Morgunblaðið - 14.01.1987, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 14.01.1987, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1987 Brottvikning fræðslusljóra Norðurlandsumdæmis eystra: „Deili ekki við dómarann og geng því út“ - segir Sturla Kristjánsson, fræðslustjóri „ÉG DEILI ekki við dómarann og geng því út,“ sagði Sturla Kristjánsson fræðslustjóri í Norðurlandskjördæmi eystra, er rætt var við hann í gær um upp- sögn hans. Sturla fékk í gærmorgun upphringingu frá menntamálaráðuneytinu þar sem honum var tilkynnt að á leið til hans væri bréf dagsett 10. þ.m. þar sem honum væri sagt upp störfum frá og með deginum í gær, 13. janúar. Ólga er meðal skólamanna nyrðra vegna uppsagnar Sturlu. Fræðsluráðsfundur hefur verið boð- aður árdegis í dag og skólastjórar á svæðinu hyggjast einnig funda strax í dag. Sturla sagðist ekkert hafa vitað af uppsögninni fyrr en í gærmorgun, er hann fékk símhringingu frá ráðuneytinu. Síðdegis í gær kom Sigurður Helga- son deildarstjóri í grunnskóladeild menntamálaráðuneytisins með upp- sagnarbréfið, sem hann afhenti Sturlu rétt fyrir kl. 17. Sturla var spurður, hverjar ástæður væru gefnar í bréfinu fyrir uppsögn hans. Hann sagði, að það þekktist yfírleitt ekki að opinberir embættismenn væru reknir eða þeim sparkað, eins og hann orðaði það, en í bréfínu væri talað um trún- aðarbrot, sniðgöngu fjárlagaheim- ilda o.fl. Hann sagði síðan um innihald bréfsins: „Þetta eru rúnir, sem við hér norðan heiða getum ekki ráðið í. Það sýnir kannski að við hefðum þurft á meiri sérkennslu að halda. Ég hef í öllum mínum störfum lagt áherslu á að gæta trúnaðar og fara að lögum, en ég deili ekki við dómarann og geng því út.“ Sturla sagði einnig, að það gæti orðið vandfundinn maður í starf fræðslustjóra Norðurlands eystra, því í rauninni líti hann svo á, að í þeim málum þar sem hann hefði ekki verið sammála ráðuneytinu, -0^ Morgunblaðið/Fríða Proppé Sýnum ábyrgð og samstöðu Slysavarnardeild kvenna á Ak- ureyri hefur séð um slysavarn- arskýlið Sesseljubúð á Öxnadalsheiði um árabil. Það hefur reynst þeim svolitið þreytandi og lítt skiljanlegt, sem taka má undir, að velflest það sem gæti komið fólki í nauðum til hjálpar hefur horfið þaðan síðustu mánuði. Þar má nefna súpur, kaffi, teppi o.fl. Á myndinni hér að ofan eru þær Svala Halldórsdóttir og Guðbjörg Árnadóttir, sem fóru með ýmislegt í skýlið um síðustu helgi. Hvetja má fólk til að virða sjálfboðastarf þeirra Slysavarnarkvenna. Ennfremur veit enginn, hver þarf i nauðum á aðstöðunni þarna að halda næst. Blaðbera vantar Blaðbera vantar í Innbæog Víðilund. Upplýsingar í síma 23905. Hafnarstræti 85. Sturla Krisljánsson. hefði hann verið samnefnari skoð- ana skólastjóra og skólamanna norðanlands. „Mínar ávirðingar hafa helstar verið þær, að reyna að ná rétti fólks í skólamálum sam- kvæmt lögum. Séu þessar ávirðing- ar réttar þá lít ég svo á að umdæmið allt sé komið úr lögum við ráðuneyt- ið,“ sagði hann að lokum. Lítumá uppsögnina sem aðf ör að okkur - segir formað- ur fræðsluráðs „RÁÐHERRANN verður að telj- ast samstarfsmaður okkar og fræðslustjórinn því sameiginleg- ur starfsmaður okkar, þ.e. fræsluráðs Fjórðungssambands- ins og ráðherrans, þó svo hann hafi ekki haft fyrir því að hafa samráð við okkur,“ sagði Þráinn Þórisson formaður fræðsluráðs Norðurlandskjördæmis eystra, er rætt var við hann um uppsögn Sturlu Kristjánssonar fræðslu- stjóra kjördæmisins. Þráinn sagði ennfremur, að fræðsluráðið stæði fyllilega við bak- ið á Sturlu fræðslustjóra í þessu máli og að þeir litu á uppsögn hans sem aðför að þeim, því þeir væru fyllilega ábyrgir eins og hann í öll- um þeim skólamálum sem vörðuðu kjördæmið. Varðandi það, hvað fræðsluráðið myndi gera, en það kemur saman til fundar í dag, sagði Þráinn: „Ég vil sem minnst segja, en við höldum fund og tölum saman og ákveðum þá hvaða stefnu við tökum. Ég trúði þó aldrei, að svo vrði staðið að málum. Það get ég sagt.“ Halldór Blöndal, alþingismaður: Kom mér í opna skjöldu „Þessi ákvörðun Sverris kom mér algjörlega í opna skjöldu," sagði Halldór Blöndal, einn al- þingismanna Sjálfstæðisflokks- ins á Norðurlandi eystra, þegar Morgunblaðið leitaði álits hans á aðgerðum menntamálaráðherra. „Mér er ekki kunnugt um að störf Sturlu Kristjánssonar gefí tilefni til að honum sé vikið úr starfí." Halld- ór sagðist einnig myndu óska skýringa á þessu hjá menntamála- ráðherra. Sverrir Hermannsson, menntamálaráðherra: Eg get ekki haft menn í minni þjón- ustu sem gefa fjár- lögum langt nef „ÖLDUR munu rísa og ég mun örugglega liggja undir ágjöf á næstunni vegna þess að ég hef vikið Sturlu Kristjánssyni fræðslustjóra Norðurlandsum- dæmis eystra úr starfi," sagði Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherra í samtali við blaðamann Morgunblaðsins síðdegis í gær. Ástæðuna fyrir brottvikningu Sturlu sagði Sverrir vera fyrst og fremst þá, að Sturla hefði virt fyrirmæli ráðherra að vettugi. „Það má flestum vera ljóst að ekki hefur allt verið með kyrrum kjörum í fræðsluumdæmi Norður- lands eystra og mál hafa þróast þannig hvað eftir annað að skólum hefur verið lokað. Þegar þetta ger- ist einungis í þessu eina umdæmi þá hlýt ég að spyrja sjálfan mig hvað sé að. Eftir nána athugun er það niðurstaða mín, að vandinn eigi rót sína að rekja til fræðslustjór- ans.“ Sverrir sagði að hann hefði ítrek- að reynt að hindra þennan gang mála í þessu fræðsluumdæmi. „I stað þess að virða mínar ábending- ar hefur verið settur í gang hernað- ur gegn mér í fjölmiðlum og ég sakaður um andstöðu við Norður- land eystra. Sömuleiðis hef ég verið vændur um að vilja hefta sér- kennslu barna með sérþarfír þama fyrir norðan sem er auðvitað fá- dæma ósvífni," sagði Sverrir. Á undanförnum mánuðum hefur ítrekað komið til þess að skólum í Norðurlandsumdæmi eystra hefur verið lokað og einnig hafa orðið tafír í skólastarfi þar vegna þess að staðið hefur á greiðslum fyrir skólaakstur. Sverrir sagði ástæð- una fyrir þessu fyrst og fremst þá, að verulegum fjárhæðum hefði verið ráðstafað á Norðurlandi eystra umfram fjárlög. „Ég get ekki búið við slíkt ástand tij íang- frama - ég get ekki haft menn í minni þjónustu sem gefa fjárlögun- um bara langt nef,“ sagði Sverrir. Menntamálaráðherra bætti því við að í öðrum fræðsluumdæmum hefðu menn ráðstafað því fé sem fyrir hendi var og því hefði yfirleitt tekist að láta enda ná saman. „Það getur auðvitað gerst að peningar dugi ekki fyrir útgjöldunum ein- staka sinnum, en þegar það gerist ár eftir ár, þá er eitthvað að. Ég gaf fyrirmæli um að haldið yrði öðru vísi á málum, þannig að ekki þyrfti að koma til stöðvunar skóla- Sjónvarp Akureyri DAGSKRÁ Sjónvarps Akureyri í kvöld, miðvikudagskvöld 14. jan- úar, er eftirfarandi: Kl. 20.30 Bamaefni. Mikki og Andrés; Furðubúar. Kl. 21.20 Myndrokk. KI. 22.15 Spitting Image, 6. þátt- ur. Kl. 22.40 Dallas, 11. þáttur. Kl. 23.25 Dagskrárlok. Sverrir Hermannsson starfs. Það var virt að vettugi og ég þurfti t.d. að slá lán í banka á Húsavík svo hægt yrði að opna Hafralækjarskóla nú nýlega,“ sagði menntamálaráðherra. Sverrir Hermannsson var spurð- ur hvort hann teldi Sturlu Kristjáns- son eiga stuðning fræðsluyfirvalda og skólamanna á Norðurlandi eystra og ef svo væri hvort ekki yrði erfitt að fínna viðunandi lausn- ir á þeim vanda sem við er að glíma í skólahaldinu. „Nei, ég á ekki von á því að þessir menn efni til styrjaldar í svo viðkvæmu máli sem skólaganga barna er. Hins vegar er pólitískur undirgangur fyrir norðan og hætt við því að pólitískir andstæðingar mínir reyni að nota sér þetta mál í komandi kosningum." Sverrir Hermannsson, mennta- málaráðherra, sagðist ekki hafa haft samráð við þingmenn Sjálf- stæðisflokksins á Norðurlandi eystra við ákvörðun sína um að víkja Sturlu Kristjánssyni frá störf- um. „Ég á ekkert frekar von á stuðningi þeirra og ég hafði ekki samráð við þá vegna þess að ég óttaðist að þeim yrði álasað fyrir þáttöku í þessu eftirá. Ég ætla hins vegar norður fljótlega til að ræða þetta,“ sagði Sverrir Hermannsson. GENGIS- SKRANING Nr.7 -13. janúar 1987 Kr. Kr. Toll- Ein.Kl. 09.15 Kaup Sala gengi Dollari 40,000 40,120 40,580 St.pund 59,640 59,819 59,145 Kan.dollari 29,271 29,359 29,400 Dönsk kr. 5,5633 5,5800 5,4561 Norskkr. 5,5093 5,5258 5,4364 Sænsk kr. 5,9831 6,0010 5,9280 Fi.mark 8,5397 8,5653 8,3860 Fr.franki 6,3568 6,3758 6,2648 Belg. franki 1,0191 1,0222 0,9917 Sv.franki 25,3052 25,3812 24,7326 HoII. gyllini 18,7573 18,8136 18,2772 V-þ. mark 21,1640 21,2275 20,6672 Ít.!íra 0,02987 0,02996 0,02976 Austurr. soh. 3,0074 3,0164 2,9416 Port. escudo 0,2780 0,2788 0,2742 Sp. peseti 0,3080 0,3089 0,3052 Jap.yen 0,25674 0,25751 0,25424 írsktpund 57,100 57,271 56,123 SDR(Sérst) 49,3443 49,4924 49,2392 ECU, Evrópum. 43,7500 43,8813 42,9296
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.