Morgunblaðið - 11.12.1986, Page 81

Morgunblaðið - 11.12.1986, Page 81
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986 81 Hversvegna þessi aðf ör að Helgarpóstinum núna? Kæri Velvakandi. Upp á síðkastið hef ég orðið vör við að Helgarpóstinum er legið á hálsi fyrir harkaleg skrif í garð ráðamanna þjóðarinnar og ýmissa stofnana hennar. Blaðið hefur verið vænt um níðingsskap og róg um þessa aðila. Kerfíshundamir hafa risið upp á afturlappimar og öskrað, blaðið lýgur, blaðið lýgur. Það er reyndar með ólíkindum hvað blaðamenn Helgarpóstsins hafa mátt þola af allskonar svívirð- ingum í þessum dúr að undanfömu. Og það er nokkur vitnisburður um þá, hvað þeir hafa haldið vel ró sinni á meðan. En hversvegna skyldi það nú vera sem þessar ásakanir dynja yfír blaðið. Hversvegna þessi aðför að Helgarpóstinum núna? Rétt svar við þessum spumingum vilja fáir viðurkenna: Helgarpósturinn hefur ijölmiðla skeleggast gengið fram í því að sýna stjómvöldum aðhald á síðustu mánuðum. Hann hefur bent á fjölmörg atriði í okkar þjóðfélagi sem betur hafa mátt fara, mörg hver sem fáa óraði fyrir að eitthvað væri athugavert við, en reyndist svo sannarlega vera þegar betur var að gáð. Ég held að fólk geri sér ekki almennilega grein fyrir því hvað blaðið hefur mikilvægu hlut- verki að gegna í þessu lýðræðisþjóð- félagi okkar. Nú er ég bara venjulegur borg- ari hér í Reykjavík og kann ekki skil á faglegum sjónarmiðum í blaða- og fréttamennsku, en mér þykir jafn ljóst fyrir það, að Helgar- pósturinn hefur einn fjölmiðla sýnt þann styrk á undanfömum mánuð- um sem nægir til að hér á landi verði rekin fijáls og óháð fjölmiðl- un, sem skili okkur réttlátara þjóðfélagi. Guðrún Björg Jóhannsdóttir, Reykjavík. Vantarheimil- isfang Isfirð- inganna Kristbjörn Óskarsson á Húsavík skrifar: Sl. sumar var ég tjaldvörður á tjaldstæðinu á Húsavík. Fjölskylda frá ísafírði gisti á svæðinu nótt eina í ágúst og kynntist ég þessu fólki dálítið. Þau komust að því að ég safna pennum af öllum gerðum, og dag einn í haust fékk ég sendingu, frá þessu ágæta fólki, sem innihélt 8 penna frá fyrirtækjum á ísafírði. Nú bara vill svo illa til að ég hef hvorki nafn né heimilisfang þessara góðu ferðamanna, sem mig langar að hafa samband við. í þeirri von að ísfírðingar lesi þessar línur þakka ég Velvakanda fyrir birtinguna og heimilisfang mitt og sími en Kristbjöm Óskarsson, Höfðavegi 8, 640 Húsavík. S: 96-41602. é> Góð bók ARNI KRISTJANSSON HVAÐ ERTU TÓNLIST? Hvað ertu tónlist?eftir Árna Kristjánsson píanóleikara. Snilldarlega rituð bók. Fjallað um Bach, Haydn, Scarlatti, Chopin, Wagner, Schubert, Smetana, Ber- lioz, Grieg, Sibelius, Sallin- en og Nordheim. Einnig ritgerð um tónlist almennt og um íslenska tónlist fyrrog nú. ■: % , Leystu rriig, MaggiRjoturj Mamma. þin nó&i /VÍSA- KOrti<$!" ----§---------i---i-- ást er... ... að skilja veik- leika hvors annars. TM Reg u.S. Pat. Ott,—all rights reserved ®1984 Los Angeles Times Syndicate Ég spurði ekki hvernig börn fæðast heldur vegna hvers! Þú munt kynnast dökkri konu og svo kynnist þú dökkri konu og svo ... kynnist þú dökkri konu!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.