Morgunblaðið - 11.12.1986, Page 71
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR'II. DESEMBEK 19^6
7T
Brigslyrði leiðrétt
eftirdr. Gunnlaug
Þórðarson
Í grein minni hér í blaði 3. þ.m.
var á það bent að gera yrði meiri
kröfur til alþingismanna en ann-
arra, er þeir láta mál til sín taka
og því má við bæta að þyngra verði
það á metum, er um háskólapró-
fessor er að ræða og sérfræðing í
þjóðarrétti. Auðvitað spillir það
ímynd slíks manns, að hinn sami
taldi það goðgá og ganga landráði
næst að halda því fram á alþjóða-
vettvangi að íslenska þjóðin ætti
meiri rétt en til 12 sjómflna fisk-
Setberg gefur út:
„AUt fyr-
ir þig“
„Mér hefði þótt nær að
alþingismaðurinn, sem
er alla virka þingdaga
samvistum við forsætis-
ráðherra, hefði kynnt
sér þetta sjálfur í stað
þess að fara með ófyrir-
gefanleg brigslyrði í
garð fjölda opinberra
starfsmanna.“
veiðilandhelgi, er menn af hans tagi
töldu hagsmunum okkar best borg-
ið með því að fá þá víðáttu
samþykkta sem alþjóðalög.
Þetta er riíjað upp vegna pistils
dr. Gunnars G. Schram alþingis-
manns hér í blaði 9. þ.m. er hann
segir það misskilning hjá mér að
orð hans á Alþingi 11. nóv. sl. hafi
verið til þess fallin að spilla áliti
íslenskrar löggæslu hjá almenningi,
er hann kvaddi sér hljóðs í Samein-
uðu þingi út af Sea Shepherd-
málinu.
í grein minni voru orð hans tek-
in beint upp úr ræðuparti og er
ekki ástæða til að endurtaka það
allt, en t.d. aðeins bent á þessi
ummæli: „Atburðir helgarinnar
sýna okkur svart á hvítu að fram-
kvæmd öryggismála hér innan-
lands er greinilega mjög
ábótavant." Það var í fáum orðum
sagt talað tæpitungulaust um að
„íslensk löggæsluyfirvöld yrðu
að vera betur á verði en hingað
til í því er varðar komu útlend-
inga hingað til landsins.“ Ef þetta
eru ekki árás á íslenska löggæslu,
þá veit ég ekki hvað á að kalla
þetta, þó að alþingismaðurinn
skammist sín nú fyrir ummælin.
í þessum pistli gætir sýnilega
misskilnings um staðreyndir máls-
ins er hann segir: „í' ummælum
mínum var hvergi gagnrýnt
hvernig Útlendingaeftirlitið
brást við í máli Sea Shepherd,
en það hafði fylgst með þeim
allt frá 15. október." Hér fer al-
þingismaðurinn vitandi vits með
rangt mál nema skilningsleysi á
mæltu máli sé um að ræða.
Útlendingaeftirlitið hafði alls
ekki fylgst með mönnum þessum
sem Sea Shepherd-mönnum, heldur
af árvekni sem hveijum öðrum er-
lendum ferðamönnum. Það var ekki
fyrr en eftir að þeir voru horfnir
úr landi að upplýsingar bárust um
hvers konar glæpamenn hér var að
Gunnlaugur Þórðarson
ræða. Þar voru það erlend lögreglu-
yfirvöld sem höfðu brugðist tilkynn-
ingarskyldu sinni og ekki við
Útlendingaeftirlitið að sakast.
Hefðu þær upplýsingar borist á
eðlilegum tíma hefðu atburðimir í
Reykjavíkurhöfn og Hvalfirði ekki
átt sér stað.
Alþingismaðurinn telur það vera
vott um andvaraleysi hjá mér að
hafa mótmælt órökstuddri gagnrýni
hans á störf Útlendingaeftirlitsins
og ísl. löggæslu og að mér heféi
verið nær að afla mér upplýsinga
hjá nýskipaðri nefnd sem á að
kynna sér þessi öryggismál.
Mér hefði þótt nær að alþingis-
maðurinn, sem er alla virka þing-
daga samvistum við forsætisráð-
herra, hefði kynnt sér þetta sjálfur
í stað þess að fara með ófyrirgefan-
leg brigslyrði í garð fjölda opinberra
starfsmanna. Það er þó virðingar-
vert að alþingismaðurinn vill nú
leiðrétta ummæli sín og er betra
seint er aldrei.
_________________________________é
Höfundur er hæstaréttarlögmað-
BÓKAÚTGÁFAN Setberg hefur
gefið út bókina „Allt fyrir þig“
eftir Danielle Steel. Þetta er sjö-
unda bók hennar sem út kemur
á íslensku. Hinar eru „Gleym mér
ei“, „Loforðið“, „Hringurinn“, „í
hamingjuleit", „Þú sem ég elska“
og „Vegur ástarinnar".
„Allt fyrir þig“ er saga Fay Price
og fjölskyldu hennar. Þetta er saga
af ólíkum einstaklingum sem saman
verða að takast á við raunveruleik-
ann í fallvöltum heimi draumaverk-
smiðjunnar í Hollywood.
Þegar Fay Price, ein efnilegasta
leikkonan í Hollywood, kynnist
Wrad Thyer, glæsilegum milljóna-
erfíngja, tekur líf hennar algerum
stakkaskiptum. Hún leggur leik-
ferilinn á hilluna og ákveður að
helga líf sitt manni og bömum. En
hvað gerir hún þegar Wrad verður
gjaldþrota, gefst upp og skilur hana
eftir eina með fímm böm? Á hún
enn möguleika á að taka upp þráð-
inn þar sem frá var horfíð í
kvikmyndaheiminum?
(Úr fréttatilkynningu.)
Bahus borðstofuhúsgögn og veggsamstæður
Jólasendingin komin
Smiðjuvegi 6, Kópavogi simar 45470 — 44544.