Morgunblaðið - 11.12.1986, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986
• •
Ollu starfsfólki Hraðfrystihúss Þórshafnar sagt upp frá 9. janúar:
Sé ekki annað en við verð-
um að fá að kaupa annað skip
Ef fullvinna á allan afla um borð í Stakfellinu, segir Jóhann A. Jónsson
ÖLLU starfsfólki Hraðfrystihúss næstkomandi. Á þcssum árstima
Þórshafnar hefur verið sagt upp starfa 50-60 manns i fiskvinnsl-
störfum frá og með 9. janúar unni en fleiri á öðrum árstimum
Bók um byggingar-
sögu Fjörunnar og
Innbæjarins komin út
NÝLEGA kom út bókin „Akureyri, Fjaran og Innbærinn. Byggingar-
saga“ eftir Hjörleif Stefánsson arkitekt i Reykjavik og formann
Torfusamtakanna. Samtökin gefa bókina út i samvinnu við Akur-
eyrarbæ og Skipulagsstjórn rikisins. Bókin er 170 blaðsíður í stóru
broti.
Bókin er upphaflega samin til
undirbúnings að gerð deiliskipulags
Fjörunnar og Innbæjarins sem ný-
lega var samþykkt.
í fréttatilkynningu frá höfundi
segir: „Á Akureyri er einna sam-
felldust byggð timburhúsa frá
gamalli tíð hér á landi. Vegna stað-
bundinna aðstæðna hefur byggðin
á Akureyri varðveist betur en víðast
hvar á öðrum gömlum verslunar-
stöðum. Að ýmsu leyti er gamli
bærinn og gömlu húsin á Akureyri
dæmigerð fyrir íslenska verslunar-
staði fyrr á tímum, en þó með sínum
sérkennum."
í bókinni lýsir Hjörieifur í máli
og fjölmörgum myndum og teikn-
ingum hvemig bærinn byggðist og
mótaðist smám saman. Sagt er frá
helstu húsagerðum og þróun þeirra.
í bókinni er einnig skrá yfir öll hús
Nafn datt út
NAFN frambjóðanda Sjálfstæð-
isflokksins i Norðurlandskjör-
dæmi eystra féll niður er greint
var frá Iistanum i þriðjudags-
blaðinu.
Á listann vantaði nafn Magnúsar
Stefánssonar i Fagraskógi. Hann
skipar 10. sæti listans. Þeir sem
þar eru fyrir aftan færast þvi niður
um eitt sæti en alls eru 14 nöfn á
listanum. Morgunblaðið berst vel-
virðingar á þessu.
í bæjarhlutanum, þeim lýst lauslega
og saga þeirra rakin í stuttu máli.
Gamlar og nýjar ljósmyndir eru af
öllum húsunum og af sumum þeirra
eru einnig teikningar, ýmist frum-
teikningar eða mælingarteikningar.
Bókin er gefin út bæði innbundin
og óinnbundin. Verð á innbundinni
bók er 2.250 krónur en 1.950 á
óinnbundinni. Bókin verður seld á
almennum markaði.
Bókin um byggingarsögu Akur-
eyrar er liður í ritröðinni Húsvernd-
un sem Torfusamtökin gefa út til
fræðslu um byggingararf okkar og
varðveislu hans. Þegar hefur komið
út ritið Húsvemdnum 1986 með
erindum og greinum um húsvemd-
unarmál frá ýmsum sjónarhomum.
í undirbúningi er útgáfa bókar um
byggingarsögu Kvosarinnar í
Reykjavík og er hún væntanleg á
næsta ári.
Hjörleifur sagði í samtali við
Morgunblaðið að tilgangurinn með
útgáfustarfsemi þessari væri sá að
glæða áhuga fyrir varveitingu þess-
ara húsa.
Bókin er prentuð í Prentverki
Odds Bjömssonar á Akureyri. Hjör-
leifur var staddur á Akureyri (
vikunni og afhenti þá forráðamönn-
um bæjarfélagsins fyrstu eintök
bókarinnar. Sigfús Jónsson bæjar-
stjóri fékk fyrsta eintakið en
Valgarður Baldvinsson bæjarritari,
Rafn Hjaltalín bæjargjaldkeri og
Finnur Birgisson skipulagsstjóri
fengu einnig eintök af bókinni.
að sögn Jóhanns A. Jónssonar,
framkvæmdastjóra Hraðfrysti-
hússins. Ástæðan fyrir uppsögn-
inni er sú að borist hefur
tilkynning frá Útgerðarfélagi
Norður-Þingeyinga um að Stak-
fellið, sem hefur aflað Hrað-
frystihúsinu hráefnis, fari i slipp
strax eftir áramót og verði þar
breytt i frystiskip.
Jóhann sagði i gær að hann
væri svartsýnn á að nokkur vinna
yrði í Hraðfrystihúsinu fyrr en um
mánaðarmótin mars/aprfl. Þá fyrst
færu smábátamir að fiska en fram
að þeim tima hefði afli þeirra verið
mjög takmarkaður undanfarin ár.
Stakfellið, „Þórshafnartogarinn"
margumtalaði, var keypt árið 1982
með samþykki rikisstjómarinnar.
Nýverið keypti Kaupfélag Langnes-
inga á Þórshöfn hlut Raufarhafnar
i skipinu og á Kaupfélagið eftir það
52% í skipinu. Hraðfrystihúsið á
Þórshöfn á 23% í togaranum og
sveitarfélagið á sama hlutfall. Jó-
hann sagði Hraðfrystihúsið hafa
óskað eftir þvi við Kaupfélagið að
kaupa stærri hlut í togaranum en
ekki hafa fengið svar enn. „Við vilj-
um eignast meira í honum til að
geta tryggt atvinnu í bænum eins
og tilgangurinn með kaupum skips-
ins á sinum tima var. Stakfellið var
keypt til að koma í veg fyrir at-
vinnuleysi á sinum tima og atvinna
hefur verið góð og stöðug síðan.
En ef allt fer nú í sama farið á ný
verða sömu rök og áður fyrir þvi
að kaupa skip. Staðan verður mjög
alvarleg ef hætta á varanlegu at-
vinnuleysi verður aftur fyrir hendi.
Hér er ekki aðeins verið að ræða
um eignarhlutföll i skipinu heldur
afkomu fólksins sem þennan stað
byggir. Ef þeir sem eiga meirihluta
í skipinu ætla sér að fullvinna allan
afla um borð og fara þannig með
skipið út úr atvinnulífinu í bænum
sé ég ekki annað en að við verðum
að fá samþykki rikisins fyrir kaup-
um á öðru skipi.“
Hafið þið þá kannski ihugað
að ræða strax við rikisvaldið um
möguleg kaup á öðru skipi?
„Við viljum fyrst sjá að mönnum
sé virkilega alvara að láta sér detta
í hug að breyta skipinu með full-
vinnslu í huga,“ sagði Jóhann.
Tveir mánuðir eru liðnir síðan
forráðamenn Hraðfrystihússins
fóru fram á það við Kaupfélagið
að kaupa stærri hlut í skipinu. Við-
ræðufundir hafa farið fram um
málið en fyrir skömmu kom síðan
tilkynning frá útgerðarfyrirtækinu
um að Stakfellið færi í breytingar
strax eftir áramót. „Við urðum þvi
að segja fólkinu upp. Gátum ekkert
annað gert,“ sagði Jóhann A. Jóns-
son f gær.
'47
Jónas Svafár
Myndljóð
eftir Jón-
as Svafár
Bókaforlagið Vaka-Helgafell
hefur gefið út bókina Sjöstjarnan
í meyjarmerkinu eftir Jónas
Svafár og hefur hún að geyma
ný ljóð skáldsins og úrval ljóða
frá fyrri tfð, sum endurskoðuð.
I frétt frá forlaginu segir að Jón-
as Svafár hafí notið algerrar
sérstöðu meðal íslenskra nútíma-
skálda allt frá því að hann lagði út
í ritstörf og teikningar árið 1948.
Hugmyndaflug Jónasar er ótrúlegt
og sömuleiðis hugkvæmni við að
tvinna saman á sinn sérstæða hátt
orðum ogþönkum. Kímnin skín víða
í gegn og hann kemur lesandanum
sífellt á óvart.
En Jónas er ekki aðeins skáld
orða, segir í forlagsfi-étt. Hann
dregur upp ljóð með línum og skap-
ar þannig margræðar myndir sem
gefa skáldskap hans nýjar víddir.
Sagt hefur verið að Jónas sé eini
íslenski súrrealistinn og ýmsir eru
þeirrar skoðunar að honum beri
öllum öðrum fremur titillinn „atóm-
skáld“.
Sjöstjaman í meyjarmerkinu
er fimmta bókin frá hendi skálds-
ins. Ádeilutónninn hefur dofnað^
með árunum en þjóðlífið og náttúr-
an orðið æ meira rílg'andi í mynd-
ljóðum hans. Sjöstjaman í
meyjarmerkinu birtir okkur ein-
stakt skáld orða og mynda, segir í
bókarkynningu. Bókin er sett,
prentuð og bundin hjá ísafoldar-
prentsmiðju hf.
Jólasöngvar og helgi-
leikur í Skálholtskirkiu
Skálholti.
ÞAÐ er margra ára hefði í Skál-
holti að böra úr Skálholtspresta-
77 krónur
fyrir þorsk
VERÐ á þorski úr gámum á mark-
aðnum i Hull oog Grimsby hefur
hækkað verulega að undanfömu.
Það fór í sfðustu viku niður undir
40 krónur á kíló, en fór I gær upp
I 77 , krónur að meðaltali. Þessu
veldur meðal annars minna fram-
boð og aukin gæði fisksins.
Á þriðjudag voru seldar 152,3 lestir
af gámafiski í Hull og Grimsby. Heild-
arverð var 10.620.900 krónur, meðal-
verð 69,74. Meðalverð fyrir þorsk var
72,07 krónur, fyrir ýsu 72,35 og 64,23
fyrir kola. Á miðvikudag voru seldar
36 lestir. Heildarverð var 2.735.000
krónur, meðalverð 75,88. Fyrir þorsk-
inn fengust nú 76,99, 84,45 fyrir ýsu
og 72,82 fyrir kola.
kalli flytji helgileik með
aðventusöngvum í kirkjunni á
jólaföstu. í ár verður þessi hátíð
með meiri viðhöfn en tíðkast
hefur. Samkoman verður haldin
nk. sunnudag, 14. desember, sem
er þriðji sunnudagur í aðventu
og hefst kl. 16.00 f Skálholts-
kirkju.
Tónlistarflutning mun „Colleg-
ium Musicum" í Skálholti annast
með börnunum. Lítil hljómsveit leik-
ur undir með söngvurum og flytur
einnig þætti úr verkum eftir Bach
og Handel. Helga Ingólfsdóttir
stjómar hljómsveitinni og leikur
einnig með henni á sembal. Ein-
söngvarar og forsöngvarar verða
Marta Guðrún Halldórsdóttir, Elín
Gunnlaugsdóttir og Helga Sig-
hvatsdóttir. Bömin sem flytja
helgileikinn em nærri fimm tugir.
Björa
Skálholtsdómkirkja
Katla hf. í
framleiðslu
fuglafóðurs
Pökkunarverksmiðjan Katla
hf. hefur nú í um tíu ár pakk-
að fuglamat og dreifir hornun
um landið á veturna, bæði i 50
kg sekkjum og eins í 800
gramma pakkningum.
Það sem af er þessum vetri hef-
ur Katla hf. pakkað yfir 20 tonnum
af fuglamat og sagði Tryggvi
Magnússon, framkvæmdastjóri, í
samtaii við blaðamann að fugla-
maturinn rynni glatt út. „Við
höfum bæði verið með kurlaðan
maís og brotinn rúg og ætlum eft-
ir áramótin að fara að kurla
maísinn sjálfir þar sem erfiðlega
hefur gengið upp á síðkastið að
fá maísinn annars staðar frá sem
fullunnið fuglafóður. Hingað til
höfum við hinsvegar keypt maísinn
kurlaðan, aðeins til pökkunnar,"
sagði Tryggvi.