Morgunblaðið - 14.01.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1987
25
Sovétríkin:
íklakaböndum
Ekkert lát er á kuldunum í Danmörku. Mynd þessi sýnir höfnina
í Álaborg, þar sem ísinn hefur þegar valdið miklum truflunum
á skipaumferð.
Afvopnunarviðræðurnar í Genf:
Sovétstgórnin skipar
nýjan samningamann
Washington, AP.
YULI Vorontshov aðstoðarutanríkisráðherra mun verða helsti samn-
ingamaður Sovétstjórnarinnar þegar afvopnunarviðræður risaveld-
anna hefjast að nýju í Genf á fimmtudag, að því er tilkynnt var í
Moskvu i gær. Vorontshov kemur í stað Viktors Karpov, sem hefur
verið í fylkingarbijósti sovésku samninganefndarinnar undanfarin
tvö ár.
Bandarískir embættismenn
sögðu að Bandaríkjastjórn hefði
oftlega hvatt Sovétmenn til að skipa
háttsettan embættismann í stöðu
þessa. Sögðu þeir að Viktor Karpov
hefði skort vald til þess að setja
fram afvopnunartillögur og að það
hefði tafip mjög fýrir viðræðunum
í Genf. Á Reykjavíkurfundinum í
október vakti það athygli manna
að Sergei F. Akhromeyev, yfirmað-
ur herafla Sovétríkjanna, virtist
gegna lykilhlutverki í viðræðum
sovéskra embættismanna og sér-
fræðinga Bandaríkjastjómar.
Bandarískir embættismenn lýstu í
gær yfir ánægju sinni vegna þessar-
ar ákvörðunar Sovétstjómarinnar
en margir þeirra hafa sagt Viktor
Karpov gegna hlutverki áróðurs-
meistara en ekki samningamanns.
Max Kampelman verður sem fyrr
aðalsamnjngamaður Bandaríkja-
stjómar. í gær var tilkynnt í Hvíta
húsinu í Washington að Kampelman
hefði einnig verið skipaður ráðgjafi
utanríkisráðuneytisins. Að mati
fréttaskýrenda var Kampelman
hækkaður í tign til þess að mæta
skipan Vorontsovs.
Andrei Sakharov sagði á sunnu-
dag að vestrænir blaðamenn hefðu
misskilið ummæli hans um geim-
varnaáætlun Bandaríkjastjómar.
Kvaðst hann telja það rangt af
Sovétstjóminni að krefjast þess að
samið verði um áætlunina um leið
og önnur afvopnunarmál. Sagðist
hann telja óheppilegt að víðtækt
samkomulag skyldi hafa strandað
á þessum eina málaflokki.
Yuri Maksimov, yfirmaður kjam-
orkuherafla Sovétríkjanna, vísaði í
fyrradag á bug ásökunum Banda-
ríkjastjómar þess efnis að Sovét-
menn hefðu hafíð tilraunir með
nýja langdræga kjamorkueldflaug.
Bandarískir embættismenn hafa
sagt tilraunir þessar vera í andstöðu
við SALT H samkomulag risaveld-
anna. Maksimov sagði áskanir
þessar vera tilhæfulausar með öllu
og sagði að Bandaríkjamenn vildu
með þessu réttlæta þá ákvörðun
Reagans forseta að virða ekki
ákvæði samningsins.
Jiang, ekkja
Maos, dauð-
veik af
krabbameini?
Peking. Reuter.
Hátíðarútgáfa Prövdu
— 25.000 tölublöð komið út
Moskvu, Reuter.
PRAVDA, málgagn sovéska kommúnistaflokksins, hefur nú komið
út 25.000 sinnum frá því Lenin stofnaði blaðið árið 1912. Tölublað
nr. 25.000 kom út í gær og sagði þar að hlutverk blaðsins sem
málgagns alþýðunnar væri mikilvægara nú en nokkru sinni fyrr,
þar sem verið væri að hrinda í framkvæmd sögulegum og byltingar-
kenndum ákvörðunum, sem teknar hefðu verið undir forystu
flokksleiðtogans, Mikhails Gorbachev.
Birt var mynd af fyrsta tölublað-
inu sem dagsett var 4. apríi 1912
og einnig mynd af fólki sem þyrpt-
ist um blaðasala, sem var að selja
blaðið árið 1917, sama ár og komm-
únistar komust til valda í Sovétríkj-
unum. Segist blaðið hafa reynt í
öll þessi ár að fara eftir fyrirmælum
Lenins um að beijast fyrir hags-
munum hinna vinnandi stétta.
„Saga blaðsins er samofin hinni
hetjulegu sögu Kommúnistaflokks
Sovétríkjanna," segir blaðið.
Nokkrar breytingar eru taldar
hafa orðið á skrifum málgagnsins
síðan Gorbachev varð aðalritari. í
síðustu viku birtist t.d. á forsíðu
viðurkenning yfirmanns leynilög-
reglunnar, KGB, á því, að einn af
yfirmönnum lögreglunnar hefði ver-
ið rekinn úr starfi fyrir að fyrirskipa
ólöglega handtökú. Slík viðurkenn-
ing hefur ekki verið birt síðan í lok
valdatíma Stalíns.
Pravda heldur því reyndar fram,
að yfirlýsing KGB-foringjans sé til
komin vegna rannsóknarblaða-
mennsku tveggja blaðamanna
blaðsins er héldu til Úkraínu til
þess að grennslast fyrir um afdrif
blaðamanns er skrifað hafði um
valdníðslu opinberra embættis-
manna og lögreglu.
Pravda, er merkir sannleikur á
rússnesku, hefur ekki verið jafn
gagmýnt á neikvæða þætti í sov-
ésku þjóðlífi og ýmis önnur blöð,
nú þegar Gorbachev hefur hvatt
einstaklinga og íjölmiðla til að segja
það sem þeim býr í bijósti. Þó sá
hugmyndafræðingur flokksins,
Yegor Ligachev, ástæðu til þess, á
síðasta flokksþingi kommúnista-
flokksins, sem haldið var í febrúar
sl., að átelja blaðið fyrir að fara
út fyrir leyfíleg mörk, þegar það
birti lesendabréf, þar sem gagmýnd
voru harðlega forréttindi þau er
valdastéttin sovéska nýtur.
Útlendingar er fýlgjast með mál-
um í Sovétríkjunum og eru vanir
að lesa á milli línanna hvað er að
gerast þar í landi, segja að miklar
breytingar hafi átt sér stað á blað-
inu og Sovétmenn, er vilja vera
gagnrýnir á heimildir, segjast
hlakka til að lesa málgagn komm-
únistaflokksins þessa dagana.
Pravda kemur að sögn út í 11 millj-
ón eintökum daglega og hefur síðan
í fýrra komið út öðru hvoru á ensku,
í Bretlandi og Bandaríkjunum.
OPINBERIR talsmenn í Peking
létu hafa það eftir sér í dag,
þriðjudag, að þeim væri ókunn-
ugt um, hvort fréttir um veikindi
Jiang Quing, ekkju Mao tse tung
væru á rökum reistar. Fréttir
þessa efnis höfðu birzt í
kínverska blaðinu Vikuskráin og
sagði þar, að Jiang væri í með-
ferð á sjúkrahúsi í Peking, vegna
krabbameins í hálsi. Látið var
að því liggja, að Jiang ætti ekki
langt eftir ólifað.
Jiang varð mjög valdamikil í
Kína, meðan Maó réði þar lögum
og lofum, einkum og sér í lagi urðu
áhrif hennar mikil eftir að eigin-
maður hennar gerðist gamall og
hafði ekki sömu tök og áður og
fýrrum. Hún og þrír aðrir félagar
hennar, sem hafa verið nefnd Fjór-
menningaklíkan, voru leidd fyrir
rétt í Peking 1981, sökuð um að
bera ábyrgð á dauða þúsunda í
menningarbyltingunni. Jiang var
dæmd til dauða, en dómnum var
síðan breytt í lífstíðarfangelsi. Að
því er bezt er vitað mun hún hafa
verið í fangelsi norður af Peking
síðan, þar sem öryggisvarzla er
mjöff strör.c.
Júgóslavía:
Stjórnvöld
hvött til að
þðla gagmýni
Helgrad, AP.
HÓPUR júgóslavneskra mennta-
manna hvatti stjórnvöld i gær til
að falla frá ákærum á hendur
mönnum, sem gagnrýnt hafa
stjórn kommúnistaflokksins, og
afnema slík lagaákvæði.
Átján manna nefnd sem stofnuð
hefur verið til varnar andlegu frelsi
í Júgóslavíu sendi bréf til stjórn-
valda þar sem segir að ofsóknir á
hendur mönnum, sem gagnrýnt
hafa yfirvöld, fari stöðugt vaxandi.
„Sífellt fleiri eru dæmdir til langrar
fangelsisvistar vegna skoðana sinna
á stöðu innanlandsmála," segir í
einu bréfanna. Þá var hvatt til þess
að lagaákvæði, sem heimila stjóm-
völdum að draga andófsmenn fyrir
dómstóla, verði felld úr gildi. Mál
einstakra andófsmanna vom rakiu
ítarlega í bréfur.Um.
Nsíliá ’þessi hefur starfað í tvö
ár. í henni sitja mikilsmetnir rithöf-
undar, listamenn og háskólakenn-
arar. Einn meðlima hennar er
metsöluhöfundurinn Dobrica Cosic,
sem í eina tíð sat í miðnefnd júgó-
slavneska kommúnistaflokksins.
JAIMUARTILBOÐ
N ú eru hinar vinsælu helgsrfsíéir okkar
innanlands kr.ftnar i fullan gang. Þetta eru
óöýfarferðirsem innihalda flug til Reykjavik-
ur frá tuttugu stöðum á landinu en einnig
frá Reykjavik til Akureyrar; Egilsstaða,
Hornafjarðar, Húsavíkur, Isafjarðar og
Vestmannaeyja. Gisterá völdum hótelum og
sumstaðar er morgunverður einnig innifalinn.
Þessi skemmtilegi ferðamáti gefur einstakling-
um, fjölskyldum og hópum möguleika á að
HELGÁf
Heykjavlk: Flug trá Akureyrl: Gisting á
öllum áfangastööum Flug- Hótel KEA, Hótel Varðborg,
leiða, Flugtélags Norðurlands Hótel Akureyri, Hótel
og Flugfélags Austurlands. Stefaníu og Gistiheimilinu
Glsting á Hótel Esju, Hótel Loftlelðum, Hótel Borg, Hótel Óðinsvéum og Hótel Sógu. Ási. gilsstaðir: Gisting í
V estmannaeyjar: Gisting á Hótel Gestgjafan- Valaskjáltog Gistihúsinu EGS.
tÍornafjörður: Gisting
um. á Hótel Höfn.
isafjörður: Gisting á Húsavtk: Gisting á
Hótel Isafirði. Hótel Húsavik.
breyta til, skipta um umhverfium stundarsakir.
Áhyggjur og daglegt amstur er skilið eftir
heima meðan notlð erhins besta sem býðst
í ferðaþjónustu hér á landi - snætt á nýjum
matsölustöðum, farið í leikhús eða kunningj-
amir heimsóttir.
Helgarferð er ómetanleg upplyfting.
FLUGLEIÐIR