Morgunblaðið - 14.01.1987, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 14.01.1987, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 14. JANÚAR 1987 17 Safnaðartónleikar Tónlist Jón Ásgeirsson Tónlistarfélag Kristskirkju hélt sína fýrstu tónleika á árinu og komu þar fram Kolbeir.n Bjamason flautuleikari, Dagný Björgvinsdótt- ir píanóleikari og Guðni Franzson klarinettleikari og fluttu tónverk eftir C.P.E. Bach, Hindemith, Schumann, Schostakovits, Donald Martino og Kazuo Fukushima. Á fyrri hluta tónleikanna voru gripluð saman nútímaverk og eldri tónverk en seinni hlutinn var tónlist eftir „lifandi" nútímatónskáld. Það sem er einkennilegt í leik Kolbeins Bjamasonar, er hversu sannfær- andi og tilfinningarík túlkun hans er í flutningi nútimatónlistar, þar sem hins vegar að í eldri tónlist virðist hann ekki getað tjáð sig með sömu tilfinningalegu einlægninni. Þama hattar sérkennilega fyrir og var það einkar ljóst á þessum tón- leikum. Sónatan eftir C.P.E. Bach og Rómönsumar tvær eftir Schum- ann vom ákaflega dauflegar í flutningi Koibeins og einnig Hin- demith, sem að nokkm stendur á skakk við „modemismann" vegna þess að hann tileinkar sér hefð- bundin viðhorf gagnvart stefrænni framvindu, er hann taldi að hljóti að vera mikilvæg fyrir heyranlegt form tónverksins. í völsunum eftir Schostakovits vantaði allt á er heit- ir túlkun, en valsamir em grínverk, eins konar háðsglósur til sósíalreal- istanna, sem í flutningi Kolbeins og Guðna Franzsonar vom því mið- ur rúnir gamanseminni. í tveimur síðustu verkunum eftir Donald Martino og Kazuo Fukus- hima var Kolbeinn heima og flutti verkin af innlifaðri sannfæringu. í verki Martino (1930) em stef- hugmyndimar oft á tíðum tónalar. Samt em tónhugmyndimar ekki þann veg uppsettar að þær geri form verksins ljóst, þannig að form- ið er „layout" sem tónskáldið býr til fyrir sig og flytjandann en hlust- andinn á erfiðara, ef til þess er þá ætlast, að skynja formræna fram- vindu verksins á þann hátt. Hjá Fukushima (1931) var tónmálið harla lítið austrænt en nákvæmt eftir þeim kokkabókum sem kennd- ar hafa verið við „Post-Webem- isma“, er síðar leiddi til þess sem gengur undir nafninu „Minimal- ism“, sem þýða mætti sem „agnar- isrna". Þijú smábrot eftir Fukushima em harla mösulbeina og lítil saðning þeim er vanist hafa miklu málskrúði og þykkofnum hljómum, og hvort sem það segir nokkuð til um gildi tónverksins eða ekki, var ljóst að Kolbeinn flutti tónagnir verksins mjög vel og af mikilli innlifun. Undirleikari var Dagný Björgvinsdóttir, sem leikur mjög músíkalskt en helst gafst henni til þess tækifæri í verkunum eftir Bach, Hindemith og Schum- ann. FRÖIMSKUNÁMSKEIÐ ALLIANCE FRANCAISE — 13 vikna vornámskeið hefst mánudaginn 26. janúar. — Kennt verður á öllum stigum ásamt bókmenntaklúbbi, barnaflokki og unglingaflokki. Innritun fer fram í bókasafni Alliance Francaise, Laufásvegi 12, alla virka daga frá kl. 14 til 19, og hefst fimmtudaginn 15. janúar. Allar nánari upplýsingar fást í síma 23870 á sama tíma. Veittur er 10% staðgreiðsluafsláttur og 15% staðgreiðsluafsláttur fyrir námsmenn. ATH. GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA (Eurocard og Visa) Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Sigmundur O. Steinarsson rit- stjóri á Reykjanesinu við störf á ritstjórn blaðsins. Keflavík: Nýr ritstjóri Reykjanesins Keflavík. SIGMUNDUR O. Steinarsson sem undanfarin ár hefur verið íþróttafréttaritari á DV tók við ritstjórn vikublaðsins Reykjaness nú um áramótin. Reykjanesið kemur út vikulega, því er dreift ókeypis og útgáfan fjármögnuð með auglýsingum. Sigmundur er kunnur íþróttafréttaritari og hefur unnið við blaðamennsku undanfarin 15 ár. í samtali við Morgunblaðið sagð- ist hann myndi ritstýra biaðinu næstu sex mánuði, en tíminn yrði að leiða í ljós hvert áframhald yrði. „Það er spennandi að vera með eig- ið blað í höndunum og viðbrögð við fyrsta blaðinu lofa góðu. Stefnan er að vera með eitthvað nýtt fyrir lesendur í hveiju blaði.“ Auk þess að ritstýra og skrifa í blaðið, er það útlitsteiknað af Sig- mundi og hann sagði að ljósmynda- vélin væri á leiðinni. „Það er ákafiega f|ölbreytt starf að vinna við smærri blöðin og veitir mikla alhliða reynslu í blaðamennskunni," sagði Sigmundur ennfremur. Við ritstjómina si/arfa 5 manns. - BB Við minnwn fastagesti fiíjómsváUainnar á forkaupsrétl ásknfama að sctíxanfyrm misseris. SinfóníufiCjómsveit ísíands þakkar öttum áfieyrendum sinum ánaxfjufega samveru á dðnu misserí. Brátt fiefst síðara. misserí starfsársins. Af því tttefni vttjum við 6enda núverandi áskrífendum áforkaupsréttþann sem þeir fiafa að scetum sírtum. Gttcttr sá réttur ttt og með 23. jonúor. TRTGGÐU ÞÉR SÆTI í TÆKA TÍÐ AFGREIÐSLAN í GIMLI ER OPIN ALLA VIRKA DAGA KL. 13-17. GráðsCukortaþjónusta. S. 622255. j /

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.