Morgunblaðið - 14.01.1987, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1987
45
Svanur Rögnvalds
son - Kveðjuorð
Kveðjuorð:
Snorri Gunnlaugs
son, Esjubergi
Fæddur 5. janúar 1913
Dáinn 19. desember 1986
Fæddur 14. desember 1929
Dáinn 25. desember 1986
„Flutningaskipið Suðurland sökk
um miðnætti, statt 290 mílur ANA
af iandinu, eftir að hafa fengið á sig
brotsjó í vonskuveðri." Eitthvað á
þessa leið hófust hádegisfréttir
Ríkisútvarpsins á jóladag sl. Seinna
um daginn kom hin dapurlega stað-
reynd, sex af ellefu manna áhöfn
höfðu látist, fimm tókst að bjarga
eftir mikla hrakninga.
Einn þeirra sem þama fórst var
vinur minn, Svanur Röngvaldsson,
sem ég ætla að minnast hér með
örfáum orðum.
Ég man Svan frá því ég vr bam,
sérstaklega er mér minnisstætt hvað
hann var alltaf glaður og létt yfír
allri hans framkomu. En segja má
að aðalkynni okkar yrðu er við stun-
duðum saman rækjuveiðar í Húnaf-
lóa tveir á bát, vetuma 1975 og
1976. Ég vissi þegar ég réð Svan til
mín á bátinn að ég var að ráða van-
an sjómann, en ég vissi ekki fyrr en
á reyndi hvílíkan afburðamann ég
hafði. Á sjónum koma oft fyrir atvik
sem þurfa skjótra ákvarðana við og
það brást aldrei, Svanur átti alltaf
ráð.
Svanur var fæddur 14. desember
1929. Tíu ára gamall var hann send-
ur í sveit að Ásbjamarstöðum,
Vestur-Húnavatnssýslu, til hjónanna
Guðjóns og Sigrúnar. Hjá þeim dvaldi
hann alls í sjö sumur að einum vetri
meðtöldum. Hann leit á þau hjón sem
sína aðra foreldra og hélst sú tryggð
alla tíð. Tvö af bömum Svans urðu
svo síðar sumardvalarböm hjá sömu
hjónum.
Ungur byijaði Svanur á sjó, fyrst
á sfldar- og fískibátum, en um 1950
fór hann á togara og togarasjómaður
var hann í fjöldamörg ár. Og þó
hann fengi sér vinnu í landi, ætlaði
að hætta sjómennsku, þá stóð það
aldrei nema stuttan tíma í senn. Það
fínnst sennilega engin ein skýring á
því hvers vegna menn, sem stundað
hafa sjó um langan tíma, sækja
þangað alltaf aftur.
Davíð Stefánsson gefur þó SVST
við þessu í ljóðlínum sínum þar sem
hann segir.
Ég lýt hinum mikla mætti,
það leiðir mig hulin hönd.
Og hafíð — og hafíð kallar,
það halda mér engin bönd.
Hafíð kallaði á Svan og sjó-
mennska var hans aðalstarf í tæp
40 ár. Á hafínu háði hann síðustu
baráttu. Svanur var kvæntur Fríðu
Gústafsdóttur og áttu þau 4 böm.
Eina dóttur eignaðist hann áður.
Þó ég eigi ótal minningar um
Hver liðin stund er lögð í sjóð,
jafiit létt sem óblíð kjör.
Lát auðlegð þá ei hefta hug
né hindra þína för.
Um hitt skal spurt - og um það eitt,
hvað yzta sjóndeild fól,
því óska vorra endimark
er austan við morgunsól.
(Öm Amar)
Barnabörn
.c'.ou'a raubnófl íiíiitó^ c w
hinn viðbragðsfljóta og glettna
Svan, sem ávallt var viðbúinn að
takast á við það sem að höndum
bar, þá er þó sterkust minningin
um hann sem góðan dreng.
Vandamönnum hans öllum votta
ég mína dýpstu samúð og bið þeim
allrar blessunar.
Ásbjörn Guðmundsson
Sýnist mér fyrir handan haf
hátignarskær og fagur
brotnuðum sorgaröldum af
upp renna vonardagur.
(Bólu-Hjálmar)
Slysfarir og mannskaðar eru ekki
fátíðir atburðir á landi hér. Alltaf
hljóta þeir að koma einhverju róti á
hugann, en því sárari eftir því sem
nær eru höggvið. Slysið, þegar flutn-
ingaskipið Suðurland sökk í haf-
djúpin með þeim afleiðingum að sex
vaskir sjómenn létust, hefur án alls
efa orkað djúpt á þessa þjóð, sem á
afkomu sína svo mjög undir sjósókn,
aflabrögðum og flutningum til lands
og frá, að sagt er með sanni að föður-
land vort hálft sé hafíð. Nú þegar
nýtt ár er runnið upp er þessara
manna minnst af mörgum, en sárast-
ur er harmur ástvinanna.
Einn þeirra, sem lét líf sitt í þessu
hörmulega slysi, var Svanur Rögn-
valdsson. Með fáum og fátæklegum
oiðum langar okkur til að minnast
þessa látna vinar, sem að vissu leyti
var nánast fóstursonur okkar og
kallaði okkur jafnvel stundum
mömmu og pabba.
Svanur var fæddur 14. desember
1929 og kom til okkar hjónanna til
sumardvalar tíu ára gamall, vorið
1940. Hann var ekki hávaxinn, ljós-
hærður, glaðlegur og sviphreinn
drengur.
Stórstyijöld geisaði úti í hinum
stóra heimi, ægilegri en nokkru sinni.
Enginn vissi um afleiðingar eða endi.
Rauði krossinn gekkst fyrir að koma
bömum úr höfuðborginni út á lands-
byggðina, í þeirri von að þar væri
öryggi meira ef illa færi. Þá voru
sveitimar ííóga "óðar ti! að vemda
líf hinnar uppvaxandi æsku borgar-
innar. Yfírleitt held ég að málaleitan
RKÍ hafí verið mjög vel tekið vítt
um byggðir. Við hjónin vomm að því
spurð hvort til greina kæmi að taka
eitt bam yfír sumartímann. Tókum
við því vel, en óskuðum eftir að fá
dreng.
Ýmsir óiu ugg í bijósti um að í
þessum hópi kynni að vera misjafn
sauður í mörgu fé, en engar fregnir
fóm samt. af því og víst er að engu
þurftum við að kvíða. Varla getur
indælla bam en þama barst okkur
upp í hendumar. Varð hann til mikill-
ar ánægju á heimilinu og svo
snúningalipur og fljótur til að mikill
léttir varð strax að. Við gáfum að
sjálfsögðu upp heimili, sveit og ák-
vörðunarstað er senda átti drenginn
til í hópi bama á stómm „rútubíT
sem nú er nefndur svo. Bömin höfðu
með sér spjald sem tilvísun hvert
sérhvert þeirra ætti að fara. Eitthvað
hefur þó þessi merking mglast, því
við lá að þessi ungi sveinn væri send-
ur nokkuð afleiðis. Til þess að kom
þó ekki vegna aðgæslu manns sem
kunnugleika hafði á hvar bömunum
var búin sumardvöl.
^^mgöngur vom ekki mjög greið-
ar hér"norður VátnS.nesið, svo það
dróst nokkuð að drengurinn kæiidSt
alla leið, þó féll að lokum ferð lan-
gleiðina en síðasta áfangann sótti
ég hann á hesti og reiddi hann fyrir
framan mig heim í hlað. En það leið
ekki á löngu að hann varð einfær
um að sitja hest, bar sig vel á hesti
þegar fram í sótti og hafði af þeim
hið mesta yndi.
Það var ekki lítil reynsla fyrir
ungan dreng að hverfa úr faðmi for-
eldra sinna til ókunnugra, en ekki
bar á öðm en snáðinn yndi sér, enda
un&l uictosj • íííí
átti hann rólega lund og glaða, það
var alltaf eitthvað svo bjart yfir hon-
um. Fyrsta sumarið var ekki það
eina sem Svanur var hjá okkur hjón-
unum, alls urðu þau sjö. Það tognaði
úr honum og hann varð hinn ágæt-
asti verkmaður, viljugur og vinnufús,
en mestu máli skipti kannski hvað
lundin varð ljúf og góð. Einn vetur
var hann hér einnig eftir fermingu
og þá þijú misseri samfellt. Vel
munum við hvað hann lék ljúflega
við elstu dóttur okkar, sem fæddist
einmitt á því tímabili sem hann var
hér.
Margs er að minnast frá þessum
æskudögum hans hér. Ég minnist
þess að við fómm haust eitt saman
með marga reiðingshesta í lest til
Hvammstanga. Í þessari ferð fengum
við hið versta norðan hrakveður, urð-
um gegnblautir og kaldir. Þá var
farið heim á bæ í leiðinni þar sem
viðtökur vom svo góðar er verða
mátti og allt fór þetta vel. Og ekki
held ég að drengurinn hafi staðið sig
ver en ég í þessari ferð. Það byija
stundum snemma ágjafír í lífinu.
Foreldrar Svans vom hjónin Rögn-
valdur Guðbrandsson, lengi sjómað-
ur, og kona hans, Steinunn
Þorkelsdóttir. Böm áttu þau auk
Svans: Þorkel, Guðbrand, Árnu og
Má. Átti fjölskyldan lengi heimili sitt
á Haðarstfg 15 í Reykjavík. Með
ámnum tókst góður kunningsskapur
og vinátta við þessa fjölskyldu. Komu
hjónin af og til norður og yngstu
systkinin tvö dvöldu nokkur sumur
hér í nágrenninu. Svanur bar þess
merki ao hafe blotið gott uppeldi,
unni hann móður sinni mest, en íiUn
var mikil ágætis kona.
Ungur gerðist Svanur sjómaður,
var hann bæði á far- og fiskiskipum
og reyndist afbragðs starfsmaður,
viss og viljugur, vel metinn og eftirs-
óttur. Annars er það ekki við hæfí
að skrifa um starf sjómannsins af
þeim sem aldrei hefur á sjó komið.
Það vitum við þó öll, að dag hvem
getur hættu borið höndum — oftast
tökum við það lítið til greina sem í
landi sitjum. Örlög Svans urðu þá
hin sömu og margra annarra, að
enda ævina á sjónum, enda slitinn
að kröftum og heilsan farin að bila.
Svanur átti heimili á Feijubakka
8 í Reykjavík. Hann giftist góðri
konu, FYíðu Gústafsdóttur, og eign-
uðust þau fjögur böm, Sjöfn, Gústaf,
Rúnar Guðjón og Jóhönnu sem enn
er á bamsaldri. Áður hafði hann
eignast dóttur Steinunni að nafni.
Mikla umhyggju bar Svanur fyrir
heimili sínu, eiginkonu og bömum.
Fjölskyldan öll hefur misst mikið við
fráfall hans.
Um leið og við hjónin, ásamt böm-
um okkar og fjölskyldum, vottum
öllum vandamönnum dýpstu samúð
CrC!í.ar. biðjum við þeim blessunar
Guðs um alia ifð. Nú er lífsþráður
þessa vinar okkar slitinn hér a jSrð,
en látinn lifir, um það þarf enginn
að efast. Við kveðjum drenginn okk-
ar sviphreina með ljóðlínum úr sálmi
Valdimars Briem:
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafði þökk fyrir allt og allL
Sigrún og Guðjón
á Asbjarnarstöðum
Móðir: Þuríður, f. 10.7. 1881 í
Hattardal meiri, d. 23.9. 1930 á
Isafirði, Ólafsdóttir Jenssonar
bónda í Hattardal meiri, f. 23.4.
1850, og konu hans, Þuríðar Guð-
mundsdóttur.
Faðin Gunnlaugur Jón, f. 29.1.
1879 S Efstadal í Ögursókn, d.
25.12. 1937 á ísafirði, Torfasonar
vinnumanns í Hattardal meiri, f. á
Stóm Hnausum í Breiðuvík á Snæ-
fellsnesi 15.6. 1848, d. 29.1. 1887,
Jónssonar. Kona Torfa var Þóra
Gunnlaugsdóttir, f. 8.11. 1835, d.
5.12. 1914. Þau vom gefin saman
í Eyrarkirkju í Súðavíkurhreppi
29.3. 1875.
Snorri var af sterku bergi brot-
inn, þar sem ættir hans lágu um
Vestfirði og Breiðafjörð. Hann var
fæddur í Hattardal hinum meiri í
Súðavíkurhreppi í N-ísafjarðar-
sýslu. Þessi byggð útheimti dug-
mikið fólk, sem ekki lét deigan síga
og sýndi æðmleysi í baráttu við
náttúmöflin á sjó og landi. Fyrr á
tímum bjuggu alla jafnan stórar
Qölskyldur í Hattardal meiri, trú-
lega vegna þess að búfé var fátt
og aðallífsafkoman var af sjósókn.
Þá var ekki ferðast nema sjóveg
og vom Vestfírðingar taldir af-
bragðs sjómenn.
A síðari hluta 19. aldar bjó í
Hattardal meiri Þórður Magnússon,
annar þingmaður fsfírðinga. Hann
hefur ekki látið sig muna um ferða-
lögin. Þegar Snorri var á þriðja ári
tóku foreldrar hans sig upp, leiðin
lá til ísafjarðar, þar tók við dag-
launavinna. Snorri var aðeins á 8.
árinu þegar honum var komið að
heiman og átti að smala kvíaám
sem matvinningur. Þeim starfa
ásamt öðmm snúningum hélt hann
fram yfir fermingu, hjá vandalaus-
um. 17 ára gamall hleypti Snorri
heimdraganum, það var vorið 1930,
undirbúningur Alþingishátíðarinnar
stóð sem hæst. Bræður hans vom
komnir suður. Systkinin vom 7, 4
bræður og 3 systur, nú em aðeins
eftir 2 systumar. Hlíf, búsett í
Mosfellssveit, og Silla í Kaup-
mannahöfn. Snorri fékk vinnu við
lagningu ÞingvaiiáVcgSTins Og var
til heimilis á Hrísbrú í Mosfells-
sveit. Síðar gerðist hann vinnumað-
ur hjá Thor Jensen á Korpúlfsstöð-
um og Lágafelli, en hafði heimili
sitt á Laugarbóli í Mosfellsdal.
Hann var mikill félagshyggjumað-
ur, fljótlega stóð hann því að
stofnun ungmennafélags með æsk-
unni í sveitinni, félaginu var gefið
nafnið „Afturelding".
Áhugasvið Snorra vom mörg,
hann vildi þroska bæði hug og hönd,
um langskólanám var vart að ræða,
en hann bætti úr því með lestri
góðra bóka.
Hann hafði mikinn áhuga fyrir
íþróttum og lét þá ósk sína rætast
að fara í íþróttaskólann í Haukadal.
Eftir að ísland hafði verið her-
numið og atvinna varð nægjanleg
flutti Snorri til Reykjavíkur og
gerðist leigubifreiðarstjóri. Honum
féll starfíð vel og vann af lífi og
sál að hagsmunasamtökum bif-
reiðastjóra. Snorri hafði mikla
réttlætiskennd, svo það kom engum
á óvart þó hann tæki forystuna
með félögum sínum. Hann gekkst
fyrir stofnun Lánasjóðs atvinnubif-
reiðastjóra á þeim tímum sem
almenningur átti ekki kost á öðmm
lánum en víxlum með okurvöxtum.
Á þéSSUfl! ámm leituðu menn oft
upplýsinga og aðstodaT hjá Snorra,
var hann þá oft nefndur „Banka-
stjórinn".
Hann var einnig stofnandi sam-
vinnufélagsins Hreyfils fyrir
leigubflstjóra. Snorri var baráttu-
maður og lét sér ekkert óviðkom-
andi, þess vegna fylgdi hann þeim
flokki sem hann taldi standa best
r ■ zasæcxs&caoKácarKt;*jrs.'
vörð um hagsmuni verkalýðsstétt-
arinnar í landinu. Brúðkaup Snorra
og Sigríðar Gísladóttur fór fram
3.10. 1942. Sigríður var f. 7.4.
1916 á Tindstöðum á Kjalamesi.
Foreldrar Sigríðar vom Gísli Guð-
mundsson bóndi, Esjubergi, f. 6.3.
1889, d. 28.4. 1963, af Kollafjarð-
arætt og kona hans, Oddný
Ámadóttir, f. 2.4. 1889, d. 2.8.
1979 í Víðinesi á Kjalamesi. For-
eldrar Oddnýjar vom Sigríður
Jónsdóttir frá Bakka í Landeyjum
og Ámi Bjömsson frá Úthlíð í Bisk-
upstungum. Þau bjuggu í Móum á
Kjalamesi. Snorri og Sigríður eign-
uðust þijú böm: Ámi Sigurður, f.
19.11. 1943, eiginkona hans er
Kolbrún Guðmundsdóttir; Oddný
Margrét, f. 5.6. 1945, eiginmaður
Ólafur Friðriksson; Gísli Arsæll, f.
9.10. 1946, eiginkona er Anna
Steinarsdóttir.
Snorri hafði verið í Haukadal og
honum fannst samskipti manna
þyrftu að vera á fleiri sviðum en
þeim sem lutu að vinnunni sjálfri.
Við mundum komast svo að orði í
dag, að hann hefði haft áhuga fyr-
ir heilsurækt þ.e.a.s. sundi, hand-
bolta og fótbolta. Þetta var
stefnuskráin, hann varð svo hvata-
maður að Knattspymufélagi bif-
reiðastjóra á Hreyfli, sem síðar hét
íþróttafélag Hreyfils. Þar átti hann
drjúgan þátt í skipulagningu íþrótt-
anna.
Snorri var ekki óþekktur í sveit-
jnni begar þau hjónin tóku við búi
á Esjubergi árío 1557. Hann var
heldur enginn viðvaningur í land-
búnaðarstörfum frekar en Sigríður
kona hans. Hjónin unnu bæði mikið
að félagsmálum, hvort á sínu sviði.
Hann sat lengi í stjóm búnaðarfé-
lags Kjalameshrepps og var hvata-
maður að stofnun mjólkurflutninga-
félags í hreppnum og sat í stjóm
þess, einnig í stjóm flutningafélags-
ins er sá um fóðurbætisflutningna
og fleira. Þá var hann einn af stofn-
endum Lionsklúbbsins Búa á
Kjalarnesi og í Kjós. Hann vann
af lífi og sál í öllum þeim félagasam-
tökum sem hann kom nálægt, það
má segja að í Búa sem öðrum félög-
um hafí verið 100% mæting, því
hann kom á svo til hvem einasta
fund. Snorri horfði til framtíðarinn-
ar og unga fólksins sem átti að
erfa landið, heill þess og hamingju.
Alþýðubandalagið var eini flokkur-
inn sem stóð vörð um sjálfstæði
íslands og launakjör fólksins. Snorri
varð því einn af stofnendum Al-
þýðubandalagsins í Kjósarsýslu.
Nú þegar Snorri er kvaddur
hugsum við til hans með trega.
Hann var hinn sáttfúsi félagi í lífí
og starfí, við hlið hans stóð eigin-
kona, samband þeirra var alla tíð
sem hugljúft æfíntýri.
Mér er ljúft að minnast horfínna
stUP.da með þeim hjónum, þau voru
hvort sem annað mannkostamann-
eskjur. Við hjónin vottum fjöiskyldu
hans og systmm innilega samúð.
Blessuð sé minning um mætan
mann. Útför hans fór fram frá
Dómkirkjunni 5. janúar 1987.
Hulda Pétursdóttir
wma >~rii TTftinaiiinrnwi iMMnesacsjKauBmu^