Morgunblaðið - 24.12.1986, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1986
Keflavík:
60 voru brautskráðir
á haustönn Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja
Keflavík.
Á LAUGARDAGINN fengn 60
nemendur brautskráningarskír-
teini frá Fjölbrautaskóla Suður-
nesja við hátíðlega athöfn í
Keflavíkurkirkju. Nú hafa tæp-
lega 1.000 nemendur verið
brautskráðir frá skólanum í hin-
um ýmsu námsbrautum á þeim
10 árum sem hann hefur verið
starfræktur.
Að þessu sinni luku 26 nemendur
stúdentsprófi, skipstjómarprófi
luku 13, flugliðar voru 12, 5 luku
2 ára bókhaldsnámi og 4 frá iðn-
braut. Þrír nemendur fengu viður-
kenningu fyrir góðan námsárangur.
Kolbrún Garðarsdóttir í frönsku,
Guðrún Guðmundsdóttir í þýsku og
Guðný Gunnarsdóttir í viðskipta-
greinum. Einnig var Hafliða
** * Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Nýútskrifaðir stúdentar frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja við útskriftina í Keflavikurkirkju.
RÁS 1 ^
Aðfangadaaur kl. 19.10:
Jólatóníeikar í útvarpssal
Sinfóníuhljómsveit íslahds leikur undir
stjórn Páls P. Pálssonar.
Leikin verða þessi verk.:
a. Homkonserf í D-dúr
eftir Georg Philipp Telemann.
b. Píanókonsert nr. 23 ÍA-dúr K-488 eftir
Wolfgang Amadeus Mozart.
^c. Klarinettukonsert nr. 1 íf-molL
\ eftirCarl Maria von Weber.
Jóladagur ki. 22.20:
„Messías"
óratoría eftir
1 Georg Friedrich Handel
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands og
Pólýfónkórsins í Hallgrímskirkju
13. desember s.l.
Stjórnandi: Ingólfur Guðbrandsson.
Einsöngvarar: Maureen Braithwaite,
SigríðurElla Magnúsdóftir, lan Partridge
og Peter Coleman-Wright.
Sunnudagur 28. desember kl. 13.10:
Jólaleikrit útvarpsins:
„Rómeó og Júlía"
eftir William Shakespeare
í þýðingu Helga Hálfdanarsonar.
Leikstjóri: Þorsteinn Gunnarsson.
Kristján Franklín Magnús og Guðný
Ragnarsdóttir fara með hlutverk
elskendanna í þessum frœgasta
ástarharmleik allra tíma.
Hjálmar H. Ragnarsson samdi tónlistina
sem fiutf er í verkinu af Sinfóníuhljómsveit
íslands.
Aðfangadagur ki. 20.00: (
Jólavaka útvarpsins 0
o. „Syngi Guði sæta dýrð",
| jólasöngvar frá ýmsum löndum. '
b. Friðarjól (hefst kl. 20.55).
Biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirs-
son, flytur ávarp og jólaljós kveikt.
c. „Ég sé þar friðarkonungs stjörnu
skína" (hefst kl. 21.10).
Þorsteinn frá Hamri tekur saman
dagskrá þar sem leitast er við að lýsa
margvíslegum viðhorfum sem birtast
tU jólanna í Ijóðum og sögum.
■4 Jóladagur kl. 16.20:
Við jólatréð,
barnatími í útvarpssal
Gunnvör Braga sér um síðasta jólabarna-
tímann sem útvarpað verður úr
útvarpssal á Skúlagötu 4. Margt
jýör verður til skemmtunar sem Edda
ru_ Heiðrún Backman kynnir.
Leikarar úr Brúðubílnum koma
rN^j í heimsókn.jólasveinnlnn
I BfH Glugagœgir lítur inn
I og sungin verða barna- og
LHHB göngulög við jólatréð.
Enn fremur sér Guðríður Haraldsdóttir
um Jólaþátt barnanna" á rás tvö á
jóladag kl. 15.00.
RÁS 2
Jóladagur kl. 20.30:
Gestagangur
hjá Ragnheiði Davíðsdóttur sem rœðir
við fólk af erlendum uppruna er heldur
jól á íslandi.
Gestir hennar verða KuregeJ Alexandra
Argunova leikari og hjónin Harpa
Jósefsdóttir og VigfúsAmin. Einnigverður
rœtt vlð Björn Jónsson frá Haukagili i
Borgarfirði og Bergljótu Bjórnsdóttur frá
Haukadai í Dýrafirði um bernskujói
þeirra fyrr á þessari öld.
Þetta er aðeins það helsta f
jólapakkanum, en jóladagskrá
útvarpsins verður kynnt f
klukkustundarlöngum þætti á
RÁS 1 kl. 13.00 á aðfangadag.
Jóladagur kl. 21.10:
í húsi skáldsins
Dagskrá frá opnun Sigurhœða, húss
Mafthiasar Jochumssonar á Akureyri.
árið 1961. Rœður flytja Marteinn
Sigurðsson. formaður Matthíasarfélags-
ins, Davíð Stefánsson skáld, séra Sigurður
Stefánsson, Gylfi Þ. Gíslason, þáverandl
menntamálaráðherra, og Gunnar
Matthíasson, sonurséra Matthíasar, sem
rekur minningar um föður sinn.
Gunnar Stefánsson tók saman og flytur
inngangsorð.
ýjleMeg jól
RIKISUTVARPIÐ.
Sævarssyni, fyrrverandi formanni
nemendafélagsins, veitt viðurkenn-
ing fyrir mjög vel unnin störf í
félagsmálum skólans.
„Um þetta leyti árs er dagur
skemmstur. Þá trónir myrkrið í sínu
æðsta veldi yfir deginum og ljósinu.
En við vitum að nú tekur daginn
að lengja. Með degi hveijum fetar
ljósið sig áfram á kostnað myrkurs-
ins. í lífi þeirra sem nú hljóta
brautskráningarskírteini eru' sam-
bærileg hvörf. Skírteinum má líkja
við kyndil sem þið hafið nú veitt
móttöku. Það er nú ykkar hlutverk
að varðveita þann neista sem leyn-
ist í kyndlinum og lýsa upp myrkrið
— þær óræðu slóðir sem bíða ykk-
ar. Verið samt vel minnug að
kyndillinn getur aðeins veitt birtu
í myrkrinu — hann er ekki ljósið
sjálft," sagði Hjálmar Árnason
skólameistari m.a. í ræðu við þetta
tækifæri.
Hjálmar sagði ennfremur að
námsbrautir lokuðust og opnuðust
eftir þörfum hverju sinni og nefndi
nýjar brautir, sjúkraliða-, fískeldi-,
skipstjómar- og endurreista vél-
stjórabraut. Nú hefði verið gerður
samningur ráðherra og sveitar-
stjóma um viðbyggingu við bókn-
ámshús, en sú bygging leysti aðeins
sárasta vanda skólans.
Nemendur sem luku námi að
þessu sinni voru víðs vegar að
komnir og var þessi hópur, sem
taldi liðlega 20 manns, aðallega í
flugliðabraut og skipstjórnarbraut.
Fjölbrautaskóli Suðumesja er eini
skólinn á landinu sem útskrifar
nemendur á flugliðabraut. Þeir 13
sem luku námi í skipstjóm fengu
réttindi að 80 tonnum opg ætla
þeir allir að halda áfram námi og
fá 200 tonna réttindi í vor. Auk
þess er hægt að stunda við skólann
kvöldnámskeið.
- BB
Selfoss:
Aðalfundur Ferða-
málasamtaka
Suðurlands verð-
ur í janúar
Selfossi.
AÐALFUNDUR Ferðamálasam-
taka Suðurlands sem venja er að
halda á haustdögum verður að
þessu sinni haldinn í janúar.
Á aðalfundi samtakanna 16. nóv-
ember 1985 var samþykkt að
reikningar samtakanna næðu yfir
heilt ár og af þeirri ástæðu hefur
fundinum verið frestað.
Stjóm samtakanna réði á þessu
ári ferðamálafulltrúa til starfa og
hyggur nú á endurútgáfu
ferðabæklings samtakanna. Þeir
sem vilja láta skrá sig í bæklinginn
eða vilja gera breytingar á fyrri
skráningu þurfa að hafa samband
við stjórn samtakanna. Formaður
er Eiríkur Eyvindsson Laugarvatni.
Sig. Jóns.