Morgunblaðið - 24.12.1986, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 24.12.1986, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1986 19 Perla um perlu Reykjavíkur _________Bækur Steinar J. Lúðvíksson Hversu oft hefur það ekki verið sagt að Reylg'avík hafi sérstöðu með- al höfuðborga heimsins. Þá hefur ýmislegt verið tínt til og meðal ann- ars nefnt að um miðja borgina rennur gjöful laxveiðiá. Og víst er að hvergi annars staðar getur höfuðborgarbúi brugðið sér snertispöl og komist í lax- veiðiá og jafnvel skroppið heim í kaffi meðan á veiðunum stendur. Reyk- víkingar hafa löngum kunnað vel að meta þá náttúruperlu sem Elliðaámar eru. Aðsókn veiðimanna að Elliðaán- um hefur jafnan verið mikil og ekki síst í seinni tíð og áhugasamir veiði- menn fá minni tíma í ánni en þeir gjaman vildu. Þá hefur það ekki síður verið aðal veiðanna í Elliðaám að verði veiðileyfanna hefur verið mjög stillt í hóf gagnstætt því sem gerist víðast annars staðar og einmitt þetta hefur orðið til þess að mun fleiri sækjast eftir veiði þar en ella. Þvi ber þó ekki að neita að nú er svo komið að Elliðaámar bjóða kannski ekki upp á allt það sem lax- veiðimenn kjósa sér. Erill borgarinnar hefur færst að bökkum ánna og þess er lítill kostur fyrir veiðimenn að njóta kyrrðar og friðar við iðju sína. Eins víst að bankað sé í bakið á þeim þeg- ar veiðieinbeitingin og veiðigleðiri er að heltaka þá, eins og raunar Davíð Oddsson borgarstjóri segir hnyttilega frá í veiðibókinni Stórlaxar er út kom fyrir skömmu. Nú fyrir skömrnu kom út bók um Elliðaámar eftir Ásgeir Ingólfsson. Raunar ekki fyrsta bókin sem skrifuð er um ámar þar sem Guðmundur Daníelssop rithöfundur gaf út sam- nefnda bók fyrir hartnær tveimur áratugum. Bók Guðmundar var raun- ar töluvert ólík bók Ásgeirs en hafði margt til síns ágætis. Þessar tvær bækur sýna svo ekki verður um villst að af nógu er að taka þegar fjallað er um sögu Elliðaánna hvort heldur fjarlægasta fortíð er riíjuð upp eða veiðimenn segja sögur dagsins í dag. Það er aum laxveiðiá sem ekki á sér mikla sögu, hefur verið vettvangur margra ævintýra og verður það í framtíðinni. Alla vega standa Elliða- ámar vel undir því að um þær séu skrifaðar bækur. Það fyrsta sem kemur upp í hug- ann að loknum lestri bókar Ásgeirs Ingólfssonar er sú alúð sem hann hefur augljóslega lagt í verkið. Greini- legt er að ekki er hlaupið til og skrifuð bók á skömmum tímá og hún síðan gefin út í miklum flýti heldur hefur verið legið yfir hverri línu, víða farið í söfnun heimilda og þeim síðan raðað saman í heillega mynd og mjög mikið lagt upp úr lýsingu á veiðistöðum árinnar með það að markmiði að þær gætu komið veiðimönnum að sem allra bestu gagni. Við þá lýsingu hef- ur Ásgeir notið aðstoðar hins lands- fræga veiðigarps Þórarins Sigþórs- sonar sem hefur sótt mikinn feng í Elliðaámar og þykir einn snjallasti maðkveiðimaður á íslandi um þessar mundir. í fyrri hluta bókar sinnar rekur Ásgeir Ingólfsson ítarlega sögu Elliðaánna. Kemur þar fram að oft hafa staðið stormar og stríð um hana. Fyrr á tímum var gengið ótrúlega nærri ánum og þætti sjálfsagt nútíma sportveiðimönnum ekki mikið til um slíkar aðfarir. Vitnar höfundur til heimilda er geta þess að náðst hafi 5000—6000 laxar á einum degi úr ánum þegar „gert var í“ eins og það var kallað þegar þær voru hreinlega stíflaðar og laxinn síðan tekinn á þurru. Þessar tölur svo og ýmsar aðr- ar heimildir fyrri tíma sem Ásgeir tínir til benda ótvírætt til að laxa- gengd hafi verið með ótíkindum mikil í ámar og er talið líklegt að allt að 15 þúsund laxar hafi gengið í Elliðaár á einu sumri. Ásgeir rekur einnig hin svokölluðu kistumál sem voru mjög umtöluð á sínum tíma en þá ríkti hálfgerð skálm- öld um ámar. Upp úr þessu eða í kringum aldamót verða hins vegar þáttaskil þegar stangveiðimenn fara að taka ámar á leigu. Segja tölur um aflann fyrsta árið mikla sögu um hvemig komið var fyrir laxgengd í ánum en þá veiddust aðeins 12 laxar í ánum. Fram kemur einnig að ámar hafa verið fljótar að ná sér á strik og veiði þar hefur jafnan verið góð þótt sveiflur hafi verið nokkrar eins og í öllum íslenskum laxveiðiám. Ásgeir segir sögu ánna allt fram til nútímans og fléttar skemmtilega inn í hana viðtöl sín við nokkra menn sem þekktu vel til ánna hér á árum áður. Má þar sér í lagi nefna viðtal við Kjartan Pétursson sem er fróðlegt og gefur glögga mynd af stangveiði fyrri tíma. Þá höfðu veiðimenn ekki yfír eins fullkomnum búnaði að ráða og nú og sjálfsagt hefur flugusafn þeirra einnig verið fátæklegra. En menn bættu sér þetta upp með ýmsu öðru og veiðigleði þeirra hefur ekki verið minni en afkomendanna. í bók Ásgeirs má einnig nefna frásögn hins mikla veiðimanns Kristins Sveinsson- ar sem sgir frá ævintýralegri veiði sinni og Ásgeirs G. Gunnlaugssonar kaupmanns er þeir veiddu 63 laxa á eina stöng á einum degi. Þótt íslands- met í laxveiði sé ekki staðfest er harla ólíklegt að aðrir hafi gert betur eða muni nokkru sinni gera. Það kemur glögglega fram í bók Ásgeirs að ýmsir áhugasamir menn hafa ráðið miklu um að veiði hefur haldist svo góð í Elliðaánum sem raun ber vitni. Að öðrum ólöstuðum á Steingrímur Jónsson rafmagnssljóri þar stærstan hlut að máli og fær hann makleg eftirmæli í bókinni en Steingrímur hafði frumkvæði að eldi laxaseiða við Elliðaámar og framtaks- semi hans og framsýni hafði veiga- mikil áhrif á viðgang ekki aðeins Elliðaánna heldur og alls laxeldis og stangaveiði á íslandi. Þá má einnig nefna borgarstjórana í Reykjavík sem flestir hafa sýnt skilning á málefnum stangaveiðimanna og lagt áherslu á vemdun Elliðaánna og svæðisins umhverfis þær. Það er margra manna Ásgeir Ingólfsson verk að Elliðaámar og dalurinn við þær er enn vin í þeirri steinsteypu- og malbiksmörk sem borgin er, eðli málsins samkvæmt. Því _má ekki gleyma að bókarhöfundur, Ásgeir In- gólfsson, er einn þeirra manna sem lagt hafa hönd á plóg að vemda þessa vin — hann er einn þeirra sem hafa barist fyrir vemdun Elliðaánna þótt ekki geri hann mikið úr því í bókinni. Viðamesti kafli bókarinnar íjallar um veiðistaði í Elliðaánum og er þar hverjum einasta veiðistað lýst ná- kvæmlega og ætti sú lýsing að vera góð leiðsögn þeim sem leggja leið sína til laxveiða í ánni, hvort heldur sem þeir kjósa fluguveiði eða maðkaveiði. Litmyndir em af velflestum veiðistöð- um í ánni þannig að enn auðveldara er að átta sig á þeim en ekki. Kynni veiðimenn sér þennan texta rækilega mun þeim varla gefast betri leiðsögn um ámar og er ekki að efa að jafn- vel þeir sem stundað hafa veiðar í Elliðaánum um árabil hafa mikið gagn af, hvað þá byijendur. Í lýsingu veiði og veiðistaða em meira að segja leið- beiningar um hvemig best er að standa að hveijum veiðistað um sig, hvar best er að láta fluguna eða maðkinn lenda í vatninu og renna. Þegar þessar lýsingar em lesnar og fallegar myndir skoðaðar virðast Elliðaámar vera afskaplega aðlaðandi veiðiá. Áður er þó að því vikið að sambýlið við borgina hefur dregið nokkuð úr þokka þeirra og einnig það að svo stutt á er nokkuð þétt setin með sex stöngum og því líklegt að bestu veiðistaðimir' séu barðir frá morgni til kvölds allt veiðitímabilið. Slíkt er raunar ekki einsdæmi með Elliðaámar heldur fremur regla um íslenskar veiðiár. Fer ekki hjá því við lestur bókar Ásgeirs Ingólfssonar að laxveiðimenn renni með nokkurri öf- und huganum til þeirra manna sem stunduðu veiðar á ámm áður og fengu gott olnbogarými og vom ekki háðir nákvæmum tímaskiptingum. Mjög mikið hefur verið lagt upp úr því að gera bókina Elliðaámar vel úr garði. Bókin er öll litprentuð og margar myndanna í henni em stór- góðar enda koma margir af bestu ljósmyndumm landsins þar við sögu. Myndasyrpa Rafns Hafnfjörð af stökkvandi laxi er til að mynda ein- stök. Það hæfir vel vönduðum texta bókarinnar að leggja svo mikið í ytra útlit hennar. Það er þó galli við bók- ina að hún er sett á steinskriftarletri en slíkt letur þykir ekki gott bókarlet- ur og þreytir lesendur. Glans pappirs- ins er líka svo mikill að við lestur þarf jafnvel að halla bókinni sitt á hvað til þess að bijóta ljósið sem speglast á síðunum. Sennilega hefur pappírinn í bókina verið valinn með tilliti til þess að litmyndimar kæmu sem allra best út. Meginniðurstaðan að lestri bókar Ásgeirs Ingólfssonar loknum er þessi: Mjög vönduð bók þar sem alúð og vandvirkni em í fyrirrúmi og höfund- ur nær tvímælalaust því höfuðmark- miði sínu að gera sögu ánna nær tæmandi skil. Veiðistaðalýsing bókar- innar er einnig vandvirknislega unnin og kemur veiðimönnum að miklum notum. Ytri búnaður bókarinnar er og glæsilegur að því undanskildu að prentletrið er heldur leiðinlegt eins og fyrr er sagt. - Jólamyndir sem öll fjölskyldan fer að sjá Z BÍÓHÚSIÐ Sím: 13800 Ævintýramyndin „Strákurinn sem gat flogið“ (The Boy Who Could Fly) Heitasta ósk Erics var að geta flogið eins og Superman og það gat hann svo sannarlega. The boy who could fly, frábær mynd fyrir alla fjölskylduna. Erlend skrif um myndina: „Fyrir alla muni sjáið hana ekki fljúga frá ykkur. Þessi mynd mun láta þig líða vel. Þú munt svífa þegar þú yfirgefur bíóið“, Good Morning America. Aðalhlutverk: Lucy Deakins, Jay Underwood, Louise Fletcher, Fred Savage. Leikstjóri: Nick Castte. Myndin er í Dolby stereo og sýnd i 4ra rása Starscope. Sýndkl. 3,5,7,9 og 11. A new eometly adventure from the direetor of “WaKiames" SHOrT CJPCUÍT Life is not a malfunction. Grúi og ævintýramyndin „Ráðgóði róbotinn" Róbotinn númer 5 er alveg stórkostlegur. Hann fer óvart á flakk og heldur af stað í hina ótrúlegustu ævintýraferð, og það er ferð sem mun seint gleymast hjá bíógestum. Aðalhlutverk: nr. 5, Steve Guttenberg, Ally Sheedy, Fisher Stevens, Austin Pendleton. Framleiðendur: David Foster, LawrenceTurman. Leikstjóri: John Badham. Myndin er í Dolby stereo og sýnd í 4ra rása Starscope. Sýndkl. 3,5,7,9og11. i btarscope. .1 nrx GleðW 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.