sovétríkj- anna. Sovétmenn hafa reynt að blása þetta upp í fjölmiðlum og á mánu- dag var hringt í bandaríska blaða- menn í Moskvu og þeim bent á að fara út á flugvöll og taka á móti fjölskyldunni. Corazón Aquino, forseti Filippseyja, sagði í gær að allt yrði gert til að hafa hendur í hári morðingjanna. Fidel Ramos, hershöfðingi, hefur fyrirskipað hemum að aðstoða á allan hátt við rannsókn málsins. Þeim sem veita upplýsingar sem leiða til handtöku morðingjanna hefur verið heitið veglegum verðlaun- um. Fyrr í þessari viku bauðst Go- lando Olalia til að boða til alls- hetjarverkfalls ef herinn reyndi að steypa stjóm Aquino. Ráða- menn innan hers Filippseyja höfðu sagt hann vera kommún- ista. Corazón Aquino sagði í ávarpi að binda yrði endi á tilgagns- lausar blóðsúthellingar á Filipps- eyjum. Hún var þá nýkomin fá Japan en þarlend stjómvöld hafa heitið Filippseyingum 649 millj- óna dollara fjárhagsaðstoð á þessu ári. Dómnefndarmenn töldu þetta þijár fegurstu stúlkuraar. Lengst til vinstrí er Ungfrú Danmörk, i miðj- unni er Jeanne-Marie Laronde, Ungfrú heimur, og til hægri er Ungfrú Austurríki, sem hafnaði í þríðja sæti. í raunínni líður mér best heima - sagði Ungfrú heimur, Jeanne-Marie Laronde London, AP. HIN 23 ára gamla Jeanne-Marie Laronde frá Trinidad og Tobago hóf sinn fyrsta dag sem „Ungfrú heimur" með þvi að fá sér jarðarber sem hún skolaði niður með kampavíni. „Ég er algjörlega óvön svona umstangi,“ sagði hún fréttamönnum, sem fylgst höfðu með keppn- inni. „í rauninni líður mér best heima.“ „Ungfrú heimur“ fékk lítinn svefn eftir ævin- týralega kvölstund í Royal Albert Hall. Fréttamenn voru mættir snemma í gærmoigun á hótelið þar sem hún býr til að taka hana tali. „Ég vaknaði í morgun og sagði við sjálfa mig: Jésúpétur ég er Ungfrú heimur. Mér fannst þetta draumi líkast en nú líður mér stórkostlega," sagði Jeanne-Marie Laronde. Aðspurð sagðist hún hlakka mest til að hitta og aðstoða böm út um allan heim. Titilinn tileinkaði hún unnusta sínum en sá ljónheppni maður heitir Ricardo Merrick . 77 stúlkur tóku þátt í keppninni og lenti „Ungfrú Danmörk" í öðru sæti en „Ungfú Austurríki" í því þriðja. Jeanne-Marie Laronde er fyrsta stúlkan frá Tinidad og Tobago, eyjaklasa í Karabíska hafinu, sem hreppir þennan eftirsótta titil. Jeanne-Maie Laronde brosir sfnu breiðasta eftir að Hólmfriður Karlsdóttir, fyrrum Ungrfrú heimur, hafði krýnt hana.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.