Morgunblaðið - 11.12.1986, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986
61
ur en ytri aðstæður hafa breyst á
síðustu árum. Það er því forgangs-
verkefni í íslenskum utanríkisvið-
skiptum að endurmeta stöðu okkar
gagnvart Evrópubandalaginu og
treysta betur stöðu okkar í samskipt-
um við þennan stóra nágranna okkar.
Evrópubandalagið er stærsti við-
skiptaaðili okkar og því ekki óeðlilegt
að samskiptin við það séu stöðugt
til umræðu.
íslenskur sjávarútvegur er stór-
veldi á heimsmælikvarða standi þeir
sem honum ráða saman. Það er því
skoðun mín að íslenskur sjávarútveg-
ur eigi sameinaður að vinna að
auknum alþjóðlegum viðskiptum með
sjávarafurðir og halda áfram að
byggja upp af eigin rammleik fyrir-
tæki sem geti haft forustu í alþjóð-
legri fiskverzlun. Ef við þurfum að
leita að samstarfsaðiium á þessum
vettvangi eigum við að leita eftir
þeim meðal þeirra sem standa næst
neytandanum á mörkuðum okkar,
en ekki meðal keppinauta okkar um
hráefni og vinnslu þess.
Meginregla okkar þegar við leitum
að samstarfsaðilum erlendis hlýtur
að vera að leita eftir fyrirtækjum sem
efla og. styðja núverandi starfsemi
eða sem hjálpa okkur til að nýta
áður ónýttar auðlindir. Hin nýja at-
vinnugrein má ekki keppa um þegar
fullnýttar auðlindir, á þröngum Qár-
magnsmarkaði, né má hún kreíjast
mikils vinnuafls nema augljóst sé,
að hún geti um fyrirsjáanlega
framtíð greitt hærri laun en aðrir í
landinu.
Við höfum sérstöðu gagnvart ná-
grannalöndum okkar, t.d. írum og
Skotum, sem leita eftir starfsemi sem
krefst mikils mannafla. Þeir greiða
m.a. styrki eftir þeim fjölda starfa
stofnun fyrirtækis hefur í för með
sér. Við leitum hins vegar eftir starf-
semi sem hefur mikla framleiðni, er
ekki mannaflafrek og getur greitt
há laun.
Þegar við reynum að meta hvað
skiptir máli fyrir þau fyrirtæki, sem
vildu fjárfesta hér á landi, verðum
við að gera okkur grein fyrir að við
erum í samkeppni við margar þjóðir
sem geta boðið meiri styrki og fyrir-
greiðslu og hafa einnig oftast miklu
stærri heimamarkað. Við búum í
tæknivæddu nútímaþjóðfélagi, en
það sama má segja um nágranna
okkar og keppinauta, t.d. Skota og
íra. Þessar þjóðir eru hins vegar nær
markaðnum í landfræðilegum skiln-
ingi og eru innan Evrópubandalags-
ins með hindrunarlausan aðgang að
300 milljóna manna markaði. Við
þurfum því á öllu okkar að halda
viljum við fá aðila til að flárfesta á
íslandi.
Þegar fyrirtæki meta fjárfesting-
arkosti taka þau tillit til ýmissa
þátta, m.a. hvort þau muni tryggja
sér markaði, hráefni, ódýra orku eða
lægri rekstrarkostnað. Þau meta
þjóðfélagslegar aðstæður, hina ýmsu
rekstrarþætti og væntanleg sam-
skipti við hið innlenda athafnalíf og
verkalýðshreyfingu.
Þegar metnar eru þjóðfélagslegar
aðstæður er litið til stöðugleika og
stefnufestu stjómvalda, þ.e. hvort
stöðugt sé verið að breyta þeim
ramma sem fyrirtækjum er gert að
starfa innan, hvemig afskiptum
ríkisvalds af peninga- og vinnumark-
aði er háttað, þá skiptir stöðugleiki
efnahagslffsins og styrkleiki gjald-
miðilsins miklu máli. Mjög mikilvægt
er að viðskipti með gjaldmiðilinn séu
sem frjálsust og helst þarf hann að
vera skráður og fullgildur á erlendum
peningamörkuðum. Gæði og mennt-
un vinnuaflsins ásamt greiðum
Qarskiptum og samgöngum eru einn-
ig mikilvægir þættir þegar metnir
em flárfestingarkostir.
Landið verður að hafa skýr og
afmörkuð lagaákvæði um réttindi
erlendra fyrirtækja. Umfram allt
vilja erlendir aðilar hafa skýr ákvæði
um þá þætti sem tengjast rekstrinum
og tiyggingu fyrir þvf að ekki sé
alltaf verið að breyta lögum og regl-
um. Atriði sem hafa bein áhrif á
rekstrarafkomuna skipta miklu máli,
svo sem:
a) að skattar fyrirtækja séu þeir
sömu eða minni en f samkeppnis-
löndunum.
b) að fullt frelsi sé á fjármagnsflutn-
ingi inn og út úr landinu.
c) að tollskrá og meðhöndlun hrá-
efnis og framleiddrar vöru séu
aðgengilegar.
d) að erlendir flárfestingaraðilar
hafi fullt frelsi til að stjóma fyrir-
tækjunum og eiga meirihluta í
_þeim.
I ræðu sem ég hlýddi nýlega á
sagði einn af bankastjórum Citibank
að sá banki stofnaði ekki útibú nema
hann ætti meirihluta. Þessi ákvörðun
var tekin vegna samstarfsaðila sem
höfðú brugðist og hafði bankinn orð-
ið að leggja út mikinn kostnað til
að vemda hagsmuni sína.
e) að launakostnaður sé a.m.k. ekki
hærri en í samkeppnislöndunum,
sé launakostnaður stór liður í
rekstrarkostnaðinum.
Væntanleg samskipti við at-
hafnalíf og verkalýðshreyfingu
skipta miklu máli og þar taka menn
tillit til hvort í landinu séu vel rekin
fyrirtæki, sem gætu orðið æskilegir
samstarfsaðilar, og hvort þar séu
færir og vel menntaðir stjómendur
og vinveitt eða a.m.k. raunsæ verka-
lýðshreyfing.
Hvað viljum við selja?
Þegar við reynum að svara spum-
ingunni „Hvemig kynnum við
möguleika okkar erlendis" er rétt að
gera sér grein fyrir hvað það er sem
við höfum að selja og hvað við viljum
selja. Náttúruauðæfi okkar, sjávar-
afli og orka ásamt vel menntuðum
mannafla eru þeir þættir sem gætu
verið áhugaverðir fyrir erlenda fjár-
festingaraðila. Sjávarafli okkar er
fullnýttur þó menn deili um hvemig
hægt sé að ná hámarksarðsemi innan
greinarinnar.
Við höfum á liðnum árum lagt
megináherslu á leit að samstarfsaðil-
um í orkufrekum iðnaði. Þar höfum
við náð nokkmm árangri. Hins vegar
er ekki ástæða til mikillar bjartsýni
um öra þróun á því sviði verði ekki
miklar hækkanir á olíu á næstunni.
Stærsta fjárfesting okkar íslend-
inga á liðunum áratugum hefur verið
í menntun landsmanna. Við höfum
þvi í dag á að skipa vel menntuðu
og ijölhæfu vinnuafli sem er vel und-
ir það búið til að takast á við flókin
og erfíð verkefni. Einmitt þess vegna
eru möguleikar okkar flölbreyttari
en margra annarra þjóða.
Sá vettvangur, sem ég tel okkur
eiga að leggja mesta áherzlu á f
framtíðinni, er þróun og sala á afurð-
um ýmissa stuðningsgreina sjávarút-
vegsins. Hér er svið sem er örugglega
áhugavert fyrir erlenda flárfestinga-
raðila. í umræðunni um hátækniiðn-
að verðum við að horfast f augu við
þá staðreynd að þar erum við langt
á eftir nágrannalöndunum. Við get-
um hins vegar þróað af meiri krafti
þá framleiðslu starfsemi sem tengist
stuðningsgreinum í sjávarútvegi. ís-
lenzk fyrirtæki sem framleiða veiðar-
færi, tölvuvogir og ýmsar vélar og
hugbúnað eiga greiðari aðgang að
erlendum mörkuðum vegna góðs orðs
sem fer af íslendingum f tengslum
við sjávarútveg um allan heim. Þetta
er okkar hátækni, hér höfum við
forskot og alla möguleika til þróunar
með stöðugum tilraunum í fyrirtælq'-
unum sjálfum. Á þessu sviði fremur
en flestum öðrum tel ég auðveldara
að þróa samstarf við erlenda aðila,
því hér er m.a. tiltölulega stór heima-
markaður fyrir afurðir sem tengjast
sjávarútvegi. Það er auðveldara fyrir
okkur að þróa hátækniiðnað, sem
sprettur úr náttúrlegu umhverfi okk-
ar, en ætla að tileinka sér með öllu
ný vinnubrögð. Hvað snertir aðrar
greinar sem ég tel eftirsóknarverðar,
t.d. með tilliti til góðrar menntunar
fslendinga, þá tel ég rétt að við leit-
um hófanna hjá efna- og lyQaiðnaði
og öðrum þeim greinum sem hafa
mikla framleiðni en eru ekki mann-
aflafrekar.
Gagnstætt því sem margir halda
var ísland ekki vel kynnt erlendis.
Ég hef vegna vinnu minnar þurft að
ferðast út um allan heim og þurft
að skipta bæði við einkafyrirtæki og
opinbera aðila og það er ljóst að
landið var óþekkt og fáir vissu nokk-
uð um það. Við getum sjálf spurt
okkur hvað við vitum um lönd eins
og Möltu, Costa Rica eða Uruguay.
Við teljum okkur þó tiltölulega vel
upplýsta þjóð. Það vakti athygli mína
á þessum ferðum að það sem almenn-
ingi var minnisstæðast frá íslandi
var skákeinvígi Fishers og Spasskys.
Ég held því að flestum okkar sé
ekki fullljóst hversu mikil landkynn-
ing fundur Reagans og Gorbachevs
f Reykjavík hefur verið. Ég hef ferð-
ast víða síðan ákvörðunin um
fundarstað var tekin, bæði í Banda-
ríkjunum og Evrópu, og hef af eigin
raun kynnst því hve ísland hefur
verið umtalað. Slíkt umtal er fljótt
að falla í gleymsku ef ekki er fylgt
á eftir með frekari landkynningu.
Það má segja að umtalið sem fylgdi
fúndinum hafi plægt jörðina en nú
á eftir að sá.
í landkynningu og leit að erlendum
samstarfsaðilum er hægt að beita
tveimur aðferðum. Annars vegar al-
mennri landkynningu, þar sem landið
sjálft, þjóðin og landkostir eru kynnt-
ir á sem flestum stöðum í þeirri von
að áhugasamir flárfestingaraðilar
gefi sig fram og hefli viðræðm-. Hin
aðferðin miðast við að skilgreina
nákvæmlega hvaða greinar og fyrir-
tæki menn hafa áhuga á og leitast
svo við að hafa beint samband við
forystumenn þessara fyrirtækja.
Við eigum í því sambandi ekki
eingöngu að hugsa um stórar og
miklar framkvæmdir heldur einnig
að reyna að fá samstarfsaðila í
smærri viðfangsefnum.
Ég lít t.d. til hinna ýmsu innflutn-
ingsfyrirtælq'a í þessum efnum. Þó
að íslensk innflutningsfyrirtæki séu
ekki stór er ljóst að forsvarsmenn
þeirra eru oft í persónulegu sam-
bandi við forstjóra hinna stóru
flölþjóðafyrirtækja sem þeir skipta
við. Við höfum þegar dæmi um slíkt.
Þannig er ef til vill hægt með beinum
samböndum að laða til okkar fram-
leiðslu á ýmsum hlutum, sem þurfa
ekki nauðsynlega að vera endanleg
afurð heldur hluti af framleiðslu
hinna stóru fyrirtækja. Þjónustu-
starfsemi er sá þáttur atvinnustarf-
seminnar sem er f hvað mestum
vexti. Menn hafa þvf oft hugleitt
hvort við gætum ekki með breyttri
lagasetningu haslað okkur völl, t.d.
á sviði alþjóðabankaviðskipta og
tryggingamála.
Hér á undan hef ég reynt að fara
nokkrum orðum um viðfangsefnið
„fsland sem fjárfestingarland“. Hvað
skiptir máli — hvemig kynnum við
möguleika okkar erlendis. Ég hef
vafalaust talað í víðara samhengi en
aðstandendur ráðstefnunnar gerðu
ráð fyrir. Ég tel hins vegar ómögu-
legt að fjalla um stöðu lslands sem
fjárfestingarlands nema að líta til
flestra þátta sem hafa áhrif á þróun
fslensks efnahags og atvinnulffs.
Samskipti annarra þjóða við er-
lenda flárfestingaraðila geta orðið
okkar vísbending um hvemig rétt sé
að standa að þessum málum. Það
er athyglisvert að lönd með litla
heimamarkaði svo sem Singapore,
Hong Kong og Holland hafa náð
góðum árangri á þessu sviði. Þessi
lönd eiga það sammerkt að hagkerfi
þeirra er mjög opið og litlar takmark-
anir á athafnafrelsi bæði innlendra
og erlendra fyrirtækja. Sagan kennir
okkur að ýmis smáríki hafa í gegnum
aldimar getað orðið stórveldi á sviði
viðskipta. Þau hafa fyrst og fremst
byggt á auðugu viðskipta- og menn-
ingarlífi, sem einkennst hefur af
víðsýni. Þar hafa menn litið á stöðu
sína í umheiminum og litið á heiminn
allan sem sinn starfsvettvang. Ég tel
að eina von okkar sé, að okkur tak-
ist að snúa baki við einangrunar-
hugarfari liðinna alda og að við
verðum virkir þátttakendur í umróti
viðskiptalífsins umhverfis okkur. En
eins og kafari, sem hefur verið lengi
í undirdjúpunum, verður að fara
hægt upp á yfírborðið verðum við
að nálgast frelsi með ákvörðunum
sem teknar em í réttri röð.
Við verðum að gera okkur grein
fyrir að við emm fámenn þjóð í stóm
landi og hvort okkur líkar betur eða
verr er efnahags- og atvinnustarf-
semi okkar samtvinnuð þróun
efnahagsmála f nágrannalöndunum.
Við verðum því að skoða erlenda
flárfestingu í samhengi við stöðu
okkar gagnvart umheiminum og
mögulega þróun efnahags- og at-
vinnumála innanlands. Aukin
samskipti við erlenda aðila em óum-
flýjanleg og við verðum þvf að marka
okkur skýra stefnu og megum ekki
bíða eftir þvf að pólitfskir eða efha-
hagslegir örðugleikar þvingi okkur
til að stíga skref, sem við þurfum
ekki að stíga, ef við tökumst á við
hlutina meðan tími gefst til. Við verð-
um að hvetja tíl umræðu um þessi
málefni, eins og gert er með þessari
ráðstefnu og leitast við að ná sem
víðtækastri samstöðu milli sljóm-
valda, atvinnulffs og verkalýðshreyf-
ingar.
Höfundur er framkvæmdasljóri
Sambands ialenskra fiakframleið-
enda.
MÆLDO VEOGINN
-bsbs*
Oslo Maghony kr. 39.980.-
Bergen í kótó kr. 44.190.-
Korfu í kótó kr. 49.740.-
System II raðskápar í hvítu, svörtu,
beiki, kótó og maghony.
'ÍSiJsí M«i _ *i
?M{1* * ’ ♦ A n 4 w i ,=* 1 . • 5
Bonn hvítt og beiki.
Uppstilling kr. 29.490.-
Tunö raðskápar og massíf fura.
V/SA E
eurocabo Hnn
BESTU GREIÐSLUKJORIBÆNUM
Oiúsgagiraftöllin
BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK - 91 -681199 og 681410