Morgunblaðið - 11.12.1986, Page 2

Morgunblaðið - 11.12.1986, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986 Þrjú skip búin með kvótann 523.000 lestir af loðnu eru nú komn- ar á land frá upphafi vertíðar i sumar. Þrjú skip hafa lokið kvóta sinum; Jón Kjartansson SU, 21.700 lestir, Gísli Ámi RE, 17.800, og Svanur RE, 18.600 lestir. Á þriðjudag voru eftirtalin skip með afla: Guðrún Þorkelsdóttir SU 640, Keflvíkingur KE 370, Húnaröst ÁR 620, Víkurberg GK 560, Gígja VE 630, Bergur VE 50, Júpíter RE 1.300, Pétur Jónsson RE 840, Dagfari ÞH 500, Grindvíkingur GK 1.050, Bjami Ólafsson AK 1.050 og Helga II RE 520 lestir. Síðdegis á miðvikudag höfðu eftir- talin skip tilkynnt um afla: Harpa RE 530, Svanur RE 500, Rauðsey AK 620, Magnús NK 530, Guðmundur Ólafur ÓF 580, Fífill GK 650, Gull- berg VE 620, Þórður Jónasson EA 680, Öm KE 580, Gísli Ámi RE 650, Hilmir II SU 550 Sigurður RE 1.400, Erling KE 600, lsleifur VE 700, Há- kon ÞH 800, Jón Kjartansson SU 500, Albert GK 540 og Börkur NK 800 lestir. Pólýfónkórinn og Sinfóníuhljómsveitin á æfingu í Hallgrímskirkju MorgunblaðiÖ/Bjarni Jólaóratorían Messías í Hallgrímskirkju PÓLÝFÓNKÓRINN og Sinfóníuhljómsveit íslands flytja Óratorí- andi hljómsveitar og kórs er Ingólfur Guðbrandsson. Einsöngvarar á una Messías, eftir Georg Friedrich Handel í kvöld. þessum tónleikur verða Maureen Brathwaite, Sigríður Ella Magnús- Tónleikamir verða í Hallgrímskirkju og hefjast klukkan 20. Stjóm- dóttir, Ian Partridge og Peter Coleman—Wright. Sjá nánar bls. 14 Friðrik Sophusson; Skoðanakannanir við vörun á réttum tíma Morgunblaðið/Snorri Snorrason Jón Kjartansson með fullfermi á leið til hafnar „Stöðug bræla og eilífur skakstur“ „ÞETTA hefur verið hálfleiðin- leg vertíð. Nánast stöðug bræla síðan í byijun október og eilífur skakstur. Það hafa verið nokkrir klukkutímar á milli lægða, sem hafa nægt okkur til að kroppa smám saman upp í kvótann. Ann- ars erum við núna að berjast í vitlausu veðri fyrir Langanesið á leið heim til Eskifjarðar í lang- þráð jólafrí,“ sagði Þorsteinn Kristjánsson, skipstjóri á Jóni Kjartanssyni SU 111 frá Eski- firði. Þorsteinn sagði, að vertíðin hefði að öðm leyti verið þokkaleg og veiði góð þegar gefið hefði. Hins vegar hefði ekki verið mjög mikið af loðnu að sjá fyrr en nú, en þar sem fá skip hefðu verið við veiðam- ar framan af, hefði reynzt nóg handa öllum. Þorsteinn sagði, að loðnan væri svipuð og í fyrra, en lágt markaðs- verð á afurðunum og þar af leiðandi lágt verð fyrir loðnuna upp úr sjó, gerði sjómönnum erfitt fyrir. Síðustu túra hefði verðið reyndar verið orðið viðunandi, um 2.200 krónur á tonnið, þar sem hráefnis- skortur stæði mörgum verksmiðjum fyrir þrifum. FRIÐRIK Sophusson, vara- formaður Sjálfstæðisfloksins, sagði á aðalfundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykja- vik í gærkvöldi að skoðana- kannanirnar að undanförnu, sem sýna fylgistap flokksins, væru viðvörun á réttum tíma. Málefnastaða flokksins væri góð og hann hefði alla mögu- leika á að bæta stöðu sína. Friðrik taldi upp fjögur atriði sem hann sagði að skýrðu fylgistap flokksins í skoðanakönnununum. í fyrsta lagi umræðuna um málefni Hafskips og Útvegsbankans, en í báðum fyrirtækjunum hefðu þekktir sjálfstæðismenn verið í for- svari. í öðru lagi að fyrirhugaðar skattkerfisbreytingar sem væru umdeildar hefðu ekki verið nægi- lega vel kynntar. í þriðja lagi nefndi hann kvótakerfið í sjávarút- vegp og landbúnaði sem gengi gegn markaðstefnu flokksins. í fjórða lagi hefðu úrslit prófkjara í Reykjavík og víða úti á landi stund- um leitt til óánægju og sárinda. Hann taldi rétt að leggja áherslu á það í komandi kosningabaráttu að afhjúpa málflutning Alþýðu- flokksins og fullyrti að stefna flokksins væri mótsagnakennd og breytileg frá degi til dags. Enn- fremur taldi Friðrik nauðsynlegt að vekja skilmerkilega athygli á sterkri málefnastöðu Sjálfstæðis- flokksins og mjög góðum árangri núverandi ríkisstjómar. Beitingamenn aí'tur til starfa Keflavik. ALLT var með ró og spekt og unnið af fullum krafti við beit- ingu eftir hádegi í gær. Þá höfðu beitingamenn gengið að tilboði útvegsmanna. Þar var fallist á meginkröfu þeirra um slysa- og veikindarétti til samræmis við annað landverkafólk. Verkfall beitingamanna hafði staðið síðan á laugardag og í odda skarst sl. þriðjudagskvöld þegar Nígería: Reyndu að svíkja 35.000 pakka af skreið út úr íslendingum UPPVÍST hefur orðið um tilraun tveggja nigerískra fjármála- manna til að svíkja um 35.000 pakka af skreið að verðmæti um 280 milljónir króna út úr íslendingum. Það er blaðið Sunday Concord í Lagos í Nígeríu, sem greinir frá þessu þann 30. nóvem- ber síðastliðinn. Skreiðin, sem um ræðir, var flutt héðan síðari hluta sumars með skipinu Horsham á vegum íslenzku umboðssöl- unnar, Bjarna V. Magnússonar, og Sameinaðra framleiðenda. Af þessum sökum var skipið kyrrsett í Lagos og allar tilraunir til að selja skreiðina stöðvaðar. Morgunblaðið reyndi vegna þessa að ná sambandi við Bjama V. Magnússon, sem staddur er í Lagos í Nígeríu, en símasamband milli landanna náðist ekki. Árni Bjamason, starfsmaður íslenzku umboðssölunnar, staðfesti þessar fréttir í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði, að vonir stæðu til að svikamálið leystist endanlega fyr- ir daginn í dag. Að því loknu væri ekkert því til fyrirstöðu að selja skreiðina, þar sem samning- ar hefðu náðst. Hér fer á eftir hluti fréttarinnar í Sunday Concord: „í Nígeríu hef- ur komist upp um tilraun til stórkostlegra fjársvika, sem hefðu getað orðið landi og þjóð til vem- legs álitshnekkis erlendis. Vom það starfsmenn rannsóknarlög- reglunnar í Lagos, sem heyra aftur undir ráðuneyti lögreglu- og leyniþjónustumála, sem komu upp um svikin en þau snúast sam- tals um 30 milljónir næara. Haft er eftir heimildum innan lögreglunnar, að nú sé verið að yfirheyra tvo menn, M. Kanu, ættarhöfðingja og umsvifamikinn kaupsýslumann í Aba í Imo-fylki, og lögregluforingja í borginni, vegpia ásakana um „samsæri, til- raunar til fjársvika, falsana, valdníðslu og fjárkúgunar". Hermt er, að þeir hafí lagt á ráð- in um og soðið saman falskar ákæmr á hendur íslenskum manni, B. V. Magnússyni, „með það fyrir augum að hafa af honum með ólöglegum hætti 35.334 skreiðarpakka". Skreiðarsendingin, sem var á vegum B. V. Magnússonar, kom til Nígeríu 29. júní sl. og var farmskírteinið með númerinu 01. Kom hún til landsins með skipinu M.V. Horsham, sem þá var í leigu- flutningum fyrir skipafélagið African Ocean Lines Limited. Sakborningamir em taldir hafa beitt blekkingum og valdið því, að 31. október sl. var B. V. Magn- ússyni vísað frá Nígeríu. Var þetta liður í ráðabmggi þeirra og tilgangurinn sá að auðvelda þeim svikin." verkfallsverðir tóku 47 bjóð af vöm- bíl fyrir framan heimili Garðars Magnússonar, útgerðarmanns, í Njarðvíkum. Áður höfðu verkfalls- verðir hindrað Garðar í að koma bjóðunum um borð í bátinn Boða GK, þar sem þeir töldu hann hafa fengið þau beitt á fölskum forsend- um. „Þetta er töluvert tjón fyrir mig og báturinn kemst ekki á sjó í kvöld því beitan eyðilagðist þegar á hana rigndi við hús verkalýðs- félagsins í nótt,“ sagði Garðar Magnússon í samtaii við fréttaritara Morgunblaðsins í gær. Garðar sagði að hann teldi aðgerðir beitinga- manna ólöglegar. Garðar kærði málið á þriðjudagskvöid. Nú fá beitingamenn greiddar 420 krónur fyrir bjóðið með því að vinna við afgreiðslu bátsins, en höfðu áður 376 krónur. Þessar tölur eru án orlofs. - BB Systumar Sigríður og Ásta Gunnarsdætur unnu af kappi við beitingu í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.