Morgunblaðið - 11.12.1986, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986
61
Sölusýning á
vinnustofum
Kópavogshælis
eftirHuldu Harðardóttur
Mér o g samstarfsfólki mínu
finnst kærkomið tækifæri að kynna
almenningi starfíð á Kópavogshæli,
nú þegar vinnustofumar halda sölu-
sýningu (basar).
Við ákváðum snemma á þessu
ári að halda sölusýningu á afmælis-
degi hælisins, sem einnig er
afmælisdagur þessa nýja húsnæðis
sem við höfum nú fyrir vinnustof-
ur, en húsið er einmitt 3ja ára 13.
desember nk. Það hefur lengi loðið
neikvæður tónn í ummælum um
Kópavogshælis en minna farið fyrir
jákvæðum umræðum. Þess vegna
tel ég þetta kjörið fyrir fólk sem
lítið sem ekkert þekkir til starfsemi
stofnunarinnar að nota tækifærið
og leggja leið sína hingað á laugar-
daginn milli kl. 14 og 17 og skoða
vinnustofumar og kannski kaupa
eitthvað af þeim munum sem þar
verða til sölu eða þiggja kaffísopa
og piparkökur.
Það ríkir mikill spenningur hjá
vistfólkinu fyrir þessum degi ekki
síður en hjá okkur starfsfólkinu. í
nærri því heilt ár höfum við unnið
að því að gera þennan dag skemmti-
legan og gagnlegan. Gagnlegan í
tvennum skilningi. í fyrsta lagi í
því að við gætum selt framleiðslu
okkar og nýtt peninga til nýrra
hráefniskaupa auk ýmissa þjálfun-
argagna sem eru nauðsynleg í þessu
starfí. í öðm lagi til að kynna starf-
semina, sem eins og áður sagði er
ekki vanþörf á.
Vinnustofumar em nú til húsa í
nýrri byggingu, en starfsemin er
jafngömul hælinu, því frá upphafi
hefur verið einhvers konar vinna í
gangi fyrir vistmenn. Sú starfsemi
hefur vaxið og dafnað á þeim rúm-
um 30 ámm sem liðin em frá opnun
fyrsta hússins hér á Kópavogshæli.
Nú koma yfír 90 vistmenn í vinnu
og þjálfun daglega. Hér er unnin
alls kyns pökkunarvinna fyrir hin
ýmsu fyrirtæki en of langt mál
væri að telja það allt upp hér. Mark-
visst er unnið að þjálfun vistmanna
svo þeir verði sem flestir færir um
að vinna eitthvað sér til gagns og
gamans.
En kæri lesandi minn, sjón er
sögu ríkari. Það mjmdi gleðja okkur
mikið að sem flestir sæju sér fært
að koma 13. desember milli kl. 14
og 17 og skoða starfsemina, við
verðum hér og svömm spumingum
og ég veit að margir verða undr-
andi er þeir sjá hve fjölbreytt
starfsemin er.
Höfundur er þroskaþjálfi.
Sj óf er ðaæ vmtýri
Jóns Steingrímssonar
HJÁ bókaútgáfunni Vöku-Helga-
feili er komin út sjóferðasaga
Jóns Steingrímssonar, skip-
stjóra, Um höf til hafna, þar sem
hann tekur upp þráðinn frá fyrri
minningabók sinni Kolakláfar og
kafbátar, sem kom út i fyrra.
í fréttatilkynningu frá Vöku-
Helgafelii segir m.a.: „í þessari bók
rekur Jón ævintýralega sjóferða-
sögu sína um öll heimsins höf og
staldrar við minnisverða punkta, en
margt bar til tíðinda á ferðum hans
og ævintýrin eltu hann eins og
málmur segul. í upphafí bókarinnar
segir Jón frá stóm smyglmáli við
íslandsstrendur og kemur þar
margt óvænt fram sem kann að
þykja reyfarakennt. Siglingar Jóns
með íslenskum og erlendum skipum
em síðan meginefni bókarinnar.
Jón gefur með hreinskilinni og
ítarlegri frásögn sinni af lífi sínu
sem farmaður innsýn inn í heim sem
fáir þekkja nema sjómennimir sjálf-
ir. Langsiglingar og heimsóknir í
framandi samfélög gefa farmannin-
um aukna heimssýn og víkka
sjóndeildarhring hans. Æðruleysi
og hispursleysi margra sjómanna
þarf því að skoða í þessu ljósi. Jón
leggur óhikað fram dóma um sam-
UM HÖF
TIL FIAFNA
ferðamenn sína og þar er ekki talað
í gátum né verið að vanda kveðjur
þegar við á. Hvort sem hann er að
tala um „aukabúgreinina góðu“ eða
„skippera" sína af ýmsu sauðahúsi.
Þá er frásagnarstíllinn tæpitungu-
laus og auðskilinn."
Um höf til hafna er 204 bls. og
er sett, prentuð og bundin í Prent-
smiðjunni Odda hf. í Reykjavík.
Mundir
C-vítamíninu í moi
.
œjSBm?
W&mmmSsm
Vistmenn á Kópavogshæli vinna við ýmiss konar pökkun.
=s»
S&fz.
**%****«
Vvó^-
et
Vvvi1
ÆSKAN
b**