Morgunblaðið - 11.12.1986, Síða 84

Morgunblaðið - 11.12.1986, Síða 84
AIENN /MÖNNUM >íi Þórshöfn: Uppsagnir í frystihúsinu OLLUM starfsmönnum Hrað- ^^frystihúss Þórshafnar hefur ^^TCrið sagt upp störfum frá 9. janúar næstkomandi. Hjá frysti- húsinu vinnur á sjötta tug manna. Að sögn Jóhanns A. Jónssonar er ástæða uppsagnanna sú að Stak- fellið, sem aflað hefur frystihúsinu hráefnis, fer í slipp eftir áramótin. Ákvörðun hefur verið tekin um að breyta skipinu í frystiskip. Lítil von er um að vinna geti orðið í frystihús- inu fyrr en næsta vor. Sjá frétt á bls. 47. Grindavík: JHeilsugæsla hækkar um 45% á næsta ári Grindavík. MIKIL hækkun verður á rekstr- arkostnaði Heilsugæslustöðvar Suðurnesja á næsta ári. í fundar- gerð heilsugæslunefndar Grinda- víkur frá 8. desember, sem lögð verður fyrir bæjarstjóm í dag, ^gjg- vakin sérstök athygli á þvi að á næsta ári beri bænum að greiða til heilsugæslunnar 3,2 mi^jónir króna, eða um 1542 krónur á hvem íbúa. Árið 1985 var kostn- aður Grindavíkur 760 krónur á hvera íbúa, og í ár er heildar- kostnaður samkvæmt kostnað- aráætlun um 1750 þúsund krónur eða 863 krónur á hvera íbúa. Heilsugæslunefnd Grindavíkur hefur ásamt Kristmundi Ásmunds- syni heilsugæslulækni kynnt sér rekstur heislugæslustöðva í Hvera- gerði, Þorlákshöfn, á Hvolsvelli og Helli. Niðurstaða þeirra er að þar greiði sveitarfélögin árið 1985 frá 500-650 krónur á hvem íbúa, eða n'i9f5%-35% minna en Grindavíkur- bær. Kr. Ben Lést í slysi í Danmörku ÍSLENDINGUR, 47 ára gamall, lést í bílslysi í Danmörku sl. mánudagsmorgun. Hann hét Ól- afur Eiður Helgason og hafði verið búsettur eriendis í yfir 20 ár. Hann lætur eftir sig danska konu og 12 ára son. Ólafur Eiður var frá Húsavík. Hann var á leið heim til sín úr vinnu er hann missti stjóm á bíl sínum, fór út af og endaði í skurði við vegarkantinn. Ólafur starfaði sem háseti á ferju er sigldi á milli Sjá- lands og Fjóns. fM DAGAR I O TIL JÓLA FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Normannsþinur ograuðgreni vinsælust JÓL ATRÉSSALA er þegar komin í gang þótt enn séu tvær vikur til jóla. Normannsþinur og íslenska rauðgrenið virðast vera vinsælustu jólatrén í ár. Ódýrustu trén til heimilisnota eru á 345 krónur og þau dýrustu á kr. 1400. Hjá Landgræðslusjóði er aðeins þriðjungurinn af tijánum innfluttur, en hjá Blómavali er hlutfaUið þveröfugt, aðeins 20 til 25% eru innlend tré. Happdrætti háskólans: Fjórir fengu 2 milljónir, enginn átti trompmiðana DREGIÐ var í Happdrætti Háskóla íslands í gær. Að þessu sinni var hæsti vinningurinn tvær milljónir króna, en eigendur nífaldra trompmiða gátu gert sér von um að vinna átján milljónir króna. Að sögn Jóhannesar L.L. Helgasonar, forstjóra HHÍ kom vinningurinn á miða 43488 og áttu fjórir Reyk- víkingar miða með þessu númeri. Hljóta þeir tvær milljónir hver en happdrættið átti „trompið" og fékk tiu milljónir í sinn hlut. Þrír fengu annan vinning, eina milljón króna hver, en HHÍ fékk 6 milljón- ir af næsthæsta vinningi. Jóhannes sagði að hæstu vinning- amir tveir hefðu numið 27 milljónum króna og féllu sextán þeirra á óselda miða. Alls verða um 100 milljónir króna borgaðar út í vinninga eftir þennan drátt. „Yfir árið borgum við sjötíu prósent af tekjum í vinninga. Því hlutfalli skeikar aldrei nema um eitt prósent til eða frá, þótt í þetta sinn hafi meirihluti efstu vinninganna komið í hlut happdrættisins," sagði Jóhannes. Búist við kaupum ríkisins á Borgarspítalanum: Sjálfstæði í rekstri spítalans verði tryggt BÚIST er við að í dag eða næstu daga verði gengið frá kaupum ríkisins á Borgarspítalanum. Heilbrigðisráðherra sagði í gær að reynt yrði að tryggja sjálf- stæði i rekstri sjúkrahússins ef af kaupunum verður. Á þing- flokksfundi Sjálfstæðisflokksins í gær var þeim Ragnhildi Helga- dóttur og Þorsteini Pálssyni falið að ganga frá máli þessu. Á aðalfundi í fulltrúaráði Sjálf- stæðisfélganna í Reykjavík í gærkvöldi var gerð ályktun þess efnis, að spítalinn verði ekki undir nokkrum kringumstæðum settur undir stjóm ríkisspítalanna, heldur tryggð sjálfstjóm hver sem eignar- aðildin verður. „Það hafa auðvitað verið skiptar skoðanir um þetta mál innan þing- flokksins. Við treystum ráðherrun- um til að finna á því farsæla lausn,“ sagði Ólafur G. Einarsson, formað- ur þingflokks Sjálfstæðisflokksins, að loknum þingflokksfundi í gær, þar sem ijallað var um málefni Borgarspítalans. Ólafur sagði að sú skoðun hefði komið ákveðið fram innan þingflokksins, að yrði spítal- inn seldur væri eindreginn vilji fyrir því að hann héldi ákveðinni sjálf- stjóm, en færi ekki beint undir Sænskur maður í gæsiuvarðhaldi á hóteli: Framsals krafist fyr- ir stórfelld fjársvik SÆNSKUR maður á fimmtugs- aldri var úrskurðaður í gæslu- varðhald í Sakadómi Reyjavíkur í síðustu viku. Maðurinn er ákærður fyrir stórfelld fjársvik í Svíþjóð og fóru þarlend yfir- völd fram á handtöku og framsal hans. Manninum er haldið í stofu- fangelsi á hóteli í Reykjavík á meðan beðið er úrskurðar Hæstaréttar um hvort skilyrðum til framsals sé fullnægt. Að sögn Þorsteins A. Jónssonar, yfirlögfræðings dómsmálaráðu- neytisins, eru ákærumar á hendur manninum mjög alvarlegar. Hann sagði að ekki hefði verið talið rétt að halda manninum í Síðumúla- fangelsinu af heilsufarsástæðum. Maðurinn er tíður gestur á íslandi I er. Framsal mannsins er á valdi og tengist landinu sterkum bönd- dómsmálaráðherra, sem tekur um. Hann hefur ekki gerst brotleg- beiðnina fyrir ef Hæstiréttur úr- Ui* við íslensk lög, að því er vitað I skurðar að framsal geti farið fram. Mjólkin greidd út í dag? KÚABÆNDUR fengu ekki greiðslur fyrir mjólkurinnlegg sitt í nóvembermánuði í gær eins og þeim þó ber lögum sam- kvæmt. Ástæðan er peningaleysi mjólkursamlaganna eins og fram hefur komið í blaðinu. í gær funduðu forsvarsmenn af- urðastöðvanna með fulltrúum landbúnaðar- og fjármálaráðuneyt- anna. Óskar H. Gunnarsson formaður Félags afurðastöðva í mjólkuriðnaði sagðist í gærkvöldi vera vongóður um að lausn fengist á málinu fyrir hádegið í dag og bændur fengju greiðslumar þá inn á reikninga sína í dag. stjómamefnd ríkisspítalanna. „Ég á von á því að gengið verði frá málefnum Borgarspítalans í dag,“ sagði Davíð Oddsson, borgar- stjóri, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Það sem gerist er að Borgarspítalinn fer á föst fjárlög með samþykki borgarinnar og af því tilefni verður gerður upp hluti kostnaðar borgarsjóðs af spftalan- um. Ríkið greiðir nú 85% í bygging- um sjúkrahúsa og borgin eða sveitarfélög 15%. Gert er ráð fyrir í nýjum drögum að samningi ríkis og borgar að borgin fái það sem upp á vantar á þessi 85% sem ríkinu ber að greiða." Davíð sagði að í dag yrði framtíðarstjómskipan spítalans rædd og hefði heilbrigðisráðherra álitlegar tillögur hvað það varðaði. Ragnhildur Helgadóttir, heil- brigðisráðherra, sagðist í samtali við Morgunblaðið, ekki búast við að samningar tækjust í dag. „Ég er ákveðin í því að ef af þessum kaupum verður, þá sé svo frá þeim gengið að Borgarspítalinn verði sjálfstæð rekstrareining og jafnvel sjálfstætt Qárlaganúmer, hann hafi verulega sjálfstjóm og fulltrúar hans komi inn og starfi með hinum þingkjömu fulltrúum í stjóm ríkisspítaianna þegar málefni Borg- arspítalans eiga í hlut.“ Ragnhildur sagðist ætla að ræða tillögur sínar við forystumenn Borg- arspítalans í dag eða á morgun áður en hún greindi öðmm frá þeim í smáatriðum. Sjá nánar um málefni Borg- arspítalans á miðopnu á bls. 42 og 43.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.