Morgunblaðið - 14.01.1987, Síða 18

Morgunblaðið - 14.01.1987, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1987 Lánasj óðsmálið eftirFriðrik Sophusson Að undanfömu hafa menn fengið að fylgjast með sérkennilegum vinnubrögðum Finns Ingólfssonar í samstarfí stjómarflokkanna um málefni Lánasjóðs íslenzkra náms- manna. Í heilt ár hafa stjómarflokk- amir reynt að fínna leiðir til að styrkja stöðu sjóðsins, sem hefur átt í erfiðleikum, þannig að hann geti í framtíðinni rækt mikilvægt hlutverk sitt. Fulltrúar stjómarflokkanna náðu samkomulagi sín á milli og á vegum menntamálaráðherra hafa staðið viðræður við forystumenn náms- mannasamtakanna, sem hafa beinna hagsmuna að gæta. Þær viðræður vom gagnlegar og leiddu til talsverðra breytinga á fyrirliggj- andi frumvarpsdrögum. Þótt nokkuð hafí borið á milli, verður að segja námsmannafulltrúunum til hróss, að þeir sameinuðust um að leita leiða til að bæta hlut sjóðsins. Þeim verður ekki kennt um að klúðra málinu. Endurskoðun á ábyrgð stjórnarflokkanna Þrer breytingar sem stendur til að gera á lögum um LÍN og þær útlánabreytingar sem þegar hafa verið gerðar, eru á ábyrgð beggja stjómarflokkanna. Rétt er að rifja upp, að hinn 20. desember 1985, við 3. umræðu fjárlaga, sagði Pálmi Jónsson, framsögumaður meiri- hluta §árveitinganefndar, að í tillögum meirihlutans væri ekki gert ráð fyrir auknum fjárframlög- um til LÍN og þar með væri ljóst að verulegar breytingar þyrfti að gera á útlánareglum sjóðsins til að endar næðu saman á árinu 1986. M.a. á þessum grundvelli hefur menntamálaráðherra beitt sér fyrir því, að lögum og reglum sjóðsins verði breytt. Þegar ljóst var að ekki næðist samkomulag milli stjómarflokk- anna á fyrstu mánuðum sl. árs lagði menntamálaráðherra skýrslu fram á Alþingi. í þessari skýrslu er drep- ið á fjölmargar hugmyndir, m.a. þá hugmynd að námslán beri lág- marksvexti. Menntamálaráðherra skipaði hinn 28. apríl 1986 samvinnunefnd stjómarflokkanna um Lánasjóð ísl. námsmanna og var nefndinni falið að samræma sjónarmið stjómar- flokkanna í þessu máli. Fulltrúar í nefndinni vora: Friðrik Sophusson, formaður, Tryggvi Agnarsson, Finnur Ingólfsson og Haraldur Ól- afsson. Nefndin setti sér m.a. það markmið að endurgreiðsluhlutfall til Lánasjóðsins af námslánum yrði svipað og gert var ráð fyrir í lögun- um 1982, en um það endurgreiðslu- hlutfall var full pólitísk samstaða á Alþingi. Nefndarstarf og niðurstaða í nefndarstarfínu varð brátt ljóst, að Finnur Ingólfsson gat ekki fallizt á ýmis atriði í hugmyndum mennta- málaráðherra. Var hann því beðinn um að leggja fram sínar tillögur. Finnur lagði þá fram tillögu um þak á námslán, en það þýðir að náms- lánum sé skipt í tvo flokka: Annars vegar almenn lán, sem beri ekki vexti en hins vegar viðbótarlán, sem beri bankavexti. Aðrir nefndarmenn samþykktu tillögu Finns til að ná samkomulagi í nefndinni og Sjálf- stæðismennimir féllu frá ýmsum hugmyndum sínum í staðinn. Hinn 6. október náði nefndin samkomulagi um framvarpsdrög, sem send vora til ráðherra og töldu nefndarstarfínu lokið. Undir þetta rituðu allir nefndarmenn án fyrir- vara. Meginefni þessara tillagna vora auk þaksins, sem áður er get- ið, námsstyrkir og lántökugjald til að standa undir hluta af rekstrar- kostnaði LÍN. Skömmu eftir að ráðherra fékk drögin í hendur, sendi hann þau til námsmannasamtakanna til kynn- ingar og umsagnar. Hinn 23. október boðaði menntamálaráð- herra á sinn fund fulltrúa náms- mannahreyfínganna og samvinnu- nefndina og óskaði eftir því, að tilraun yrði gerð til þess að ná sam- komulagi um framvarp sem hægt væri að flytja sem stjómarfram- varp. Haldnir vora margir gagnlegir fundir um málið og skipzt á skoðun- um. Hinn 4. desember skrifaði sam- vinnunefndin ráðherra bréf um málið og gerði grein fyrir stöðu þess. í því bréfí segir orðrétt: „Það er sameiginleg skoðun samvinnu- nefndarinnar að í þessum viðræðum við námsmenn hafi verulegur árangur náðst og hafi nefndin með tilboði sinu komið mjög til móts við sjónarmið námsmanna þó að ekki hafi náðst endanlegt samkomulag. Nefndin telur að ef ganga eigi lengra í viðræðum við námsmenn, þá sé það hér eftir á valdi ráðherra. Nefndin telur, að æskilegt sé að ráðherra taki tillit til þeirra breytingartillagna sem sam- vinnunefndin varð sammála um að gerðar yrðu á frumvarps- drögunum." í lok bréfsins segin „Nefndin telur nú framlengdu hlutverki hennar lokið og er framvinda málsins hér eftir í höndum ráðherra.“ Undir þetta bréf rita allir nefndarmennirnir án fyrirvara. Gerðar vora tillögur tii breytinga á drögunum og vora þær að sjálf- sögðu samdar og samþykktar af öllum fulltrúum stjómarflokkanna. Nefndarstarfmu var þar með lokið. Viðræður á vegiim ráðherra í framhaldi af þessu bréfí nefnd- arinnar til ráðherra fól mennta- málaráðherra okkur Finni Ingólfs- syni að halda áfram viðræðum við námsmenn á sínum vegum og reyna til þrautar að ná samkomulagi. Var það reynt og haldnir nokkrir fundir um efnið auk þess sem Steingrímur Ari Arason var mönnum innan handar um útreikninga. í bréfí fulitrúa námsmannahreyf- ingarinnar, sem þeir skrifuðu 18. des., komu fram ýmsar hugmyndir og var skýrt tekið fram, að skoða bæri þær hugmyndir um leiðir til samkomulags í heilu lagi. Á fundi með forráðamönnum námsmanna þennan dag kom í ljós að forráða- menn námsmannahreyfíngarinnar höfðu sín í milli rætt um aðrar leið- ir, sem ekki era nefndar í þessu bréfí án þess að samkomulag yrði milli þeirra, og er þar sérstaklega átt við þá hugmynd að makar, sem ekki stundi nám, fái sjálfstæðan lánsrétt í sjóðnum til að rýmka lán til þeirra, sem þyngsta hafa fram- færsluna gegn hraðari endur- greiðslum. Hinn 19. des. ákváðum við Finn- ur að gera breytingar á fyrirliggj- andi drögum og senda þær menntamálaráðherra og forsætis- ráðherra. Eftir nokkurt þóf var ákveðið að fara þess á leit við menntamálaráðherra að hann sendi forráðamönnum námsmannahreyf- ingarinnar ný og breytt drög ásamt bréfí, þar sem skýrt væri tekið fram að um drög væri að ræða og þess óskað, að námsmanna- samtökin sendu inn tillögur sínar sem allra fyrst, þannig að þær gætu fengið tilhlýðilega athugun áður en fjallað yrði efnislega um frumvarpið í rikisstjórninni. Þessi breyttu drög fóra til náms- manna 29. desember, sem var fyrsti virki dagur eftir jól. Bréfíð var að sjálfsögðu lesið fyrir Steingrím Hermannsson forsætisráðherra áð- ur en það var sent. Á blaðamannafundi hinn 29. des- ember um önnur mál LÍN var menntamálaráðherra spurður um framvarpsdrögin. Hann neitaði að ræða efnisatriðin, en vísaði til áður- nefnds bréfs og „vildi engu spá um það, hveijar líkur væra á því, að samkomulag næðist við náms- menn.“ Af þessu sést, að viðræðun- um var ekki endanlega lokið af hálfu ráðherra og fulltrúa hans. Jafnframt sagði hann, „að fullt samkomulag væri um þessi drög meðal fulltrúa stjómarflokkanna og væri Finnur Ingólfsson fulltrúi Framsóknarflokksins fyllilega sátt- ur við drögin eins og þau væra nú.“ Þessar jrfírlýsingar gátu ekki komið á óvart í ljósi þess, að Finn- ur hafði skrifað undir lokaálit nefndarinnar og tekið þátt í að breyta framvarpsdrögunum eftir viðræður við námsmenn. Með yfir- lýsingu menntamálaráðherra var engan veginn gefíð í skyn, að drög- in gætu ekki breytzt enda var beðið eftir viðbrögðum námsmanna og ríkisstjómarflokkamir áttu eftir að fjalla um málið. Þetta tilefni notar Finnur Ingólfsson til að semja ný drög að framvarpi og kynna námsmönnum og fréttamönnum á fundi hinn 3. janúar áður en menntamálaráð- herra og forsætisráðherra höfðu tækifæri til að kynna sér málið. í nýju drögunum hverfur Finnur frá lántökugjaldinu og hugmynd sinni um þak, sem hafði verið grandvöll- ur samkomulags fulltrúa stjómar- flokkanna. Með þessu útspili vora brostnar forsendur fyrir áfram- haldandi samstarfí okkar Finns á vegum menntamálaráðherra og ég tilkynnti honum að málið hlyti hér eftir að vera í höndum hans og for- sætisráðherra, sem upphaflega tilnefndi Finn af hálfu Framsóknar- flokksins. Það skal tekið fram til glöggvun- ar, að tillögur Finns era nánast þær sömu og námsmenn lögðu til 18. desember. Hvers vegna þetta frumhlaup? í stjómarsamstarfí er oft nauð- synlegt að samræma tillögur — ekki sízt ef síðar á að semja við hagsmunaaðila. Samkomulag aðila með ólíkar skoðanir næst ekki nema menn leggi sig fram og ýtrastu kröfur séu lagðar til hliðar. Þetta var gert í nefndarstarfínu og í við- ræðunum við námsmenn, sem enn stóðu yfír, höfðu báðir aðilar slakað til. í röðum forystumanna náms- mannahreyfíngarinnar vora skiptar Annáll LÍN-málsins 28. aprfl Menntamálaráðherra skipar nefnd stjómarflokkanna. 6. október Nefndin skilar sameiginlegu áliti í frumvarpsdrögum. 23. október Nefndin byijar viðræður við námsmenn að beiðni ráð- herra. 4. desember Nefndin lýkur viðræðum, skilar af sér undirrituðu sam- komulagi og leggur til breytingar, sem koma til móts við hugmyndir námsmanna. 6. desember Menntamálaráðherra biður Finn og Friðrik að reyna enn að ná samkomulagi. 18. desember Námsmenn leggja fram hugmyndir. 19. desember FI og FS breyta enn framv. og óska eftir því að það verði svo breytt sent námsmönnum. 29. desember Framvarpsdrögin send námsmannasamtökunum og skýrt tekið fram, að viðræðunum sé ekki slitið. 3. janúar Finnur gerir grein fyrir einkaframvarpi sínu á fundi SÍNE að viðstöddum fréttamönnum. sóknarmanna samþykkti ályktun um lánamálin 20. sept. Þar segir m.a.: „Því hafnar stjórn SUF al- farið hugmyndum um að teknir verði upp vextir og lántökugjald af námslánum." Þessi viðhorf vora námsmönnum kunn og þess vegna hlutu þeir að eggja Finn. í desemberblaði SÍNE, Sæmundi, skrifar varaformaður SÍNE, Högni Eyjólfsson, m.a.: „Af fyrri reynslu teljum við varasamt að treysta um of á góðar við- tökur framsóknarmanna en þó er aldrei að vita, þeir gætu átt það til að standa við orð sín.“ Á jólafundi SÍNE, laugardaginn 27. desember urðu miklar umræður um afstöðu Finns og rifjuð upp viðhorf í ræðum erlendis (Karlsrahe). í framhaldi af þeim fundi var Finnur beðinn að koma á fund 3. janúar og gera grein fyrir máli sínu. „Og þá slitnaði rófan". Auðvitað kann það að vera að menn afli sér stundarvinsælda með- al hagsmunaaðila með þeim vinnu- brögðum, sem hér er lýst. En stjómmálamenn verða að hafa þrek og þor til að standa við samkomu- lag sín á milli, ef þeir vilja öðlast traust í samstarfí. + Asakanir um trúnaðarbrot Finnur hefur að undanfömu reynt að veija sig með ýmsu og m.a. gripið til þess að afsaka sig með því að ég hafí í september framið trúnaðarbrot og kynnt tillög- ur samvinnunefndarinnar á fundi með námsmönnum í Svíþjóð. Þótt þessu sé löngu svarað þá sé ég ástæðu til að rifja þetta upp vegna þess að forsætisráðherra og Tíminn hafa étið þetta upp eftir Finni. Meðan á nefndarstarfínu stóð átti ég 10 fundi með námsmönnum á Norðurlöndum, ræddi þar um stjómmál og lánasjóðsmál vítt og breitt. Skýrsla menntamálaráð- herra lá fyrir og nefndaskipunin var opinber. Á sama tíma átti Finnur fundi með námsmönnum m.a. í Bandaríkjunum (t.d. Seattle) og ræddi þessi mál með sama hætti. Hafí ég framið trúnaðarbrot að mati Finns liggur beint við að segja það sama um hann. Það sem skipt- ir hins vegar mestu máli er, að Finnur samþykkti drögin eftir þessa atburði alla án fyrirvara. Þetta síðasta hálmstrá er því einnig geng- ið honum úr greipum. Höfundur er varaformaður Sjálf- stæðisflokks og einn af þingmönn- um flokksins fyrir Reykja víkur- kjördæmi Helztu efnisatriði LÍN-málsins 1. Helztu breytingarnar, sem samvinnunefndin lagði til 6. október vora eftirfarandi: a) Námsaðstoðin verður þrenns konar: Almenn lán (40 ár án vaxta), viðbótarlán (15 ár, bankavextir), námsstyrkir. Þak á almenn lán miðaðist við 1.050 þús. kr. á lánskjaravísitölunni 1337. b) Lántökugjald og innheimtugjald tekið upp. c) Önnur aðallega tæknileg atriði. Undir þetta rita nefndarmenn án fyrirvara. 2. Eftir viðræður við námsmenn lagði nefndin til eftirfarandi breyt- ingartillögur (4. desember): a) Þakið er hækkað í 1.550 þús. krónur skv. lánskjaravísitölu 1509. Endurgreiðsluhlutfall námsláns af tekjum iánþega hækk- ar eftir því sem lánsfjárhæðin verður hærri (3,75%-4,5%). b) Óskir um breytingartillögur á reiknuðum framfærslukostnaði verði bornar undir þriggja manna nefnd áður en þær taka gildi. Undir þetta rita nefndarmenn án fyrirvara og telja nefndarstarfínu Iokið. 3. 19. desember gera FS og FI breytingar 'frv.drögunum eftir að námsmenn skila inn nýjum hugmyndum 18. desember. Þar er gert ráð fyrir því að maki námsmanns geti fengið sjálfstæðan lántöku- rétt fyrír þeim hluta, sem námsmaður fengi ellegar vegna makans. Þetta rýmkar lánsmöguleika þeirra sem mest þurfa til framfærslu og fara þvi fyrr upp úr þakinu en aðrir. Framvarpið svo breytt er sent námsmönnum 29. desember með bréfí ráðherra, þar sem beðið er um viðbrögð. 4. 3. janúar opinberar Finnur Ingólfsson nýtt frumvarp sitt sem í raun era að mestu tillögur námsmanna frá 18. desember. Þar á meðal fellur FI frá lántökugjaldi og innheimtugjaldi og hverfur frá hugmyndinni um þakið sem hann átti sjálfur. Sú hugmynd kom fram til að koma í veg fyrir lágmarksvexti á öll námslán, en það var upphafleg tillaga sjálfstæðismanna. Aðrir nefndarmenn í samvinnu- nefndinni hafa ætíð talið, að styrkjahugmyndin og fleiri atriði í drögunum séu byggð á þeirri forsendu, að þak verði sett á almenn námslán. Friðrik Sophusson skoðanir, en þeir komu fram gagn- vart okkur sem ein sameinuð heild. Menn spyija því: Hvemig stendur á þessari sérkennilegu framkomu Finns Ingólfssonar? Sjálfur hefur hann nefnt tvær ástæður. Önnur er það sem hann kallar „trúnaðarbrot" mitt í sept- ember og mun ég víkja að því síðar. Hin er yfírlýsing ráðherra á blaða- mannafíindi 29. desember og er alveg út í hött eins og fyrr hefur verið sýnt fram á. Það kann hins vegar að varpa ljósi á gönuskeið Finns, að hann hafði gefíð sverar yfírlýsingar í bréfí og á fundum með námsmönn- um erlendis. í bréfí, sem Finnur sendi námsmönnum erlendis fyrir síðustu sveitarstjómarkosningar skömmu eftir að hann var skipaður í samstarfsnefndina, segir hann í lokin: „Nú horfa námsmenn til Fram- sóknarflokksins sem þess afls sem stöðvað geti hugmyndir menntamálaráðherra um breyt- ingar hans á lögum Lánasjóðs islenzkra námsmanna. Styrkur Framsóknarflokksins í þessum efn- um svo og öðram mun um margt ráðast af úrslitum sveitarstjómar- kosninganna. Framsóknarmenn munu meta sinn pólitíska styrkleika í þessu í ljósi kosningaúrslitanna. Námsmenn leita nú til framsóknar- manna eftir styrk — Framsóknar- flokkurinn leitar nú til námsmanna eftir stuðningi. Sterkur Framsókn- arflokkur í sveitarstjómarkosning- um og í næstu alþingiskosningum er styrkleiki námsmannahreyfíng- arinnar." Þessi sjónarmið hafði Finnur uppi á fundum erlendis með náms- mönnum. Stjórn Sambands ungra fram-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.