Morgunblaðið - 16.01.1987, Blaðsíða 13
vsei hauvíai. .öi auoAauTgó’? .aiaAjannoflOM
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1987
O I
13
Krýsuvíkurskólinn:
Margir unglingar eiga
um sárt að binda
-segir séra Birgir Asgeirsson, einn af forsvarsmönnum Krýsuvíkursamtakanna
Krýsuvíkursamtökin, sem
stofnuð voru fyrir um það bil ári
síðan, réðust út i að kaupa
Krýsuvíkurskólann og var ætlun-
in að reka þar meðferðarstofnun
fyrir unglinga sem eiga við eitur-
lyfjavandamál að stríða. Kaup-
verð skólans var 7.2 milljónir.
Ríkissjóður, menntamálaráðu-
neytið, átti 75% af eigninni en
sveitarfélögin á Suðurnesjum
25%. Að sögn Birgis Ásgeirsson-
ar, sóknarprests i Mosfelli, sem
er einn af forsvarsmönnum
Krýsuvíkursamtakanna, hafa
nokkur sveitarfélögin nú þegar
gefið samtökunum sinn hlut.
Morgunblaðið spurði séra Birgi
hvenær gera mætti ráð fyrir að
skólinn yrði tekinn i notkun:
„Málið er í biðstöðu eins og er,“
sagði séra Birgir. „Við vorum að
gera okkur vonir um að komast inn
næsta haust. Þær vonir eru hins-
vegar að dofna núna, því við höfum
ekki fengið þann stuðning sem við
væntum. í fyrsta lagi virðumst við
hafa gleymst við gerð síðustu fjár-
laga. I öðru lagi er verið að byggja
hlutirnir einfaldaðir og látið líta út,
sem vandann sé að finna í ein-
hvetjum annarlegum sjónarmiðum
forystumanna hreyfmgarinnar.
Framtak bænda sjálfra
Guðbrandur Jónsson freistar þess
með grein sinni að ala á tortryggni
og úlfúð bænda í garð Sambandsins
og samstarfsfyrirtækja þess. Sem
betur fer vita bændur að innan
Sambandsins og kaupfélaganna er
unnið eftir megni að lausn vand-
ans, og það er ekki síst einnig gert
innan samtaka þeirra sjálfra. Það
gleymist nefnilega oft, að bændur
hafa sjálfir haft forgöngu um mörg
þau mál, sem lögð hafa verið til
grundvallar við endurskipulagningu
í landbúnaði á Islandi. Til þess hef-
ur þurft mikið hugrekki og raunsæi.
Því er auðvitað ekki að leyna, að
bændur hafa deilt um leiðir að því
takmarki að auka hagkvæmni í
landbúnaði, en trúlega má fullyrða,
að engum þeirra hefur dottið í hug,
að ef þeir ættu ekki hlutdeild í versl-
unarrekstri, fískvinnslu um land
allt, banka, tryggingarfélagi, skipa-
félagi, iðnaðarrekstri, hátækniiðn-
aði, olíufélagi, fisksölufyrirtækjum
erlendis o.fl. o.fl., þá væru þeir
betur settir.
Að lokum þetta:
Varla er hægt að ætlast til, að
hægt sé að elta ólar við allar þær
íjarstæður, sem fram koma í grein
Guðbrands. Það er hins vegar miklu
meira umhugsunarefni, hvemig
grein hans hefur orðið til. Hann
trúir að öllum líkindum sjálfur því
sem hann setur þar fram, en það
væri fróðlegt að vita, hver eða
hverjir hvísli að honum þeirri heims-
mynd, sem við honum blasir.
Upplýsingar um starfsemi sam-
vinnuhreyfingarinnar og Sam-
bandsins liggja á lausu fyrir þá, sem
þeirra óska, auk þess, sem sam-
vinnumenn hafa haft uppi fræðslu-
starf um hugsjónir sínar í áraraðir,
fræðslustarf, sem þeir töldu öflugt.
En þegar einn eða fleiri eins og
Guðbrandur Jónsson ganga um
götur og eiga greiðan aðgang að
Morgunblaðinu og öðrum fjölmiðl-
um með hugaróra sínar um sam-
vinnustarf í landinu, þá er heldur
betur ljóst, að betur má ef duga
skal.
Höfundur er blaðafulltrúi Sam-
bandsins.
upp unglingageðdeild. Heilbrigðis-
yfirvöld vilja koma þeirr deild á sem
fyrst og þetta getur raskað okkar
áætlun.
Geðdeild leysir hinsvegar ekki
þann vanda sem við erum að glíma
við. Geðdeild er fyrir fólk sem á
við geðræn vandamál að stríða. Við
teljum hinsvegar að unglingar geti
verið heilir á geðsmunum, þótt þeir
eigi við lyfjavandamál að stríða.
Meiningin með Krýsuvíkurskól-
anum, er að koma á fót heimili
fyrir þessa unglinga, þar sem þeir
geta byggt sig upp andlega og fé-
lagslega, auk þess að fá þama þá
skólakennslu sem þeir þurfa á að
halda. Margir þessara unglinga
hafa misst töluvert úr skóla og það
er erfítt fyrir þá að koma óundir-
búnir inn í skólakerfið aftur.
Kaupin voru fjármögnuð með
langtímaskuldabréfum, sum sveita-
félögin á Suðumesjum hafa gefið
sinn hluta og í Reykjaneskjördæmi
virðist mikill áhugi á að koma heim-
ilinu af stað. Róðurinn er hinsvegar
erfíðari þegar kemur að því opin-
bera. Ástandið er mjög slæmt, það
er mikið af unglingum um allt land
sem eiga um sárt að binda. Við
fórum ekki út í þetta að ástæðu-
lausu. Það em til meðferðarstofn-
anir fyrir þá sem eiga í vanda vegna
vímuefnaneyslu, td Vogur og síðan
Sogn, en þessar stofnanir em eink-
um sniðnar fyrir fullorðið fólk sem
á við áfengisvandamál að stríða.
Það var meiningin að Krýsuvíkur-
skólinn yrði hliðstæð stofnun fyrir
unglinga. Þeir þurfa miklu lengri
tíma en fullorðið fólk, sérstaklega
þar sem vandamálið er eiturlyfja-
neysla og hún er erfiðari við að
eiga en áfengissýki.
Það er mikið af fólki innan okkar
vébanda sem hefur sérfræðiþekk-
ingu á þessu sviði. Staðurinn var
valinn með það fyrir augum, að
þótt heppilegt væri að vera út úr
byggð, væri nauðsynlegt að vera
nógu nálægt Reykjavík til að hægt
yrði að fá sérfræðinga til vinnu
þar. En við emm ekki búin að gef-
ast upp, við vitum að þörfin er btýn
og í haust munum við hrinda af
stað landssöfnun og þá kemur í ljós
hver hugur fólksins í landinu er,“
sagði séra Birgir að lokum.
I M togtmftl fafrtfe
Gódan daginn!
Ws
b I X1
'i
. \ \ - ' "
—"
æsti vinningur hingað til:
3,2 milljónir (6.12.1986)
Söluhæsti umboðsmaður:
Verslunin Ösp, Hafnarfirði.
Fjöldi fyrstu vinninga til þessa: 13
Upplýsingasími: 685111
KYNNINGARWÓNUSTAN