Morgunblaðið - 11.12.1986, Page 83
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986 83
• Hornamafturinn snjalli hjá Val,
Valdimar Grímsson, átti mjög
góðan leik gegn Stjörnunni og
skoraði 7 mörk.
Blak:
Þróttur og Víkingur unnu
TVEIR leikir fóru fram í 1. deild I 15:5) og Víkingur vann HSK
karla í blaki í gærkvöldi. Þróttur sömuleiðis 3:0 (15:10, 15:6 og
sigraði Fram 3:0 (16:14, 15:10 og I 15:7).
REFSKA
eftir
Q&istjánf]. Gunnarssoru
Sönn íslendingabók - Ný Bandamannasaga
Haukasigur
SIGURJÓN Sigurðsson
skoraði 10 mörk fyrir Hauka
sem sigruðu KR, 24:19, i' 1.
deild í gærkvöldi. Staðan f
hálfleik var 11:9 fyrir Hauka.
Morgunblaðift/RAX
Æsispennandi hjá
Val og Stjörnunni
VALUR og Stjarnan gerðu jafn-
tefli, 22:22, f æsispennandi
handboltaleik í 1. deild f Laugar-
dalshöll f gærkvöldi. Stjarnan
hafði þrjú mörkyfir íhálfleik 12:9.
Valsmenn höfðu frumkvæðið til
að byrja með en leikmenn Stjörn-
unnar jöfnuðu jafnóðum. Þegar 10
mín. voru liðnar var staðan 4:4 og
skoraöi Gylfi Birgisson þá tvö
mörk fyrir Stjörnuna sem hafði
frumkvæðið það sem eftir var hálf-
leiksins.
Valsmenn byrjuðu seinni hálf-
leikinn mjög vel og náðu aö saxa
á forskotið og jöfnuöu í fyrsta sinn
í hálfleiknum 17:17 þegar 10 mín.
voru til leiksloka. Síðan var jafnt á
öllum tölum upp í 22:22 og þá
þrjár mín. eftir. Allt var á suðu-
punkti síðustu mínúturnar en
hvorugu liðinu tókst að skora og
deildu því með sér stigunum.
Leikurinn var mjög hraður og
skemmtilegur og sýndu bæði liðin
góð tilþrif. Jakob, Valdimar og Stef-
án voru bestu menn Vals. Hjá
Stjörnunni voru Gylfi og Sigurjón
í sérflokki. Óli Olsen og Gunnlaug-
ur Hjálmarsson dæmdu leikinn
ágætlega.
MÖRK VALS: Jakob Sigurftsson 7, Vald-
imar Grímsson 7, Stefán Halldórsson 5/3,
Þórður Sigurðsson 2 og Július Jónasson 1.
MÖRK STJÖRNUNNAR: Gylfi Birgisson
7, Sigurjón Guðmundsson 6, Páll Björg-
vinsson 3, Skúli Gunnsteinsson 2, Haf-
steinn Bragason 2 og Einar Einarsson og
Hannes Leifsson eitt mark hvor.
S.G./Vajo
1. deild kvenna:
Fram á toppnum
Refska er saga úr samtíðinni sem dulbúin er í gervi fornsögu og lýsir fornald-
arfólki í íslensku vandamálaþjóðfélagi.
I Refsku er m.a. fjallað um:
• Landshornagoða og smágoða.
• Eflingu byggðar í óbyggðum.
• Þjóðráð, bjargráð og snjallræði sem Óbyggðasjóður kostar.
• Uppreisn mósokkanna gegn karlrembusvínum.
• Kvennafund í Almannagjá.
• Goðorðsvöld Guðríðar Óspaksdóttur.
• Útburðbarna.
• Vistun gamalmenna í Kjarreyjarklaustri.
• Þjóðflokkinn Krýsa sem eru huldumenn í landinu.
• Kusa, foringja verkþræla, og Sólstöðusaminginn.
• Skipti á skíru silfri fyrir flotsilfur.
• Inngöngu allsherjargoðans í félag Bílduberga.
• Gorm konung gerska og guðinn Lenimax.
• Hróald helga í Hvítramannalandi og Nýja sáttmála.
• Drekabæli í Strympunesi.
• Almenna múrgoðafélagið og Höll múrgoða.
Margt fleira ber á góma í þessari sönnu lygisögu sem sögð er af íþrótt stílist-
ans og uppfull af gráglettinni fyndni. Bók sem talað verður um og allir þurfa að
lesa. Refska er sagan um refskuna í íslenskri samtíð.
FRAM sigraði Stjömuna naum-
lega í spennandi leik, 20:19, í 1.
deild kvenna í Digranesi í gær-
kvöldi. Ama Steinsen skoraði
sigurmark Fram 2 sekúndum fyrir
leikslok. Fram er þar með eitt á
toppi 1. deildar.
Leikur Fram og Stjörnunnar var
mjög jafn og spennandi eftir að
staðan í hálfleik hafði verið jöfn,
10:10. Fjóla, markvörður Stjörn-
unnar, varði oft mjög vel í lokin.
MÖRK STJÖRNUNNAR: Eria Rafnsdóttir
8/4, Anna Guðjónsdóttir 3, Margrét The-
ódórsdóttir 3, Drífa Gunnarsdóttir 2 og
Hrund Grétarsdóttir, Ingibjörg og Stein-
unn eitt mark hver.
MÖRK FRAM: Guftriftur Guðjónsdóttir 9,
Ama Steinsen 4/1, Ingunn Bernótusdóttir
3, Jóhanna Halldórsdóttir 2 og Susanna
Gunnarsdóttir og Margrét Blöndal eitt
mark hvor.
KR—Valur 19:19
KR og Valur gerðu jafntefli, 19:19,
í jöfnum og skemmtilegum leik
eftir að staðan í hálfleik hafði verið
10:1°.
MÖRK KR: Sigurbjörg Sigþórsdóttir 8,
Ama Garðarsdóttir 4, Aldís Arthúrsdóttir
2, Karolína M. Jónsdóttir 2, Elsa Ævars-
dóttir 2 og Bryndís Harðardóttir 1.
MÖRK VALS: Katrín Fredriksen 7, Guðrún
Kristjánsdóttir 7, Erna Lúðvíksdóttir 2,
Harpa Sigurðardóttir 2 og Ásta Björk
Sveinsdóttir 1.
Evrópukeppnin í knattspyrnu
BARCELONA sigraði Bayer Uerd-
ingen, 2:0, í UEFA-keppninni á
Spáni í gærkvöldi. Juan Carlos
Rojo skoraði bæði mörk Barcel-
ona undir lok leiksins. Atli og
félagar hjá Uerdingen eru því úr
leik i keppninni.
Leik Inter Milan og Dukla Prag
varð að fresta vegna þoku í Milanó
þegar um 15 mínútu voru til leiks-
loka. Þá var staðan 1:0 fyrir Inter
og skoraði Karl Heinz Rummen-
igge markið á 56. mín. Leikmenn
biðu þess í eina og hálfa klukku-
stund að þokunni létti en án
árangurs. Ekki hefur verið ákveðið
hvenær leikurinn verður spilaður.
Dundee United gerði marka-
laust jafntefli við júgóslavneska
liðið Hajduk Split og komst þar
með í áfram eftir 2:0 sigur í fyrri
leiknum.
Gautaborg vann stórsigur á
Ghent frá Belgíu, 4:0, og tryggði
sér sæti í 8-liða úrslitum. Magnus
Johansson skoraði fyrsta markið á
síöustu mínútu fyrri hálfleiks. Jari
Rantanen, Glenn Hysen og Peter
Larsson bættu þremur mörkum
við í seinni hálfleik.
Torinó sigraði Beveren frá
Belgíu með einu marki gegn engu
á útivelli og heldur áfram.
Tyrol frá Austurríki sigraði-
Spartak Moskva, 2:0, á heimavelli.
Alfred Roscher og Johann Muller
skoruðu mörkin með tveggja
mínútna millibili í seinni hálfleik.
Vitoria Guimaraes frá Portúgal
sigraði Groningen, 3:0, og komst
áfram í 4. umferð. Nascimento og
Ndinga skoruðu í fyrri hálfleik og
Cascavel í seinni hálfleik.