Morgunblaðið - 14.01.1987, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1987
fclk í
fréttum
Björgvin og Bubbi saman á sviði.
Sögnlegar sættir?
Aáramótaballi Ríkissjónvarps-
ins var margt til gamans gert
og komu þar fram margir bestu
listamenn þjóðarinnar í söngi og
hljóðfæraslætti.
Sérstaka athygli vakti atburður,
sem sumir vildu kalla „sögulegar
sættir". Það var þegar Asbjöm
Kristinsson, sem flestir þekkja
eflaust sem Bubba Morthens, skor-
aði á Björgvin Halldórsson að koma
upp á svið og taka léttan blús með
sér. Björgvin tók hann á orðinu,
snaraðist upp á svið með munn-
hörpuna og saman léku þeir blús
af fingrum og vörum fram, við
mikla hrifningu viðstaddra.
Bubbi og Bjöggi hafa til þessa
þótt vera á sitt hvem skaut'í popp-
tón!:star,r.ár; tiubbi í hópi uppreisn-
arseggja, en Björgvin hins vegar
rólegur og fágaður. Þama um
kvöldið kom þó fram að hvorugur
er klafabundinn við sína megin-
stefnu, enda var þeim óspart
klappað lof í lófa.
Seinna um kvöldið komu nokkrir
Sungið við raust: Jakob Magnússon, Ragnhildur Gísladóttir, Jóhann
G. Jóhannsson, Bubbi Mothens, Jónas R. Jónsson, Kristján Jóhannson
og Björgvin Halldórsson.
söngvarar saman fram og leiddu mótalög, sem og önnur vinsæl
fjöldasöng. Vom sungin sígild ára- hópsönglög.
Enn aukast
skyldur Friðriks
Friðrik, krónprins Danmerkur,
er nú 18 ára gamall og sífellt
aukast skyldur hans í réttu hlut-
falli við aldurinn, því enda þótt
Margrét Þórhildur Danadrottning
sé enn á besta aldri, er aldrei að
vita hvenær pilturinn þarf að taka
konungtign.
Að undanfömu hefur Friðrik ver-
ið við herþjálfun, en hann sest
bráðlega í liðsforingjaskóla Dana-
hers. Um jól og nýár fékk hann þó
að dvelja með fjölskyldu sinni og
þá fór hann m.a. í fyrsta skipti með
móður sinni í vagnferð frá Amalíen-
borg til Kristjánsborgarhallar.
Konungsvagninn, sem er svartur
og logagylltur, er frá 1840, en hon-
um fylgdu 42 riddarar úr Hússara-
lífverðinum, mjög skrautlegir eins
og sjá má.
Friðrik krónprins ásamt móður sinni í vagninum.
Riddaraliðið var ekki af verri endanum.
Mats ásamt hinni suður-afrísku brúður sinni.
Mats
Wilander
kvænist í
S-Afríku
Settur á svartan
lista fyrir vikið!
Fyrir skömmu kvæntist sænska
tennisstjarnan Mats Wilander.
Hin heppna er tvítug suður-afrísk
stúlka, Sonya Mulholland að nafni,
og fór athöfnin fram á búgarði fjöl-
skyldu hennar nálægt Durban í
Suður-Afríku.
Ekki gekk athöfni'! þó vandræða-
laust fyrir sig, því að hinn kaþólski
fjölskylduprestur ungfrúrinnar neit-
aði að gefa þau saman undir berum
himni. „Eigi þau að giftast að kaþ-
ólskum sið, giftast þau í kirkju",
sagði presturinn. Parið lét sig þó
ekki og fann á síðustu stundu afrík-
anskan prest (búa), sem var fús til
þess að gefa þau saman utandyra.
Vandræðum hjónanna hefði, ef
allt væri með felldu, átt að vera lok-
ið, en svo er ekki. Mat; hc-fur
nefnilega YeFið SGtcur á svartan lista,
Végna þess að hann dvelst nú í Suð-
ur-Afríku. Hann hefur andmælt
þessum ráðstöfunum og segir þær
út í hött. „Ég er hér sem hver ann-
ar maður. Ég hef aldrei leikið tennis
í Suður-Afríku, svo að ég reikna
með að vera tekinn af þessari nafna-
skrá jafnskjótt. g ég var færður inn
á hana.