Morgunblaðið - 24.12.1986, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1986
61
Þessir hringdu . .
Tók einhver
ullarkápu í
misgripum?
Jóhanna hring'di:
Kápan mín virðist hafa verið
tekin í misgripum í Grensáskirkju
sl. laugardagskvöld á samkomu
hjá „Ungu fólki með hlutverk".
Þetta var ljósbrún ullarkápa og
er fínnandi vinsamlegast beðinn
um að hringja í síma 45828.
Notið ullarsokka
gegn hálku
Haraldur hringdi:
Gott ráð gegn hálku er að fara
í gamla ullarsokka yfir skóna.
Þegar sokkamir blotna límast
þeir við svellið. Ég hef góða
reynslu af þessu og fullyrði að
þessi aðferð dugar betur en brodd-
ar.
Af hverju var eng-
inn frá friðarhópi
kirkjunar eða Sam-
einuðu þjóðunum?
Ingólfur hringdi:
í útvarpinu s.l. sunnudag var
þáttur um friðarmál sem sendur
var út úr kirkju. Það vakti at-
hygli mfna að þama var ekki
neinn frá friðarhópi kirkjunnar
né nokkur sem var fiilltrúi sjónar-
miða Sameinuðu þjóðanna. Þetta
eru nú tvær stærstu friðarhreyf-
ingar veraldar. Það væri fróðlegt
að hejrra sjónarmið skipuleggj-
anda þáttarins um hvemig stóð á
þessu.
Þakkir til Sláturfé-
lags Suðurlands
Ásgerður Annelsdóttir
hringdi:
Mig langar til að koma á fram-
færi innilegum þökkum til Slátur-
félags Suðurlands. Það er svo
sjaldan talað um það sem vel er
gert. Eg hafði unnið hjá SS í 15
ár er ég fyrir átta árum þurfti
að hætta vinnu sökum veikinda.
En engu að síður fæ ég senda frá
þeim jólagjöf ár hvert. Ég vil óska
þeim gleðilegra jóla og koma á
framfæri þakklæti fyrir allt það
góða sem þeir hafa gert fyrir mig.
Vantaði skilti til að
vara við beygjunni
Ökumaður hringdi:
Ég fór austur á firði um mánað-
armótin október/nóvember og
keyrði leiðina suðurfyrir land. Mér
fannst gleðilegt að sjá hvað búið
var að leggja mikið af bundnu
slitlagi á leiðinni og vil ég þakka
Vegagerðinni fyrir það. Eg ók. að
Brú v/Eldvatn á Ásum í V-Skafta-
fellssýslu. Þar sá ég mér til fúrðu
að við beygjuna við brúna var
ekkert skilti sem gaf til kjmna
beygjuna og kom strax í huga
mér slys sem þama hafði orðið.
Ég vona að búið sé að kippa þessu
í lag.
Þýðingin á Álfa-
kónginum er eftir
Valdimar Briem
Anna Helgadóttir hringdi:
Fyrir nokkru birtist í Velvak-
anda fyrirspum um þýðingu á
Álfakónginum eftir Goethe. Þessi
þýðing á Álfakónginum er eftir
Valdimar Briem og birtist í nótna-
bók sem heitir Laufblöð og Lára
Bjamason gaf út árið 1900. Bók-
ina er eflaust hægt að fínna á
Landsbókasafninu. Lagið við er
eftir Reichardt.
Birtið aftur grein
Ólafs E. Einarssonar
Séra Kolbeinn Þorleifsson
hringdi:
Ég vil þakka kærlega fyrir
grein eftir Ólaf E. Einarsson í
Jólalesbók Morgunblaðsins. Eink-
um vegna þess að þetta er í fyrsta
skipti sem getið er um móðurbróð-
ur Jóns Helgasonar, skálds,
Guðmund Jonsson. En hluti ævi-
sögu hans er __ sameiginlegur
ævisögu móður Jons. Því miður
urðu þau mistök í greininni að
niðurlagið vantaði og vil ég óska
eftir því að Lesbókin birti greinina
í heild að nýju, vegna þess að
þessi grein verður söguleg heimild
í framtíðinni.
Víkveqi skrifár
Jólahátíðin er gengin í garð, hátíð
bamanna, hátíð ljóssins. Jafn-
framt er sfytztur dagur og fer sól
nú hækkandi á ný. Framundan er
bjartari tíð, skammdegið víkur fyrir
hækkandi sól.
Eflaust verða allar kirkjur lands-
ins fullar af fólki nú um hátíðamar,
en nýlega var um það fjallað í frétt-
um, að kirkjusókn væri almennt
slök í þéttbýlinu hér suðvestanlands
og klerkar messuðu jrfir hálftómum
kirkjum. Hins vegar yfírfylltust
kirkjumar á stórhátíðum.
1 umræddu fréttaviðtali var rætt
við einn sóknarprestinn í Reykjavík
og hann spurður að því, hvað honum
fyndist um aðferðir starfsbræðra
hans í Bandaríkjunum, sem lagt
hefðu áherzlu á að auglýsa kirkjuna
í fjölmiðlum og hvetja þar með fólk
til þess að sækja messur betur. Lítið
lagði klerkurinn upp úr þessu og
kvað fjárvöntun aðallega valda því
að tormerki væm á því að fara að
fordæmi bandarísku klerkanna.
Hvað sem því líður þá er ávallt
gott að koma í kirkjuna sína, eiga
þar hátíðlega stund og margir telja
það ómissandi þátt í jólahaldinu að
hlusta á prestinn sinn lesa jólaguð-
spjallið á aðfangadagskvöld.
XXX
Nýlega barst inn á ritstjóm
Morgunblaðsins „Jólahug-
vekja '86“ frá starfsmönnum Áss,
vinnustofu vangefínna. Þar hafa
starfsmennimir sett niður átta ein-
kunnarorð, sem fólk gæti svo
sannarlega tekið upp og rejmt að
lifa samkvæmt. Hið fyrsta hljóðar
þannig: „Það er leiðinlegt þegar
fólk drekkur mikið á jólunum og
fólk er kannski sett í steininn." Þá
segir: „Það er margt hægt að gera
svo fólki líði vel ef viljinn er fyrir
hendi, en þá verður maður að fram-
kvæma sjálfur“, og „Það em ekki
allir sem halda jól, sumum er alveg
sama, — sumum er sama um sjálf-
an sig.“
„Menn eiga að forðast misskiln-
ing — oft er ekki hægt að leiðrétta
hann“, segja starfsmennimir og
má um það segja að þessi orð em
gulls ígildi.
Söfnun Rauða krossins til handa
hugmðum, gekk mjög illa fyrir
þessi jól. I einkunnarorðum starfs-
manna Áss er fólk hvatt til þess
að aðstoða hugraða. Þar segin
„Gott fólk ætti að stofna sjóð, gefa
fólki peninga, þeim sem em hugrað-
ir á íslandi, fólki og unglingum sem
borða uppúr tunnum." og ennfrem-
un „Guð ætti að gefa þeim sem em
svangir afganginn af því sem fólk
notar ekki.“ Starfsmenn Áss vita
svo sannarlega hvað samhjálp er
og hvers virði hún er þjóðfélaginu
öllu og þessi samhjálparvitund
speglast einnig í sfðustu tveimur
setningunum: „Bið Guð að segja
mönnunum að vera ekki að lemja
konuna sína. Og konunum að vera
góðum við mennina sína,“ og loks
„Gera öðmm greiða. Ékki með
vondu. Ekki með fylu.“
Þetta plagg starfsmanna Áss er
í senn hreinskilið, jákvætt og fal-
legt. Það endar á ósk um gleðileg
jól. Vfkveiji tekur undir þá ósk.
Kjalnesingar
og Kjósverjar
Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Þakka viðskiptin.
Verslunin Grund, Kjalarnesi.
1’
Snyrtivörur hf.
óska viðskiptavinum sínum um land allt
gleðilegra jóla og heillaríks komandi árs.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Óskum landsmönnum
gleðilegra jóla og farsæls
komandi árs
Þökkum ánægjuleg viðskipti á viðburðaríku 40 ára
afmælisári okkar.
Veitingahúsiö
Brautarholti 20.
Óskum viðskiptavinum okkar um land
allt, starfsfólki og farþegum frá í sumar
gleðilegra jóla
og farsæls
komandi árs
HÁTÍÐASAM KOM U R
FÍLADELFÍU
Aöfangadagur:
Aftansöngur kl. 18.00. Ræðumaður: Sam D. Glad.
Jóladagur:
Hátíðarsamkoma kl. 16.30. Ræðumaður: Daníel
Glad.
Annar Jóladagur:
Samkoma kl. 16.30 í umsjá æskufólks.
Barnablessun.
Sunnudagur 28. desember:
Safnaðarsamkoma kl. 14.00.
Almenn samkoma kl. 20.00. Ræðumaður: Guðni
Einarsson.
Nýársdagur:
Hátíðarsamkoma kl. 16.30. Ræðumaður: Sam D.
Glad.
Fíladelfía óskar landsmönnum öllum gleði-
legra jóla og guðsblessunar á nýju ári.
I