Morgunblaðið - 11.12.1986, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986
Um virðisaukaskatt
eftir Halldór Jónsson
Mikið er nú rætt um virðisauka-
skatt (VASK) og sýnist sitt hverj-
um. Þar sem mér er ekki grunlaust
um, að ýmsir vildu glöggva sig lítil-
lega á þessum skatti, þá ætla ég
að reyna að setja saman nokkrar
skýringar á fyrirbærinu og draga
fram kosti og galla. Tel ég þetta
nauðsynlegt, þar sem fjármálaráð-
herra beitir öllu afli til þess að túlka
skattinn þannig fyrir almenningi,
að hann renni í gegnum Alþingi nú
fyrir jól, og að fólk haldi að hér sé
um óumdeilt fagnaðarerindi að
ræða. En það kann að orka tvímæl-
is.
Stutt skilgreining
Virðisaukaskattur er söluskattur,
sem leggst á flestar tegundir vöru
og þjónustu. Hann er hægt að hafa
misháan eftir greinum. Ekki er erf-
iðara að koma við undanþágum í
virðisaukaskattkerfí en í öðrum
skattkerfum, þótt slíku sé stundum
haldið fram.
Munurinn á virðisaukaskatti og
söluskatti er að VASK er fjölstiga
skattur og greiddur í hvert sinn sem
verðmæti skipta um hendur. En
hver aðili skilar aðeins skatti af
þeim virðisauka, sem verðmætið
fær í höndum hans sjálfs. Við upp-
gjör reiknar hann skatt ofan á
söluverð sitt en dregur áður greidd-
an virðisaukaskatt frá þeim reikn-
ingi og greiðir ríkissjóði mismuninn.
Af þessu sést, að skatturinn safn-
ast ekki upp með því að leggjast
mörgum sinnum ofan á einstaka
verðþætti vöru, eins og fundið er
söluskatti til forráttu. Iðnfyrirtæki
kaupir til dæmis raforku og að-
keypta vélavinnu með söluskatti til
framleiðslu sinnar og leggur síðan
söluskatt ofan á útsöluverð sitt til
neytandans, sem þá hefur tvíborgað
söluskatt af sumum framleiðslu-
þáttunum. í virðisaukaskattkerfínu
borgar hann aðeins einu sinni sölu-
gjaldið. Þetta er meginkostur þessa
skattkerfís umfram söluskattskerf-
ið eins og við rekum það í dag.
Af þessum ástæðum er hægt að
halda því fram að skatturinn geti
verið hlutlaus gagnvart atvinnu-
rekstri. En eigi hlutleysi að ríkja,
má ekki skekkja myndina með sér-
stökum aðgerðum í þágu einstakra
hópa.
Rökin fyrir kerfis-
breytingn
Margt hefur verið gert í okkar
söluskattskerfí til þess að það verði
hlutlaust gagnvart framleiðslu.
Fyrirtækjum í sumum greinum er
endurgreiddur uppsafnaður sölu-
skattur. Önnur kaupa inn hráefni
án söluskatts, flytja inn vélar til
framleiðslu í samkeppnisiðnaði án
söluskatts o.s.frv. þannig að nú
orðið er uppsöfnun aðeins orðin á
bilinu 1—3% að því að talið er í
iðnaði. Gallinn er hinsvegar sá, að
allar þessar reglur eru settar til
þess að þóknast sumum aðilum í
þjóðfélaginu en öðrum ekki. Þess-
vegna er söluskattskerfí okkar orðið
margslungið og flókið, sem það
þyrfti alls ekki að vera, ef ekki
þyrfti sífellt að friða einhveija hópa
með sérþarfír.
Halldór Halldórsson
— Bókin sem varð til vegna
leiðtogafundarins
HALLDÓR HA1.LDÓRSSON
í LANDI
REAGANS
★ ★ ★
★ ★ ★
S*:
^ ★
FERÐAKAFLAR FRÁ BANDARÍK.JUNUM
l>l ITA ERl' EERfJAMIN'NLNCiAR MANNS SLM HEFUR FERÐASI SVO
MÁNL'ÐUM skiptir lm bandaríkin í bIl. i.est og flugvél.
MEfíAI KAFLA KRL
BII.TMORK HOLSE. STÆRSTA EINBÝLISHÚS VERALDAR • ViÐ GRÖF
BILLY THE KID • RISAFL.UGBÁTUR HOWARD HUGHES OG QLEEN
M ARV* Á SKEMMTLN HJÁ BOB HOPE • FILMSTJÖRNLR I HOLLYWOOD
• STYTTUR OGMINNISMERKITENGT JSLANDI• HÚS PRESLFYS í MEM
PHIS • l ÖGREGLAN í BANDARÍKJLNLM • EYJ.A RIKA FÓI.KSINS •
ORRLSTLSKIP III. SÝNIS • í RENO OG LAS VEGAS • í ÍSI.ENDINGA
BYGGÐUM í BANDARJKJLNUM OG KANADA • BOYSTOWN I OMAHA
í NEBRASKA • í YELI.OWSTONE ÞJÓÐGARDINLM • Á RODEO I C’ODY I
WYOMINC.RIKI • VEGAKF.RFIÐ I BANDARlK.IUNLM • FI.AKKAD LM
BANDARÍKIN.
— Sérstæð og skemmtileg bók — ævin-
týralegur ferðamáti f landi Reagans
Fjármálaráðherra vor segir, að
undanþágumar séu orðnar of mikl-
ar í söluskattinum. Auk þess sem
söluskatturinn sé ranglátur að því
leyti, að hann safnast upp í vöru-
verði og rýrir samkeppnishæfni
íslenzks iðnaðar. Með því að leggja
sömu prósentu á flesta hluti, nema
sérstaka prósentu á landbúnað og
fískveiðar (fyrsta undanþágan), auk
alveg undanþeginna sviða, svo sem
til menntunar, heilbrigðisþjónustu,
fólksflutninga o.fl., þá hverfi allar
bollaleggingar um skattskyldu eða
ekki. Niðurgreiðslur verði notaðar
til þess að bæta fólki skattlagningu
matvæla og húsnæðiskostnaðar,
enda þessir þættir viðkvæmastir
fyrir lágtekjufólk. Hinsvegar eyðir
hátekjufólk minni hluta tekna sinna
í matvæli og húsbyggingar, þannig
að hér verður aukið á mismunun í
þjóðfélaginu, sem mörgum þótti
ærin fyrir.
VASK muni hugsanlega skila sér
betur, þegar innheimtuaðilum fjölg-
ar úr 9.000 í 22.000, auk þess sem
skatturinn gæti skilað sér betur en
söluskatturinn er talinn gera, vegna
einskonar innra eftirlits sem felst í
kerfínu. Margir telja samt ekki
mikið upp úr þessu leggjandi, aðrir
meta þetta til um 4%, sem VASK
gæti verið lægri af þeim sökum en
nú er ráðgert.
Rökin á móti kerfis-
breytingrinni
Nauðsynlegt er að greina að
hugmyndir um virðisaukaskatt, sem
hafí til að bera umrætt hlutleysi
og þess virðisaukaskattkerfis sem
fjármálaráðherra boðar.
Kerfí fjármálaráðherra byggist á
mjög hárri skattprósentu, 24%.
Halldór Jónsson
„Því er mikil nauðsyn
á, að fólk kynni sér
þessi mál eftir fremsta
megni sjálft, en varist
að láta einhliða áróður
eins og fjármálaráð-
herra hefur beitt sér
fyrir, og nokkrir há-
værir sérfræðingar í
iðnaði og verzlun hafa
tekið undir.“
Hluta tekna af skattinum gefur
hann til kynna, að verði notaður til
þess að milda höggið, sem almenn-
ingur verður fyrir, þegar VASK
leggst af fullum þunga á matvæli
og vinnuþátt í verði íbúða fólks.
Um framhaldið er hann fáorður.
Aðstoðarmaður hans hefur látið að
því Iiggja, að síðar verði dregið úr
niðurgreiðslunum. Þá muni koma
til álita að lækka skattinn.
Menn athugi hér gaumgæfílega,
að boðaðar hliðarráðstafanir hafa
Barnagallar kr. 2090.-
Fullorðins kr. 2860.-
Fullorðins m. kraga kr. 3235.-
Póstsendum samdægurs
Laugavegi 62.
Sími 13508.