Morgunblaðið - 11.12.1986, Page 31

Morgunblaðið - 11.12.1986, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986 31 Jennifer Partridge Ian Partridge Fágaður einsöngur Tönlist Jón Ásgeirsson Systkinin Jennifer og Ian Partridge héldu tónleika á vegum Tónlistarfélagsins í Austurbæjar- bíói sl. laugardag og fluttu ljóðatón- list eftir Schubert, Faure og Duparc en seinni hluti tónleikanna saman- stóð af enskri söngtónlist. Ian Partridge er feikna góður söngvari og sérkennilega aðlaðandi, því leng- ur sem á hann er hlýtt. Túlkun hans er öll á mjúku nótunum og það sem vantar á í styrkleikaátök- um, bætir hann upp með feiknalegri ögun og fínni tækni. Systir hans, Jennifer Partridge, kann fullkom- lega þá list að leggja söngvaranum til mjúklega sleginn tóninn í undir- leiknum, sem var sérlega fallegur í lögum Faure, fimm lögum eftir Berkeley, og reyndar öllum ensku lögunum. Það má vera, að nokkuð gæti þess hjá undirrituðum, að þykja Schubert ekki alls kostar eiga vera of fínlega fluttur, heldur megi syngja hann „út“. Söngur Partridge hefði mátt vera kraftmeiri og ork- aði einum og daufur í flestum Schubert-lögunum, nema þá helst í því síðasta, Bei der Allein. í lögum Faure var söngurinn mjög fallega útfærður, einkum í Nell og Aprés un reve. Það var í ensku lögunum sem Partridge náði sérstakri ball- öðustemmningu. Lögin þijú eftir Arne og þá sérstaklega Come Away Death voru frábærlega fallega sungin. Seinni hluti tónleikanna á eftir lögum Tómasar Ame, telst til nútímasönglistar Englendinga og var mest nýnæmi í að heyra fimm lög eftir Lennox Berkeley, við texta eftir A.E. Housman. Berkeley hóf seint að nema tónlistarfræði og rejmdar ekki fyrr en hann hafði lokið prófi frá Oxford árið 1926. Þá hélt hann til Parísar og stund- aði nám hjá Nadiu Boulanger. Eftir hann liggja óperur, ballettar, óra- toríur, þtjár sinfóníur ogýmis konar kammertónverk. Þessi lög við kvæði Housman eru fallega unnin og voru sérlega hlýlega flutt. Við frægan texta eftir Yeats er nefnist Sally Gardens og Benjamin Britten hefur gert frægt, hefur annar Breti, Ivor Gumey, samið lag við og var það mjög fallega flutt af Partridge. Gumey var einn af þeim er átti um sárt að binda eftir þátt- töku í fyrri heimsstyijöldinni. Eftir Armstrong Gibbs, sem var prófess- or við Royal College of Music í London, fluttu systkinin eitt lag og tvö eftir Roger Quilter, er var einn- ig aldamótamaður. Síðastur Eng- lendinganna var Peter Warlock, sem einnig notaði nafnið Philip Heseltine. Hann var mikill áhuga- maður um gamla tónlist og ritaði nokkuð um það efni en sem tón- skáld er hann þekktur undir fýrra nafninu. Lögin þijú eftir Warlock eru mjög skemmtilega unnin, sér- staklega In an Arbour Green og síðasta lagið Pretty Ring Time. Eins og fyrr sagði er tónmyndun og tónmótun hjá Pertridge mjög finleg og auk þess var samspil systkinanna í allri túlkun sérlega samstæð. Trúlega á söngur hans einkar vel við þá tækni sem nú er í hljóðritun, þar sem yfírburðakunn- átta hans og fáguð tónmyndun nýtist betur en mikill tónstyrkur. Sófi og2 stólar, stgr. verðkr. 68.000.- Einlitt pluss-áklæði, margir litir. Ný sending af rokokkó-húsgögnum. Borðstofuborð og stólar, stakir ro- kokkó-stólar. Símabekkir, smáborð allt í rokokkó-stíl. Hagstætt verð. SENDUM GEGN POSTKROFU VALHÚSGÖGN Ármúla 8, símar 685375 — 82275 Mömmur, pabbar, afar, ömmur, frænkur, frændur GEFIÐ UNGU FRUMBÝLINGUNUM FRÁBÆR GJÖF OG KÆRKOMIN Þau eru að byggja eða lagfæra gamalt húsnæði og næstum allt vantar í nýja heimilið - eins og útidyrahurð, flísar, bað o.fl. o.fl. Hvað á að velja? Hvað gleður þau mest? Auftvltaö er erfltt aö velja fyrlr aöra. Ekki viltu gefa peninga, ekki viltu heldur spyrja hvað vanti. Hvað skal þá gera? Gjafabréflö frá Byko leyalr úr beaaum vanda. Það gefur handhafa kost á að velja sjálfur byggingavörurnar í Byko, en þar fæst því sem næst allt í húsið. Upphseöln er þltt val. Þú ákveður upphseo gjafabréfsins, sem er fallega teiknað og áritað þeim er gjöfina fær. Tilefnið getur verið hvað sem er. Það blrtlr yflr búskapnum með GJAFABRÉRNU FRÁ BYKO KÓPAVOGI SÍMI 41000 HAFNARFIRÐI SIMI 54411 AUK hf. 10.72/SlA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.