Morgunblaðið - 24.12.1986, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1986
Sjómenn
og fluglið-
ar í önnum
EKKI geta allir verið hjá fjöl-
skyldum sinum yfir jólahátíð-
ina. Þannig verða allmörg
farskip á hafi úti eða í höfnum
erlendis og líklega níu togarar
á sjó á aðfangadagskvöld.
Flugleiðir halda uppi flugi yfír
Atlantshafíð hátíðisdagana og ein
vél er í flutningaflugi fyrir Saudi-
Araba. Um 90 starfsmenn flugfé-
lagsins verða úti á aðfangadag og
jóladag.
Þröstur kom-
inn í 2.-3. sæti
ÞRÖSTUR Þórhallsson sigraði al-
þjóðlega meistarann McDonald frá
Englandi í 68 leikjum í gær f 5.
umferð á Evrópumeistaramóti
unglinga f Groeningen í Hollandi.
Þröstur var með svart og upp kom
drottningarpeðsbyrjun.
Þröstur er í 2.-3. sæti á mótinu
með 4 vinninga ásamt alþjóðlega
meistaranum Manor frá ísrael. Efstur
er Ivanchuk frá Sovétríkjunum með 5
vinninga eftir 5 umferðir, en hann
verður andstæðingur Þrastar í 6.
umferð sem tefld verður i dag. Alls
verða tefldar 13 umferðir á mótinu.
Lögreglan tæmir hillur einnar myndbandaleigunnar í Reykjavík á mánudagskvöldið.
Aðgerðir gegn myndbandaleigum:
Morgunblaðið/RAX
Lögreglan lagði hald á um
tólf þúsund myndbönd
Nýjar hurðir
FYRIR jólin voru settar upp
hurðir milli forkirkju og kirkju-
skips Hallgrímskirkju.
Hurðimar teiknuðu Guðrún
Norðdahl arkitekt og Garðar Hall-
dórsson húsameistari ríkisins. Sögin
hf. annaðist smíði hurðanna og yfír-
smiður var Pétur Siguijónsson.
Gluggamir, sem gerðir em af Leifi
Breiðíjörð, glerlistarmanni, eru
minningargjöf um hjónin Guðnýju
Guðnadóttur og Kristján Eggerts-
son frá Dalsmynni, sem lengst af
bjuggu á __ Grettisgötu 56A í
Reykjavík. Á myndinni sést lista-
maðurinn vinna við ísetningu
glugganna.
Aðallega var um að ræða ótextuð bönd sem talin
voru ólögmæt samkvæmt höfundarlögum
LÖGREGLA á Suðvesturhominu lagði hald á hátt á tólfta þúsund
myndbönd á mánudagskvöldið í samræmdum aðgerðum gegn mynd-
bandaleigum sem dómsmálaráðuneytið fyrirskipaði og fól lögreglu-
stjóranum í Reykjavík að hafa yfirumsjón með. Aðallega var lagt
hald á ótextuð myndbönd en einnig myndbönd sem á vantaði merk-
ingar frá dreifingaraðilum og kvikmyndaeftirliti og vora dæmi um
að mörg hundruð myndbönd væru tekin úr einstökum leigum.
Dómsmálaráðuneytið sendi bréf lega var lagt hald á myndir sem
til lögreglustjóra í Reykjavík og
nágrenni þar sem riijuð var upp
aðgerð gegn myndbandaleigum í
febrúar 1985 og vakin athygli á
ábendingum frá Kvikmyndaeftirliti
ríkisins um að enn væri víða pottur
brotinn í þessum efnum. Lögreglu-
stjóranum í Reykjavík var falið að
hafa umsjón með þessum aðgerðum
í samráði við Kvikmyndaeftirlitið
og Samtök rétthafa myndbanda á
íslandi og skyldi rannsóknin aðal-
lega beinast að því hvort á leigunum
fyndust ofbeldismyndir og klám-
myndir, hvort myndbandaleigumar
hefðu verslunarleyfí og bókhald
þeirra væri í lagi, og einnig að því
hvort framin væru hugsanleg brot
gegn höfundarréttarlögunum.
Lögreglan lét til skarar skríða
klukkan 17 á mánudag og stóð
aðgerðin fram yfír miðnætti. Aðal-
taldar vom fluttar inn án þess að
tilskilin höfundarréttarleyfi væru
fyrir hendi og því ólöglegar, en
kæra hafði borist frá Samtökum
rétthafa myndbanda vegna slíks.
Var litið svo á að nær allar ótextað-
ar myndir féllu undir þá skilgrein-
ingu. Samkvæmt upplýsingum
lögreglu var lagt hald á 6375 mynd-
bandsspólur í Reykjavík, milli eitt
og tvö þúsund spólur í Hafnarfírði,
á annað þúsund spólur í Kópavogi
og yfír 2000 spólur í Keflavík,
Grindavík, Njarðvík og Vogum, og
vom flestar þær spólur teknar á
tveimur leigum í Keflavík.
í samtölum við Morgunblaðið
gagnrýndu eigendur myndbanda-
leiga mjög þessar aðgerðir lögreglu,
og sögðu að margar af þeim spólum
sem teknar hefðu verið væm ófull-
nægjandi merktar af rétthöfunum
Sjómenn boða verk-
fall frá áramótum
MEST allur fiskiskipafloti landsmanna stöðvast eftir áramótin, þvi
Sjómannasamband Islands og Farmanna- og fiskimannasamband
fslands boðuðu verkfall í gær frá og með 1. janúar. Yfiraefnd Verð-
lagsráðs sjávarútvegsins fundaði um fiskverð eftir hádegið í gær,
en verðlagsákvörðun var vísað til nefndarinnar á fundi Verðlagsráðs-
ins í gærmorgunn. Ekkert bar til tiðinda á fundi yfiraefndarinnar.
„Viðræður hafa borið lítinn ár- blaðið.
angur til þessa og það er vonandi
að þær gangi betur eftir að við
höfum sett allan þann þrýsting, sem
við höfum yfír að ráða, á viðræðum-
ar og menn fari að tala saman af
viti,“ sagði Guðjón A. Kristjánsson,
forseti Farmanna- og fískimanna-
sambandsins, í samtali við Morgun-
Hómgeir Jónsson, hjá Sjómanna-
sambandi íslands, sagði að öll
aðildarfélög sambandsins boðuðu
verkfall, utan þess að sjðmenn á
Vestfjörðum myndu boða verkfall
sér, svo og verkalýðsfélögin á Hell-
issandi og í Stykkishólmi. Sjó-
mannafélagið á Sauðárkróki myndi
boða verkfall frá og með 3. janúar.
Sjómannafélagið á Skagaströnd
boðar ekki verkfall, að sögn Hólm-
geirs og Sjómannafélag Reyðar-
§arðar hefur ekki sagt upp
samningum.
Sjómannafélag Reylgavíkur hef-
ur boðað verkfall frá og með 5.
janúar.
Deila sjómanna er hjá ríkissátta-
semjara og þegar Morgunblaðið
hafði fregnir af um miðjan dag í
gær, hafði ekki verið boðað til
samningafundar.
Lögreglan ber myndbönd í
hundraðatali út úr einni leigunni.
og þeim sem sjá um að dreifa þeim.
Þannig fái dreifíngaraðilar rúllu
með miðum frá Kvikmyndaeftirlit-
inu og eiga að sjá sjálfír um að líma
miðana á spólur sem þeir fjölfalda,
en oft vilji vera misbrestur þar á.
Þannig hafí verið dæmi um að lög-
reglan hafí lagt hald á myndbönd
í leigum af því að á þau vantaði
miða frá Kvikmyndaeftirlitinu, þó í
hillunni við hliðina hafí verið ná-
kvæmlega eins spóla, að viðbættum
merkimiðanum.
Einnig gagmýndu myndbanda-
leigueigendur það að allar ótextað-
ar myndir hefðu verið gerðar
upptækar og sögðu að í flestum
tilfellum væru þær tilkomnar þann-
ig að eigendumir kaupa þær
erlendis og flytja þær inn og borga
af þeim innflutningsgjöld og sölu-
skatt. Erlendis séu engar takmark-
anir á útleigu slíkra mynda og hér
á landi hafí enginn umboð fyrir
marga framleiðendur og því hafí
ekki réttur aðili kært útleigu á
mjmdunum
Þetta var borið undir Magnús
Kjartansson framkvæmdastjóra
Samtaka rétthafa myndbanda á
íslandi. Hvað ófullnægjandi merk-
ingar dreifingaraðila varðaði sagði
Magnús að það væri vandamál sem
ekki kæmi til kasta samtakanna
heldur hvers dreifíngaraðila fyrir
sig.
Um síðara atriðið sagði hann að
samtökin hefðu það að markmiði
að stemma stigu gegn ólöglegri
beitingu á höfundarrétti. Hér á Is-
landi væri óheimiit að leigja út
myndbönd án leyfis rétthafans, og
þó hægt sé að kaupa spólur erlend-
is með ótakmörkuðum sýningarrétti
þar gildi slíkt ekki hérlendis. Því
sé óheimilt að leigja slíkar spólur
hér þó enginn hafí fengið einkarétt
á dreifingu þeirra hérlendis og
raunar hefðu erlendir aðilar sem
ættu myndir á markaði hérlendis
leitað til samtakanna um að gæta
réttar þeirra.
Þórður Þórðarsson lögreglufull-
trúi í Reykjavík sagði að nú væri
verið að kanna á grundvelli kæru
rétthafa hvort þær spólur sem lagt
var hald á, væru með leyfi eða ekki;
þama væri um að ræða frumrann-
sókn á kæruefninu, og sagðist hann
ekki á þessu stigi geta sagt um
hvenær henni lyki eða hvort ein-
hveijum spólum yrði skilað aftur
að henni lokinni.
„Við höfum kannað lögmæti
þessara aðgerða og sjáum ekki bet-
ur en að lögreglan hefði þurft að
leggja fram lista frá rétthöfum yfír
myndir sem kynnu að vera ólögleg-
ar. Það er því um mistök í fram-
kvæmd þessa máls að ræða,“ sagði
Þóroddur Stefánsson formaður
Samtaka myndbandaleiga. „Síðan
er ljóst að rétthafar hafa vanrækt
að merkja myndir sem síðan voru
gerðar upptækar á mánudaginn.
Við munum að sjálfsögðu fara fram
á háar skaðabætur frá rétthöfum
og neita að taka við spólunum aft-
ur. En það bætir ekki það að þetta
er gífurlegt áfall á aðalannatíma
ársins á myndbandaleigunum og
verður til þess að fleiri tugir manna
stefna beint í gjaldþrot," sagði Þór-
oddur.