Morgunblaðið - 24.12.1986, Page 64
STERKTKDRT
MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Tvö íslenzk skip
tekin vestan línu
Skipstjórar neita að hafa verið að
rækjuveiðum í grænlenzkri lögsögu
TVÖ íslenzk rækjuskip voru tekin fyrir meintar ólöglegar rækjuveið-
ar vestan miðlínunnar milli íslands og Grænlands um síðustu helgi.
Hvorugt skipanna var að veiðum, annað var á siglingu og á hinu
voru skipveijar að bæta trollið. Báðum skipunum var sleppt eftir
nokkuð þóf og orðsendingu frá íslenzkum stjórnvöldum. Stjórnvöld
á Grænlandi segja að skipunum hafi verið sleppt vegna þess, að þau
hafi ekki haft næga olíu til siglingar til Grænlands.
Samkvæmt opinberum upplýs-
ingum frá Grænlandi var Sjávar-
borg GK stöðvuð 42 sjómflur innan
iögsögu Grænlands. Þá voru 33
lestir af rækju um borð. Skipstjór-
inn neitaði því, að rækjan væri veidd
vestan miðlínu og skipið hefði leitað
vestur fyrir við viðgerðir á trollinu.
Útgerð skipsins neitaði ennfremur
að greiða 5,5 milljóna króna sekt,
Jólafagn-
aður Vemdar
VERND heldur sinn árlega
jólafagnað í Slysavamahús-
inu á Grandagarði í dag,
aðfangadag, og verður húsið
opnað klukkan 14.
Jólafagnaðurinn hefst með kaffi
klukkan 15, klukkan 18 verður
hátíðamatur, klukkan 20 verður
sungin messa og klukkan 22
verður kvöldkaffí.
Jólafagnaður Vemdar er öll-
um opinn sem ekki hafa tæki-
færi tii að dveljast með vinum
og vandamönnum þennan að-
fangadag.
sem varðskipið Ingólf krafðist.
Danska landhelgisgæzlan segist
hafa vitni um það, að Sjávarborg
hafí híft vestan miðlínu þann 14.
og 18. desember. Hafðliði Þórsson,
útgerðarmaður Sjávarborgar segir,
að þessa daga hafí skipið ekki ver-
ið á umræddu svæði, heldur að
veiðum fyrir Norðurlandi. Græn-
lenzkur skipstjóri hefði kært skipið.
Svo virtist sem Grænlendingar
væru að reyna að þvinga menn tii
að viðkenna brot og sektir með
hótunum um það, að skipin yrðu
færð til hafnar á Grænlandi.
Arinbjöm RE var stöðvaður 53
sjómflur vestan miðlínu samkvæmt
upplýsingum frá Grænlandi og var
þá á siglingu. Um borð voru um
30 lestir af rækju og 4 af þorski.
Skipstjóri neitaði að afiinn væri
fenginn í grænlenzkri lögsögu.
Magnús Gestsson, útgerðarmaður
Arinbjöms, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að þeir hefðu verið
með hreint skip, trollið á dekki og
enga rækju í vinnslu. Þeim bæri
ekki að sanna að aflinn væri ekki
fenginn á einhveijum ákveðnum
stað og þvf hefði engin ástæða ver-
ið til ákæm.
Grænlenzk stjómvöld íhuga nú
málshöfðun.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Hátíð barnanna
JÓLIN eru hátíð baraanna og þau taka virkan þátt í helgihald-
inu eins og þessi böra frá Fáskrúðsfirði. Þau eru hér að spila
á nemendatónleikum á vegum Tónlistarskóla Fáskrúðsfjarðar,
sem haldnir voru í kirkjunni sunnudaginn 21. desember síðastlið-
inn. Frá vinstri Sunna Smáradóttir, Jóna Mjöll og Berglind
Tryggvadóttir.
Skoðanakönnun
umjólahald:
Hamborg-
arhrygg-
ur vin-
sælastur
í NÝLEGRI skoðanakönnun
Hagvangs um jólavenjur Is-
lendinga kom fram að
hamborgarhryggur er vinsæl-
astur á jólaborðunum. Af þeim
773 íslendingum um land allt
sem svöruðu í könnuninni,
ætluðu 34% að gæða sér á
hamborgarhrygg á aðfanga-
dagskvöld.
Rjúpumar komu næstar að vin-
sældum, en þær ætluðu 14% af
þeim, sem spurðir voru, að borða.
12,5% ætla að borða svínasteik,
8,9% lambakjöt og 7,9% hangi-
kjöt. Athygli vakti að flestir höfðu
ákveðið hvað átti að vera í matinn
á aðfangadagskvöld þegar könn-
unin var gerð í byrjun desember,
en aðeins 5,8% sögðust ekki hafa
neitt sérstakt í matinn.
í könnuninni kom einnig fram
að íslendingar senda að meðaltali
31 jólakort til vina sinna og vanda-
manna og virðast þeir sem eldri
em og búa í dreifbýli mun dug-
legri við það en þeir sem yngri eru
eða búa í þéttbýli. Tæplega 75%
sögðust standa í verulegri tiltekt
fyrir jólin, en 22,5% sögðust ekki
gera sérstaka jólahreingemingu.
Sjá nánar á bls. 34.
Verðmæti gávarafurða
meira en nokkru sinni
ÚTFLUTNINGUR sjávarafurða
eftir fyrstu 10 mánuði ársins skil-
aði þjóðinni tæpum 30 miHjörðum
króna i gjaldeyristebjur og hefur
hann aldrei skilað hærri upphæð
til þessa. Umreiknað í Banda-
ríkjadali er þessi upphæð 716
miiyónir. Allt árið 1981, sem þá
var bezta árið i sögunni, var selt
fyrir 707 milfjónir dala. Arin 1982
til 1984 var selt fyrir um 500 mi4j-
ónir dala að meðaltali og i fyrra
fyrir 626 milljónir dala allt árið.
Hlutfall útflutnings sjávarafurða
Seðlabanki íslands:
-Bendir á ábyrgð lög-
gjafans í vaxtamálinu
Seg’ir dóm Hæstaréttar leiða í ljós réttaróvissu
„DÓMUR Hæstarréttar leiðir í
Ijós verulega réttaróvissu við beit-
ingu okurlaga samhliða hinni nýju
tbankalöggjöf, sem miðast við
gjörbreyttar forsendur," segir í
niðurlagsorðum fréttar frá Seðla-
banka íslands vegna dóms
Hæstaréttar f vikunni i einu okur-
málanna svonefndu. Þar segir
jafnframt: „Er af þeim ástæðum
fyllilega tímabært að móta heil-
steypta löggjöf um vaxtamál og
refsiheimildir til samræmis við
réttarþróun siðari ára og eyða
þar með umræddri réttaróvissu."
í fréttinni segir að verulegur
munur sé á grundvallarreglu laga
um lögbundnar refsiheimildir og svo
þeim stjómarfarslegu heimildum og
skyldum, sem bankanum séu ætlað-
ar samkvæmt lögum. Hvergi sé að
því vikið í dómi Hæstaréttar, að
bankinn hafí vanrækt skyldur sínar
samkvæmt lögum.
Þá segir að Seðlabankinn hafí
haft ótvíræða heimild en ekki skyldu
til ákvörðunar hámarksvaxta sam-
kvæmt þeim Seðlabankalögum, sem
í gildi voru á þeim tíma. Orðrétt
segir síðan: „Það er hlutverk löggjaf-
ans en ekki Seðlabankans að tryggja
það, að refsiheimildir séu jafnan í
samræmi við þá stjómsýslulöggjöf,
sem bankanum er ætlað að starfa
eftir.“
Sjá nánar á bls. 34.
af heildinni fyrstu 10 mánuði þessa
árs var 79,3% en var 77,1% á sama
tíma í fyrra. Verðmæti útflutnings
hjá helztu útflytjendum frystra
sjávarafurða hefur aukizt veru-
lega milli ára.
Fyrstu 10 mánuði ársins fluttum
við út ýmsar afurðir fyrir 37,1 millj-
arð króna og þar af nam verðmæti
sjávarafurða 29,6 milljörðum. Á sama
tíma í fyrra var heildarútflutningur-
inn að verðmæti 27,2 milljarðar og
verðmæti sjávarafurða þar af 21
milljarður. Aukningin milli ára á út-
flutningi sjávarafurða var 40,3%.
Verðmæti helztu afurðaflokka sjávar-
útvegsins var sem hér segir,
sambærilegar tölur frá síðasta ári:
Fryst 15,7 milljarðar (11,9), saltað
6,2 milljarðar (4,2), ísaður fískur 3,3
milljarðar (1,8), Skreið 681,3 milljón-
ir (136,3), Mjöl og lýsi 2,6 milljarðar
(2,4) og niðurlagt og niðursoðið 723,1
milljón (574,7).
Þann 22. þessa mánaðar hafði Ie-
landic Freezing Plants í Grimsby selt
fyrir rúma 2 milljarða króna og er
það 66% meira en á sama tfma f
fyrra. Framleiddar afurðir voru seld-
ar fyrir 629 milljónir króna og flök
fyrir 1,4 milljarðar króna. Talsverð
aukning var einnig á sölu fyrirtækis-
ins til Frakklands en sala til Belgíu
hefur verið svipuð f ár og það sfðasta.
Brekkes, dótturfyrirtæki IFP, hefur
selt fyrir 22 milljónir króna á árinu
og er það nokkru meira en búizt
hafði verið við. ólafur Guðmundsson,
forstjóri IFP, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að aukning í sölu væri
geypileg. Bæði Icelandic Freezing
Plants og Brekkes myndu því sýna
hagnað eftir árið.
Söluskrifstofa Sambandsins í Hull
í Bretlandi jók sölu sína í magni mið-
■að við fyrstu 11 mánuði ársins um
30% og 64% í verðmætum. Þess skal
þó getið, að á þessu ári bættist sala
til Þýzkalands við markaðssvæði
skrifstofunnar f Hull. Alls seldi hún
umrætt tímabil á þessu ári fyrir 1,7
milljarð en 1 milljarð á því síðasta.
Nú voru alls seldar 15.510 lestir en
11.940 í fyrra. Sala Iceland Seafood
í Bandaríkjunum fyrstu 11 mánuðina
þetta ár nam 8,5 milljörðum króna,
en 7,4 á því síðasta. Aukningin er
15,2% aukning í magni er hins vegar
2,9%. Heildarsala Sjávarfurðadeildar
Sambandsins þetta tímabil nam 6.5
milljörðum króna, sem er 32% meira
en í fyrra.
Coldwater Seafood Corporation
seldi á fyretu 11 mánuðum áreins
fyrir 8,8 milljarða króna en 8,1 millj-
arð sama tfmabil í fyrra. Aukningin
er 8,6%. Hins vegar var samdráttur
í seldu magni sama tfmabil 8,1%.
Magn seldra flaka var svipað bæði
tfmabilin, 67 milljónir punda, sala
verksmiðjuvöru minnkaði um 3 millj-
ónir punda, en veruleg aukning var
á sölu skelfísks.