Morgunblaðið - 11.12.1986, Side 66

Morgunblaðið - 11.12.1986, Side 66
T TrT* 66 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986 Eiginmaður minn og faðir okkar, SVEINN ERLENDSSON, fyrrv. hreppstjóri, Garðshornl, Álftanesi, lést í St. Jósefsspítala f Hafnarfirði aðfaranótt 7. desember. Júlfana Björnsdóttlr, Erlendur Sveinsson, Marfa Sveinsdóttlr, Auður Sveinsdóttir. t Faðir okkar, HERMANN GEORGSSON, bifreiöaeftiiiitsmaður, Krfuhólum 4, andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans 9. desember. Fyrir hönd vandamanna, Davfð Hermannsson, Guðrún Hermannsdóttir. + Eiginkona mín og móðir okkar, KRISTBJÖRG JÓNSDÓTTIR, Boðahlein 3, áður Ægissföu 96, andaðist 6 Hrafnistu, Hafnarfirði, þriðjudaginn 9. desember, Jón Vilhjólmsson og börn. + Eiginmaður minn og faðir okkar, GÚSTAV SIGVALDASON, fyrrverandi skrifstofustjórl, Blönduhlfð 28, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 12. desember kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á styrktarsjóö Tjaldness, minningarkort fást f Blóm og húsgögnum, Laugavegi 100. (inng. frá Snorrabraut). Ása Pálsdóttir, Jónfna Guðrún Gústavsdóttir, Páll Gústavsson, Sigvaldi Gústavsson. + Útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, ARNLEIFAR STEINUNNAR HÖSKULDSDÓTTUR, frá Höskuldsstöðum, Djúpavogi, til heimllis f Klapparbergi 23, Reykjavfk, verður gerð frá Dómkirkjunni föstudaginn 12. desember kl. 10.30. Blóm og kransar eru afbeðin, en þeim sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á Minningarsjóð Krabbameinsfélags íslands. Egill Gestsson, Örn Egiisson, Lonni Egilsson, Höskuldur Egilsson, Sofffa Rögnvaldsdóttir, Ragnheiður Egilsdóttir, Lárus Svansson, Margrét Þórdís Egilsdóttir, Óskar Smári Haraldsson, barna- og barnabarnabörn. Minning: Gísli Steingríms- son frá Húsavík í dag er til moldar borinn Gísli frændi Steingrimsson, fæddur 9. mars 1911 í Túnsbergi á Húsavík. Foreldrar hans voru Steingrímur Hallgrímsson frá Brettingsstöðum, Flateyjardal og Kristín S.Þ. Jóns- dóttir frá Stöng, Mývatnssveit. Gísli var í meðallagi lágvaxinn og kvikur í hreyfingum. Á yngri árum var snerpu hans viðbrugðið. Hann stóð beinn í baki, var skýrmæltur og vel máli farinn. Jafnan var hann glað- lyndur og ætið kurteis. Hann var næstyngstur 9 systkina og að sögn, móður sinnar mikið áhyggjuefni sakir uppátektarsemi og hug- dirfsku. Ungur að árum tók hann alvarlegan sjúkdóm og mátti bera þann kross alla sína ævi upp frá því. Gísli var alltaf fljótur tii og var m.a. annar maður á Húsavík til að taka bílpróf. Hann var jafnvel snar- ari í snúningum en krían. Hann og nokkrir aðrir strákar voru ein- + Maöurinn minn og fósturfaðir okkar, SIGURÐUR SIGURÐSSON, fyrrum bóndl á Ytri-Skeljabrekku, Andakflshreppi, verður jarðsettur laugardaginn 13. desember ki. 14.00 frá Hvann- eyri. Þeir sem vildu minnast hans eru beðnir aö láta Dvalarheimilið Höfða, Akranesi njóta þess. Ferð verður frá Skaganesti, Akranesi kl. 12.30. Guðrún Salomonsdóttlr, Sverrir Lúthersson, Hreinn Gunnarsson. + Útför föður okkar, afa, langafa og tengdaföður, SIGURÐAR JÓHANNS JÓNSSONAR, Þórshöfn, fer fram frá Sauöaneskirkju laugardaginn 13. desember kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hans, er bent á kirkjubyggingarsjóð Þórs- hafnar. Helga Jóhannsdóttir, Arnar Jóhannsson, Marfa Jóhannsdóttir, Margrót Jóhannsdóttir, Jóhann Jóhannsson, Erla Jóhannsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir og amma, HALLBERA SIGURÐARDÓTTIR, Gnoðarvogi 22, verður jarðsungin frá Langholtskirkju föstudaginn 12. desember kl. 15.00. Sigurður Sigurjónsson, Elfsabet Guðmundsdóttir, Alda Rut Sigurjónsdóttir, Ólafur Haraldsson, Hallberg Sigurjónsson og barnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVANBJÖRG HRÓÐNÝ EINARSDÓTTIR, Sólheimum 23, sem andaðist 27. nóv. verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstu- daginn 12. des. kl. 13.30. HaraldurÁrnason, Erna Erlendsdóttir, Björn Árnason, Krlstfn Tryggvadóttir, Kristfn Árnadóttir, Einar Árnason, barnabörn og barnabarnabörn. i hvemtíma í kríuvarpi og létu kríumar ófriðlega. Ein af þeim djarfari steypti sér gjaman niður á þá og goggaði í hausinn á þeim. Eitt sinn er krían steypti sér jrfir þá, varð hann fljótari til og þreif til kríunnar og náði henni. Varla hefur hún vandað honum kveðjum- ar þó hann sleppti henni aftur. Framan af árum var hann í lang- ferðum milli Akureyrar og Reykjavíkur. Einhveiju sinni var hann spurður hvort hann væri góð- ur bílstjóri. Svaraði hann að bragði: „Já, allir sem hafa músík í sér eru góðir bílstjórar." Hann var mjög músíkalskur eins og hans ættfólk. Hann var fyrstur til að eignast grammófón á Húsavík. Á kvöldin gekk hann í hús með fóninn, sjálfum sér og öðrum til skemmtunar. Þó Gísli giftist aldrei var honum mjög vel til kvenna og heillaði þær margar um ævina. Eitt af hans síðustu verkum var að láta kaupa eymalokka, — þá dýrustu í bænum að sjálfsögðu — handa ónafn- greindri vinkonu. Hann var hinn sami séntilmaður í þessum efnum. Síðasta kveðja hans á banalegu sinni til náinnar frænku sinnar var koss blásinn úr lófa þar sem að- stæður ieyfðu ekki hofmannlegri kveðju. Einkennandi fyrir Gísla var snyrtimennska og smekkvísi í hvívetna. Hann var jafnan glerfínn hvunndags sem aðra daga enda taldi hann að það færi aldrei úr tísku að vera vel klæddur. Festi hann gjaman reglulega kaup á hefðbundnum herrafatnaði, vel- sniðnum og úr vönduðum efnum. Eins og tískustraumar liggja í dag verður að teljast að sjónarmið hans í þessum efnum hafí orðið ofan á. En aðal hans var þó ríkuleg kímnigáfa og æðruleysi sem fleytti honum oft yfir erfiða hjalla. Hann lét þess getið þegar hann lá helsjúk- ur á Borgarpítalanum að alltaf þegar öndin væri að skreppa úr honum kæmu þær blessaðar stúlk- umar á hvítu sloppunum og settu hann í gang aftur, svo öndin kæm- ist hvergi. Honum lét vel að segja frá og átti það til að ýkja við okkur krakkana okkur tii stundargamans. Vegna sjúkdóms síns var Gísli vistmaður á Reylq'alundi síðustu 25 ár ævi sinnar. Var gjaman farið í heimsókn til Gísla frænda á sunnu- dögum og fengu allir, eldri sem yngri, höfðinglegar móttökur. Hann var bamakall og tók okkur sem jafningjum og engin þóttu okkur jólin nema hann dveldi hjá okkur. Var enda auðvelt að fá hann í leiki og spii því Gísli hafði gott keppnis- skap. Þegar hann átti bæjarerindi vomm við oft höfð með og þá átti hann það til að bjóða okkur á kaffí- hús og láta traktera okkur sem fullorðið fólk. Þóttu okkur það merkisviðburðir í lífínu. Gísla fylgdi blær menningar- heimilis þar sem virðing var borin fyrir andans listum svo og nauðsyn þess að afla lífsbjargar. Eftirlifandi systkin hans eru Birgir, María, Guðrún, Hallgrímur og Marteinn, öll búsett á Húsavík. Nú cr ævi Gísla á enda og skarð hans verður ekki fyllt nema af minningum um óvenjulegan mann og góðan dreng. Slík verðmæti ber að þakka. Aðalbjörg, Gyða, Hermann og Þórdís.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.