Morgunblaðið - 15.11.1986, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1986
26;_______
Bretland:
Verkamanna-
flokkurinn hélt
velli í Knowley
Knowsley, Englandi. AP.
VERKAMANNAFLOKKURINN hélt þingsæti sínu í aukakosningum
í Knowsley í útjaðri Liverpool i gær en tapaði talsverðu fylgi til
kosningabandalags Frjálslynda flokksins og Jafnaðarmannaflokks-
ins.
Frambjóðandi flokksins, George
Howarth, er hófsamur fulltrúi
flokksforystunnar, sem stóð um
tíma í stappi við herskáa flokksleið-
toga heima í héraði, sem vildu stilla
upp trotskýista. Hröktu þeir fyrrum
þingmann flokksins, Robert Kil-
roy-Silk, frá, en hann hefur þegið
boð um þularstarf hjá sjónvarps-
stöð. Hann telst einnig til hófsamari
flokksmanna.
Howarth hlaut 56,3% atkvæða,
eða 17.403 atkvæði, miðað við
64,5% fylgi flokksins í kosningun-
um 1983. Rosemary Cooper,
frambjóðandi kosningabandalags-
ins, rúmlega tvöfaldaði fylgi flokks-
ins, hlaut 34,6% atkvæða (10,679
atkvæði) miðað við 14,8% 1983.
Frambjóðandi íhaldsflokksins,
Roger Brown, hlaut slæma útreið
eða aðeins 1.960 atkvæði, eða 6,3%
greiddra atkvæða, miðað við 20% í
kosningunum 1983.
Fái að fara frá
Sovetríkjunum
London, AP.
SOVÉZKI andófsmaðurinn og
ljóðskáldið Irina Ratushinskaya,
sem latin var laus úr fangelsi í
Kiev í síðasta mánuði rétt fyrir
leiðtogafundinn í Reykjavík, fær
ef til vil að fara frá Sovétrílqun-
um til Vesturlanda í lok þessa árs.
„Ég vonast til þess, að Irina fái að
fara og að við fáum að sjá hana
innan mánaðar," var í gær haft eft-
ir séra Richards Rodgers í London,
Líkamsárásum
en hann hefur barizt ákaft fyrir
því, að hún fái að fara frá Sovétríkj-
unum.
Irina, sem er 32 ára, var árið
1983 dæmd í 7 ára nauðungarvinnu
og 5 ára útlegð í Síberíu fyrir
andsovézka átarfsemi og áróður.
„Eina brot hennar var það að skrifa
og dreifa ljóðum, þar sem það var
harmað að hafa ekki frelsi til að
semja ljóð og tjá lífsskoðun, sem
innheldur trú á Guð,“ sagði Rod-
gers.
Með gasgrímur gegn menguninni
Menguninni mótmælt með gasgrímum og borða með hauskúpu sem
merki dauðans. A borðanum stendur: „Fiskar í dag, á morgun við.“
Mynd þessi var tekin í Basel í gær, en þar efndu 10.000 manns til
mótmælagöngu vegna þeirrar háskalegu mengunar, sem orðið hefur
í Rínarfljótinu að undanfömu.
f gær héldu vestur-þýzk stjómvöld því fram, að 15 sinnum meira
magn af banvænu jurtaeitri hefði runnið frá svissneska efnafyrirtæk-
inu Ciba-Geigy út í Rín, en forráðamenn þess höfðu áður viljað
viðurkenna. Ef þessi ásökun er rétt, er mengunin í Rín enn meiri en
áður var talið.
14 tonn af
hassi gerð
upptæk
í Hollandi
Groningen, Reuter.
HOLLENZKA lögreglan
fann sex tonn af hassi fyrir
tilviljun í gær og hefur hún
þá gert 14 tonn upptæk í vi-
kunni.
Hassinu, sem fannst í smáþorp-
inu Farmsum nærri Groningen,
var komið fyrir í niðursuðudósum
og fyllti hlassið tvo flutningabíla.
Búðareiganda þótti einkennilegt
að bifreiðamar skyldu standa ein-
ar og yfirgefnar fyrir utan verzlun
hans og kallaði lögrlu á vettvang.
Farmurinn var skoðaður fyrir til-
viljun og kom þá í ljós hvers kyns
var. Aætlað söluverðmæti hassins
er á milli 4,3 og 6,5 milljóna doll-
ara, eða 170-260 milljónaísl. kr.
A þriðjudag gerði lögreglan í
Haag upptæk 8 tonn af hassi í
skipi, sem skráð er í Panama. Er
það mesti hassfundur í Hollandi
til þessa. Þrír Bretar og fjórir
Vestur-Þjóðverjar, sem taldir eru
eiga hassið, voru handteknir og
einnig sex Hollendingar, sem við-
riðnir voru smygglið. Þá hafa tveir
menn verið handteknir vegna
hassins, sem fannst í bílunum í
Farmsum.
Vopnaflutningar Bandaríkjamanna til íran:
Umfjöllun fjölmiðla hef-
ur spillt fyrir stjóminni
- sagði Ronald Reagan í ávarpi í fyrrinótt
Washington, AP, Reuter.
fjölgar í London
London, Reuter.
Á FYRSTU 9 mánuðum ársins
varð veruleg aukning líkamsár-
ása, rána og kynferðisglæpa í
London, höfuðborg Bretlands, að
sögn lögregluyfirvalda.
Fjölgun allra glæpa á þessu tíma-
bili nemur 6%, en líkamsárásum um
17% og ránum 12%. Kynferðis-
glæpum fjölgaði um 10% á tímabil-
inu. Lögreglanm telur að fjölgun
kynferðisglæpa megi að skýra að
einhveiju ieyti í breyttri meðferð
slíkra mála, sem orðið hefur fóm-
arlömbum hvatnirig til að skýra frá
árásum af þessu tagi.
Aukning varð í nær öllum flokk-
um afbrota í höfuðborg Bretaveldis
fyrstu 9 mánuði ársins. Skráðir
glæpir voru 573.000 miðað við
539.000 á sama tíma í fyrra.
Haft var eftir bæði Javier Esp-
inoza Tem frá Ecuador og Arturo
Hemandez Grisanti frá Venesúela,
að á næstunni myndi nást samkomu-
lag innan OPEC um að hækka
olíuverðið. Þeir tóku samt fram, að
þessar viðræður væru aðeins fyrsta
skrefið í átt til fasts olíuverðs og
sögðu, að engar ákvarðanir yrðu
teknar á þessum fundi. Hemandez
situr fundinn sem fulltrúi olíuríkja,
er ekki eiga aðild að OPEC-samtök-
unum.
Fundur þessi er haldinn að undir-
lagi Hashims Nazer, olíumálaráð-
herra Saudi-Arabíu. Hann hefur
sagt, að samtökin ættu að stefna
að 18 dollara föstu oiíuverði á hveija
tunnu. Að undanfömu hefur olíu-
verðið verið óstöðugt, en verið á
RONALD REAGAN Bandaríkja-
forseti flutti í fyrrinótt ávarp
sem sjónvarpað var beint um
stefnu Saudi-Arabíu nú um hærra
olíuverð, en með henni er talið, að
Saudi-Arabar hafi fallið frá fyrri
stefnu um stærri hlutdeild sína í
olíumarkaði, þar sem verðið væri
lágt. Fráfarandi olíumálaráðherra
Ahmed Zaki Yamani var talsmaður
þessarar stefriu.
Sérfræðingar OPEC eiga að halda
með sér fund í Vínarborg 20. nóv-
ember um þær verðlagningartillög-
ur, sem fram koma á fundinum í
Quito nú og 11 desember verður svo
haldinn fundur í Genf með þátttöku
allra aðildarrílqa OPEC. Þar á að
taka endanlega ákvörðun um fram-
leiðslumörk og verðlagningu á olíu
á komandi ári.
Bandaríkin. Forsetinn staðfesti
að stjóm hans hefði undanfarna
18 mánuði staðið í leynilegum
viðræðum við írani og að þeir
hefðu fengið send vopn frá
Bandaríkjunum. Reagan gagn-
rýndi fjölmiðla harðlega vegna
umfjöllunar þeirra og sagði hana
hafa spillt stórlega fyrir mögu-
leikum stjórnarinnar. Hann lagði
áherslu á að íranir hefðu einung-
is fengið varaarvopn og vara-
hluti í bandarísk hergögn og að
stefna stjómar hans væri
óbreytt.
Reagan minntist í upphafi máls
síns á þær sögusagnir sem að und-
anfömu hafa gengið um vopna-
flutninga Bandaríkjamanna til Iran.
Avarp sitt hóf forsetinn með þess-
um orðum: „Danskir sjómenn,
sjónarvottar í höfnum Ítalíu og
Portúgals og síðast en ekki síst
ónefndir embættismenn í ríkisstjóm
minni hafa að undanfömu verið
bomir fyrir alls kyns sögusögnum.
Nú fáið þið að heyra staðreyndir
málsins frá embættismanni í Hvíta
húsinu og öll þekkið þið nafn mitt.“
Reagan kvað leynilegar viðræður
við írani fullkomnlega réttlætanleg-
ar þar sem það væri ákaflega
mikilsvert fyrir Bandaríkin að
treysta áhrif sín í þessum heims-
hluta. Bar hann viðleitni stjómar
sinnar til að bæta samskiptin við
íran saman við þá ákvörðun Nix-
ons, þáverandi Bandaríkjaforseta,
að senda Henry Kissinger til Kína
árið 1972. Hann benti á að íranir
hefðu ekki framið hryðjuverk í þá'
18 mánuði sem viðraeðumar hefðu
staðið yfír. Reagan kvaðst hafa
heimilað „litlar vopnasendingar" til
íran til þess að bæta samskipti
rflqanna.
Bandaríkjaforseti gagmýndi fqöl-
miðla harðlega fyrir fréttaflutning
þeirra og sagði hann hafa spillt
stórlega fyrir möguleikum stjómar-
innar til að fá gfsla leysta úr haldi
í Líbanon. „Frá því David Jacobsen
fékk frelsi að nýju hefur rógburður-
inn og falsanimar um leynilega
vopnasölu í skiptum fyrir gíslana
verið með þvflíkum eindæmum að
hættulegra hefði verið að þegja en
hann að tala hreint út,“ sagði Reag-
an.
Hann lagði áherslu á að stefna
stjómarinnar gagnvart hryðju-
verkamönnum væri óbreytt og að
samningaviðræður við ríki sem
styddu ofbeldisverk kæmu ekki til
greina nú frekar en áður. „Þeir sem
telja að við séum að guggna gagn-
vart hiyðjuverkamönnum ættu að
tala við Gaddafí Líbýuleiðtoga,"
sagði forsetinn.
Robert Byrd, leiðtogi þingflokks
demókrata, sagði ávarp forsetans
hafa vakið fleiri spumingar en það
hefði svarað. Richard Lugar, sem
senn lætur af störfum sem formað-
ur utanríkismálanefndar Banda-
ríkjaþings, kvaðst ekki skilja hví
forsetinn hefði ekki leitað eftir þeim
víðtæka stuðningi sem hann hefði
þörf fyrir. Þá hafa ýmsir banda-
rískir embættismenn og evrópskir
starfsbræður þeirra lýst yfír vantrú
sinni á þeirri yfírlýsingu forsetans
að vopnasendingamar til íran
standi ekki í neinu samhengi við
bandarísku gíslana í Líbanon.
Gengi gjaldmiðla
London, AP.
B AND ARÍKJ ADOLL ARI lækk-
aði í gær gagnvart helstu gjald-
miðlum heims.
Gjaldeyriskaupmenn í Frankfurt
röktu þetta gengissig dollarans til
talna, sem gefnar vora út í gær um
bandarískan efnahag. Þær hefðu
ekki borið efnahagsbata í Banda-
ríkjunum vitni eins og væntingar
höfðu staðið til.
Dollarinn kostaði 161,57 japönsk
jen (161,65) þegar gjaldeyrismörk-
uðum lokaði í Tókýó í gær.
Gengi annarra helstu gjaldmiðla
var á þann veg að dollarinn kost-
aði: 2,0125 vestur-þýsk mörk
(2,0150), 1,6685 svissneska franka
(1,7260), 6,5925 franska franka
(6,5825), 2,2745 hollensk gyllini
(2,2824), 1.394,00 ítalskar lírar
(1.400,50) og 1,38425 kanadíska
dollara (1,3867).
Stefnt að föstu
olíuverði á ný
Quito, AP.
OLÍUMÁLARÁÐHERRAR fjögurra olíuríkja komu saman til viðræðna
I gær í Quito, höfuðborg Ecuadors. Létu þeir í ljós bjartsým með, að
þeim myndi takast að leggja grundvöll að föstu oliuverði á ný eftir
þriggja ára óstöðugleika á olíumarkaðinum í heiminum.
bilinu 13-15 dollarar tunnan.
Mörg aðildarríki OPEC styðja