Morgunblaðið - 24.12.1986, Blaðsíða 15
JÓLAMYMDIR
1986
aset naaMaeaa .t-s anoAOTjaivgiM ,c!MAjaMUoaoM ______________________________________
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1986 15
,GN1Ð
ll\l JOIJM
FRÁ RAFMAGNSVEITU
REYKJAVÍKUR
Rafmagnsveitunni er þaö kappsmál, aö sem fæstir
veröi fyrir óþægindum vegna straumleysis nú um
jólin sem endranær. Til þess aö tryggja öruggt
rafmagn um hátíðirnar, vill Rafmagnsveitan benda
notendum á eftirfarandi:
Reynið að dreifa elduninni, þ.e. jafna henni
yfir daginn eins og kostur er, einkum á aðfanga-
dag og gamlársdag. Forðist, ef unnt er, að nota
mörg straumfrek tæki samtímis, t.d. rafmagns-
ofna, hraðsuðukatla, þvottavélar og uppþvotta-
vélar - einkum meðan á eldun stendur.
Farið varlega með öll raftæki til að forðast
bruna- og snertihættu. Illa meðfarnar lausar
taugar og jólaljósasamstæður eru hættulegar.
Útiljósasamstæður þurfa að vera vatnsþéttar og
af gerð, sem viðurkennd er af Rafmagnseftirliti
ríkisins.
í flestum nýrri húsum eru sjálfvör „útsláttar-
rofar“ en í eldri húsum eru vartappar „öryggi".
Eigið ávallt til nægar birgðir af vartöppum.
Helstu stærðir eru:
10 amper Ijós
20-25 amper eldavél
35 amper aðalvör fyrir (búð.
Ef straumlaust verður, skuluð þér gera eftir-
farandi ráðstafanir:
- Takið straumfrek tæki úr sambandi.
- Ef straumleysið tekur aðeins til hluta úr íbúð,
(t.d. eldavélar eða Ijósa) getið þér sjálf skipt
um vör í töflu íbúðarinnar. Ef öll íbúðin er
straumlaus, getið þér einnig sjálf skipt um vör
fyrir íbúðina í aðaltöflu hússins.
Hafi lekastraumsrofi í töflu leyst út er rétt aö
taka öll tæki úr sambandi og reyna að setja
lekastraumsrofann inn aftur. Leysi rofinn enn út
er nauðsynlegt að kalla til rafvirkja.
Tekið er á móti tilkynningum um bilanir í síma
686230 hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur allan
sólarhringinn. Á aðfangadag og gamlársdag er
einnig tekið á móti bilanatilkynningum til kl. 19 í
síma 686222.
Við flytjum yður bestu óskir um gleðileg jól
og farsæld á komandi ári, með þökk fyrir
samstarfið á hinu liðna.
RAFM AG NSVEITA
REYKJAVÍKUR
_____^ (Geymiö auglýsinguna)
Flugmálafélag íslands:
Heiðursmerki veitt
FLUGMÁLAFÉLAG íslands
sæmdi í desembermánuði fjóra
menn heiðursmerki félagsins, en
fyrr á árinu hlutu fjórir menn
heiðursmerkið. Þessir menn eru
Gísli Ólafsson, Arni Bjarnason,
Asbjöm Magnússon og Björa
Jónsson, sem merkið hlutu í sum-
ar og Jón E. Böðvarsson, Sigurð-
ur Helgason, Brandur Tómasson
og Jón E. Guðmundsson, sem
hlutu merkið í desember. Ljós-
myndari Morgunblaðsins Einar
Falur Ingólfsson tók meðfylgj-
andi mynd við afhendingu
merkisins nú. Á henni era frá
vinstri talið Friðrik Pálsson, for-
seti félagsins, Sigurður Helga-
son, Jón I. Guðmundsson,
Brandur Tómasson og Stefán
Sæmundsson, ritari félagsins.
Jón E. Böðvarsson gat ekki mætt.
Hávarður er ósköp venjuleg önd sem býr
á plánetunni Duckworld. Hann les
Playduck, horfir á Dallas-duck og notar
Euro-duck greiðslukort.
Lífið er ósköp fábrotið þar til Hávarður
lendir fyrir slysni á annarri plánetu, jörö-
inni.
Þar lendir hann í ótrúlegustu ævintýrum,
er í slagtogi við kvennahljómsveit, brjál-
aða vísindamenn, reynir að aðlagast
borgarlífinu á vonlausan hátt og verður
að endingu ástfanginn af kvenkyns jarð-
arbúa.
Til að kóróna allt saman er hann síðan
fenginn til þess að bjarga jörðinni frá tor-
tímingu.
Það er ótal margt sem lagt er á aumingja
Hávarð, en hann gefst seint upp og því
engin furða að hann hljóti viðurnefnið
Hetjan Hávarður.
Aðalleikendur:
Lea Thompson (Back to the future).
Jeffrey Jones (Amadeus)
Tim Robbins (Sure Thing)
Leikstjóri:
Willard Huyck
Framleiðandi:
George Lucas (American Graffiti, Star
Wars, Indiana Jones)
Sýnd kl. 5 - 7,05 - 9, 10 og 11,15.
Bönnuð innan 12 ára.
B-salur:
C-salur:
E.T.
5ýnd kl. 5 — 7 — 9 og 11.
DOLBY 5TEREO
LAGAREFIR
5ýnd kl. 5 - 7 - 9,05 og 11,15
LAUGARASBIO
Syningará
nýársdag
Metsölimadá hverjum degi!