Morgunblaðið - 14.01.1987, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1987
53
íþróttamaðurársins 1986:
22 íþróttamenn hlutu atkvæði
• Arnór Guðjohnsen hlaut annað sœtlð í kjöri íþróttamanns ársins
1986. Hann varð á árinu belgískur meistari í knattspyrnu með liði
sínu Anderlecht, og lók vei með isfenska landsliðininu.
EÐVARÐ Þór Eðvarðsson, sund-
maður frá Njarðvík, var í gœr
kjörinn íþróttamaður ársins 1986
á vegum Samtaka íþróttafrétta-
manna í hófi á Hótel Loftleiðum
í gær. Eðvarð Þór hlaut 68 at-
kvæði af 70 mögulegum. Þetta
var f þrítugasta og fyrsta sinn
sem íþróttafréttamenn útnefna
íþróttamann ársins með þessum
hætti.
Arnór Guðjohnsen, knatt-
spyrnumaður, varð í öðru sæti,
handknattleiksmennirnir Kristján
Arason og Guðmundur Guð-
mundsson urðu jafnir í þriðja til
fjórða sæti. Pétur Guömundsson,
körfuknattleiksmaður, varð í
fimmta sæti, Guðmundur Torfa-
son, knattspyrnumaður, í sjötta,
Pálmar Sigurösson, körfuknatt-
leiksmaður, í sjöunda, Ragnheiður
Runólfsdóttir í áttunda, og jafnir í
níunda sæti urðu Bjarni Friðriks-
son, júdómaður og Úlafar Jónsson,
kylfingur.
í þessu kjöri nafa þeir fjölmiðlar
atkvæðisrétt sem hafa íþrótta-
fréttamenn í fullu starfi, sem
fengið hafa aðild að Samtökum
íþróttafréttamanna. íþróttamaður
eða -menn hvers fjölmiðils skila
sameiginlegum atkvæðaseðli með
nafni tíu manna, þar sem sá efsti
fær tíu stig, annar níu, og svo fram-
vegis. Sjö fjölmiðlar áttu aðild að
þessu kjöri: Morgunblaðið, DV,
Dagur, Tíminn, Þjóðviljinn, sjón-
varp og útvarp.
íþróttamaður ársins 1986 er
Eðvarð Þór Eðvarðsson, sund-
maður frá Njarðvík. Hann hlaut 68
atkvæöi af 70 mögulegum. í fimm
ára gömlu tölublaði Skinfaxa, riti
Ungmennafélags íslands, erfjallað
um sund á árinu 1981, þegar upp-
sveiflan í sundi var aö fara af stað.
Þar er fjallað um afrek ársins 1981,
og segir meðal annars: „Þar ber
hæst á góma hinn frábæri árangur
Eðvarðs Þ. Eðvarðssonar sem er
aðeins 14 ára og þar með yngsti
handhafi íslandsmets karla í sundi.
Hann setti á árinu 1981 39 íslands-
met í drengja-, pilta- og karlaflokki,
þar á meðal karlamet í 100 og 200
metra baksundi, og var þar með
fyrstur unglinga til að setja ís-
landsmet karla." Síðan þetta var
hefur Eðvarð haldið ótrauður
áfram. Hann hefur á ferlinum sett
97 íslandsmet, í sveina-, drengja-,
pilta- og karlaflokkum. Þar eru
Skíði:
Zurbriggen
sigraði í
stórsvigi
PIRMIN Zurbriggen frá Sviss
sigraði í stórsvigi heimsbik-
arsins í Adelboden í Sviss f
gær. Þetta var fimmti sigur
hans f stórsvigi heimsbíkar-
sins og er hann nú langefstur
f keppninni samanlagt. Marc
Girardelli frá Luxemborg náði
sfnum besta árangri í vetur
og hafnaði í öðru sæti.
Zurbriggen hafði besta
tímann í fyrri ferð en Girardelli
í þeirri seinni. Munurinn á þeim
samanlagt var aðeins 12
hundruðustu hlutar úr sek-
úndu. Zurbriggen hefur nú
hlotið 172 stig í keppninni.
Markus Wasmeier, V-Þýska-
landi, er í öðru sæti en hann
varð í 8. sæti í gær.
Þriðji var Hubert Strolz frá
Austurríki. Ingemar Stenamark
varð fjórði 0,85 sekúndum á
eftir i sigurvegaranum. Frank
Wörndl, V-Þýskalandi, varð
fimmti og Martin Hangl, Sviss,
sjötti.
boðsundsmet ekki meðtalin. 31
þessara meta eru gild enn, þar af
15 met í karlaflokki og 14 þeirra
voru sett, eða öllu heldur bætt, á
árinu. En víkjum að stórmótum
ársins hjá Eðvarði — það er enginn
tími fyrir þau smáu. Á innanhúss-
meistaramótinu vann hann fern
gullverðlaun, á Norðurkollumótinu,
Kalott-keppninni í Finnlandi vann
hann fimm gullverðlaun, á Golden
Cup-mótinu í Strassborg silfur-
verðlaun í aðalgrein sinni, 200
metra baksundi, og þrenn brons-
verðlaun á Ulster-leikunum á
írlandi, fimm gullverðlaun á opna
skoska meistaramótinu, gullverð-
laun í 200 metra baksundi, silfur-
verðlaun í 100 metra baksundi, 4.
sæti í 200 metra fjórsundi og 6.
sæti í 200 metra baksundi. Á
heimsmeistaramótinu í Madrid
náði Eðvarð sínum eftirtektarverð-
asta árangri, þrátt fyrir að þar
vantaði verðlaunapeningana.
Hann varð fimmti í undanrásum í
200 metra baksundi á glæsilegu
Norðurlandameti, 2 mínútum 3,03
sekúndum, það met stendur enn.
í úrslitum varð Eðvarð áttundi.
Hann varð tíundi í 100 metra bak-
sundi og í 27. sæti í aukagrein,
200 metra fjórsundi. Loks varö
Eðvarð skömmu fyrir áramót í 3.
sæti í 200 metra baksundi í Evr-
ópubikarkeppninni í sundi í Malmö.
Eins og sést af allri þessari
upptalningu hér á undan þá Eð-
varð Þór Eðvarðsson vel að þessu
kjöri, (þróttamaður ársins 1986,
kominn. Hann er eini íslenski sund-
maðurinn sem skipar sæti á
heimsafrekalista, Norðurlandamet
hans í 200 metra baksundi er 15.
besti tími í heiminum. Hann á 31
gildandi íslandsmet, þar af 15 í
karlaflokki, í öllum greinum sunds.
Hann er og glæsilegur fulltrúi
íslenskrar íþróttaæsku og íþrótt
sinni til sóma í hvívetna. í öðru
sæti í kjörinu varð Arnór Guðjohn-
sen, knattspyrnumaður hjá
Anderlecht í Belgíu og með
íslenska landsliðinu, með 52 at-
kvæði. Arnór var mest áberandi
leikmanna íslenska landsliðsins í
knattspyrnu á árinu, en það gerði
jafntefli við Evrópumeistara Frakka
hér á landi og við stórlið Sovét-
manna. Arnór átti virkan þátt í
þessu og skoraði meðal annars
glæsilegt mark gegn Sovétmönn-
um. Arnór varð belgískur meistari
í knattspyrnu með félagi sínu
síðastliðið vor, og á haustmánuð-
um hefur hann verið lykilmaður og
aðalmarkaskorari Anderlecht, sem
nú er efst í belgísku deildinni.
Jafnir í þriðja til fjórða sæti með
48 atkvæði í þessu kjöri urðu tveir
handknattleiksmenn Kristján Ara-
son sem leikur með Gummers-
bach í Vestur-Þýskalandi og
Guðmundur Guðmundsson fyrir-
liði Víkings. Báðir voru þeir
burðarásar landsliðsins sem náði
6. sæti á heimsmeistaramótinu t
Sviss, og tryggði sér þar með
keppnisrétt á Olympíuleikunum í
Seoul á næsta ári. Kristján var
markahæstur leikmanna íslenska
liðsins, og fimmti markahæsti leik-
manna mótsins, þrátt fyrir að hafa
misst af einum leik vegná meiðsla.
Kristján þótti einn besti leikmaður
mótsins í Sviss, og því skrifaði
hann skömmu síðar undir samning
við eitt frægasta félagslið heims,
Gummersbach í Vestur-Þýska-
landi. Þar hefur hann á síðustu
vikum sannað ágæti sitt, sem og
í leikjum landsliðsins.
Guðmundur Þ. Guðmundsson
var eins og áður sagði einn burðar-
ása landsliðsins í Sviss, og var þar
af mörgum talinn einn af bestu
hornamönnum heims. Hann var
og með í nánast öllum verkefnum
landsliðsins á árinu af sama krafti.
Guðmundur er fyrirliði Víkings,
sem varð bæði íslands- og bikar-
meistari í handknattleik í vor, og
er nú, sem og um áramót, í efsta
sæti fyrstu deildar. Víkingar kom-
ust einnig á síðasta ári sem
kunnugt er í 8 liða úrslit Evrópu-
keppni meistaraliða t handknatt-
leik. Guðmundur Þ. Guðmundsson
var af Handknattleikssambandinu
valinn handknattleiksmaður ársins
1986 fyrir skömmu. í umsögn
Handknattleikssambandsins við
það tækifæri sagði: „Guðmundur
Þ. Guðmundsson býr yfir þeim fá-
gæta eiginleika að vaxa með
verkefninu og á sína bestu leiki
þegar mest ríður á. Hann er íþrótt-
inni til sóma bæði á velli og utan.“
Að lokum þetta, það að tveir hand-
knattleiksmenn eru jafnir í þriðja
til fjórða sæti í kjörinu nú undir-
strikar árangur landsliðs okkar.
í fimmta sæti í kjörinu varð Pót-
ur Guðmundsson körfuknattleiks-
maður með 23 atkvæði. Pétur
Guðmundsson hefur nú í mörg ár
leikið körfuknattleik í Bandaríkjun-
um og stefnir að því að leika í
bestu körfuknattleikskeppni
heims, NBA-atvinnumannadeild-
inni. Þetta takmark tókst Pétri á
árinu, og ekki nóg með það, hann
fékk samning hjá einu besta og
kunnasta félagi heims, Los Ang-
eles Lakers. Pétur hafði leikið í
svokallaðri CBA-deild í fyrravetur
með Kansas, og staðið sig mjög
vel, þegar kallið frá Los Angeles
kom. Þetta var aðeins nokkurra
daga reynslusamningur til að byrja
með, en Pétur stóðst prófin og
fékk framtíðarsamning við liðið eft-
ir hetjulega frammistöðu í úrslita-
keppni NBA-deildarinnar.
í sjötta sæti í kjörinu með 22
atkvæði varð Guðmundur Torfa-
son knattspyrnumaður í Fram og
nú raunar atvinnumaður með Bev-
eren í fyrstu deild í Belgíu.
Guðmundur er 25 ára og hefur
leikið alla tíð með Fram. Hann
vann á árinu til flestra verðlauna
sem knattspyrnumaður getur unn-
ið til hér á landi. Hann varð
Reykjavíkur- og islandsmeistari
með liði sínu, Fram. Fram sigraöi
einnig í Meistarakeppni KSÍ, og lék
til úrslita í Bikarkeppninni. Guð-
mundur skoraði 27 mörk fyrir Fram
á árinu, þar af 19 í fyrstu deild,
sem er jöfnun á meti Péturs Pét-
urssonar frá 1978. Guðmundur
Torfason var af leikmönnum fyrstu
deildar kjörinn besti leikmaður árs-
ins á íslandsmótinu í haust og
valinn knattspyrnumaður ársins
hjá Knattspyrnusambandinu. Að
þessu loknu var Guðmundur valinn
í landsliðið og lék gegn Austur-
Þjóðverjum í haust og gerði síðan
atvinnusamning við eitt efsta lið
Belgíu, Beveren. Þar þótti hann
strax sýna mikla hæfileika, og
komst í lið undir eins, þrátt fyrir
að Beveren þyki nú eitt besta lið
Bejgíu og sé í toppbaráttu.
í sjöunda sæti með 21 atkvæði
varð Pálmar Sigurðsson körfu-
knattleiksmaður í Haukum. Pálmar
var á árinu aðalmaður íslenska
landsliðsins í körfuknattleik sem
náði sínum besta árangri með sigri
í C-keppni Evrópumótsins hér í
apríl, og komst þannig í B-flokk í
fyrsta sinn. fslendingar sigruðu þá
Norðmenn í úrslitaleik og Pálmar
skoraði sigurkörfuna á síðustu
sekúndu leiksins með skoti yfir
hálfan völlinn. Pálmar var valinn í
úrvalslið C-keppninnar að henni
lokinni, hann var kjörinn besti leik-
maður alþjóðlegs móts í Keflavík
í janúar þar sem íslendingar sigr-
uðu, hann var kjörinn besti leik-
maður á 8 liða móti í Austurríki
þar sem íslenska landsliðið keppti.
Pálmar var eini bakvörðurinn og
raunar eini íslendingurinn sem
valinn var í úrvalslið Norðurlanda
eftir Norðurlandamótið, og hann
var kjörinn besti leikmaður Al-
þjóðlegs móts smáþjóða á Möltu,
þar sem íslenska landsliðið sigraði
á milli jóla og nýárs. Pálmar Sig-
urðsson er fyrirliði Hauka í Hafnar-
firði og leiddi lið sitt til sigurs í
Bikarkeppni Körfuknattleikssam-
bandsins í vor. Haukar léku einnig
til úrslita á íslandsmótinu og töp-
uðu fyrir Njarðvíkingum. Pálmar
var næststigahæsti leikmaður ís-
landsmótsins og í lok þess kjörinn
af leikmönnum besti leikmaður á
íslandsmótinu.
í áttunda sæti varð Ragnheiður
Runólfsdóttir sundkona frá Akra-
nesi, með 20 atkvæði. Ragnheiður
hefur staðið sig frábærlega á ár-
inu. Hún á nú 14 gild íslandsmet
í bringusundi, baksundi og fjór- *
sundi. Ellefu metanna voru sett á |
árinu, og sum margbætt. Ragn-
heiður náði þeim ágæta árangri
að komast í úrslit og verða í sjötta
sæti í 200 metra bringusundi í
Evrópubikarkeppninni í Malmq*;
Ragnheiður náði fágætum árangri 1
á stóru boðsmóti í Kanada í haust.
Þar hlaut hún fern gullverðlaun og
ein silfurverðlaun. Á Norðurkollu-
mótinu í Finnlandi vann hun tvenn
silfurverðlaun, ein bronsverðlaun
og varð i fjórða sæti í tveimur
greinum. Loks varð Ragnheiður í
22. sæti í 100 metra bringusundi
og 26. sæti í 200 metra bringu-
sundi á heimsmeistdramótinu í
Madrid í sumar.
Jafnir í níunda til tíunda sæti í
kjörinu urðu Bjarni Friðriksson
júdómaður úr Armanni og Úlfar
Jónsson kylfingur í Golfklúbbi
Reykjavíkur. Bjarni er hátt skrifað-
ur júdómaður síðan hann vann
bronsverðlaun á Ólympíuleikunum'
í Los Angeles 1984. Hann er ís-
landsmeistari í opnum flokki,
keppti á 7 alþjóðlegum mótum á
árinu og vann til verðlauna á fjór-
um. Hann vann silfurverðlaun á
Opna skoska meistaramótinu í
Edinborg og á Norðurlandameist-
aramótinu og bronsverðlaun á
Opna belgíska meistaramótinu og
á Opna skandinavíska meistara-
mótinu í Helsinki. Bjarni varð
sjöundi á Evrópumeistaramótinu í
Belgrad í vor. Síðast tók Bjarni viðr
verðlaunum er hann var útnefndur
af Júdósambandi (slands Júdó-
maður ársins, í áttunda sinn.
Úlfar Jónsson er aðeins 18 ára,
en samt er hann (slandsmeistari í
golfi 1986 og að sjálfsögðu Ungl-
ingameistari l'slands. Hann hefur
að sönnu verið bestur íslenskra
kylfinga á árinu, enda sannar for-
gjöfin 00 það svo ekki verður um
villst. Úlfar var í íslenska landslið-
inu á síðasta ári, varð meðal
annars 9. einstaklinga og efstur
íslendinga á Norðurlandamótinu í
Danmörku. Merkasti árangur hans
er þó líklega annað sæti á hinu
þekkta Doug Sanders-móti í Skot-
landi, en þar kepptu allir bestu^—
kylfingar heims. Þar vakti frammi-
staða hans verðskuldaða athygli.
Alls hlutu 22 íþróttamenn at-
kvæði. Þeir tólf íþróttamenn sem
höfnuðu í 11. til 22. sæti, með frá
einu og upp í tólf atkvæði, voru
þessir: Ásgeir Sigurvinsson knatt-
spyrnumaður, Broddi Kristjánsson
badmintonmaður, Daníel Hilmars-
son skíðamaður, Einar Þorvarðar-
son handknattleiksmaður, Einar
Vilhjálmsson frjálsíþróttamaður,
Guðríður Guöjónsdóttir hand-
knattleiksmaður, Kári Elíson lyft-
ingamaður, Oddný Árnadóttir
frjálsíþróttamaður, Pétur Péturs-
son knattspyrnumaður, Sigurður
Einarsson frjálsíþróttamaður, Torfi
Ólafsson kraftlyftingamaður og
Þorbjörn Jensson handknattleiks-
maður.
Stórleikur
hjá konunum
ÞRÍR leikir verða í 1. deild karla
í handknattlelk f kvöld og tveir
leikir (1. deild kvenna.
Breiðablik og Haukar leika í
Digranesi klukkan 20 og á sama
tíma leika FH og Stjarnan í Hafn-
arfirði. Leikur Vals og Fram hest
síðan stundarfjórðungi síðar í
Laugardalshöll.
Konurnar leika klukkan 19 í
Höllinni og eru það Fram og FH
sem leika. Stórleikur það. Síðan,
klukkan 21.30, leika Valur og
Ármann á sama stað.