Morgunblaðið - 11.12.1986, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 11.12.1986, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986 Ný reyrhúsgögn í fjölbreyttu úrvali. T.d. sófa- sett, stakir stólar, hillur, borð, blaðagrindur, ruggustólar, tevagnar o.fl. Mjög hagstætt verð BÚSTOFN Smiðjuvegi 6, Kópavogi símar 45670 — 44544. Jólaglaðningur frá B.B. Borvél Barnastóll kr. 1.150,- Verkfærakassar "7\ * Frá kr. 745,- TopplyJklas^tí Hlutlr sem gera gagn B.B. BYGGINGAVÖRUR HEj SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331. Enga stæla Bókmenntir Sigurður Haukur Guðjónsson Höfundur: Andrés Indriðason. Kápa: Brian Pilkington. Prentverk: Oddi hf. Útgefandi: Mál og menning. Mér fínnst alltaf undurgaman að fá bók úr hendi Andrésar, svo margt sem piýðir þennan, einn okkar allra beztu höfunda, er skrifa fyrir ungt fólk. Jón Agnar Pétursson, söguhetjan okkar, er enn á mörkum bemsku og manns. Það er óttinn, óttinn við allt og alla, sem setur svip á líf hans. Hann er hræddur við sjálfan sig: „Var ekki Sylvester Stallone ein- mitt smá stubbur þegar hann var lftill? Það stóð að minnsta kosti f einhveiju blaði að hann hefði varla staðið fram úr hnefa. Það hefur heldur betur ræst úr þeim manni! Hann haliar höfðinu upp að veggnum og hugsar út í þetta. Hann er ekki frá því að það sé einmitt byijað að rætast heilmikið úr honum. Það hefur tognað úr honum síðan hann kom í skólann um áramótin og röddin hefur líka lagast, hún er orðin dýpri og karl- mannlegri. Og dúkkufésið er að hverfa. Hann er ekki nærri því eins hvítur og sléttur og Barbílegur og hann var þegar hann kom frá Eyj- um. Bara verst hvað hann er ferlega góðlegur. Og sakleysislegur. Stundum hefur hann verið að pæla í því hvað hann gæti gert til að virka töff. Hann gæti til dæmis tekið hárið í gegn, hann gæti litað þetta fagur- ljósa strý kolbikasvart. Eða fjólublátt sem væri auðvitað miklu áhrifaríkara. líða bara kýlt á skalla! Nei, hann yrði svo ferlega ljótur með hausinn eins og glansandi egg. Hann gæti búið til gatasigti úr eyrunum og raðað í þau dóti. Og sett hring í nefið. Hann gæti, ef hann vildi, gert sig svo ógeðslega töff að Lilli yrði beinlínis hallærislegur við hiiðina á honum, alger lúði.“ Og hann er hræddur við þessa svola, sem líkam- lega hafa náð vexti, en eru enn með bamssálir, svo að það eru orð úr sandkassa og hnefaréttur leik- vallarins sem setja svip á athafnir þeirra allar. Jón Agnar á draum um að verða stór og stæltur, karl f krapinu, Sylvester Stallone, — geta sýnt Ragnhildi Sveinbjöms- dóttur hver hann í raun og vem er. Andrés, höfundur, sér til þess að það tekst. Þau skötuhjúin lenda ekki aðeins saman í sumarvinnu, heldur líka í hinum æsilegustu æv- intýmm, — koma upp um innbrot í skóla, og gömlum glæparokkum undir lás og slá á ný. Það er gaman að lesa svona sögu, sögu þar sem verið er að fást við mannlegar kenndir. Snáðann þekkja allir karlar úr bijósti sér, og slíkt gerir bókina góða. Stíll höfundar er leikandi léttur, en sorglegt er, að slfkan stíl sjáum við helzt hjá þeim sem em um miðj- an aldur eða þar yfir. Annað virðist undantekning, og hlýtur að vekja spumir. Andrés líkir eftir tali ungl- inga. Stundum finnst mér hann ganga of langt i þeirri eftiröpun: Hveiju er eiginlega hægt að stela héma? — Það er alltaf eitthvað, blessuð góða. Kannski vídeótæki. Eða græj- ur. Eitthvað sem er auðvelt að koma í verð. Svo hafa sumir ekki áhuga á neinu. Hafa bara gaman af að bijóta og bramla. Fá víst rosalegt kikk út úr því. Hún dæsir. Veit ekki sitt ijúk- andi ráð. Reynir að bræða með sér hvort hún eigi að skrúfa sig út úr Borgarar fá vatn í munninn Bökmenntir Jóhann Hjálmarsson Jónas E. Svafár: SJÖSTJARNAN í ME YJ ARMERKINU. Myndljóð. Vaka/Helgafell 1986. Sjöstjaman í meyjarmerkinu er eins konar sýnisbók ljóða Jónasar E. Svafár. í henni eru gömul ljóð og ný, breytt ljóð og endurskoðuð. Jónas er sérkennilegt skáld og ekki spilla myndskreytingar hans við ljóð sín. Þessar myndir eru strangar í formi, oft í anda geó- metrískar afstraktlistar, en fyrst og fremst sálarspeglamir, túlkun innri heima. Það em nú bráðum fjörutíu ár sfðan þetta síunga atómskáld kvaddi sér hljóðs. Fyrsta bókin hét því einkennandi nafni Það blæðir úr morgunsárinu (1952). Svo komu Geislavirk tungl (1957) og heildar- útgáfan Klettabelti fjallkonunnar (1968). Manni finnst stundum að Jónas hafi alltaf verið að yrkja sama ljóðið og teikna sömu myndimar. Við þá iðju hefur Jónas vandað sig og glatt marga lesendur, suma kannski hneykslað í fyrstu. Ýmislegt í ljóðum Jónasar E. Svafár er orðið klassísk og það er ekki óalgengt að hitta fólk sem kann heil ljóð eða hendingar úr ljóð- um hans. Hvað til dæmis um Landfestar þar sem þetta erindi gleymist ekki: „minn draumur er í dósum/ dísin mín/ við hamingjunni hrósum/ sem höfum notið þín/ en aðrir reyna allt sitt líf/ að eignast dósahníf". Og hvað segja lesendur Jónasar um línur eins og þessar, dæmigerðar fyrir skáldið: „vinna vélbyssur að vélritun/ á sögu mannsins". Eða ástarjátningu til íslands sem felst í tveimur línum: „mold minnar/ hjartarótar“. Þannig mætti halda áfram að tína upp gullkom Jónasar. Svo geta menn farið að spyija hvað geri. Jónas að atómskáldi af því að stundum rímar hann og stundum fær hann sér ljóðstafi til hjálpar. Nýstárleiki Jónasar er ekki síst fólginn í því að hann er fullkom- lega einlægur. Auk þess hefur hann gaman af að sýna hlutina í nýju og óvæntu samhengi, koma á óvart. Hann hefur endaskipti á því við- tekna sýnist honum svo. Og hann hefur gaman af orðaleikjum og hverskyns glímu við málið eins og skáld yngri kynslóðar. Þegar Jónas er að yrkja ný til- brigði við eldri ljóð sín tekst honum ekki alltaf jafn vel. Ég vil líta svo á að ljóðin séu bara til í mörgum útgáfum og ekki sé nauðsynlegt að fara alltaf eftir nýjustu útgáfu. Gömlu útgáfumar geta verið betri, samanber Eva hrópar og fleiri ljóð. í ljóðunum f Sjösljömunni í meyjar- merkinu sem ekki hafa birst áður í bók (t.d. Vertíðar-Faðirvor, Stræt- isvagnar Reykjavfkur og Rannveig) er Jónas skemmtilegur að vanda og leyfir sér mikið frjálsræði í ljóð- rænni túlkun. Þessi ljóð eru ekki betri en gömlu ljóðin, en gott fram-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.