Morgunblaðið - 11.12.1986, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986
Prófkjör Alþýðuflokksins í Vestfjarðakjördæmi
Karvel sigraði Sighvat
með 174 atkvæða mun
KARVEL Pálmason alþingis-
maður sigraði Sighvat Björg-
vinsson fyrrverandi alþingis-
mann i prófkjöri Alþýðuflokks-
ins í Vestfjarðakjördæmi.
Karvel fékk 698 atkvæði
(55,4%) í 1. sætið, 174 atkvæð-
um fleira en Sighvatur sem
fékk 524 atkvæði (41,6%) í það
sæti. Próflgörið fór fram fyrir
nokkru en niðurstöður lágu
ekki fyrir fyrr en í gærmorgun.
Tæplega 1.300 manns tóku
þátt í prófkjörinu, en 30—40 at-
kvæði voru ekki talin með þar sem
þátttakendumir eru fluttur burtu
úr kjördæminu eða höfðu greitt
atkvæði of seint. 1.260 atkvæði
komu því til talningar. Þar af
vom 38 auð eða ógild, Karvel
fékk 698 atkvæði í 1. sætið og
Sighvatur 524. Kosið var í 1. og
2. sætið og hefur Sighvatur vænt-
anlega fengið 698 atkvæði í það
sæti og Karvel 524 því þeir vom
einir í framboði en þátttakendur
skyldugir til að raða í bæði sætin.
Kjömefndin lét duga að gefa út
tölur um úrslit keppninnar um
fyrsta sætið í gærmorgun eftir
erfíða „kosninganótt".
Það tók lqomefndina hátt í
sólarhring að undirbúa talning-
una, úrskurða í deilumálum og
telja atkvæðin. Byijað var um
miðjan dag á þriðjudag og úrslit
lágu ekki fyrir fyrr en undir há-
degið í gær.
Agreiningur var um hvort hluti
greiddra atkvæða væri gildur og
gengu trúnaðarmenn Sighvats af
fundi kjömefndar í fyrrinótt þegar
þeir urðu undir í kjömefndinni.
Einn þeirra, Pétur Sigurðsson for-
seti Alþýðusambands Vestijarða,
sagði í gær að þeir teldu að ekki
hafí verið rétt staðið að málum
samkvæmt prófkjörsreglum. Þá
hefði kjörstjómin neitað að kalla
kjördæmisráðið saman til að úr-
skurða um ágreiningsefni áður en
talning hófst og }rfírkjörstjóm tek-
ið sér það vald að eyðileggja
kjörgögn með því að blanda þeim
atkvæðum sem ágreiningur stóð
um, saman við önnur. Hann
nefndi sem dæmi um ágreinings-
efni að skrítið væri að fá fjölda
atkvæða frá Súðavík þar sem
menn hefðu talið að varla væri
til krati. Þama væri hópur sem
tekið hefði þátt í prófkjörum hjá
þremur stjómmálaflokkum á
stuttum tíma. Þátttaka í prófkjöri
þar virtist vera skemmtun eins
og þátttaka í lottói eða öðru slíku.
Öllum fyrir bestu
að umskipti verði
- segir Karvel Pálmason um skipan 2. sætis listans
„ÉG FAGNA að sjálfsögðu
þessum úrslitum. Ég átti ekki
von á þetta miklum mun en
gerði mér þó vonir um að sigra.
Aðrir þátttakendur létu reynd-
ar að því liggja að ég myndi
ekki sigra en niðurstaðan ligg-
ur nú fyrir og verða allir að
taka henni,“ sagði Karvel
Páimason alþingismaður um
niðurstöður prófkjörsins.
Aðspurður um afstöðu til skip-
an annars sætis listans, það er
hvort hann teldi rétt að Sighvatur
Björgvinsson skipaði það, sagði
Karvel: „Það er ekki komið að því
að taka afstöðu til þess. Ég lýsti
því yfír fyrir prófkjörið að mitt
pólitíska framhaldslíf réðist af því
hvort ég hlyti 1. sætið. Ég hygg
að öllum sé fyrir bestu að um-
skipti verði. Það er hlutverk
kjördæmisráðs að taka við málinu,
nú þegar niðurstöður liggja fyrir.“
„Það hafa engin hörð átök orð-
ið á milli okkar Sighvats," sagði
Karvel er hann var spurður um
átökin í Alþýðuflokknum á Vest-
flörðum vegna prófkjörsins. „Það
hafa engar kvartanir komið frá
okkur vegna prófkjörsins. Allar
kvartanir hafa komið hinum meg-
in frá. Ég hef ekki kannað öll
þessi mál, en sumt af því sem ég
hef heyrt um er fáránlegt og síst
til þess fallið að styrkja stöðu
Alþýðuflokksins. Þar á ég til
dæmis við kröfur um ógildingu
atkvæða manna sem fullan rétt
áttu á að taka þátt í prófkjörinu."
Karvel vildi koma á framfæri
þakklæti til stuðningsmanna
sinna, sigurinn væri ekki síst
þeirra.
Svona val á frambjóðend-
um gengur ekki lengur
- segir Sighvatur Björgvinsson
„ÚRSLITIN eru ljós. Þau eru
nokkuð afgerandi og óska ég
Karvel til hamingu með niðurstöð-
una,“ sagði Sighvatur Björgvins-
son, fyrrverandi alþingismaður,
um niðurstöðu próflgörsins.
Sighvatur sagði að meiri munur
hefðu orðið á þeim Karvel en hann
hefði átt von á. Hann hefði hins
vegar gert sér grein fyrir erfíð-
leikum þess að ráða í úrslitin
þegar þátttakan hefði orðið þetta
mikil. Aðspurður um hvort hann
tæki 2. sætið ef það stæði til boða
sagði Sighvatur að kosið hefði
verið í 1. og 2. sætið í prófkjörinu
og lægju þar fyrir úrslit sem hann
taldi að væru bindandi hvað varð-
aði bæði sætin. „Hins vegar lít
ég svo á að hvorki ég né kjördæ-
misráðið sé bundið af niðurstöð-
unum. Við veljum vonandi það
besta," sagði hann.
Spurður um þau deilumál sem
risu við framkvæmd prófkjörsins
sagði Sighvatur: „Mér fínnst það
afskaplega slæmt þegar menn
sem tapað hafa prófkjörum eru
að gagnrýna þau. Þetta mál á sér
hins vegar nokkum aðdraganda.
Ifyrir Qorum árum tókumst við
Karvel á í prófkjöri og sigraði
hann með 24 atkvæða mun og
komu þau úrslit ennþá meira á
óvart en úrslitin nú. Eftir á kom
í ljós að það var ekkert vafamál
að úrslitin réðust af annarra
flokka fólki sem þátt tók í próf-
kjörinu. Öllum kjörgögnum var
hins vegar eytt og ekki var hægt
að sanna neitt í þessum efnum.
Núna var reglunum breytt til að
koma í veg fyrir þetta en það
dugði þó ekki til að koma í veg
fyrir að þetta gerðist aftur. Ég
er auðvitað óánægður með að
þessum nýju reglum skuli ekki
hafa verið fylgt og réttur okkar
til að skjóta ágreiningsmálum til
kjördæmisráðs til úrskurðar hafi
ekki verið virtur. Hvort að þetta
hefur ráðið úrslitum get ég ekki
dæmt, þar verður hver að dæma
fyrir sig. Þá má einnig segja að
flokksbundið fólk í öðrum flokkum
sem kosið hefur í prófkjörum hjá
tveimur öðrum flokkum skömmu
áður, hefur ekki kosið í prófkjör-
inu hjá okkur nema það hafi verið
hvatt til þess. Ég veit líka um
nokkur dæmi þess.
Aimennt séð þá held ég að
menn sjái að svona val á frambjóð-
endum gengur ekki lengur. Maður
veltir því reyndar fyrir sér hvern-
ig það fólk hugsar sem teftur þátt
í þremur prófkjörum hjá jafn
mörgum flokkum á tíu dögum og
undirritar stuðningsyfírlýsingar
við þá alla. Út á hvaða braut eru
prófkjörin komin þegar svona er
komið? Hvað er að marka niður-
stöðumar og það fólk sem þetta
gerir?“
- Hvert er álit þitt á þeim af-
skiptum sem formannshjón
Alþýðuflokksins eru sögð hafa
haft af prófkjörinu?
„Mér finnst að hlutverk for-
mannsins sé að varðveita einingu
í flokknum en ekki að efha til
ófriðar. Það eru ekki eðlileg
vinnubrögð hjá þeim að hafa af-
skipti af prófkjörum í öðrum
kjördæmum en sínu eigin. Ég
reikna með að þau telji sig bæði
hafa nokkur áhrif, en hversu mik-
il þau eru get ég ekki dæmt um.“
— Hver er pólitísk framtíð þín
eftir þetta próflqor, ert þú hættur
afskiptum af stjómmálum?
„Um það get ég ekki dæmt á
þessari stundu. Ég hef enga
ákvörðun tekið enn. Ég er bara
ánægður með að þessu prófkjöri
skuli vera lokið," sagði Sighvatur.
Tómas Þorvaldsson.
sem nú heyrir fortíðinni til;
tímum, sem eru liðnir og koma
ekki aftur. Tómas gerist kom-
ungur sjómaður, kynnist ára-
skipum í bemsku og var sem
unglingur á trillu, þegar vélar
höfðu verið settar í opnu bát-
ana. Hann tók þátt í verkalýðs-
baráttu á tímum kreppu og
allsleysis, en varð síðar útgerð-
armaður og settist þá hinum
megin við samningaborðið.
Með þátttöku sinni í björgun-
arstarfi og slysavömum vann
hann ötullega að því að bæta
aðstöðu og öryggi sjómanna, og
hann hefur ferðast um heiminn
þveran og endilangan til að selja
fískafurðir okkar á sem hag-
Ævidagar Tómasar Þor-
valdssonar útgerðarmanns
- Bók Gylfa Gröndal komin út
BÓKAÚTGÁFAN Setberg
hefur gefið út bókina Ævi-
dagar Tómasar Þorvaldsson-
ar útgerðarmanns eftir Gylfa
Gröndal.
í fréttatilkynningu frá útgef-
anda segir m.a.: „Ýtarlega er
sagt frá mannlífí og menningu,
stæðustu verði. „Leið mín hefur
legið frá gamla íslandi til hins
nýja“, segir Tómas á einum stað
í bókinni, „frá kröppum kjörum
til allsnægta, frá þrotlausu striti
til þæginda og tækni nútím-
ans.““
Bókin er piýdd yfír 100 ljós-
myndum.
Ævintýraheim-
ur Armanns
Bók eftir Ármann Kr. Einarsson
V AKA-HELG AFELL hefur gefið
út bók í bókaflokknum Ævin-
týraheimur Ármanns. Hvalveiði-
menn í bjarnarklóm heitir bókin
og er endurskoðuð útgáfa sögu
Armanns Kr. Einarssonar er út
kom árið 1965 og hét þá Óli og
ri á ísjaka.
' fréttatilkynningu frá útgefanda
segir m.a.: „Að þessu sinni gerast
þeir Óli og Maggi hvalveiðimenn í
norðurhöfum. Þeir félagar komast
oft í hann krappann ásamt áhöfn-
inni. Skipið lendir meðal annars í
hafís og Óli, Maggi og áhöfnin
þurfa að kljást við grimma ísbirni
og er um tíma tvísýnt um hvemig
sá hildarleikur endar.
Þetta er hörkuspennandi saga
fyrir alla krakka og ætti hún ekki
síst að vekja athygli nú vegna þeirr-
ar miklu umræðu sem verið hefur
um hvalveiðar íslendinga." Armann Kr. Einarsson.
Skotland:
Norrænn sýnmgar
salur í St. Andrews
Guðmundi Heiðan Frímannssyni,
Á mánudag var opnaður nýr
sýningarsalur, Norræni list-
sýningasalurinn, i St. Andrews
í Skotlandi. Eigendur og
stjórnendur salarins eru Derek
Vaughan og kona hans, Elín
Bjarnadóttir. Fyrsta sýningin
er á myndum Hauks Halldórs-
sonar.
Að sögn Dereks vildu þau hjón-
in efla tengslin við ísland og
Norðurlöndin, samband, sem ætti
sér langa sögu, og hefðu sendiráð
ntara Morgunblaðsins í Skotlandi.
þessara landa sýnt málinu mikinn
áhuga og Flugleiðir styrkt sýn-
ingu Hauks.
Þau hafa leitað víða fanga, t.d.
í Skotlandi, á Orkneyjum, Hjalt-
landi, Suðureyjum, á íslandi og
öðrum Norðurlöndum, en ekki
stendur þó til að vera eingöngu
með list frá þessum löndum. Nú
þegar hefur verið ákveðið, að
Ghanabúi, sem er við nám við
háskólann í St. Andrews, muni
sýna höggmyndir og tréskurðar-
list.
fMttgmilfttifrife
Metsölublcid á hverjum degi!