Morgunblaðið - 14.01.1987, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1987
39
Akranes:
Umsókn um byggingar-
leyfi tekur tíma
Akranesi.
UM LANGAN tíma hefur verið á borði bæjaryfirvalda á Akranesi
umsókn Stuðlastáls hf. um byggingu verkstæðishúss við Faxabraut
á Akranesi. Nú þegar þetta er skrifað eru liðið rúmt ár frá því
umsókn var send, en enn hefur fyrirtækið ekki getað hafi bygging-
una.
Við inntum Einar Guðleifsson hjá
Stuðlastáli hf. eftir því hvar þessi
byggingarmál þeirra stæðu í dag.
Einar sagði að eftir ótrúlegan feril
málsins væri það nú hjá skipulags-
stjóra ríkisins. Hvemig hann
afgreiddi það væri ekki gott að
segja. Einar sagði að umsókn um
byggingarleyfí hefði verið send
bæjarstjórn haustið 1985. Málið
fékk mikla umræðu í bæjarstjórn
og hafnamefnd og sýndist sitt
hverjum.
„I vor þegar ný bæjarstjóm tók
við völdum var málið tekið upp að
nýju og þá eftir mikla umfjöllun var
lóðaumsóknin loks afgreidd já-
kvætt. Síðan látum við teikna
húsnæðið og sú teikning fór fyrir
byggingarnefnd sem sendi hana til
skipulagsstjóra til umsagnar. Þar
liggur hún nú,“ sagði Einar.
Einar sagði þetta mál vera orðið
hálf vandræðalegt og fátt um svör
hjá yfirvöldum. „Þetta kemur okkur
mjög illa, húsnæðið sem við emm í
í dag eru á allan hátt ófullnægjandi
sem gerir það að verkum að við
verðum að taka verkefni á mun
þrengri markaði en við vildum. Við
höfum lent í því í einstaka tilfellum
að okkur hefur verið hafnað sem
Basinger og Shepard
í Ástarfuna
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Ástarfuni (Fool for Love). Sýnd
í Austuræjarbíói. Stjörnugjöf:
☆ ☆ ☆.
Bandarísk. Leikstjóri: Rob-
ert Altman. Handrit: Sam
Shepard, byggt á hans eigin
leikriti. Framleiðendur: Mena-
hem Golan og Yoram Globus.
Kvikmyndataka: Pierre Mign-
ot. Tónlist: George Burt. Helstu
hlutverk: Sam Shepard, Kim
Basinger, Harry Dean Stanton
og Randy Quaid.
Leikstjórinn Robert Altman
(Nashville) hefur einbeitt sér að
því að snúa sviðsleikritum yfir á
filmu undanfarin ár og tekist
bærilega a.m.k. ef marka má
myndina Welcome Back to the 5
and Dime, Jimmy Dean Jimmy
Dean, sem ríkissjónvarpið sýndi
fyrir skemmstu. í henni sýndi
hann m.a. skemmtilega leikni í
því að skipta á milli fortíðar og
nútíðar en myndin fj allaði um
konur, sem allar dreymdi einu
sinni um Jimmy Dean.
Þessa sömu leikni er að finna
í Ástarfuna (Fool for Love), sem
sýnd er í Austurbæjarbíói, og er
nýjasta Altman-myndin í leikrita-
flokknum. Nú er það Sam
Shepard sem sér um textann en
myndin er gerð eftir samnefndu
verki hans um upplausn fjölskyld-
unnar, ást og hatur og uppgjör
við fortíðina. Sjálfur fer Shepard
með annað aðalhlutverkið í mynd-
inni á móti Kim Basinger. Leikur
þeirra er öflugur og rafmagnaður
eins og samband þeirra í mynd-
inni og saman með framkomu
þeirra Harry Dean Stanton og
Randy Quaid, sem fara með minni
hlutverk, er óhætt að fullyrða að
betri leiklist sjáist ekki í bíóhúsum
borgarinnar jþessa dagana.
Persónur Shepards úr ameríska
vestrinu eru kannski ijarlægar
okkur hér uppi á íslandi og
Ástarfuni er sjálfsagt engin að-
sóknarmynd. En fýrir utan
frammistöðu leikaranna er hand-
bragð Altmans bráðgott og vel
viðeigandi og eins og í „5 and
Sam Shepard i hlutverki Eddie
i Ástarfuna.
Dime“ sýnir hann hugmyndaflug
og útsjónarsemi við að skipta á
milli tvennra tíma leikritsins.
Það gerist á einni nóttu á sóða-
Iegu móteli í Nýju-Mexíkó. Þau
Shepard og Basinger leika Eddie
og May, sem hafa elskað hvort
annað frá því þau voru unglingar.
Eddie er bráðlátur, fautalegur og
drykkfelldur kúreki, horaður og
tekinn og óskaplega ástfanginn
af May. Hún er drusluleg, skap-
mikil og orðljót og hætt að elska
hann eftir að hann hefur átt ástar-
ævintýri með einhverri sem kölluð
er „hertogaynjan" og kemur tvisv-
ar á mótelið og skýtur allt í klessu.
Eddie og May. May og Eddie. Þau
elska og hata hvort annað.
Áhorfandi að átökum þeirra er
Gamlinginn, sem Harry Dean
Stanton leikur. Hann er allstaðar
nálægur, hlæjandi eða maldandi
í móinn þegar fortíðin er rifjuð
upp honum í óvil. Öll eiga þau
sameiginlega foríð; Gamlinginn
er pabbi þeirra Eddie og May en
með sitthvorri konunni. Og það
er fortíðin sem stíar þeim í sundur.
Basinger, í útliti eins og gölluð
Barbiedúkka, sýnir afbragðsleik
sem May tilbúin í hvaða slag sem
er við Eddie. Shepard er að sama
skapi kröftugur og svipmikill sem
Eddie. Randy Quaid er stórkost-
legur í litlu hlutverki kærasta May
og Harry Dean Stanton stelur
senunni hvenær sem hann birtist.
Morgunblaðið/JG
Rúmt ár er liðið frá því Stuðlastál hf. sendi umsókn um byggingarleyfi til bæjaryfirvalda á Akranesi.
lægstbjóðendum í verk sem að
miklu leyti má rekja til húsnæðisað-
stæðna okkar. Við höfum tekist á
við margt, og sumt sem mörgum
hefur þótt óframkvæmanlegt. Þetta
hefur tekist hjá okkur vegna góðra
og samhentra starfsmanna, en því
er ekki að neita að ekki er enda-
laust hægt að leggja þetta aðstöðu-
leysi á mannskapinn."
Einar sagði að lokum að vonandi
rættist úr þessu máli þeirra á þessu
ári og að árið yrði þeim jafn gott
verkefnalega séð og síðasta ár.
- JG
HJÓLKOPPASALA
Vorum að taka upp stóra sendingu af hvítum hjól-
koppum og krómhringum.
Nr. 4 13“ Nr. 5 13“ Nr. 6 13“
Nr. 7 12“
Úrval bifreiðavarahluta — góð og persónuleg þjón-
usta fagmanna.
VARAHLUTAVERSLUNIN
0 3 7 2 7 3
Póstsendum um allt land.
Rýmingarsala á vönduðum og góðum kuldaskóm
Puffins — Oswald — Ara — o.fl. gerðir msg
Panzl
30—50% afsláttur
Einnig ýmsar gerðir frá S!l
Hælaskór úr leðri kr. 990,- áður kr. 2.124,-
Götuskór frá Puffins kr. 1.495,- áður kr. 2.495,-
stte-tni
VELTUSUNCH 1
21212