Morgunblaðið - 14.01.1987, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 14.01.1987, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1987 31 Morgunblaðið/Ami Sæberg Eyjólfur Pétur Hafstein verkefnisstjóri Nordjobb á íslandi og Sig- hvatur Björgvinsson framkvæmdastjóri Norrænu félaganna á Islandi á blaðamannafundi sem haldin var til kynningar Nordjobb. Mikill áhugi á sumarvinnu á N or ður löndum Á VEGUM Nordjobb atvinnum- iðlunarinnar sóttu 404 íslending- ar um vinnu á hinum Norður- löndunum síðasta sumar og tókst að útvega 117 þeirra vinnu. Á Norðurlöndunum hefur verið mjög mikil áhugi á þessari vinnu- miðlun og sérstaklega hefur áhugi á vinnu á íslandi reynst mikill. Tæplega sex hundruð Norðurlandabúar sóttu um vinnu hér s.l. sumar, en aðeins var hægt að útvega 76 þeirra vinnu. Þetta kom fram þjá Eyjólfi Pétri Hafstein, _ verkefnisstjóra Nordjobb á íslandi, á blaða- mannafundi sem efnt var til þar sem starfsemi Nordjobb árið 1987 var kynnt. Nordjobb vinnumiðluninni var upphaflega komið á fót að tillögu nefndar norrænna athafnamanna sem stofnuð var að tilhlutan forsæt- isráðherra Norðurlanda og gera átti tillögur um nýmæli í norrænni samvinnu. Nefnd þessi er yfirleitt kennd við formann sinn, Per Gyllen- hammar, forstjóra Volvo í Svíþjóð. í ársbytjun 1986 var Nordjobb gert að sjálfseignarstofnun og er í eigu norrænu félaganna, Sambands norrænu félaganna og Norrænu iðnþróunarnefndarinnar. Þessi Leiðrétting í dómi Hæstaréttar, sem birtist á bls. 42 og 43 i blaðinu í gær féll niður að geta þess, að það var Magnús Þ. Torfason, sem greiddi sératkvæði í málinu. Svör við eoiisfræðidæmum DÆMIN í landskeppni í éðlls- fræði í framhaldsskólum birtust í blaðinu 3. janúar sl. Svörin við dæmunum fara hér á eftir: 1. E, 2. C, 3. D, 4. E, 5. A, 6. C, 7. A, 8. C, 9. E, 10. E, 11. B, 12. D, 13. D, 14. A, 15. C, 16. E, 17. A, 18. C, 19. A og 20. C. sjálfseignarstofnun hefur síðan samið við norrænu félögin hvert í sínu landi um framkvæmd vinnu- miðlunarinnar. Starfsemin er fjármögnuð af styrktarfyrirtækjum, sem alls eru 55, dreifð vítt og breitt um Norðurlönd, þar af eru 11 á íslandi. Markmiðið með vinnumiðlun Nordjobb er að gefa ungu fólki kost á að kynnast atvinnulífí á Norðurlöndunum. Vinnumarkaður Norðurlandanna er sameiginlegur, þannig að jafn auðvelt á að vera fyrir norrænan ríkisborgara að sækja um vinnu á t.d. Akureyri eða Osló. Eitt af markmiðum Nordjobb er að opna augu almennings fyrir þessu. Hvert starfstilboð er miðað við samfelldan vinnutíma, eigi skemmri en fjórar vikur. Ferðakostnað ásamt fæðis- og gistikostnaði verða þátt- takendur að greiða sjálfir. en leitað verður samninga við Flugleiðir um afsláttarfargjöld. Aðstoð er veitt við öflun húsnæðis og geta þeir sem eru í sumarvinnu á vegum Nordjobb gist á stúdentaheimilum, í öðru leiguhúsnæði eða hjá fjölskyldum, allt gegn gjaldi að sjálfsögðu. Kaup fyrir vinnu er greitt samkvæmt gildandi kjarasamningum í hveiju landi og er skattlagt eftir þeim regl- um sem þar gilda. Þeir sem fá sumarvinnu fyrir milligöngu Nordjobb geta ekki vænst þess að koma heim að hausti með fulla vasa §ár. Vinnulaunin eiga þó að geta dugað vel fyrir ferðakostnaði, fæði og gistingu, þannig að eitthvað sé eftir í vasa- peninga. Hér er hins vegar um að ræða stöðugt vinsælla tækifæri til að kynnast menningu og starfs- háttum nágrannaþjóðanna, því auk þátttöku á vinnumarkaði, eru ýmiss konar kynningar-, ferða- og skemmtidagskrár skipulagðar fyrir þátttaksr.dur. Umsóknarfrestur Nordjobb renn- ur út 1. mars n.k. Þeir sem ekki hafa fengið umsóknareyðublöð í skóla sínum geta fengið þau hjá Norræna félaginu í Reykjavík, sem hefur aðsetur í Norræna húsinu. TM Maharishi Mahesh Yogi er auðlærð tækni sem veitir djúpa hvíld og losar þannig um streitu og spennu. Iðkun TM-tækninnar stuðlar að andlegu og líkamlegu heilbrigði, aukinni starfsorku og almennri vellíðan. Almennir kynningarfyrirlestrar verða haidnir i kvöid, miðviku- dag, í Gerðubergi kl. 20.30 og á morgun, fimmtudag, í Odda (Háskóia ísiahds) k!. 20.30. ALÞJÓuA ÍJÍ'JGUNARFÉLAGIÐ STJÓRNUNARNÁM ERLEND NÁMSKEIÐ ÚTFLUTN/NGS- OG MARKADSSKÓLl ÍSLANDS TÖL VUSKÓLI/ TÖL VUFRÆÐSLA MÍMIR ▲ RITVINNSL UKERFIÐ WORD Ritvinnsla er nú fastur liður i störfum á flestum skrifstofum. Ritvinnslukerfið WORD er eitt öflugasta og mest notaða ritvinnslukerfið hérlendis. Auk hefðbundinna ritvinnsiuaðgerða býður Word m. a. upp á samruna skjaia ,,merging“, stafsetningarleiðréttingar og fjölbreyttar útlitsgerðir sama skjals, „style sheet“. Tilgangur þessa námskeiös er tvíþættur. Annars vegar að þjálfa þátttakendur í notkun ritvinnslukerfisins WORD en einnig að kenna uppsetningu skjala og bréfa, með sérstöku tilliti til þeirra möguleika sem Word býóur uppá. Efni: — Helstu skipanir kerfisins. — islenskir staólar. — Æfingar. — Helstu skipanir stýrikerfis. Námskeióið er ætlað öllum notendum IBM einkatölva eða samhæfðra véla. Leiðbeinandi er Ragna Sigurðardóttir Guðjohnsen, ritvinnslukennari. Auk þess aó hafa kennt notkun fjölda ritvinnslukerfa hefur Ragnamikla reynslu sem ritari. Timi: 20.—23. janúar, kl. 13.30—17.30. Stjórnunarfélag islands Ánanaustum*Í5 Sími: 6210 66
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.