Morgunblaðið - 14.01.1987, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 14.01.1987, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1987 Þorsteinn Pálsson um þá ákvörðun að kalla Alþingi saman vegna sjómannadeilunnar án vitundar hans: „Ef til vill hafa menn gleymt að það er beinn sími til Parísar44 „ÞAÐ er eðlilegt að aðilar að kjaradeilu leysi sín mál í frjálsum samningum og það er ekki rétt- lætanlegt að grípa inn í kjara- deilu fyrr en í óefni er komið. Það liggur fyrir að það er áhugi hjá báðum aðilum á því að halda viðræðum áfram og það liggur í augum uppi að það á ekki að koma í veg fyrir það og keyra í gegn frumvarp meðan þannig horfir við,“ sagði Þorsteinn Páls- son, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Morgunblaðið í gær- kveldi, aðspurður hvers vegna hann teldi rétt að aðilar að sjó- mannadeilunni reyndu frekar að ná samkomulagi. Þorsteinn stytti dvöl sína í Frakklandi og kom til landsins í gær vegna þeirrar stefnu sem sjómannadeilan hafði tekið. „Hitt er auðvitað alveg ljóst að hér er verið að tefla um mjög mikla hagsmuni og það eru miklu meiri hagsmunir í húfi heldur en einung- þeir sem snerta sjómenn og ís © INNLENT Margeir vann í síðustu umferð Fjórir skiptu fyrstu verðlaununum MARGEIR Pétursson vann bandaríska stórmeistarann Kudrin í 13. og síðustu umferð skákmótsins í Hastings og „tefldi loks eins og siðmenntaður mað- ur,“ eins og Margeir sagði sjálfur f samtali við Morgunblaðið. Fjórir stórmeistarar urðu jafn- ir í efsta sætinu, þeir Bent Larsen frá Danmörku, Speelman frá Englandi, Chandler frá Eng- landi og Lputjan frá Sovétrílqun- um, allir með 8 vinninga. Margeir hlaut 5 vinninga og varð í 11.—12. sæti. útvegsmenn. Þetta eru hagsmunir allrar þjóðarinnar og ábyrgð þess- ara aðila er því mikil. Eg tel að það hafí ekki verið kominn sá tími að það hafí verið nauðsynlegt að keyra frumvarpið fram og þess vegna rétt að gefa aðilum kost á því að reyna að ná samningum, enda hafa þeir lýst því í dag að þeir hafí vilja til þess. Það kemur þá bara í ljós á næstu dögum hvort það tekst eða ekki,“ sagði Þorsteinn. — Fékkst þú ekki að fylgjast með meðferð málsins í ríkisstjórn- inni? „Ég fylgdist auðvitað með því frá degi til dags hvernig þetta gekk fyrir sig í síðustu viku og þeim könnunum sem tveir ráðherrar höfðu með höndum á gangi samn- ingaviðræðnanna. Ég fór hins vegar á fund til Parísar á sunnudaginn og frétti fyrir tilviljun af þessum ríkisstjómarfundi í gær og ákvað þegar í stað að koma heim og beita mér fyrir því að málið færi í þann farveg að það yrði reynt að semja um lausn á deilunni." — Þú vissir sum sé ekki fyrr en seinnipartinn á mánudag að ákveð- ið hafði verið að kalla Alþingi saman? „Nei.“ — Telur þú að það hafí ekki ver- ið fullreynt á sunnudagskvöld hvort samkomulag gæti tekist? „Það er svo sem auðvelt að vera vitur eftir á, en aðalatriðið í mínum augum er þetta: Það átti að skapa svigrúm til frekari viðræðna og það hefur verið gert hér í dag. Nú verð- ur bara að koma í ljós á næstu örfáu sólarhringum hvort samn- ingsaðilar geta náð saman." — Greip ríkisstjórnin of snemma í taumana? „Það má kannski segja það.“ — Hvemig stendur á því að þú varst ekki látinn fylgjast með þróun þessa máls? „Það eru sjálfsagt einhver mis- tök. Ef til vill hafa menn gleymt því að það er beinn sími til París- ar,“ sagði Þorsteinn Pálsson. Morgunblaðið/RAX Sjómenn frá Grindavík fylktu liði fyrir utan Alþingishúsið í gær. Ákveðin afstaða ríkis- sljórnarinnar hefur ýtt við samningsaðilum - segir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra „ÉG TEL það alls ekki frum- hlaup hjá rikisstjórninni að kalla þing saman vegna þessarar deilu. Það var full samstaða um þetta og engar efasemdir, og ég held raunar að þessi ákveðna afstaða ríkisstjórnarinnar hafi ýtt við samningsaðilum. Það hefur orðið smávegis hreyfing í dag,“ sagði Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra þegar hann var spurður hvort ríkisstjórnin hefði brugðist of fljótt við með því að kalla saman þing vegna sjó- mannadeilunnar og leggja fram frumvarp um kjaradóm í deil- unni, í Ijósi þess að Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra lagði það til á þingfundinum að gefinn yrði lengri frestur til samninga. ígulker: Jákvæð svör frá Japönum Keflavfk. JÁKVÆÐ svör bárust frá Japan varðandi tilraunasendingu á hrognum úr ígulkerjum sem þangað var send í desember. Hafa Japanir óskað eftir að fá allt það magn sem hægt er að vinna hér á landi. Tveir Sand- gerðingar stóðu að þessari til- raun og þeir eru líka að undirbúa sendingu á lifandi ígulkeijum til Frakklands. „Spumingin er hvað Japanir vilja greiða fyrir hrognin," sagði Birgir Kristinsson sem ásamt Steinþóri Gunnarssyni standa að þessu fyrir- tæki. Birgir sagði að menn frá Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna væru nú í Japan að semja um sölu á loðnu og ætluðu þeir í leiðinni að kanna hvað Japanir væm tilbúnir að greiða hátt verð fyrir hrognin. - BB Holtavörðuheiði: Morgunblaðið/Magnúa Fastur undir bíl í um klukkustund Stað, Hrútafirði. BÍLL valt á veginum á norðan- verðri Holtavörðuheiði í gærmorgun. Jeppinn fór nokkrar veltur á veginum og stöðvaðist á vinstri hliðinni. Tveir menn voru í bílnum og festist ökumaðurinn undir hon- um. Þar þurfti hann að bíða eftir hjálp í um klukkustund. Bfllinn, sem er Bronco-jeppi, var á suðurleið er óhappið varð. Skafrenningur var og leiðindaveð- ur. Líklega hefur bfllinn mnnið til á hálkubletti með þessum af- leiðingum. Eftir um það bil klukkustund kom fólk þama að og tókst að lyfta jeppanum og ná ökumannin- um undan bflnum. Ók fólkið síðan með mennina á sjúkrahúsið á Hvammstanga. Farþeginn fékk að fara af sjúkrahúsinu eftir læknisskoðun en ökumaðurinn er þar enn undir eftirliti lækna. Hann var orðinn nokkuð kaldur þegar að var komið en er ekki talinn í lífshættu. mg Steingrímur sagðist hafa, ásamt sjávarútvegsráðherra og utanríkis- ráðherra, fundað tvívegis með deiluaðilum á mánudag og þriðju- dag og þá hefðu engar vísbendingar komið fram sem bentu til að hreyf- ing væri að komast á samningavið- ræður. „Við lögðum mikla áherslu á það við þá, að við litum ekki svo á að samningum væri lokið og ég er sannfærður um að þetta var rétt og það var líka rétt að vera ekki að þrýsta málinu í gegn, enda sagði ég það bæði í framsögu og annarri ræðu minni að við myndum veita svigrúm ef það sýndi sig að það væri einhver samkomulagsvilji," sagði Steingrímur. — Telur þú að ekki hafí verið reynt til þrautar að ná samningum á fundum með sáttasemjara? „Ég vil alls ekki segja það því ég veit að sáttasemjari hefur geng- ið kröftuglega fram í þessu máli frá því verkfallið hófst og ég minni þar á langan fund um síðustu helgi. Hann kannaði mjög í einkaviðræð- um hveijar horfur væru og ég get ekki vefengt hans mat. Mitt mat var það sama á fundunum með deiluaðilum í morgun og á mánu- dag.“ — Telur þú semsagt að þing- fundurinn hafí höggvið óbeint á hnútinn sem málið var komið í ? „Hann hefur áreiðanlega komið hreyfingu á málin sem betur fer.“ — Heldur þú að einhver eftirmál verði í ríkisstjóminni? „Það vona ég ekki. Það er slæmt að símasambandið skuli vera svona slæmt milli sjálfstæðismanna hér heima og erlendis en þeirra fulltrúi í þessu máli var Matthías Bjamason og hann og Halldór Ásgrímsson gerðu sameiginlega tillögu til ríkis- stjómarinnar. Mér datt ekki einu sinni I hug að spyija að því hvort samband hefði verið haft við for- mann flokksins og eins og Albert Guðmundsson lýsti yfir áðan á þing- fundinum kom engin athugasemd fram á fundi ríkisstjómarinnar á mánudagsmorguninn. “ — Ætlar ríkisstjómin að veita deiluaðilum einhvem ákveðinn frest til að leysa málið? „Það er ekkert tímasett. Það er hreyfing núna og við skulum sjá hvað gerist í nótt," sagði Steingrím- ur Hermannsson forsætisráðherra að lokum. Sáttasemjari í deilu S VFI og Gæslunnar ÓLAFI W. Stefánssyni skrif- áherslu að viðræður þessara að- stofustjóra í dómsmálaráðuneyt- inu hefur verið falið að vera fulltrúi ráðuneytisins í fyrir- huguðum viðræðum við Land- helgisgæsluna og Slysavamafé- lagið um hver eigi að hafa umsjón með björgunarstjórnstöð við leit og björgun á hafinu um- hverfis ísland. Eins og kom fram i Morgunblaðinu í gær, hefur dómsmálaráðherra lagt á það ila haldi áfram. Upp úr þeim viðræðum slitnaði haustið 1985. í samtali við Morgunblaðið sagð- ist Ólafur búast við að þessar viðræður myndu hefjast nú á næst- unni þar sem bæði Landhelgis- gæslan og Slysavamafélagið hefðu lýst yfír vilja sínum til að reyna að leysa þessi mál en ekki væri búið að fastsetja daga. Sjá einnig forystugrein. Myndasaga um Garp og hetjur geimsins GARPUR og hetjur geimsins heitir nýr teiknimyndaflokkur, sem hóf göngu sína í Morgun- blaðinu í síðustu viku. Birtist teiknimyndasagan daglega í svart-hvítu og einnig á þriðju- dögum í Ut. Sagan um Garp og hetjur geims- ins hefur notið mikilla vinsælda frá því hún varð til árið 1983. Hún heitir á frummálinu „He-Man and the Masters of the Universe". Seg- ir hún af baráttu hins góða og hins illa og eru persónur sögunnar 24. Búa þær úti í geimnum á plánet- unni Etemiu, þar sem er heimur jafnvægis milli vísinda og töfra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.