Morgunblaðið - 24.12.1986, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 24.12.1986, Blaðsíða 31
Bandaríkin MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1986 31 Fréttaskýrendur ræða heilsuleysi og elli forsetans Reagan vex f iskur um hrygg í könnun Hvíta hússins MENN sem eru kunnugir inn- viðum stjórnarinnar í Washing- ton leita nú skýringa á fuminu á Ronald Reagan Bandaríkjafor- seta í vopnasölumálinu. Þeir eru farnir að velta því fyrir sér opin- berlega hvort elli og heilsuleysi forsetans hafi í för með sér að hann geti ekki stjórnað sem skyldi. Efasemdir um hæfni Reagans skutu upp kollinum þegar greint var frá því að elsti forseti í sögu Bandaríkjanna ætti að fara í upp- skurð í janúar. Edwin Meese dómsmálaráðherra hellti olíu á eldinn þegar hann bar vitni fyrir þingnefnd og gaf í skyn að forsetinn gæti hafa tekið mikil- vægar ákvarðanir undir áhrifum lyfja nokkrum vikum eftir að hann gekkst undir uppskurð í fyrra. William Cohen, öldungadeildar- þingmaður repúblikana, sagði aðspurður um það hvort Reagan væri ekki lengur starfí sínu vaxinn: „Það er ekki útilokað." James Reston, dálkahöfundur The New York Times var óvenju skorinorður í grein undir fyrirsögn- inni: „Aldur Reagans og minni". Reston er sjálfur 77 ára og tveimur árum eldri en forsetinn. Hann hefur fylgst með forsetum Bandaríkjanna í hálfa öld. í greininni hefur hann eftir lækni að fumið á forsetanum „gæti stafað af öldrun hans". að eiga við vopnasölumálið ef það dregst á langinn. Larry Speakes, talsmaður Reag- ans, sagði í gær að vinsældir Reagans væru nú famar að aukast á nýjan leik. Hann greindi blaða- mönnum frá því að könnun, sem gerð hefði verið fyrir stjómina í síðustu viku, sýndi að tíu til fímmt- án prósent fleiri væru nú þeirrar hyggju að forsetinn stæði sig vel í starfí en áður hefði komið fram. Sagði hann að um helmingur að- spurðra hefði lýst yfír velþóknun sinni á störfum forsetans. Starfsmenn Hvíta hússins og aðstoðarmenn forsetans vilja þó ekki gera úr því skóna að vopna- sölumálið sé í rénun, enda sýna skoðanakannanir fréttastofa og fjölmiðla að enn dragi úr fylgi for- setans. AP/Símamynd * I verkfall gegn kröfuhörðum krökkum Michele Dunlap, sjö bama móðir í borginni Indiana- polis í Bandaríkjunum, fór í verkfall sl. sunnudag gegn vinnuveitanda sínum, krakkagrislingunum, sem aldrei láta af kröfugerðinni en geta ekki ekið sér úr stað þegar taka þarf til hendinni. Sagði frú Dunlap, að það væri illt að leggja ást við þann, sem enga kann á móti, og því hefði hún ákveðið að hætta að stjana við kröfugerðarhópinn, elda ofan í hann, þvo af honum leppana og tína upp eftir hann ruslið. Frú Dunlap hafði á sunnudag ekkert verslað eða sinnt öðmm jólaundirbúningi og ætlaði ekki að gera fyrr en krakkamir hefðu undirritað samning þess efnis, að þeir hefðu skyld- um að gegna á heimilinu. Heimsmet Voyagers: Hundrað þúsund manns fögnuðu flugköppunum Edwards Air Force Base, Kaliforníu, AP. Lou Cannon sem hefur skrifað um Bandaríkjaforseta i rúm 20 ár ræðir einnig um aldur forsetans í Washington Post. Cannon hefur oft lýst yfir aðdáun sinni á pólitískri þrautseigju Reagans, en hann segir að forsetinn hafí glatað jarðsam- bandi í vopnasölumálinu. Og Cannon bætir því við að aðstoðar- menn Reagans velti því fyrir sér hvort Reagan sé þess umkominn TILRAUNAFLUGVÉLIN Voya- ger lenti í gær á Edwards-her- flugvellinum í Kalforníu eftir að hafa flogið umhverfis hnöttinn án þess að taka eldsneyti. Þessi frækna ferð tók níu daga og lauk henni degi á undan áætlun. Um hundrað þúsund manns fögnuðu flugmönnunum tveimur, Dick Rutan og Jeana Yeager, þegar þau lentu í Mojave-eyðimörkinni um 145 km norður af Los Angeles. Rutan gaf sigurmerki þegar hann steig út úr stjómklefa vélarinnar og gáfu velunnarar honum kúreka- hatt, sem hann setti á höfiið sér. Fréttaskýrendur líkja afreki flug- manna Voyager við flugferð Charles Lindbergh yfír Atlantshafíð árið 1927. Aftari vél flugvélarinnar Voya- ger stöðvaðist stutta stund er að lokum flugferðarinnar umhverfís hnöttinn dró. Vélin hrapaði niður um 3.400 fet áður en áhöfninni tókst að ræsa aðra vél. „Það er alvarlegt mál ef þú ert á flugi yfír hafí og vélin dettur út. Vélin stöðvaðist í 90 sekúndur vegna þess að loka, sem stjómar eldsneytisrennsli, brást," sagði Pet- er Riva talsmaður. Flugmönnunum Dick Rutan og Jeana Yeager tókst að tæma elds- neytisleiðslu og ræsa vél frammi í flugvélinni. Slökkt hafði verið á þeirri vél til að spara eldsneyti. Flugleiðin síðasta spölinn var ekki látin uppi til að koma í veg fyrir að áhugaflugmenn trufluðu úrvinda flugmennina um borð í Voyager. Voyager lenti síðdegis í gær en hnattferðin hófst 14. desember. Moskva: Seldu helgimyndir ólöglega úr landi Moskvu, AP. FIMM Sovétmenn, sem á sex ára tímabili hafa selt úr landi meira en 700 rússneskar helgimyndir að verðmæti um 2,5 miiy. dollara (um 100 millj. ísl. kr.), hafa verið dæmdir i langa fangelsisdóma. Skýrði sovézka fréttastofan TASS frá þessu í gær. TASS sagði aðeins, að hópurinn hefði verið undir stjóm manns að nafni Viktor Goncharenko. Hefði hópurinn selt sendimönnum margra sendiráða helgimyndir og ennfrem- ur smyglað helgimyndum til þriggja sovézkra útlaga, sem nú búa í Vest- ur-Berlín. TASS sagði, að réttarhöldin yfir Goncharenko og vitorðsmönnum hans, tveimur karlmönnum og tveimur konum, hefðu farið fram síðustu daga. Hins vegar var ekki greint frá því, hve þunga dóma þau hefðu hlotið. ■ ■■ ' \?/ , ERLENT, Becker fær áheyrn hjá páfa JÓHANNES Páll páfi II ræðir hér við vestur-þýsku tennisstjörn- una Boris Becker, sem oft er kaUaður „tennisundrið frá Leimen". Becker hlaut áheyrn páfa í Páfagarði í síðustu viku. Indland: Skæruliðar skutu tíu menn Nýju Delhí, AP. SKÆRULIÐAR skutu tíu menn til bana og særðu fjóra í fylkinu Tripura á Norðaustur-Indlandi, að því er indverska fréttastofan greindi frá í gær. Haft var eftir lögreglu að skæru- liðamir, sem krefjast aðskilnaðar og sjálfstæðis til handa þjóðflokki sínum, hefðu kveikt i húsum í árás- Líbanon: til bana inni á mánudagskvöld. Þeir hafa myrt rúmlega 60 manns undan- fama þrjá mánuði. Uppreisnarmennimir eru úr ýms- um þjóðflokkum, sem lengi hafa búið í Tripura. Undanfarin ár hafa innflytjendur streymt til fylkisins frá Bengal og Bangladesh og er nú svo komið að þeir, sem fyrir bjuggu í Tripura, eru i minnihluta. Franskur gísl látinn laus á næstu dögum Beirút, AP, SAMTÖK öfgafullra múhameðs- trúarmanna, sem halda tveimur Frökkum í gislingu i Libanon, tilkynntu í gær að þau hygðust sleppa öðrum þeirra á næstu dögum. Samtökin, Byltingarsamtök rétt- lætisins, komu tilkynningu þessa efnis á framfæri við dablaðið An- Nahar, sem gefíð er út í Beirút. Samtökin kváðust ætla að sleppa einum mannanna vegna tilmæla Sýrlendinga, írana og Alsírbúa. Ennfremur var franska ríkisstjómin hvött til að halda áfram tilraunum til að bæta samskiptin við stjóm- völd í íran. Með tilkynningunni fylgdu ljósmyndir af mönnunum tveimur og vora þeir fúlskeggjaðir og fremur þreytulegir að sjá. Ekki var minnst á tvo Banda- ríkjamenn, þá Joseph Cicippio og Edward Austin Tracy, sem samtök- in segjast halda gíslum í Líbanon.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.