Morgunblaðið - 14.01.1987, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 14.01.1987, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1987 Afmæliskveðja: Bragi Magnússon, Siglufirði Þrjátíu og þrjú ár eru liðin frá því kynni hófust af þeim, sem freist- ast er til að senda heillakveðju í tilefni af þéttingsstóru afmæli. Það gerðist fyrir norðan á Siglu- fírði. Gamll selfangari, Bjamarey úr Hafnarfírði, sem hafði verið breytt í venjulegt físki- og síldveiði- skip, lá við bryggju. Áhöfnin, mislitur hópur, meðal annarra sölu- maður; auralítill lögfræðingur; fyrrum ritstjóri listatímarits; nýflú- inn úr mislukkaðri kaupamennsku í Skagafírði; munnhörpuleikari; nokkrir venjulegir „sjóræningjar" og töffarar víðsvegar af landinu að viðbættum kapteininum sjálfum, Óla Stebba úr Bolungarvík, þeim valinkunna nýlátna sægarpi — já, öll þessi sundurleita áhöfn naut landlegunnar og lystisemdanna í grófum stíl. Það fór á þá leið, að einn úr hópnum var handtekinn af lögreglu staðarins við illan leik. Viðkomandi var færður í rasphús, látinn dúsa um hríð, allt að lögum að sjálfsögðu. Þetta gerðist með óvenjulegum hætti, þ.e.a.s. hand- takan, og í lífsstíl lögreglumanns- ins, sem framkvæmdi hana. Þessi vörður laganna þar fyrir norðan var gæddur óvenjulegri kímnikennd, svo að atvikið var alls ekki til niður- lægingar, heldur til bjargar, og ekki nóg með það, heldur skapaði óijúfanleg vináttutengsl við „svart- stakkinn" og úr því sem komið er, þá er bezt að nefna nafnið á hon- um, sem er Bragi Magnússon, sem í þá tíð var starfandi sem lögreglu- maður á Siglufírði, en einmitt hann er sjötugur nú í dag. Fleiri atvik áttu eftir að gerast í landlegum Bjamareyjar þá um sumarið, sem sá mannlegi lögreglu- maður Bragi átti eftir að skrifa skýrslu um af listfengi í embættis- bók sína, meðal annars um skipið „Sæskuðið", sem aldrei fannst, þrátt fyrir víðtæka leit Ófeigs ung- löggu, sem slðar varð bæjarfógeti á Akureyri. Allt þetta flokkaðist undir prakk- araskap og „villta hegðan" af völdum „óminnishegra og illra hóta nomar", sem gjaman „undir niðri í stiklunum þruma", þegar Dyonys- os tekur við stjóminni. Með þessum hætti upphófust kynnin af vini Braga án borgara- ■legra siðgæðishátta, en þvílíkt lán lék ekki við óstýrilátan skipveija af Bjamareynni þá um sumarið, að fá að kynnast manneskjulegasta verði laganna norðan Alpaijalla (að öðrum ólöstuðum) sem þó bar með sér, að hann gæti verið harðari en allt, sem hart er, og ákveðnari en allt, sem ákveðið er. Svo liðu árin og þessi góðu kynni héldust. Meira að segja var það fyrir tilverknað Braga, að greinarhöfundur var val- inn sem nefndarmaður í háráð Skíðasambands íslands og átti m.a. að sjá um erlendar bréfaskriftir. Þetta var vegtylla, sem nú er miklazt af vegna vaxandi íþrótta- áhuga. Nemendur í MA frá Sigló báru kveðjur á milli og vissu þeir sennilega flestir um samskiptin sumarið ’53, en hins vegar eru margir fyrir norðan ekki ýlq'a hneykslunargjamir í venjulegum skilningi. Menntlingamir bám kveðjumar brosandi. Áleitinn, óvæginn, ádeiluritiing- ur, „Skammdegi á Keflavíkurvelli" kom út snemma á árinu ’54, og það var sérstakur heiður fyrir höfund- inn, þegar Bragi hringdi að norðan og bauðst til að verða umboðsmað- ur fyrir þetta ádeilurit, sem enn var glóheitt úr smiðjunni og átti að orka eins og herör skorin upp gegn amerískum áhrifum á íslandi og vera jafnframt þverskurðarmynd af ófögru mannlífi á Vellinum. Þetta er raunar allt önnur saga, en bregður þó ljósi á ýmislegt í eðli Braga. 0g ekki er öll sagan sögð, því sumarið 1967, á málverkasýn- ingu undirskráðs á Akureyri, tók Bragi að sér að auglýsa sýninguna á Siglufírði með skreyttu plakati, sem honum hafði verið sent frá Akureyri. Hann var sóttur heim sumarið ’60 og aftur örfáum árum seinna. í fyrri heimsókninni bauðst hann til að aka bíl höfundar til baka yfir Skarðið og norður í Fljót í Skaga- fírði, en þangað hugðist hann fara til veiða, sem hann iðkaði á stund- um. Það var litið á þessa tiltekt hans sem sérstakan heiður og virð- ingarauka. Það var gott að koma á heimili Braga, en hann er nú ekkjumaður. Kona hans var Harða Guðmundsdóttir frá Þönglabakka í Þorgilsfírði. Hún lést fyrir ellefu árum. Harða var af þeirri sterku Jörundarætt, sem flestir fyrir norð- an kalla Jörundarkyn, en afí Hörðu var sá nafntogaði hákarlaformaður Jörundar í Hrísey. Móðir Hörðu var Sigríður Sigurðardóttir frá Siglu- fírði, en hún missti mann sinn, Guðmund Jörundsson, frá sjö böm- um í ómegð og fluttist aftur á heimaslóðir, Siglufjörð. Harða missti snema heilsuna, en hún var óskaplega lifandi manneskja, þrátt fyrir heilsuleysi sitt, og hlýr per- sónuleiki. Var einkar gott að koma á heimili þeirra hjóna. Það er auð- fundið á Braga, að kona hans var stærstur þáttur í lífi hans og gæfa hans, enda er það mál manna, að hann hafí reynzt henni vel og það er fegurð í því að heyra hann tala um Hörðu, það er eins og birti yfír öllu í hvert sinn sem hana ber á góma. Þau hjón eignuðust tvær dætun Þórdísi Völu, fóstru, sem gift er Kristjáni Þráni Benediktssyni, flug- stjóra hjá Mobil Oil í Líbýu, og Sigríði, auglýsingateiknara og lista- konu, sem gift er Reyni Sigurðs- syni, húsasmfðameistara. En báðar eru dætumar búsettar í Reykjavík. Þær em elskar að föður sínum, sem kom stundum suður til að sækja þær heim. Bragi hefur lagt gjörva hönd á margt um dagana, verið hart vinn- andi til sjós og lands, ólst upp við hörð skilyrði kreppuáranna. Hann er af vestfírzkum kjama í aðra ætt og einnig er hann af Deildartungu- ætt. Hann fæddist á ísafirði og var þar til átta ára aldurs, en þá flyzt hann til Reykjavíkur. Faðir hans, Magnús Vagnsson, var hörkusjó- sóknari, fyrst fyrir vestan og síðan fyrir sunnan og fyrir norðan og Bragi var ekki nema níu ára, þegar faðir hans tók hann með sér á sjó- inn. Amma hans að vestan hét því sérkennilega nafni Thormóna Ebenezardóttir. Hún var sterkur karakter og afdrifaríkur þáttur í lífí Braga og ól með honum réttlæt- iskennd og lífsbaráttuhug. Móðir Braga, Jóhanna Jónsdóttir, var ljós- móðir, hún var mæt kona. Fjórtán ára gamall flyzt Bragi til Ákureyrar og bjó á Oddeyri, í Norðurgötu, sem var magnað at- hafnasvæði fyrir þróttmikla ungl- inga og minnist Bragi oft áranna þriggja á Akureyri. Sautján ára flyzt hann til Siglufjarðar, og hefur átt þar heima síðan og lifað og hrærzt þar í þessari gömlu norð- lenzku orkustöð, sem stundum gat orðið svolítið alþjóðleg. Bragi naut skólagöngu í Reyk- holti. Hann var einna elztur skóla- systkinanna þar, en alltaf í forsvari eins og síðar varð annars staðar í lífínu. Gerðist ýmislegt sögulegt í Reykholti f tfð Braga. Fór hann sfnar leiðir, enda orðinn fullharðn- aður. Á Siglufirði beið hans lífshlut- verk, fleira en eitt. Hann hafði getið sér orð fyrir ótal afrek í íþróttum og hann vann ötullega að ýmsum félagsmálum. Hann er skáldmælt- ur, listfengur, húmoristi af guðs náð, skopteiknari, listaskrifari, hef- ur skrifað smásögur, gamanþætti, revíu, starfaði lengi að íþróttamál- um, áratugum saman, var knatt- spymuleikari, knattspymudómari og yfírleitt var Bragi alls staðar, þar sem lff var og eitthvað var að gerast. Hann var lögreglumaður á Siglu- fírði tæp tuttugu ár og leysti það starf af hendi með reisn og af bijóstviti og af sjálfsvirðingu eins og allir vita, sem til þekkja. Hann starfaði sem gjaldkeri við fógeta- embættið á Siglufírði frá því að hann hætti lögreglustörfum og unz hann hætti störfum sem embættis- maður árið 1984, en síðan hefur hann helgað sig ritstörfum sem betur fer. Undirskráður er stoltur af því að hafa notið þeirra fríðinda og bókmenntalegu gleði að lesa tvær snjallar smásögur eftir Braga f útvarp árið 1983. Og það vildi svo til, að þegar lestrinum var útvarp- að, var upplesarinn í heimsókn hjá Braga norður á Siglufírði á útmán- stofnaði nýlega hjálparsjóð kirkjunnar. Sjóðurinn er eign uðum '83, en þar dvaldist hann um vikutíma í góðu yfírlæti í síberískri vetrarhörku. Svo mögnuð vom snjó- þyngslin á hveijum degi, að þeir félagar þurftu að moka sig út úr litla húsinu á Lándargötu 20 á morgnana og inn í húsið á kvöldin. En þetta jók aðeins á stemmningu. Það er freistandi að rifja upp, þeg- ar félagamir hlýddu á sögulesturinn á öldum ljósvakans. Þá var ein- beitni þeirra beggja slík, að hún hefði getað brætt snjóinn og frost- rósimar á stofuglugganum. Og þegar sagan var langt komin, sagði Bragi við gestinn: „Má ég fá mér vindil?" Það var vandaverk að lesa upp jafngóða sögu og skila henni af sér áheyrilega. Vonandi heldur afmælisbamið áfram að leggja rækt við listgáfur sínar, sem eru óvenju miklar. Mað- ur eins og Bragi sem hefur oft á tíðum þurft að sýna af sér meiri manndóm en títt er um venjulega menn, er sjálfrýninn og stundum úr hófí fram. Fyrir það er freist- andi að lesa yfír honum. Hann hefur frá svo mörgu að segja, svo auðug- ur er hann af mannlegri rejmslu og fyrir bragðið hlýtur honum að liggja mikið á hjarta, sem hann getur tjáð sig um á ókomnum ámm. Það verður gaman að hitta Braga í dag. Það verður glatt á góðra vina fundum. Afmælisbamið tekur á móti gest- um á heimili dóttur sinnar og tengdasonar, Sogavegi 122 hér í bæ, milli kl. 17 og 19 í dag. Að Hæðardragi, Steingrímur St.Th. Sigurðsson. kirkjunnar og í vörslu féhirðis hennar. Honum er einkum ætlað að mæta neyð sem verður við óvænt og ótímabær dauðsföll. Sjóðurinn er hluti af safnaðar- sjóðnum og peningar lagðir til hliðar til þessara þarfa innan safnaðarins sem sjóðurinn sinnir. Hver sem vill getur lagt fram fé í þennan hjálparsjóð Selfoss- kirkju. „í sambandi við óvænt atvik, dauðsföll og annað, koma oft upp aðstæður þar sem ómögulegt er að sjá fyrir erfiðleikunum í gegnum tryggingarkerfí. Þá getur verið erfítt að hafa ekkert upp á að hlaupa", sagði Sigurður Sigurðar- son sóknarprestur um þennan nýstofnaða hjálparsjóð Selfoss- kirkju. „Stundum höfum við leitað til Hjálparstofnunar kirkjunnar þegar þannig aðstæður hafa komið upp. Það liggur í eðli kristins safnaðar að bregðast við neyð náungans og við ætlum að gefa fólki tækifæri að gefa fjármuni til slíks. Það eru margir sem vilja styrkja svona málefni og þá þurfa þeir að hafa vettvang til þess,“ sagði Sigurður ennfremur. Samþykkt hefur verið að veija tekjum af minningarathöfnum í þennan sjóð og einig að ákveðinn söfnunardagur til sjóðsins verði einu sinniá ári. BYRJENDANÁMSKEIÐ TÁKN MÁL Byrjendanámskeið í táknmáli hefst 17. janúar og lýkur 28. febrúar. Kennt verður tvisvar í viku, tvo tíma í senn, á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 19—21. Námskeiðið hefst og lýkur á fyrirlestrum tvo laugardaga, 17. janúar og 28. febrúar. Kennsla fer fram í Heyrnleysingjaskólanum og fjöldi þátttakenda í hverjum hóp tak- markast við fimmtán. Tveir leiðbeinendur í hverjum hóp. Innritun og allar nánari upplýsingar í símum 16750 og 16755. 17. jan. — 28. feb. Félag heyrnarlausra — Heyrnleysingjaskólinn — Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra Selfosskirkja Selfoss: ■HF«rV Morgunbladið/Sigurdur Jónsson Hjálparsjóður stofnað ur við Selfosskirkju Selfossi. SÓKN ARNEFND Selfosskirkju Sig.Jóns.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.