Morgunblaðið - 11.12.1986, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986
3
Snjógöngin aÖ dyrum bamaheimilsins minna á bæjargöng frá 1
gamla daga. í dyrunum stendur Christine Brown en hún var að
fara með dóttur sina i „siýóhúsið11.
Moryunblaðið/EFG
Baraaheimilið á Flateyri hefur nánast fennt í ltaf en börain voru ekki sérstaklega óánægð þegar
þau uppgötvuðu að barnaheimilið var orðið að tilbúnu snjóhúsi.
Fólk aftur flutt úr húsum
vegna krapahlaupshættu
FUteyri.
VEGNA krapahlaupshættu úr Eyrarfjalli fyrir
ofan Flateyri við Önundarfjörð var íbúum 9 húsa
efst í bænum gert að fara úr húsum sínum í
gærmorgun. Þessar fjölskyldur, sem i eru um
30 manns, vora einnig fluttar burtu á mánudag
vegna snjóflóðahættu en hættuástandi var aflýst
á þriðjudag. Síðan hefur ekki snjóað en í fyrri-
nótt var rigning og krap og því var fólkið aftur
flutt burtu.
Snjóflóð hafa aldrei svo vitað sé fallið á staðinn
sem þessi 9 hús eru á, en þau hafa fallið utan og
innan við þann stað. Erfitt hefur verið að meta snjóa-
lögin í EyrarQalli vegna myrkviðris, en undanfarið
hafa fallið spýjur úr giljum utan við eyrina, og al-
mannavamamefnd bæjarins vildi því ekki taka
áhættuna af að hafa fólkið í húsunum. Þessi hús eru
öll nýlega byggð og vom ekki talin á snjóflóðasvæði
og fyrir ofan þau em snjóflóðakeilur í fjallinu til
vamar.
Mikill snjór er nú í öllu þorpinu, og mun meiri í
efri byggðunum, þó hann sé ekki eins mikill og í
ársbyijun 1982. Miklu hefur verið mtt af götum
þorpsins, og fór svo að lokum að bæði snjómðnings-
tæki bæjarins biluðu. Síðan hefur verið notast við
snjómðningsbíl frá vegagerðinni. En þó snjórinn
valdi fullorðna fólkinu erfiðleikum er mikið um dýrð-
ir hjá bömunum, eins og meðfylgjandi myndir bera
með sér. EFG