Morgunblaðið - 24.12.1986, Blaðsíða 52
apot q'3íwnT2OTi k<? (iHntafT'jrjaTWr firrit mvnTnsrnw
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1986
fclk í
fréttum
Allt nema hamingjan
Barnleysi o g einmanaleiki hrjáir Lindu Evans
Yfirleitt gengur fólk út frá því
sem vísu að frægt fólk og ríkt
sé hamingjusamt vegna þess að það
hafi afgreitt þessi tvö eftirsóknar-
verðu markmið, en oft er raunin
önnur. Linda Evans, leikkona í
Dynasty er ein þeirra kvenna sem
lífið hefur farið ómjúkari höndum
en ætla mætti af velgengni og útliti.
„Ég hef það sem þorri þjóða
heimsins ágimist, en á móti kemur
að mig vantar það sem aðrir íbúar
hnattkúlunnar virðast ekki eiga í
vandræðum með að komast yfír“,
segir Linda, en hennar dýpsta þrá
er að verða móðir. „Ég hef hugsað
með mér að ég eigi allt, sem hugur-
inn gimist. En er það nóg? Mun
frægðin og ríkidæmið, gimsteinam-
ir, pelsamir og endursýndir sjón-
_ varpsþættir vera mér félagsskapur
í ellinni? Ég held ekki. — Er hægt
að koma heim úr vinnunni eða sam-
kvæmislífínu og ræða málin við
bankabækumar eða gullhúðaða
vatnskranana í baðherberginu?
Hvert á maður að snúa sér þegar
maður er einmana og þarf virkilega
að tala við einhvem? Ég veit að ég
á allt sem flestar konur myndu
gefa lífið fyrir: auð, frægð og feg-
urð. Samt kem ég heim og minnist
þess að í raun get ég engum leyft
að njóta velgengni minnar með
mér.“
Linda hefur undanfarin ár haft
meiri og meiri áhyggjur af bam-
leysi sínu, en til þess að gera illt
verra lét hún á sínum tíma eyða
fóstri — í eina skiptið sem hún hef-
ur orðið ófrísk. Það gerðist þegar
hún var sautján ára, en þá var henni
boðið út af sirkusstarfsmanni. Hann
fyllti hana og tældi með ofangreind-
um afleiðingum.
Patrick Curtis, sem varð kærasti
hennar skömmu eftir þennan at-
burð, stakk upp á því að hann æki
henni til Mexíkó, þar sem hún gæti
látið eyða fóstrinu. Hún féllst á
það, en hefur svo sannarlega feng-
ið að sjá eftir því.
Curtis þessi var fyrsta ást Lindu,
en ekki langlíf, því hún dróst að
öðmm karlmanni og seinna átti
hann reyndar eftir að kvænast
Raquel Welch.
Linda er tvígift og jafnoft skilin,
en hún veit hvemig mann hún vill.
„Augun segja alltaf allan sannleik-
ann. Ef ég sé það sem mér líkar í
þeim — speglum sálarinnar — þá
skiptir engu máli hver umgjörðin
er.“ Linda er þess fullviss að hún
Patrick Curtis, æskuást Lindu
og örlagavaldur.
muni giftast aftur, en hún segist
ekki ætla að reyna að vera ung-
legri í útliti til þess að ganga út.
„Ég vil ekkert eiga saman að
sælda við mann sem telur hátind
lífsgæðanna vera 18 ára gamlan
Linda Evans — Hamingjan er vandfjötluð.
stelpukrakka. Ég veit að einhvers-
staðar í heiminum er yndislegur
maður sem vill elska konu eins og
mig. Ég hef engan áhuga á því að
líta út eins og 20 ára stelpa þegar
ég verð fímmtug. Maður breytist
með tímanum og hrukkumar koma.
Það er fásinna ein að ætla að veij-
ast þeim. Karlmenn em alltaf taldir
standa í blóma á fimmtugsaldri;
hversvegna ætti slíkt hið sama ekki
að eiga við um konur?"
Já, hvers vegna ekki? En hitt
stendur óbreytt að hún er ógift og
bamlaus og það veldur henni mik-
illi óhamingju. Menn minnast þess
enn þegar persónan Krystle í Dyn-
asty, sem Linda leikur, varð ólétt
og fór að klæðast alls kyns fatnaði
ætluðum verðandi mæðmm. Þá
komst enginn samleikara hennar
hjá því að taka eftir sorgmæddu
augnaráði Lindu og hnuggnu yfír-
bragði.
John Travolta meðan hann var
og hét.
Frú Nancy Reagan.
Travolta
í Hvíta húsinu
Eigi alls fyrir löngu fór leikar-
inn John Travolta í heim-
sókn í Hvíta húsið til þess að
afhenda frú Nancy Reagan
stuðningsyfirlýsingu fjölda
skemmtikrafta við baráttu for-
setafrúarinnar gegn eiturlyfjum,
en hún hefur mjög beitt sér í
baráttunni gegn þessum ógn-
valdi.
Einkaritari frú Reagan sagði
að í yfírlýsingunni, sem
skemmtikraftamir undirrituðu,
hefðu þeir lofað að líða ekki
upphafningu eiturlyíja í kvik-
myndum, sjónvarpi eða tónlist.
Einnig lýsa þeir því yfir að þeir
muni beita áhrifum sínum til
þess að gera eiturlyf útlæg úr
„bransanum“, auk þess sem að
persónulega mun þeir að sjálf-
sögðu ekki neyta þeirra.
John Travolta hefur að undan-
fömu beitt sér mjög gegn eitur-
lyfjaneyslu, en auk þess hefur
hann verið tíður gestur í Hvíta
húsinu við ýmis önnur tækifæri.
Meðal fjölda frægra skemmti-
krafta, sem undirrituðu yfirlýs-
inguna, má nefna Telly Savalas,
Burt Bacharach, Gloria Loring,
Karen Black, Henry Mancini,
Johnny Mathis, Billy Ocean,
Andrew Lloyd Webber og David
Wolper. Þá lýsti fjöldi breskra
listamanna einnig stuðningi
sínum við þessa yfírlýsingu.
I síðasta október fór frú Reag-
an fram á stuðning sem þennan
í ræðu á þingi hagsmunaaðila
sjónvarpsiðnaðarins í Banda-
ríkjunum, en frú Reagan er sjálf
fyrrverandi leikari eins og eigin-
maður hennar.
Gillespie gantast
við fyrirmyndarföðurinn
Fyrir skömmu var haldin mikil
hátíð í New York til heiðurs
jazzsnillingnum Theolonius Monk.
Var þar hvert stórmennið öðru
fremra samankomið og stanslaust
glens og gaman í tæpa fjóra tíma.
Þessi mynd var tekin baksviðs
og sýnir fýrirmyndarföðurinn Bill
Cosby og trompetleikarann Dizzy
Gillespie, sem Islendingum er að
góðu kunnur. Þeir félagar tóku létta
sveiflu fyrir viðstadda. Cosby sagði
að hann skyldi ekki hvað teygst
gæti úr kinnum Gillespies og en
síður hvað hann gerði við þær þeg-
ar hann væri ekki að blása. Dizzy
svaraði fljótur að bragði að hann
hefði oft velt hinu sama fyrir sér
varðandi gáfur Cosbys — Nema í
öfugu hlutfalli.
Bill Cosby og Dizzy Gillespie.