Morgunblaðið - 16.01.1987, Blaðsíða 25
25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1987
20 vestur-þýskir dóm-
arar teknir höndum
20 vestur-þýskir dómarar voru handteknir fyrr í vikunni
fyrir mótmæli við herstöð Bandarikjahers í Mutlagen í suð-
vestur Þýskalandi.
Að sögn breska dagblaðsins
The Independent komu dómar-
arnir saman í 20 stiga frosti til
að lýsa þeirri skoðun sinni að
geymsla eldflauga i bandarískum
herstöðvum bryti í bága við
stjórnarskrá Vestur-Þýskalands
og væri þar með brot á alþjóða-
lögum. Lögreglumenn voru
hvattir á vettvang og handtóku
þeir dómarana. Ákærar verða
senn birtar á hendur þeim og
má búast við löngum og flóknum
réttarhöldum.
Dómara í Vestur-Þýskalandi
greinir á um hvort þeir eigi að
hafa afskipti af stjórnmálum.
Raunar kann staða þeirra að
skýrast á næstunni því nú standa
yfir réttarhöld í máli dómara,
sem birtu auglýsingu þar sem
veru kjarnorkuvopna í Vestur-
Þýskalandi var mótmælt. Vakti
þetta litla hrifningu yfirmanna
þeirra og er málið nú í höndum
hæstaréttar.
Talsmaður samtaka dómara í
Vestur-Þýskalandi kvað hand-
tökurnar nú í vikunni geta komið
sér illa fyrir stéttina þar eð sú
spurning hlyti óhjákvæmilega að
vakna hvernig dómararnir
myndu framvegis taka á málum
þeirra sem kærðir væru fyrir
opinber mótmæli.
Grænland:
Þýskir dómarar mótmæla við herstöð Bandaríkjamanna í Mutlagen.
Fréttamaður kínverska sjónvarpsins greinir frá því að háskólaprófessorunum Fang Lizhi og Guan-
Weiyan hafi verið vikið úr starfi við Vísinda og tækniháskólann í Hefei. í baksýn má sjá að stólar
prófessoranna standa auðir.
Kína:
Verður Hu Yaobang-
vikið frá störfum?
Stofna á nýjan
stj órnmálaflokk
Kaupmannahöfn. Frá Nil9 Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
HINN 24. janúar nk. verður
haldinn i Grænlandi stofnfund-
ur nýs stjórnmálaflokks og mun
hann hljóta nafnið „Erhverfs-
partiet“. Stofnfélagar eru
útvegsbændur og fleiri aðilar í
atvinnurekstri.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá forgöngumönnunum mun
flokkurinn helga sér pólitíska
stöðu á milli stjómarflokksins og
stærsta stjórnarandstöðuflokks-
ins, Atassut.
Atassut er borgaraflokkur, sem
tíðum kennir sig við frjálsan at-
vinnurekstur, en upp á síðkastið
hafa verið uppi raddir um það í
Grænlandi, að þörf væri á stjórn-
málaflokki, sem einbeitti kröftum
sínum í þágu atvinnulífsins, þar
sem Atassut - eins og það hefur
verið orðað í umræðunni - „sam-
anstendur fyrst og fremst af
skólakennurum og öðra fólki, sem
hefur lítinn skilning á atvinnuveg-
um landsins".
I stofnskrá nýja flokksins segir,
að aðaltilgangurinn með stofnun
hans sé „að styðja og styrkja þró-
un frjálsrar atvinnustarfsemi í
Grænlandi".
Flokksdeildir hafa þegar verið
stofnaðar í Nuuk og tveimur öðr-
um bæjum.
Austur-Þýskaland:
64 flúðu
ásíð-
asta ári
Bonn, AP.
64 Austur-Þjóðveijar flúðu yfir
iandamærin til Vestur-Þýska-
lands á síðasta ári, að því er segir
í nýrri skýrslu stjórnvalda þar.
Fjöldi þeirra sem flúðu á síðasta
ári er svipaður og undanfarin ár.
Af þeim 64 sem tókst að flýja voru
tólf austur-þýskir landamæraverðir.
Landamæravörðum tókst að koma í
veg fyrir að minnsta kosti þijár
flóttatilraunir og segir í skýrslunni
að örlög þeirra flóttamanna séu
ókunn.
Hermenn, sem gæta landamær-
anna, hafa afdráttarlausar fyrirskip-
anir um að skjóta á sérhvem þann
sem reynir að flýja yfir til Vestur-
Þýskalands.
Peking, AP, Reuter.
EMBÆTTISMENN í Peking
sögðu í gær að Hu Yaobang,
leiðtogi kínverska kommúnista-
flokksins, hefði ekki getað verið
viðstaddur viðhafnarmálsverð,
sem halda átti til heiðurs Arvo
Aalto, formanni finnska komm-
únistaflokksins, á fimmtudag,
vegna veikinda. Fyrir utan Höll
alþýðunnar stóðu í gær nokkrar
rútur og leiddu menn að því
getum að efnt hefði verið til
flokksfundar til að ræða brott-
rekstur Hus úr flokknum.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins vildi ekki segja hvort fundur
væri hjá stjórnmálaráðinu eða
miðstjórninni í höllinni, sem flokk-
urinn notar venjulega til funda-
halda.
Búist er við að Hu verði látinn
fara og látið verði til skarar skríða
gegn menntamönnum, sem að-
hyllast vestræna siðu, fyrir alvöra.
Menntamenn hafa verið sakaðir
um að bera ábyrgð á mótmælum
stúdenta og baráttu þeirra fyrir
auknu lýðræði.
Aalto ræddi í gær við Deng
Xiaoping, leiðtoga Kína. Að sögn
opinbera fréttastofunnar Xinhua
sagði Deng við Aalto að Kínveijar
ætluðu að ryðja öllum hindrunum
fyrir framgöngu sósíalismans úr
vegi.
Haft var eftir Deng að tilhneig-
ingar til „borgaralegs fijálslyndis“
(orðalag, sem yfirvöld hafa notað
um andstöðu gegn flokki og
stjórnarfyrirkomulagi) gætti í
Kína um þessar mundir: „Marxist-
ar í Kína munu ekki láta þetta
viðgangast og herferðin mun ekki
hafa áhrif á endurbætur á sviði
efnahagsmála eða stefnu stjómar-
innar um opnari stjórnsýslu."
Shevardnadze
boðið til Noregs
Osló, Reuter.
EDUARD Shevardnadze, ut-
anríkisráðherra ' Sovétríkjanna,
Eþíópía:
54 farast
í flugslysi
Nairobi, Kenýa. AP.
EÞÍÓPSK herflugvél fórst á
þriðjudaginn þegar reynt var að
lenda henni skömmu eftir flugtak
frá Asmara í Eritreu. Létust allir
um borð, 54 að tölu.
I frétt frá eþíópsku fréttastofunni
sagði, að slysið hefði orðið þremur
mínútum eftir að flugvélin fór á loft
frá Asmara á leið til höfuðborgarinn-
ar, Addis Ababa. í egypska útvarp-
inu sagði, að flugmennirnir hefðu
strax orðið varir við vélarbilun og
reynt að lenda aftur en ekki tekist
það. Ekkert var sagt um flugvélar-
tegundina en flestar flutningaflug-
vélar eþíópska hersins eru sovéskar.
Uppreisnarmenn í Eritreu hafa
staðið í styijöld við marxistastjórn-
ina í Addis Ábaba og forvera hennar
í aldarfjórðung. Fyrir réttu ári réð-
ust þeir á flugvöllinn í Asmara og
eyðilögðu að eigin sögn rúmlega 40
flugvélar.
hefur verið boðið í opinbera
hcimsókn til Noregs á þessu ári,
að sögn talsmanns norska ut-
anríkisráðuneytisins.
Búist er við að sovéski utanríkis-
ráðherrann komi til Noregs í vor.
Verður þetta fyrsta heimsókn sov-
ésks embættismanns til Noregs í
allmörg ár.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins sagði að norskir embættismenn
myndu ræða við Shevardnadze um
gagnkvæmt viðvöranarkerfi vegna
kjarnorkuslysa. Kvaðst hann vona
að samningur svipaður þeim sem
Sovétmenn og Finnar gerðu nýlega
yrði undirritaður.
Gro Harlem Brundtland hefur
boðið Nikolai Ryzhkov, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, í opinbera
heimsókn til Finnlands. Talsmaður
utanríkisráðuneytisins kvaðst búast
við heimsókn hans á næsta ári.
ERLENT