Morgunblaðið - 24.12.1986, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.12.1986, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1986 Framleiðnisj óður landbúnaðarins: Peningar til kjúklinga, kinda, hesta og fiska STJÓRN Framleiðnisjóðs land- búnaðarins hefur ákveðið að veija 25 milljónum kr. til að milda þá verðskerðingu sem sauðfjárbændur fá á framleiðslu sina í haust. Að sögn Jóhannesar Torfasonar formanns stjórnar Framleiðnisjóðs er þetta tilsvar- andi greiðsla og ákveðin var til kúabænda vegna mjólkurkvótans sem settur var snemma á þessu ári. Sjóðsstjómin hefur einnig ákveðið að veita lán og framlög til útflutnings kjúklinga, til reið- hallar og fiskeldisstöðvar. Framlag sjóðsins er aðeins greitt á hluta þeirrar kindakjötsfram- leiðslu sem er umfram fullvirðisrétt en innan jarðabúmarks. Jafnframt hefur orðið að samkomulagi við framkvæmdanefnd búvörusamn- inga að þessu fjárframlagi verði fyrst og fremst ráðstafað til að minnka verðskerðingu á ærkjöti. Um 260 tonna framleiðsla er um- fram fullvirðisrétt en innan bú- marks og samsvarar framlag Framleiðnisjóðs því að felld verði niður verðskerðing á um 170 tonn- um af því. Stjóm Framleiðnisjóðs hefur ákveðið að veita kjúklingabændum 5 milljóna króna framlag á næsta ári og 10 milljóna króna lán til allt að 30 mánaða til að flytja úr landi að minnsta kosti 200 tonn af kjúkl- ingum. Framlagið samsvarar hlut Framleiðnisjóðs í fóðurgjaldi vegna kjúklingaframleiðslunnar í rúm tvö ár, að sögn Jóhannesar. Þá hefur sjóðsstjómin samþykkt að veita Reiðhöllinni hf. allt að 6 milljóna króna lán til byggingar reiðhallar í Reykjavík og Félagi hrossabænda 2 milljóna króna framlag til hlutaíjárkaupa í Reið- höllinni hf. Einnig hefur verið ákveðið að veita Miklalaxi hf. 6 milljóna króna lán til 3ja ára vegna byggingar fískeldisstöðvar félags- ins í Fljótum í Skagafírði. Aldnir hafa orðið erfiða reynslu að baki. En það ein- kennir þá alla að þeir eru lítt fúsir á að flíka einkamálum sínum og bera tilfínningar sínar á torg. Það er raunar einkenni á þessari kyn- slóð að telja slíkt fremur óviðeig- andi, þó að nú sé komin önnur öld með einkamálatísku. Henni mæli ég ekki bót, enda tilheyri ég víst öldungakynslóðinni. En þá kem ég að því. Mér þykir skilgreining þeirra Akureyringa á því hver er „aldinn" og „öldungur" í rýmra lagi. Þó að ég hafí að sjálf- sögðu ekkert við það að athuga að hálfsextugt eða sextugt fólk segi frá ævi sinni, er ég ekki sáttur við að kalla það aldrað. Neðri mörkin vil ég ekki setja neðar en hinn lög- boðna elli- og eftirlaunaaldur. A.m.k. fellst ég ekki með nokkru móti á að sveitungi minn Indriði G. sé orðinn „öldungur". Ellimóður er hann ekki, því fer fjarri, maður í fullu fjöri. Og ætli megi ekki sama segja um ljósmóðurina í Hreppun- um, sem er nýútskrifuð úr söng- skóla. Eins og ég gat um áðan eru þættir þessir frá 33 bls. til 72ja bls. Lestur þessara þátta færir mér heim sanninn um, að ef vel er á málum haldið, eins og raunar hér er gert, geti flestir sagt ævisögu sína í ekki lengra máli. Og í raun- inni finnst mér það mun betra form heldur en þessar óttalegu langlok- ur, sem mikið ber á og fáir rísa undir. Það þarf vissulega sterk bein til að þola tvö ævisögubindi! Lions off Kiwams á sió Þorlákshöfn. U LIONS- og Kiwanismenn hafa róið til fiskjar í fjáröflunar- skyni. Lionsklúbbur Þorláks- hafnar fór í línuróður á MB Jóhönnu. Aflinn var um 900 kg á 20 bjóð, mest ýsa sem seld verð- ur fisksölum. Kiwanisklúbburinn Ölver réri aftur á móti á MB Sæunni Sæmundsdóttur og var afli þeirra 1100-1200 kg. á 30 bjóð. Var það aðallega ýsa sem unnin verður í Suðurvör. Annars standa Kiwanismenn í ströngu þessa dagana því þeir eru að selja jólatré og greni og ætla að selja flugelda milli jóla og ný- árs. Nýlega sendur þeir fullan gám af ísaðri síld til Englands sem seld var á markaði þar á góðu verði. Allur ágóði af þessari starfsemi klúbbanna rennur til góðgerðar- mála. Jón H. Sigurmundsson Békmenntir Sigurjón Björnsson Aldnir hafa orðið. Frásagnir og fróðleikur. Erlingur Davíðsson skráði. 15. bindi. Bókaútgáfan Skjaldborg. Akureyri. 1986. 350 bls. Frásegjendur þessa fimmtánda bindis eru sjö talsins: Indriði G. Þorsteinsson, rithöfundur í Reykjavík, Helga Gunnarsdóttir, verkakona á Akureyri, Sigurður Elíasson, trésmíðameistari og iðn- rekandi í Kópavogi, Finnlaugur Pétur Snorrason, trésmiður, kart- öflubóndi o.fl. frá Syðri-Bægisá, Þórarinn Vigfússon, skipstjóri á Húsavík, Jóhann Árnason í Rammagerðinni á Akureyri, Elín Stefánsdóttir, ljósmóðir, Miðfelli 5 í Hreppum. Allnokkurt miseldri er með „öld- ungum“ þessum, því að sá yngsti er fæddur árið 1930 og sá elsti alda- mótaárið. Þá eru þættirnir nokkuð mislangir. Sá stysti er 33 bls., en sá lengsti 72 bls. Flestir þáttanna munu vera viðtöl skrásetjara við frásegjendur, þó að ekki sé loku fyrir það skotið að sumir hafí ritað þættina sjálfír. Þetta er ekki auðséð af ritsmíðunum og sjaldnast tekið fram í inngangsorðunum. Yfirleitt eru æviþættir þessir vel samdir, stundum prýðilega. Og aldrei verða þeir leiðinleg lesning, svo mikið er víst. Allir hafa þessir einstaklingar mátt lifa bæði sætt og súrt og sumir eiga mikla og ScmðÁcp áúáoft CcutcUmattttcctK öUcok yle&rfeyna, jÁla,. EIMSKIP ¥
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.