Morgunblaðið - 11.12.1986, Page 52

Morgunblaðið - 11.12.1986, Page 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986 Spumingar og þrautir í bók frá Setberg BÓKAÚTGÁFAN Setberg hefur sent frá sér bókina „Égf spyr — þú svarar“. Þessi bók er tekin saman með það i huga að skemmta jafnt og fræða og gefa fólki kost á að spytja og svara við öll möguleg tækifæri. „Spumingakeppni af ýmsu tagi hefur t.d. verið mjög vinsæl, ekki hvað síst í útvarpi, þar sem alþjóð gat hlustað á og spreytt sig á að svara með keppendunum. En einnig í heimahúsum og á skemmtunum allskonar hefur fólk iðkað spum- ingaleik og haft mikið gaman af. Spumingamar hafa verið valdar úr ýmsum áttum, sumar léttar aðrar kannski dálítið erfiðar. Spuming- amar era á annað þúsund," segir í frétt frá forlaginu. í bókinni era einnig fjölmargar felumyndir, allskyns þrautir og yfír sjötíu stórar teikningar sem gæða bókina meira lífí. Aftast er svo að fínna svör við öllum spumingunum og svör og lausnir við gátunum. Bókin er 144 blaðsíður. Ingimar Óskarsson annaðist útgáfuna arafrannsoknar- ^»oDl0e iey°0 bíð iMsaagi 6 ömm Uusaníg (k?<&n^G0aw itm Á ofiViHi'n ÖgEsMÉSQíD(á^ [fSEEEDÖIM^eiÖOD ANTHONY SUMMERS TlMABÆR starfi, koma fram ymsar nýjar og áður óbirtar upp- lýsingar sem veita svör við mörgum brennandi spumingum af þessu tagi- yrf: jci. 1.494^ BÓKHLAÐAN ■ - ''ww , WssmmM. Gregory Hines og Billy Crystal í Léttlyndum lögfgum. Gamansamar löggur Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Léttlyndar löggur (Running Scared). Sýnd í Bíóhöllinni. Stjörnugjöf: ☆ ☆ Bandarísk. Leiksijóri: Peter Hyams. Handrit: Gary Devore og Jimmy Huston. Pramleiðend- ur: David Foster og Lawrence Turman. Tónlist: Rod Temper- ton. Helstu hlutverk: Gregory Hines, Billy Crystal, Steve Bauer. Ef það væri ekki fyrir einhveija eins og William Friedkin gæti mað- ur haldið að ekki væra gerðar löggumyndir í Bandaríkjunum án þess að þær væra líka gaman- myndir. Það era raunar ekki aðeins löggumyndir, sem beinast að því að kftla hláturtaugamar, heldur hefur Hollywoodmaskínan dottið niður á hagfræðilega séð mjög góða formúlu fyrir aðsóknarmynd og hún felst í því að blanda saman ofbeldi og húmor. Og formúlan er því betri ef Eddie Murphy sér um grínið. Þannig era skemmtilegar gam- anmyndir ekki lengur eins og þær vora. Og spennandi löggumyndir ekki heldur. Núna heita þær skemmtilegar löggumyndir eða spennandi gamanmyndir. Þið ráðið. Léttlyndar löggur (Running Scared), sem sýnd er í Bíóhöllinni, er ein af þessum myndum sem maður veit ekki hvort á að kalla. En það er nú kannski líka af því hún er eiginlega hvoragt. Hún er ekkert sérlega spennandi en leggur í það minnsta mikla áherslu á að vera fyndin þótt það gangi misvel. Islenska heitið á vel við efni hennar því hún fjallar um tvær löggur sem neita að taka nokkum hlut alvar- lega og allra síst vinnuna. Billy Crystal (Löður) og Gregory Hines (Hvítar nætur) leika þessar léttlyndu löggur, sem líta frekar út eins og rónar. Á milli þess sem þeir láta sig dreyma um að hætta að eltast við glæpamenn og eignast bar á sólarströnd í Flórfda eltast þeir við alræmdan dópsala og kven- fólk, eða a.m.k. Hines því Ciystal er að ná sér eftir skilnað. Og eftir mikið grín og gepilshátt félaganna lenda þeir í velgerðum bflaeltinga- leik (á jámbrautarteinum) og ansi skemmtilegum skotbardaga við bóf- ana í lokin. En við fáum ekkert tækifæri til að hafa áhyggjur af hvemig fer fyrir félögunum því það er aldrei gefið til kynna að þeir geti svo mikið sem særst í barátt- unni við óþjóðalýðinn. Raunsæið er skilyrðislaust látið vflq'a fyrir gríninu. En þótt kímnin sitji í fyrirrúmi í Léttlyndum löggum er hún ekki nógu sterk til að fá mann til að hrífast með. Talsvert er gert af því að grínast með velþekktar löggu- myndaklisjur án þess þó að skopast sérstaklega að löggumyndum. Það er bara eins með myndina og vinina tvo í henni að hún tekur ekkert alvarlega. Leikstjórinn, Peter Hyams (Capricom One), hefur gert áhuga- verðar spennumyndir um dagana en þessi fyrsta grín/spennumynd hans, þótt ekki sé við leikstjómina að sakast í rauninni, gæti verið betri. Hún á sínar góðu stundir eins og aðferðir Hines við að fleka konu, sem heldur framhjá með honum (annaðhvort tekur hann hana fasta eða lætur taka sambýlismanninn hennar fastan svo þau geti stundað ástarleikina í friði) og þeir Billy Crystal með brosið út að eyram og Gregory Hines með syfjuleg augu og andlit sem er bókstaflega að leka framan af honum, era hrein- lega að springa af leikgleði. En það vantar dýpt, alvöra og spennu til að koma í veg fyrir að myndin snúist ekki öll upp í vina- lega skemmtidagskrá á milli félag- anna tveggja. Meira að segja vinátta þeirra, sem myndin snýst öðram þræði um, ristir aldrei djúpt frekar en annað. Morgunblaðið/Júlíus Sjálflýsandi umferðarskilti SJÁLFLÝSANDI umferðarskilti hefur verið komið upp í Borgartúni á móts við Skúlatún 2. Er þetta fyrsta merki sinnar tegundar sem sett hefur verið upp f borginni og að sögn Óskars Ólasonar, yfirlög- regluþjóns umferðardeildar, er það gert í tilraunaskyni. Það voru starfsmenn umferðardeildar Reykjavíkurborgar sem settu skiltið upp og í ráði er að setja upp fleiri slík merki, ef reynslan af þessu merki verður góð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.