Morgunblaðið - 11.12.1986, Síða 40

Morgunblaðið - 11.12.1986, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986 Vopnasölumálið er ekki annað Watergate - segir Shultz utanríkisráðherra Washington, Briissel, AP, Reuter. GEORGE SHULTZ, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagði i gær að hann hefði fullvissað starfsbræður sína í Vestur- Evrópu um að vopnasöluhneyks- lið í Washington væri ekki annað Watergate. Shultz lét þessi orð falla i flugvél sinni á leið frá London, þar sem hann ræddi við Sir Geoffrey Howe frá Bret- landi, Hans Dietrich Genscher frá Vestur-Þýskalandi og Jean Bernard Raimond frá Frakkl- andi. Shultz sagði við blaðamenn á leiðinni til Brussel að hann hefði rætt vopnasölumálið við starfs- bræður sína: „Ég kvaðst halda að þeir hefðu áhyggjur og því vildi ég fullvissa þá um að það sem forset- inn væri að gera væri í algerri andstöðu við Watergate, þar sem tregðu gætti við að greina frá stað- reyndum málsins. Vilji forsetans í þessu máli er að allt komi fram.“ Að sögn Shultz kváðust ráð- herramir þrír vilja að Bandaríkja- menn væru styrkir og hæfir til forystu: „Og þeir glöddust yfir því hversu föstum tökum forsetinn tæki málið.“ í dag hefst árlegur ráðherrafund- ur Atlantshafsbandalagsins í Briissel. Carrington lávarður, fram- kvæmdastjóri Atlantshafsbanda- lagsins, hélt í gær blaðamannafund í Briissel: „Evrópubúar munu vilja fá tryggingu þess að Bandaríkja- stjóm fylgi yfírlýstri stefnu sinni í þeim málum, sem varða bandalag- ið.“ Shultz sagði í London á mánudag að Sovétmenn myndu ekki hagnast á vanda Bandaríkjastjómar vegna vopnasölunnar til Iran. Shultz svaraði spumingum þing- nefndar á mánudag. Hann sagði þá William Casey, jrfírmann banda- rísku leyniþjónustunnar, CIA, og John Poindexter, fyrrum öryggis- ráðgjafa Reagans forseta, hafa fullvissað sig í desember á síðasta ári að vopnasölunni hefði verið hætt. Shultz sagði einnig að hann hefði ekki vitað af tilraunum Reag- ans forseta til að bæta samskiptin við Iran. Eftir að Shultz hafði svarað spumingum nefndarinnar hélt hann til London og svaraði spumingum fréttamanna um borð í flugvél sinni. Nokkrir leiðtogar ríkja Vestur- Evrópu hafa látið í ljós áhyggjur yfír því að vopnasalan til íran muni veilq'a samningsstöðu Banda- ríkjanna gagnvart Sovétríkjunum og auka á óvissu í samskiptum risa- veldanna. Shultz sagði fréttamönn- um að samningsstaða Bandaríkja- stjómar væri óbreytt þrátt fyrir þann vanda sem skapast hefði vegna vopnasölunnar. Bandaríkin: Reykingafólk á í vök að verj ast — yf irvöld reyna að draga úr reykingum almennings Economist, AP. ANDSTAÐA við tóbaks- reykingar fer nú vaxandi í Bandaríkjunum og 5. des. sl. lét alríkisstjórnin þau boð út ganga til stjórnenda ríkisstofn- ana, að þeir yrðu að sjá til þess, að vinnustaðir undir þeirra stjórn yrðu svo til reyklausir. Ekki er um algjört bann við reykingum að ræða, heldur stefnubreytingu er felur í sér aukinn rétt þeirra er ekki reykja. Stofnanir þær er hér um ræðir, hafa í þjónustu sinni um 2,3 millj- ónir manna og mun þessi tilskipun því varða fleira fólk en nokkur önnur slík til þessa. Bandaríski herinn hefur einnig leitast við að takmarka reykingar sinna liðs- manna og 39 fylki í Bandaríkjun- um hafa sett einhvers konar takmarkanir við reykingum. Ákvörðun þessi,' varðandi reykingar í ríkisstofnunum, var tekin eftir að vísindaakademían bandaríska, sendi frá sér skýrslu í síðasta mánuði, þar sem komist var að þeirri niðurstöðu, að reykingar í heimahúsum virtust tvöfalda líkur á öndunarsjúk- dómum hjá börnum. Bent hefur verið á það í mörgum skýrslum, sem forráðamenn í tóbaksiðnaðin- um hafa að vísu ekki viljað taka góðar og gildar, að reykingar geti valdið lungnakrabba hjá þeim sem ekki reykja, ef þeir anda að sér tóbaksreyk. Um 130.000 manns deyja árlega úr lungna- krabba í Bandaríkjunum og er því haldið fram, að um 100.000 þeirra séu reykingamenn og um 5.000 hafí ekki reykt, en andað að sér tóbaksreyk að staðaldri. Áiitið er að um 30% starfs- manna alríkisstjómarinnar reyki, sem er svipað hlutfall og meðal þjóðarinnar allrar. Hin nýja til- skipun er svipuð tillögu er komið hefur fram í New York fylki og verður endanlega afgreidd þar af heilbrigðisráði fylkisins í byijun janúar. Þar er gert ráð fyrir því að yfirmenn sjái til þess að þeir starfsmenn er ekki vilja vinna í reykmenguðu lofti þurfí ekki að gera það og að bannað verði að reykja á flestum stöðum sem ætl- aðir eru almenningi. Tilskipunin tekur gildi 8. febrúar nk. og á þá að vera lokið skiptingu húsnæðis í reyklaus og reykingar svæði og skulu þau vera kirfílega merkt. Yfírleitt verður ekki leyft að reykja á stórum skrifstofum nema hægt sé að tryggja það, að þeir sem ekki reykja, verði ekki fyrir óþægindum. Þetta þýðir að skrif- stofunrýmið þarf að vera nægi- lega stórt og loftræstingin í það góðu lagi, að hægt sé að skipta því milli reykingamanna og þeirra sem ekki reykja. Bannað verður að reykja í fyrirlestrasölum, skóla- stofum, fundaherbergjum, lyftum, stigum, göngum, salernum, bóka- söfnum og heilsugæslustövum. Nú er ætlast til að svæði þar sem matast er, hafi frátekið lými fyrir þá sem ekki reykja. Þessu verður breytt þannig, að svæði þar sem reykingar eru leyfðar verða merkt sérstaklega. Efnt var til fréttamannafundar þar sem tilskipunin var kynnt. Formaður samtaka starfsmanna alríkisstjómarinna, Kenneth Blalock, sem sagðist vera stór- reykingamaður, lýsti yfír ánægju sinni með hið nýja fýrirkomulag og talsmenn yfírvalda sögðust vona að það yrði til þess að draga úr útgjöldum til heilbrigðismála, þar sem fleiri hættu að reykja. Talsmenn tóbaksiðnaðarins vora sem vænta mátti ekkert sérdeilis ánægðir. Edward Koch, borgarstjóri í New York, er hætti að reykja árið 1952, hefur um árabil barist fyrir því að draga úr reykingum á almannafæri. Hann hefur farið fram á það við eigendur veitinga- húsa, að Qórðungur salarkynna þeirra sé jafnan frátekin fyrir þá sem ekki reykja. Ef heilbrigðisráð New York fylkis samþykkir hertar reglur í janúar eins og búist er við, þá verða þessir sömu eigend- ur að að taka 70% salarkynna frá fyrir þá sem ekki reykja og ef þeir gera það ekki, verða þeir sektaðir um allt að 250 dollara (rúmlega 10.000 ísl. kr.) og geta hlotið 15 daga fangelsisdóm. Mörgum finnst að yfírvöld gætu gert meira til þess að draga úr reykingum og hefur heilbrigð- isráðherra Bandaríkjanna lagt til, að þeir sem séu yngri en 18 ára fái ekki að kaupa tóbak. Einnig hefur verið rætt um að hækka verð á tóbaki og hafa nokkur fylki nú þegar hækkað skatt þann er þau mega setja á tóbak.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.