Morgunblaðið - 24.12.1986, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1986
35
AKUREYRI
Haukur styrktur
HAUKUR Eiríksson skíðagöngu-
maður hlaut í síðustu viku flárstyrk
frá íþróttafélagi sínu, Þór á Akur-
eyri, auk þess sem Flugfélag
Norðurlands styrkti hann. Haukur
er til hægri á myndinni, og tekur
þama við styrknum frá Benedikt
Guðmundssyni, formanni Þórs.
Haukur fer um áramótinu til
Svíþjóðar í háskólanám auk þess sem
hann mun æfa þar og keppa af
krafti í skíðagöngunni.
Morgunblaðið/Guðmundur
Leikklúbburinn Saga 10 ára:
Sýnir „Pældíðí“
LEIKKLÚBBURINN Saga er tíu
ára um þessar mundir og frum-
sýnir af þvi tilefni leikritið
„Pæld’í’ðí“ á öðrum degi jóla í
Dynheimum. Leikstjóri er Skúli
Gautason og leikmyndahönnuður
Arna Valsdóttir. Leikarar og
hljómlistarmenn eru alls 11 í sýn-
ingunni.
Strætisvagnar
ganga ekki
STRÆTISVAGNARNIR á Akur-
eyri ganga ekki yfir hátíðamar.
Þeir aka aðeins til hádegis í dag,
aðfangadag, og hefja síðan akstur
að morgni mánudagsins 29. desemb-
er. Eina þjónustan sem veitt verður
er sú að bíll frá Ferliþjónustunni
gengur fyrir fólk í hjólastólum - og
verður hann notaður eftir þörfum
yfir hátíðamar, eins og starfsmaður
sagði í samtali við Morgunblaðið.
Leikritið „Pæld’í’ðí" fjallar um
fyrstu ástina og fyrstu kynlífsreynsl-
una. Sýnd eru viðbrögð foreldra og
þjóðfélagsins.
Leikklúbburinn Saga var stofnað-
ur árið 1976. Leiðbeinendur fyrstu
árin vom Saga Jónsdóttir og Þórir
Steingrímsson. Árið 1978 varð svo
klúbburinn að sjálfstæðu leikfélagi
og gerðist aðili að Bandalagi
islenskra leikfélaga. Klúbburinn hef-
ur alla tíð verið leikflokkur fyrir
unglinga.
Verkið „Pæld'í’ðí" er frumraun
flestra leikaranna á sviði, það er að
segja fyrsta verkið í fullri lengd.
Flestir þeirra léku þó í samnorræna
verkefninu „FENRIS", sem sýnt var
á leikferð um Norðurlönd 1985.
Fmmsýning verður sem fyrr segir
á öðmm degi jóla, 26. desember, I
Dynheimum og er uppselt á hana.
Önnur sýning verður svo 28. des-
ember og þriðja sýning 30. desem-
ber.
Dagskrá Sjónvarps
Akureyri tíl áramóta
SJÓNVARP Akureyri sendir
ekki út i dag, aðfangadag, en
útsending hefst aftur á morgun.
Dagskráin hefur verið ákveðin
til áramóta og verður hún sem hér
segir:
Jóladagur, 25. desember
19.00 Fyrstu jól Jóga-bjöms -
teiknimynd
19.25 Gæi smáspæjari - teikni-
mynd.
19.50 Glæframúsin - teiknimynd.
20.10 Myndrokk.
21.05 „My wicked, wicked ways“
- lokaþáttur um Errol Flynn.
22.05 Sviðsljós - Umsjón Jón Óttar
Ragnasona.
23.00 Árstíðimar flórar („The Fo-
ur Seasons") - kvikmynd.
00.45 Dagskrárlok.
Föstudagur 26. desember
20.30 Gæi smáspæjari.
20.55 Myndrokk.
21.50 Dynasty, 7. þáttur.
22.40 „My wicked, wicked ways“.-
Lokaþáttur um ævi Errol Flynn.
23.40 Náttfaramir („The Nigh-
thawks") - kvikmynd bönnuð
bömum.
01.15 Dagskrárlok.
Laugardagur 27. desember
Undrabömin - unglingaþáttur.
21.20 Hitchcock - sakamálaþáttur
eftir meistarann.
22.05 Matreiðsluþáttur Ara G.
Garðarssonar.
22.35 Allt i grænum sjó - Gaman-
þáttur sem gerist um borð í
skemmtiferðaskipi.
23.25 Undirheimar Miami - Einn
vinsælasti spennuþáttur veraldar.
00.15 16 Chandles - endursýnd
gamanmynd.
01.45 Dagskrárlok.
Sunnudagur 28. desember
18.30 íþróttir
21.25 Ástarhreiðrið - Gamanþáttur
með aðalleikaranum úr „Já, ráð-
herra"
22.10 Cagney og Lacey - spennu-
þáttur um störf tveggja lögreglu-
kvenna
22.55 Dynasty 9. og 10. þáttur
00.30 Dagskrárlok
Mánudagur 29. desember
20.30 Listaskóli í eldlínunni
21.15 Dallas 10. þáttur
22.05 Einfarinn - sakamálaþáttur
23.00 Allt er þá þrennt er - Gaman-
þáttur
23.25 Bjargvætturinn - spennu-
þáttur
00.15 Dagskrárlok
Þriðjudagur 30. desember
20.30 Listaskóli í eldlinunni
21.15 Dallas - 10. þáttur
22.05 Einfarinn - sakamálaþátt-
ur
23.00 Allt er þá þrennt er - gam-
anþáttur
23.25 Bjargvætturinn - spennu-
þáttur
00.15 Dagskrárlok
Þriðjudagur 30. desember
20.30 Listaskóli í eldlfnunni
21.15 íþróttir
22.15 í Návígi - Steingrímur Her-
mannson
23.00 Þorparar (Minder) - Spennu-
þáttur
23.50 Lords of dicipiine - Endur-
sýnd kvikmynd, bönnuð bömum
01.20 Dagskrárlok
Miðvikudagur 31. desember
14.30 Fyrstu jól jógabjöms
15.15 Gæi smáspæjari
16.05 Mikki og Andrés
16.55 Áramót á Akureyri. Spjallað
við forsvarsmenn helstu fyrirtækja
í bænum, farið á jólaball, rætt við
þá sem em með áramótabrennur
í bænum og einnig verður rætt við
meðlimi Hjálparsveitar skáta um
flugelda. Þetta er fyrsti þátturinn
sem Eyfírska Sjónvarpsfélagið
gerir sérstaklega fýrir útsendingu
Sjónvarps Akureyri.
17.56 Avarp sjónvarpsstjóra
18.00 Dagskrárlok
Dregiðí
happdrætti
Golfklúbbs
Reykjavíkur
DREGIÐ hefur verið í happ-
drætti Golfklúbbs Reykjavíkur,
sem efnt var til vegna breytinga
á klúbbhúsi félagsins.
Vinningshafí var Vilhjálmur
Andrésson og hlaut hann Subaru
Justy bifreið árgerð 1987. Dregið
var úr 800 seldum miðum.
(Úr fréttatilkynningu)
Morgunbladið/RAX
Hannes Guðmundsson, formaður GR, afhendir Vilhjálmi lykilinn að
Subaru-bifreiðinni.
Svanhildur Kristj ónsdóttir Morgunblaðifl/Bára
íþróttamaður Kópavogs í þriðja sinn
Rótaiýklúbbur Kópavogs hefur valic) Svanhildi Kristjónsdóttur
íþróttamann ársins í bænum. Svanhildur er 19 ára og stundar nám í
Menntaskóla Kópavogs. Þetta er í þriðja skiptið í röð sem hún hlýtur
þennan titil.
Selfoss:
Dagvistargjöld hækka
um 20% og gjaldskrá
sundhallar um 30%
Selfossi.
BÆJARRÁÐ Selfoss staðfesti 18.
desember hækkunarbeiðnir
íþrótta-, tómstunda- og félags-
málaráðs. Samkvæmt þvi hækka
dagvistargjöld um 20% 1. janúar
og gjaldskrár sundhallar og
íþrottahúss um 30%.
Hækkanimar öðlast gildi þegar
þær hafa farið fyrir bæjarstjóm og
fundargerð bæjarráðs staðfest þar.
í tillögum um hækkunarbeiðiiir sem
lagðar voru fyrir íþrótta-, tóm-
stunda-, og félagsmálaráð em ekki
tilgreindar beinar ástæður hækkan-
anna.
Sig.Jóns.
Ýmsir viðburðir
í Þorlákskirkiu
Þorlákshttfn. V
AÐVENTUKVÖLD var í Þor-
lákskirkju sunnudaginn 14.
desember sl. Jólatónleikar voru
haldnir mánudaginn 15. des-
ember og 28. desember verður
minningarathöfn um Ingimund
Guðjónsson.
Á aðventukvöldinu söng Söng-
félag Þorlákshafnar undir stjóm
Ara Agnarssonar. Séra Heimir
Steinsson þjóðgarðsvörður og
prestur á Þingvöllum flutti ræðu
og böm fluttu helgileik undir
stjóm Kristínar Sigfúsdóttur.
Þorlákshafnardeild Tónlistar-
skóla Ámessýslu var með jólatón-
leika mánudaginn 15. desember.
Þar lék lúðrasveit Þorlákshafnar
undir stjóm Róberts Darling.
Einnig söng lúðrasveitin nokkur
lög undir stjóm Stefáns Þorleifs-
sonar. Fjöldi nemenda lék á
hljóðfæri sín við þetta tækifæri.
Sunnudaginn 28. desember nk.
kl. 16.00 verða minningartónleikar
um Ingimund Guðjónsson. Þar
mun karlakórinn Fóstbræður
Morgunblaðið/Jón H.
Frá aðventukvöldinu i Þorláks-
kirkju.
syngja ásamt Söngfélagi Þorláks-
hafnar. Lúðrasveitin mun einnig
leika það kvöld.
Jón H. Sigurmundsson.
Flug um
jolin
FLUGFÉLÖGIN munu halda
uppi þjónustu um jólin eftir
því sem veður leyfir og fara
áætlanir flugfélaganna hér á
eftír.
Flugleiðir
Sjálfa hátíðisdagana verður
flogið sem hér segin Á aðfanga-
dagsmorgun verða tvær ferðir til
Luxemborgar, og síðdegis verður
flogið til Chicago og Orlando. Á
jóladagsmorgun koma Flugleiða-
vélar frá Chicago og Orlando og
halda áfram til Luxemborgar.
Síðdegis verður flogið til New
York og Orlando. Eitt beint flug
verður á jóladag frá New York
til Luxemborgar með viðkomu í
Baltimore.
Á aðfangadag verður flogið til
sjö staða innanlands, Akureyrar
(2 ferðir) ísafjarðar, Patreks-
fjarðar, Sauðárkróks, Húsavíkur,
Egilsstaða og Vestmannaeyja.
Síðasta brottf. frá Reykjavík
verður til Akureyrar kl. 13.00. Á
jóladag verður ekkert innan-
landsflug. Á öðmm degi jóla hefst
innanlandsflug kl. 11.00 með ferð
til Akureyrar, og eru áætlaðar
ellefu ferðir þann dag.
Arnarflug
Innanlandsflug:
24. og 25. desember verður ekki
flogið.
26. desember:
Siglufjörður
brottf. frá Reykjavík kl. 9.30
Hólmavík og Gjögur
brottf. frá Reykjavík kl. 11.30
Flateyri
brottf. frá Reykjavík kl. 12.30
Stykkish. og Grundarfj.
brottf. frá Reykjavík kl. 15.00
Rif brottf. frá Reykjavík kl. 17.00
Blönduós
brottf. frá Reykjavík kl. 18.30
27. desember:
Bfldudalur
brottf. frá Reykjavík kl. 13.00
Aukaflug verður ef þörf krefur.
Neyðarvakt fyrir sjúkraflug verð-
ur alla hátíðardagana í síma
29577.
Utanlandsflug:
27. desember:
Amsterdam
brottf. frá Keflavík kl. 8.00
Þakkar-
kveðja
INNILEGT þakklæti flyt ég
og kona mín, fyrrverandi
sóknarbömum mtnmn fyrir
fagra gjöf og þær góðu vina-
kveðjur I tilefni af 75 ára
afmæli mínu. Einnig öllum
öðrum vinum þakka ég gjafir,
kveðjur og heimsóknir.
Guð gefi ykkur öllum heUög
jól og blessun sina á komandi
ári.
Ingólfur Ástmarsson.