Morgunblaðið - 24.12.1986, Page 50

Morgunblaðið - 24.12.1986, Page 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1986 Þar sem hin holla hönd líknar líkama og sál eftir Valgarð L. Jónsson Eftir að hafa dvalið í fímm vikur á Heilsuhæli NLFÍ í Hveragerði á hregggráum haustdögum 1986 er mér efst í huga sú holla hönd, sem hér í þessari gróðrarparadís líknar mörgum þreyttum og þjáðum, vinnulúnu fólki, bækluðu eftir erfíð átök, oft í harðri lífsbaráttu liðinna ára, þegar illa hentaði að liggja á liði sínu, ef fólk ætlaði að komast af á eigin spýtur, sem var metnað- armál hvers heilbrigðs manns. Hér er einnig fólk á ýmsum aldri í endur- hæfíngu eftir slys, svo og skurðað- gerðir. Um þessar mundir eru dvalar- gestir um 180. Við hjónin höfum verið hér áður í nokkur skipti. Aldr- ei minnist ég að hafa verið hér samtíða jafn mörgum hreyfíhöml- uðum vistmönnum, fólki sem styðst við hækjur og stafí. Þessu fólki er svo sannarlega þörf á hjálp, og hér er úrvalalið, sem leggur sig fram við að hjálpa hveijum þeim sem hjálpar þarf með. Innan þessara veggja svífur andi kærleiks og mannúðar, birtu og gleði. Á slíkum stað verður heilsubótin ekki einung- is líkamleg lækning heldur einnig sálarleg upplyfting. Það er sama hvar og hveijum maður mætir á þessu heimili, allir eru glaðir og góðir með útrétta vinarhönd, allt er gert til að dvalargestum megi líða sem bezt. Dag hvem ganga stúlkur í íbúðir okkar til að þurrka af, skúra og þrífa og líta eftir að allt sé eins og bezt getur verið. Heyrt hefi ég að hér starfí 50—60 manns við hin ýmsu störf, því hér er séð fyrir öllu, ekkert virðist van- rækt. Einn daginn buðu yfírlæknir og yfírhjúkrunarfræðingur okkur að ganga með sér um stofnunina, margir vistmanna þáðu þetta boð þessa geðuga fólks og elskulega í öllu viðmóti. Mörg okkar þóttumst nokkuð þekkja hér til, engu að síður var þessi kynning fróðleg. Það sem mér er minnisstæðast er hinn mynd- arlegi sjúkraþjálfunarsalur búinn hinum nýtískulegustu þjálfunar- tækjum af ýmsum gerðum. Hann stendur reyndar ónotaður, að sögn sýnenda vegna skorts á sjúkraþjálf- urum, og báðu þau okkur að láta það vitnast, svo gott fólk viti að hér býður þess mjög glæsileg vinnu- aðstaða, og er þeirri orðsendingu hér með komið á framfæri. Hér útí eldri byggingunni er svo sem kunnugt er mikil og góð heilsu- ræktarstöð. Nuddaramir em þý- skir, átta að tölu, þar em stutt- bylgjustöð, háfjallasólir, vatnsnudd, heitavatnsböð, víxlböð á fætur og hendur, sjúkraþjálfunarstöð, hin orðlögðu leirker, sundlaug, svo tvær minni með heitara vatni og önnur með nokkurskonar vatnsnuddi og fleira mætti eflaust nefna. Svo em iæknastofur með hinu hæfasta fólki, læknum og hjúkmnarfólki. Vaktstofa og móttaka fyrir þá sem koma og fara, eða leita annarra erinda, skrifstofur, símavakt á skiptiborði sem er með kallkerfí á alla vemstaði heimilisins. Eldhús, borðsalur, setustofa, reyndar marg- ir notalegir setukrókar þar sem fólk getur teflt eða spilað. Einn helgur staður kallast Þögn þar sem fólk getur verið á helgri stund með prestinum eða guði sínum, eða báð- um. Hér er falleg kapella, vel hönnuð, þægileg og vinaleg á allan hátt. Þar era hljóðfæri, reyndar einnig í setustofu. Aðstaða er fyrir fólk til að hella uppá kaffíkönnuna, fara afsíðis í svonefnda Synd til að reykja, því hér er hvergi reykt inn- an veggja annarsstaðar, áfengi leyfíst engum að hafa hér um hönd. Semsagt ósiður er annaðhvort úti- lokaður í skúmaskoti eða bannaður. íbúðir dvalargesta munu vera 156, eins, tveggja og þriggja manna. Það sem hér að framan hefur upp verið talið tilheyrir eldri hluta Heilsuhælisins, að nýju þjálfunar- stöðinni undanskilinni, sem er í hinu stóra hringlaga húsi nýju byggingar Heilsuhælisins. Útfrá þessu hring- laga húsi koma sex álmur, sem em rejmdar sjálfstæð hús, ein hæð með risþaki og gluggum á báðum hlið- um, en gaflinn tengist hringlaga- húsinu. Tvær slíkar álmur em nú fullgerðar, sú eldri kölluð Gull- strönd og sú síðari kallast Demant- strönd. Þetta em íbúðarbyggingar, gangur eftir miðju og íbúðir, eins og tveggja manna, til hvorrar hand- ar. Þama er einnig séð fyrir ýmsri þjónustu svosem herbergi með að- stöðu til að laga sér kaffí, herbergi ræstingarkvenna og þeirra áhöld, setupláss þar sem dagblöðin em borin á borð fyrir dvalargesti, síma- krókur, spilakrókar, ný Synd norður í enda á Demantströnd og fleira mætti víst telja. Eftir er að byggja fjórar álmur, sagt er að ein þeirra fari undir eld- hús, en matsalur verði í hringhús- inu. Þessi nýja bygging líkist helst stjömu, sem geislar liggja frá til allra átta. Svo má nefna langan gang sem liggur á milli nýja hlut- ans og þess eldri. Sumum þykir þama töluvert í lagt því þetta er alllöng gönguleið, mjög vinsæl af okkur mörgum sem emm frá á fæti, því þessi innanveggja ganga er til mikillar heilsubótar. Það er oft ánægjulegt að trimma þama innan veggja á teppalögðum gólfum í stofuhita þegar vetrarveðrin lemja glugga og ytra byrði húsa. Gangur þessi er með nokkmm hlykkjum, sem notaðir em til hinna ýmsu þarfa. Þar má nefna sjónvarpsstofu, verzlun, bókasafnsstofu, setukróka með húsgögnum, spilaborð og fleira mætti víst tína til. Það sem athygli vekur er hve vel virðist frá öllu gengið og smíði vönduð, þama flæðir ekki vatn inn- um glugga og dyr. En þama og allsstaðar í húsum hér er mjög vel séð fyrir öryggismálum, mikið af öryggisdyram vel merktum þar sem lyklar em geymdir undir gleri og hamar í keðju til að bijóta glerið, sem sagt hér er vel séð fyrir öllu, svo til fyrirmyndar er. Einn dvalargestur gaf sig á tal við mig, hann sagði: „Ég er víða búinn að ferðast um heiminn og kynnst mörgu góðu, þrátt fyrir það líkar mér einna bezt á þessu heim- ili, hér er svo vel séð fyrir öllu. Þetta heimili er á heimsmæli- kvarða, eitt það bezta sem til er.“ Þessu get ég trúað, þar til ég kynnist öðra fullkomnara. Einn stærsti þáttur þessarar heilsu- gæslustöðvar er mataræðið sem hér gildir. Margur saknar að hér skuli hvorki lq'öt eða fískur vera á borð- um. Þó er þar undantekning á, því á jólum er hangikjöt og venjulegt jólabakkelsi á borðum. Einn dag vetrar, eða svo, era einnig hrogn og lifur á borðum. Öllum fjöldanum af dvalargestum líkar þetta vel eins og það er og telur gott að hvíla sig á þunga fæðinu, reyndar margt hingað komið til að ná af sér óþarfa fítu og létta líkama sinn og laga til. Hér er oft fallegt matborð og úr ýmsu að velja. Uppistaðan í fæðinu er úr jurtaríkinu, jarðávextir af ýmsu tagi, heilhveiti og rúgbrauð af mismunandi gerðum, þorskalýsi, mjólkurmatur af öllum gerðum og egg fyrir þá sem þess óska. Kaffí er ekki hér á borðum, en úrvals jurtate, en fólki er velkomið að hita sér sjálft kaffí, sem fyrr getur, á tilætluðum stöðum. Þó að okkur hjónum líki hér mjög vel er það enginn allsheijar mæli- kvarði, hitt segir meira, að hér dvelur sama fólkið ár eftir ár. Ég hefí hitt fólk sem hér hefur verið um og yfír 20 ár, og einn sagðist vera búinn að vera hér öll starfsár- in, einhvemtíma. Yfírlæknirinn, Jakob Úlfarsson, sagði okkur að 300 manns væra á biðlistanum að koma hingað. Já, hér á þessu heimili líkar fólki vel öll aðstaða, öll viðkynning og viðurgemingur þess ágæta fólks sem hér leggur sig fram um að líkna sjúkum og létta öllum í geði með því hlýja viðmóti sem við mætum hér hjá hveijum manni. Það er göm- ul staðreynd, að þar sém gott fólk ræður húsum, þar er létt andrúms- loft inann veggja, og svo er hér. Það hefur löngum verið haft á orði hve vel þetta heimili er rekið, þess njóta dvalargestir einnig, því hér er ekki dýrt að dvelja. Fyrir tveggja- manna íbúð á Gullströndinni greið- um við hjón kr. 446 á dag, aðeins mun ódýrara að búa í eldri hlutan- um. Fyrir þessa upphæð fáum við hús, mat og þjónustu og þar að auki alla læknismeðferð, það þarf semsé ekki að kvarta undan verð- laginu frekar en öðm. Umhverfíð utan veggja er mjög þrifalegt og vel um gengið, reyndar vel frágeng- ið. Hér liggja margar áhugaverðar gönguleiðir til ýmissa átta, þannig er fyrir því séð einnig. Hér norðan Valgarður L. Jónsson „ Já, hér á þessu heimili Ííkar fólki vel öll að- staða, öll viðkynning og viðurgerningur þess ágæta fólks sem hér leggur sig fram um að líkna sjúkum og létta öllum í geði með því hlýja viðmóti sem við mætum hér hjá hverj- um manni.“ við heimilið er þyrping af gróður- húsum sem heimilið á og ræktar mikið af sínum vömm sjálft. Það getur engum blandast hugur um það, að hér ræður hagsýni gjörðum manna, svo til fyrirmyndar er, og eftirbreytni. Það fer ekki hjá því að mér verð- ur hugsað heim til Akraness og heim að Höfða, því mér liggur þungt á hjarta, að þar verði hægt að bæta aðstöðu til mikilla muna og það sem allra fyrst. Að hugsa sér ef einhver ámóta aðstaða væri komin þar til heilsuræktar. Mér verður oft hugsað hve mikil heilsu- lind væri að smá sundlaug með heitum pottum líkt og em hér, með misheitu vatni og annar með vatns- nuddi, þetta væri yfírbyggt með búningsklefum og tilheyrandi fast við aðalbygginguna. Þægilegt útivistarsvæði með göngustígum, bekkjum og skýlum til að skýla fyrir sól og vindum. Slík heilsuræktaraðstaða gæti spar- að mörgum töflu- og lyfjaát, að meira eða minna leyti. Hveijum manni hlýtur að vera ljóst hvort væri heilsusamlegra og eðlilegra. Ég vona að vel til takist með fram- kvæmdir á Höfða og í viðbyggingu við heimilið verði farið með fullum krafti strax á byijuðu næsta ári. Þama býður mun stærri hópur eft- ir dvöl en allir þeir sem nú dvelja á Höfða. Margt af því fólki hefur mikla þörf fyrir vistun á Dvalar- heimilinu Höfða. Og þá er ótalin öll sú aðstaða, sem beðið er eftir að verði bætt, eins fljótt og nokkur kostur er til. Það ætti að vera metn- aðarmál Akumesinga og annarra eigenda Höfða, að þama verði vel oghyggilega á málum tekið, og það svo um muni. Það er ekki aðeins óskadraumur, það er nauðsyn sem ekki verður framhjá litið. Þegar við hjónin höldum heim héðan eftir góða hvíld og hressingu til líkama og sálar er okkur þakk- lætið efst í huga, til þess fólks sem hér slítur kröftum sínum í að þjóna þeim sem hér dvelja. Einnig er hug- urinn hlýr til samveragesta hér, sem hafa allan tímann verið eins og einn maður, glaður og góður á hverri stund, þannig þyrfti samlyndi jarð- arbúa að vera, þá liði öllum vel. Um von að allt manniíf sé á bata- vegi enda ég þetta spjall með beztu hátíðaróskum til allra góðra manna, okkar og annarra. Á Heilsuhæli NLFÍ, Hveragerði 8. nóvember 1986. Höfundur er fyrrverandi bóndi, nú búsetturá Akranesi. GLÆSILEGT! ★ OPNUM AFTUR annan í jólum eftir | stórkostlegar breytingar. Söngkonan BERGLIND BJÖRK ásamt hinni stórgóðu hljómsveit HAFRÓT, sem leikur dúndrandi dansmúsík. Nú mæta allir í jólaskapi. Opnunartímar: Annar í jólum kl. 22.00 - 03.00 Laugardagur 27. des. kl. 22.00 - 03.00 Snyrtilegur klæðnaður - aldurstakmark 20 ára. GLEÐILEG JÓL. I GLÆSIB/t i símí J 686220.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.