Morgunblaðið - 14.01.1987, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 14.01.1987, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1987 5 Nýtt fyrirtæki í fjármögnun: Fjármögnunarleiga gæti numið þremur milljörð- um króna á árinu - segir Gunnar H. Hálfdánarson, framkvæmdastj óri Féfangs NYTT „fjármögnunarfyrirtæki", Féfang hf., var stofnað í lok síðasta árs. Fjárfestingarfélag ís- lands á meirihluta í fyrirtækinu, en Lifeyrissjóður verzlunar- manna, Tryggingamiðstöðin hf. og Verslunarbanki íslands tíunda hluta hvert. Að auki á Sparisjóður vélstjóra rúmlega eitt prósent hlutafjár. Félagið mun yfirtaka fjármögnunarleigu þá sem Fjár- festingarf élagið hefur stundað hin síðari ár og starfa i beinni samkeppni við þijú sambærileg fyrirtæki á innlendum markaði. Gunnar H. Hálfdánarson, fram- kvæmdastjóri Fj árfestingarfé- lagsins og Féfangs, spáir að velta fjármögnunarleigu á Islandi verði þrir milljarðar króna á þessu ári. Kjartan Gunnarsson, forstöðu- maður flármögnunarleigu Féfangs, sagði að fjármögnunarleiga væri þýðing á enska hugtakinu „fínancial leasing." Fjárfestingarfélagið hóf slíka starfsemi árið 1972 og stund- aði hana í litlum mæli þar til á síðasta ári þegar losað var um hömlur á erlendri lántöku í þessu skyni og samþykkt að fella niður söluskatt á þjónustunni. Hugtakið ármögnunarleiga er notað yfir þau viðskipti þegar sér- hæfð fyrirtæki taka að sér að leggja fram fé til kaupa á hlutum _sem at- vinnurekendur falas eftir. Áður en ráðist er í fjármögnun mun Féfang leggja mat á umsóknir og standist þær kröfur þess kaupir Féfang við- komandi hlut og rukkar notandann reglulega fyrir leigu á peningunum. Fjármögnunarleiga er oftast bundin við 3-5 ára tímabil. „Þetta er að því leiti frábrugðið lánastarfsemi að Fé- fang er eigandi hlutarins og tekur því tryggingu i lausafjármunum. Reynslan af flármögnunarleigu er- lendis sýnir að hún veitir atvinnurek- endum aðhald og ýtir undir þjóðhagslega arðbærar fjárfesting- ar,“ sagði Kjartan. Ríkisútvarpið lokar á gögn um auglýsingamagn Rikisútvarpið hefur afturkallað leyfi sem fyrirtækið Miðlun hafði til að kanna ýmis gögn um auglýs- ingamagn hjá Ríkisútvarpinu. Að sögn Markúsar Arnar Antonsson- ar, útvarpsstjóra er þetta gert vegna þess að ýmsir viðskiptavinir Ríkisútvarpsins höfðu lýst óánægju sinni með að Miðlun fengi að kanna hversu miklu fé þeir verðu til auglýsinga. Miðlun hefur í um þrjú ár mælt auglýsingar auglýsingatímum Ríkisútvarpsins, auk svipaðra mæl- inga hjá öðrum fjölmiðlum, og selt þessar upplýsingar viðskiptavinum sínum, aðallega auglýsingastofun- um. Að sögn Áma Zophaníassonar hjá Miðlun var var sú ákvörðun tek- in hjá Ríkisútvarpinu snemma á síðasta ári, að veita Miðlun ekki frek- ari aðgang að gögnum um auglýs- ingamagn. Var sú neitun byggð á þremur forsendum; í fyrsta lagi að Miðlun þyrfti að fara með gögnin úr húsi Útvarpsins til að vinna þau, í öðru lagi að viðskiptamenn Ríkisút- varpsins hefðu kvartað yfir að þessar upplýsingar væru veittar og í þriðja lagi vegna skipulagsbreytinga hjá Útvarpinu. Að sögn Áma Zophaníassonar óskaði Miðlun þá eftir fresti, sem fékkst og samhliða breytti fyrirtækið aðferðum sínum þannig, að ekki þurfti að fara með gögnin út úr húsi Ríkisútvarpsins. „Eftir stendur þá þessi nefnda óánægja viðskiptavina Ríkisútvarpsins," sagði Ámi. „Ég get hins vegar fullyrt að flöldamargir viðskiptamanna okkar, og þar með þessara fjölmiðla, eru mjög áhugas- amir um að þessi upplýsingaþjónusta haldi áfram. En það er útilokað að við getum veitt hana án þess að hafa aðgang að gögnum Ríkisút- varpsins um auglýsingamagn. Þetta er ekki mikið áfall fyrir rekstur Miðl- unar, en verulegt áfall fyrir upplýs- inga- og auglýsingaiðnaðinn," sagði Ámi Zophaníasson. Útköll slökkviliðsins færri árið 1986 SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var kallað sjaldnar út á síðasta ári en árið þar á undan, eða 564 sinn- um í stað 581 sinni árið 1985. Útköll þar sem slökkva þurfti eld voru 330 árið 1986, en 377 árið 1985. Um íkveikju var að ræða í 135 tilfellum. I skýrslu slökkviliðsins um útköll og eldsvoða kemur í ljós að útköll eru algengust milli kl. 18-21 á kvöldin. Talin til útkalla er öll að- stoð slökkviliðs þar sem ekki var um eldsvoða að ræða, s.s. efnaleki, vatnsleki, losun úr bílflökum og fleira. Af þessum útköllum voru 510 í Reykjavík, 33 í Kópavogi, 12 í Mosfellssveit, 7 á Seltjamamesi og 2 flokkast undir annað. Sjúkraflutn- ingar voru alls 10.187 á síðasta ári og er það svipuð tala og undanfar- in ár. Hefur fjöldi sjúkraflutninga haldist svo til óbreyttur frá árinu 1973, eða rúmlega 10 þúsund á ári. Eitt meiriháttar tjón af völdum elds varð á árinu 1986 að Lækjar- götu 14. Tveir fómst í eldsvoða árið 1986 á Kópavogshæli. Allt slökkviliðið var kallað út í þessi tvö skipti. Bankaviðræðurnar: Lagt fram mat á eignum bankanna LÍKUR eru á því að línur skýrist S viðræðum um sameiningu Verzlunarbankans, Iðnaðar- bankans og Útvegsbankans xun eða upp úr næstu helgi, að sögn Geirs Hallgrímssonar seðla- bankastjóra. Geir sagði að síðar í þessari viku yrði lagt fram mat sem verkfræði- stofa hefði gert á fastafjármunum bankanna þriggja og bjóst hann við að fljótlega eftir það myndu línur skýrast. Kjartan Gunnarsson, Ágúst Hafberg, Gunnar H. Hálfdánarsson, Jónsson og Gísli Ólafsson. Morgunblaðið/Einar Falur Höskuldur Ólafsson, Hallgrímur G. iölluö slaifstofupiýði Nú hefur aldeilis hlaupið á snœrið hjá skrifstofufólki. Þreyfan er horfin og bakverkurinn líka - þökk sé nýja Dauphin skrifborðsstólnum. Þeir sem setjast í stól frá Dauphin kynnast ótrúlegri hönnun. Stólbakið heldur hryggsúlunni í réffri sföðu, líkaminn verður afslappaður og vinnan verður auðveldari í stól frá Dauphin. í Hljómbœ eru Dauphin skrifborðsstólarnir í fjölbreybu úrvali, litafjöldinn er mikill og verðið er frá kr. 6,990.- stgr. Dauphin - stílhreinir stólar, sannkölluð skrifstofuprýði. DaupmN SKRIFBÆR HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.