Morgunblaðið - 14.01.1987, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1987
43
Ára- og tímamótakveðja;
Aðalsteinn Sigurðs
son fiskifræðingur
„Það var títt í æsku minni, að
menn birtu þakkarávörp í blöðum
til manna er reynzt höfðu þeim vel
í raun og vanda. Öldur nýrra tíða
virðast að nokkru hafa skolað þess-
um sið á braut."
Þannig kemst Sigurður heitinn
Guðmundsson, skólameistari
Menntaskólans á Akureyri, að orði
í afmælisgrein um einn vina sinna.
(Heiðnar hugvekjur og mannaminni. Akur-
eyri, 1946. Bls. 204.)
Fer mér sem mínum gamla læri-
föður, að mig langar að taka upp
gamla venju og þakka Aðalsteini
Sigurðssyn fyrir nærfellt hálfrar
aldar vináttu og drengskap við mig,
þegar hann lætur af starfi sem
deildarstjóri við Hafrannsókna-
stofnun um þessi áramót og senda
honum um leið síðbúna afmælis-
kveðju, en Aðalsteinn varð sjötugur
13. júní síðastliðinn.
Það mun hafa verið í öndverðum
haustmánuði 1940, að nýr nemandi
bættist í annan bekk Gagnfræða-
skóla Akureyrar. Var hér kominn
ungur maður úr inndölum Eyja-
Qarðar, nokkru eldri en við hinir
nemendumir, en slíkt var þá alsiða.
Urðum við sessunautar og brátt
hinir mestu mátar og höfum haldið
kunningsskap okkar og vináttu
síðan. Tel ég Aðalstein meðal mæt-
ustu manna, sem ég hefi kynnst á
lífsleiðinni, þótt sjálfum sé honum
lítt um það gefið að útbásúna eigið
ágæti eða ota sínum tota, eins og
nú virðist vera nokkuð í tísku með-
al landa vorra. Hygg ég þó að þessi
hæverski og dagfarsprúði öðlings-
maður sé engan veginn án sjálfs-
metnaðar, enda undir niðri
skapmaður, sem ekki hefur látið
„svæla sál sína undir annarra vilja
né ráðríki“. Er ekki örgrannt um
að forfrömun hans á veraldar vísu
hefði orðið meiri og skjótari væru
flaðurgimi og undirhyggja honum
að skapi.
Aðalsteinn lauk gagnfræðaprófi
frá Gagnfræðaskóla Akureyrar og
Menntaskólanum á Akureyri vorið
1942, og stúdentsprófi úr stærð-
fræðideild sama skóla 1945. Vorum
við skólabræður um fímm ára skeið
og bekkjarbræður fyrstu tvö árin,
eða fram að gagnfræðaprófí.
Þegar Aðalsteinn kom í Gagn-
fræðaskólann hafði hann áður hafíð
smíðanám á Akureyri og verið einn
vetur í Iðnskóla Akureyrar. Tak-
markaðir atvinnumöguleikar í þeirri
grein á þeim tíma munu hafa vald-
ið því, að hann hvarf frá því ráði
að gerast húsasmiður. Þó má segja
að hann hafi ekki slitið tengslin við
þessa atvinnugrein fyrr en hann fór
utan til háskólanáms, því að hann
vann fyrir sér á sumrin á mennta-
skólaárunum við brúarsmíðar, undir
handleiðslu valinkunns verkstjóra í
þeirri grein, Jónasar Snæbjömsson-
ar, föður núverandi vegamálastjóra,
sem þá var teiknikennari við
Menntaskólann á Akureyri. Mun
hugur Aðalsteins raunar hafa stað-
ið til háskólanáms í byggingaverk-
fræði, en atvikin höguðu því svo
til, að úr því varð ekki.
Naumast hefír Aðalsteinn verið
ýkja fjáður að loknu stúdentsprófi
og mun því hafa tekið fegins hendi
boði um að kenna vetrarlangt við
gagnfræða- og iðnskólann á Siglu-
firði, eflaust viljað láta á það reyna,
hvort hann felldi sig við kennslu-
störf. Má ætla að honum hafí ekki
litist alls kostar fýsilegt að gera
kennslu að aðalævistarfi, enda kjör
kennara síst auðveldari í þá daga
en nú. Reyndar hefir hann lítt feng-
ist við kennslu síðan, ef frá eru
skilin árin 1958—60, er hann var
stundakennari í hjáverkum við
Gagnfræðaskólann í Vonarstræti í
Reykjavík.
Síðla sumars 1946 hleypti Aðal-
steinn heimdraganum og hélt til
Kaupmannahafnar, þar sem hann
hóf nám við Hafnarháskóla í nátt-
úrufræði, með sjávardýralíffræði og
fiskifræði sem sérsvið. Þótti námið
þar til mag. scient.-prófs í þessari
grein þá vera með því erfiðasta sem
um gat við evrópska háskóla og
þótt víðar hefði verið leitað, yfir-
leitt ekki skemmra en sjö til átta
ár, eða svipað og ætla má að þurfi
til doktorsprófs við ýmsar mennta-
stofnanir nú tii dags. Voru meðal
kennara Aðalsteins ýmsir af fær-
ustu sérfræðingum og vísinda-
mönnum á þessu sviði og háar
kröfur gerðar til lærisveinanna.
Án efa hafa viljafesta og þraut-
seigja Aðalsteins skilað honum
dijúgum áleiðis við svo strangan
og fjölþættan undirbúning undir
framtíðarstarfið og nær er mér að
halda, að hann hafi sjaldan látið
lystisemdir heimsborgarinnar
glepja sér sýn. Hins vegar hygg ég
heilsu hans ekki ætíð hafa verið sem
skyldi og varð hann raunar að leggj-
ast á sjúkrahús um tíma. Þrátt fyrir
þetta mótlæti veigraði hann sér
ekki við því, á þessum árum, að
taka upp á arma sína sjúkan bróður
minn, sem þá leitaði sér lækninga
í Kaupmannahöfn, hlynna að hon-
um og telja í hann kjark. Er það
drengskaparbragð, sem ég mun
seint gleyma, en sýnir hvem hann
hefir að geyma.
Á háskólaárunum vann Aðal-
steinn undir handaijaðri ýmissa
þekktra fískifræðinga og ber þar
Arna Thorlacius
reistur minnisvarði
Stykkishólmi.
HREPPSNEFND Stykkishólms-
hrepps hefir samþykkt að reisa
Áma Thorlacius fyirum kaupmanni
og athafnamanni í Stykkishólmi
veglegan minnisvarða hér í kaup-
túninu, en einmitt um þessar
mundir er verið að ljúka endurbót-
um á Norska húsinu sem Ámi lét
reisa fyrir 150 árum og bjó í til
dauðadags, en þetta hús þótti á
sínni tíð eitthvert stærsta og feg-
ursta hús á landinu, sannkölluð
höll og var vitnað um það í blöðum
þess tíma.
Ámi Thorlacius fæddist á Bíldu-
dal 12. maí 1802 og voru foreldrar
hans þau hjónin Guðrún Oddsdóttir
lögreglumanns Hjaltalín og Ólafur
kaupm. Thorlaciusar. Hann lærði
verslunarfræði í Kaupmannahöfn
og setti síðan upp verslun í Stykkis-
hólmi og hafði miklar framkvæmdir
með höndum. Hann var lengi um-
boðsmaður Amarstapa umboðs og
þrívegis var hann settur sýslumaður
í Snæfellsnessýslu. Ámi var mikill
fróðleiksmaður og lét sig mjög
skipta ýmis þjóðfélagsmál. Hann
fylgdist vel með öllum breytingum
og eins mikill áhugamaður um verð-
urfar og skráði fyrstur manna
veður, eða talinn upphafsmaður
veðurfregna í öllum heiminum og
ritaði þær daglega niður.
Þá varð hann frægur af ferð sinni
til Noregs þegar hann sótti viðinn
í hús sitt í Stykkishólmi og talið að
á þeim tíma hafí ferðin verið á
mettíma. Um þetta em skráðar
sagnir. Eftir að húsið var fullbúið
kallaði almenningur það aldrei ann-
að en Norska húsið og festist nafnið
við það og hefír haldist síðan.
Ámi var kvæntur Önnu Magða-
lenu dóttur Daniels Steenbachs í
Önundarfirði. Fimm bama þeirra
náðu fullorðinsaldri. Fer vel á því
að Stykkishólmur minnist þessa
atorkumanns.
Ami.
sennilega hæst Áma heitinn Frið-
riksson. Ætla ég að hann hafi átt
sinn þátt í því að Aðalsteinn réðst,
að loknu magistersprófí frá Hafnar-
háskóla 1954, sem fiskifræðingur
að Atvinnudeild Háskólans/fiski-
deild (síðar Hafrannsóknastofnun).
Hefir hann starfað þar nær óslitið
síðan, enda þótt hann ynni um tíma
við rannsóknir á botndýmm við
Surtsey seint á sjöunda áratugnum,
á vegum Surtseyjarfélagsins, og
raunar eitthvað flest árin síðan. Þó
gerði hann hlé á störfum sínum
1960—61 er hann var við fram-
haldsnám í fræðigrein sinni í
Bandaríkjunum, við University of
Washington í Seattle; og 1965—66
starfaði hann við fiskirannsókna-
stöðvar á Bretlandi, fyrst í Aberde-
en og síðan í Lowestoft. Deildar-
stjóri á sínu sviði við
Hafrannsóknastofnun varð Aðal-
steinn 1971. Þá hefir hann í
tengslum við starf sitt sótt íjöldann
allan af ráðstefnum um fískifræði-
leg efni, svo og fundi með starfs-
bræðmm sínum hérlendis og
erlendis, sem ég kann ekki skil á
eða upp að telja.
Á Fiskideild og síðar Hafrann-
sóknastofnun hefir sérsvið Aðal-
steins verið rannsóknir á flatfisk-
um, einkum skarkola og grálúðu,
og hefir hann á ferli sínum stjómað
fjölda rannsóknarleiðangra á sjó,
einkum í Faxaflóa og hringinn í
kringum land, á hinum sundurleit-
ustu farkostum og oft við erfið
skilyrði. Var í senn ánægjulegt og
fróðlegt að fá að fara í tvær slíkar
hringferðir, sem aðstoðarmaður
hans, seint á sjötta áratugnum og
hollt landkröbbum eins og mér að
kynnast því, hvemig búið hefir ver-
ið að rannsóknum á „rótum þjóða-
rauðs okkar íslendinga", ef mér
lejrfist að orða það svo.
Hér verður enginn dómur lagður
á rannsóknastörf Aðalsteins, enda
undirritaður alls fákunnandi í þeim
efnum. Sjálfur hefir hann fjallað
þar um í rannsóknarskýrslum,
greinum og ritgerðum, svo sem
rakið er í útgefnum skrám um haf-
rannsóknir á vegum Hafrannsókna-
stofnunar. Auk þeirra ber að nefna
Surtsey Research Progress Report,
en Aðalsteinnn hefir verið meðrit-
stjóri þess rits síðan 1974.
Þótt Aðalsteinn vinur minn sé í
eðli sínu hlédrægur er hann þó fé-
lagslega sinnaður í þess orðs bestu
merkingu. Á unga aldri gerðist
hann einn af stofnendum Bindindis-
félagsins „Dalbúans" í Saurbæjar-
hreppi og var síðan gerður að
heiðursfélaga þess. Hefir hann
haldið bindindisheit sitt síðan. Hann
var einn of stofnendum Bandalags
háskólamanna og ritari þess
1958—60; var formaður Hags-
munafélags náttúrafræðinga
1956—57 og 1958—60; hefir verið
í stjóm Surtseyjarfélagsins frá
1965; og sat í náttúravemdamefnd
Seltjamamess 1970—78. Þá var
hann lengi í skólanefnd Seltjamar-
ness og var formaður hennar í sex
ár; og á sínum tíma var hann for-
maður byggingamefndar Valhúsa-
skóla. Einnig hefir hann verið
virkur í Rotary-klúbbi Seltiminga
og formaður hans um tíma. Hann
er höfðingi heim að sækja, ræðinn
vel og hinn besti félagi, glettilega
hagmæltur að þjóðlegum sið og
hefir yndi af því að fara með góða
stöku, enda kann hann kynstur af
alþýðulegum skáldskap og tæki-
færisvfsum. Ætla ég, að fáir hafi
kveðið hann í kútinn.
Eins og fyrr segir er Aðalsteinn
Sigurðsson Eyfirðingur að ætt,
fæddur á Ánastöðum í Sölvadal.
Ólst hann þar upp fram undir ferm-
ingu, þegar foreldrar hans, Sigurð-
ur Sigurðsson, bóndi, og kona hans,
Sigrún Jóhannsdóttir, fluttust það-
an að Vatnsenda í Saurbæjarhreppi
með böm sín fímm, og Ánastaðir
fóra í eyði. Af systkinum Aðalsteins
er Jóhann nú einn á lífi, búsettur
á Akureyri.
Aðalsteinn er tvíkvæntur. Var
fyrri kona hans dönsk, Carla Marie,
dóttir Laurids Rasmussens, verka-
manns í Hasselo á Falstri. Þau
skildu. Dóttir þeirra, Guðný, er gift
Bimi Bjömssyni, hagfræðingi Al-
þýðusambands íslands. Síðari kona
hans er Guðný Ástrún Valdimars-
dóttir, bónda á Hömram í Hraun-
hreppi á Mýram, Davíðssonar og
konu hans, Helgu Ingibjargar
Halldórsdóttur. Var Ástrún lengi
handavinnukennari viðGagnfræða-
skóla Vesturbæjar, Ármúlaskóla,
og nú síðast Hagaskóla. Er hún hin
mesta ágætis- og mannkostakona
og þykir mér sómi að því að hafa
að vissu leyti óbeint stuðlað að nán-
ari kynnum þeirra Aðalsteins, þótt
ég efist um að þau muni nú tildrög
þess. Sonur þeirra, Magnús, lauk
stúdentsprófí frá Menntaskólanum
í Reykjavík sl. vor og vinnur nú í
útibúi Sparisjóðs Reykjavíkur og
nágrennis á Seltjamamesi.
Þótt Aðalsteinn Sigurðsson láti
nú af embætti fyrir aldurs sakir er
hann síður en svo setur í helgan
stein, enda mun hann verða áfram
í hálfu starfí hjá Hafrannsókna-
stofnun. Mun honum jafnframt
gefast meira tóm til að sinna öðram
hugðarefnum sínum.
Við Anna sendum honum, Ást-
rúnu og Magnúsi, hugheilar ámað-
aróskir í tilefni þessara tímamóta í
lífí húsbóndans á Vallarbraut 8 á
Seltjarnamesi, og vonumst til að
mega enn lengi njóta vináttu þeirrai’
og samverastunda við þau, bæði á
hinu fagra og hlýlega heimili þeirra
sem og annars staðar.
Heimir Áskelsson
Tölvunámskeið
á Macintosh
Pagemaker
Umbrotsforritið Pagemaker er sennilega öflug-
asta umbrotsforrit sem til er á einkatölvur í dag.
Kennari á námskeiðinu er Guðmundur Gíslason,
ritstjóri Skinfaxa, blaðs Ungmennafélags íslands.
Guðmundur hefur sennilega mesta reynslu allra
íslendinga í notkun forritsins og Skinfaxi er skrifað-
ur í Macwrite, síðurnar eru formaður á
Pagemaker og síðan prentaðar út á laserprent-
ara.
Dagskrá:
★ Kynning á Pagemaker.
★ Hvernig Pagemaker og Macwrite vinna saman.
★ Hvernig náð er í texta úr Macwrite.
★ Kynntir helstu möguleikar Pagemaker og sýnd nokk-
ur dæmi um uppsetningu síðna.
★ Hvernig má setja myndir úr teikniforriti á síðu.
★ Farið í uppsetningu og útlitshönnun fréttabréfs.
★ Samið og sett upp fréttabréf.
★ Umræður og fyrirspurnir.
Leiðbeinandi:
Guðmundur Gíslason,
ritstjóri Skinfaxa.
Tími: 19.—22. janúar
kl. 17-20.
Works
Fjölnotakerfið Works frá Microsoft er nú að
verða mest notaða forritið á Macintosh. Á nám-
skeiðinu er farið rækilega í þá möguleika sem
forritið býður uppá.
Dagskrá:
★ Grundvallaratriði við notkun Macintosh.
★ Ritvinnsla, æfingar.
★ Gagnagrunnur, æfingar.
★ Tölvureiknir, æfingar.
★ Flutningur gagna milli þátta forritsins.
★ Umræður og fyrirspurnir.
Leiðbeinandi:
Guðmundur Karl Guðmundsson,
sölumaður hjá Radióbúðinni.
Tími: 17.—18. janúar
kl. 10—17
Innritun í símum
687590 og 686790.
Tölvufræðslaní
Borgartúni 28.