Morgunblaðið - 16.01.1987, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1987
15
Systurnar fyrir miðri myndinni undirbjuggn komu kórsins til páfa og hér eru kórfélagar á leiðinni þangað.
íslenski hópurinn fyrir framan Péturskirkjuna í Róm.
en í kórnum er áhugafólk um söng,
allir hafa atvinnu sína af öðru,
þarna eru bændur, sjómenn, iðn-
verkafólk og fleiri.“
Eftir að hafa tekið þátt í þessum
fjölþjóðasöng var ferðast um landið
og heimsóttir helgistaðir. „Mér eru
sérstaklega minnistæðir nokkrir
staðir sem við komum á, svo sem
Koptíska kirkjan sem reist var á
þeim stað sem talið er að María og
Jósep hafí búið á í Kairó, og gamla
eyðimerkurleiðin sem María og Jós-
ep flúðu til Egyptalands. Á leiðinni
rigndi í eyðimörkinni, en það heyrir
víst alveg til undantekninga."
Þá lá leiðin til Rómar, og mið-
vikudaginn 7. janúar fór kórinn í
móttöku hjá páfa í Vatikaninu.
„Systumar í Stykkishólmi höfðu
undirbúið komu okkar til páfa.
Kórinn söng þar ijögur lög meðan
beðið var komu páfans. Klukkan
11 gekk páfinn í salinn, kórinn söng
aftur og páfa var færð ljósmynd
af Snæfellsnesinu. Við vorum þama
í tæpa þrjá tíma. Föstudaginn 9.
janúar komu Systumar og sýndu
þeim sem vildu nokkurs konar
stjómstöð reglunnar sem kennir sig
við Frans af Assisi en systumar em
með líknarstarf víða um heim. Frá
Róm var svo haldið klukkan fimm
síðdegis á sunnudag og komið til
Keflavíkur snemma á mánudagas-
morgun eftir ógleymanlega ferð.
Persónulega eru mér minnis-
stæðastir þrír staðir frá landinu
helga, fæðingarkirkja krists, kirkja
sem reist var á þeim stað sem talið
er að kristur hafí fæðst á, staður
sem kristur stóð á er mannfjöldinn
hrópaði að hann skyldi krossfestur
og þjáningarbraut krists, via dolo-
rosa, leiðin sem hann gekk eftir að
hafa verið dæmdur til dauða.
Það er einnig athyglisvert að á
þessum slóðum er nú órólegasti
hluti heimsins, ferð okkar var við-
leitni til að stuðla að friði í heimin-
um, en einn þáttur þess er þetta
fjölþjóðajólahald með sameiginlegri
þáttöku margra þjóða“ sagði séra
Gísli Kolbeins að lokum.
verðbolgan
mælist 31.7%
VÍSITALA framfærslukostnaðar
hækkaði um 2,32% á milli des-
ember og janúar. Samsvarar
hækkunin 31,7% verðbólgu á ári.
Samkvæmt útreikningi kaup-
lagsnefndar er framfærsluvísitalan
185,05 stig.miðað við verðlag í jan-
úarbyijun, 2,32% hærri en í
desemberbyijun. Þessi hækkun
stafar af ýmsum hækkunum og
vegur þar þyngst hækkun á verði
ýmissa vöru- og þjónustuliða sem
svo eru kallaðir (0,7%) og hækkun-
ar á verði opinberrar þjónustu
(0,6%). Hækkun á verði matvöru
hefur í för með sér 0,3% hækkun
vísitölunnar, 0,1% er vegna fatnað-
ar, 0,1% vegna húsnæðisliðs, 0,3%
vegna tóbaks og áfengis og 0,2%
vegna bensínhækkunar.
Undanfarna þijá mánuði hefur
framfærsluvísitalan hækkað um
5,4% sem jafngildir 23,3% -verð-
bólgu á ári. Síðastliðna tólf mánuði
hefur vísitalan hækkað um 12,8%.
Frá upphafí til loka árs 1986 hækk-
aði hún um 13% og er það minnsta
hækkun sem mælst hefur á heilu
almanaksári. Sambærileg tala fyrir
árið 1985 var 33,7% og 22% árið
1984. Árið 1986 var vísitalan að
meðaltali 21,3% hærri en árið áður.
Sambærileg meðaltalshækkun á
milli áranna 1984 og 1985 var
32,4% og 29,2% á milli 1983 og
1984.
N£ja kennitölu-
kerf ið í gagnið
VERIÐ er að taka í gagnið nýtt kennitölukerfi sem ætlað er að leysa
af hólmi gamla nafnúmerakerfið. Þessar breytingar munu þó vera
mjög misjafnlega langt á veg komnar hjá hinum ýmsu opinberu
aðilum.
Að hálfu Hagstofunnar var stefnt
að því að breytingarnar gætu kom-
ið til framkvæmda frá og með
l.janúar á þessu ári, en Hagstofan
lagði jafnframt til að nafnnúmera-
kerfínu yrði haldið við í 1. til 2. ár
hvað snertir fullorðna einstaklinga
og aðila á fyrirtækjaskrá. Hagstof-
an lauk öllum nauðsynlegum
undirbúningi á s.l. ári, og munu
mörg fyrirtæki og stofnanir þegar
hafa lokið við að gera ráðstafanir
til að taka nýja kerfíð í notkun.
Til dæmis hefur heilbrigðiskerfíð
beitt kennitölukerfinu um alllangt
skeið og Ríkisskattstjóri hefur
ákveðið að það verði notað við
álagningu opinberra gjalda á árinu
1987. Framtöl til launa- og sölu-
skatts á hins vegar að auðkenna
með nafnnúmerum til ársloka 1987.
Að sögn Hallgríms Snorrasonar,
Hagstofustjóra, eru ýmsir opinberir
aðilar ekki búnir að gera sig klára
fyrir yfírstandandi breytingar, og
því verði þetta ár nokkurskonar
umþóttunartími í þessum efnum.
Sagðist Hallgrímur fastlega vonast
til að nýja kerfíð yrði almennt tekið
í notkun um næstu áramót, mikil-
vægt væri að allir aðilar kapp-
kostuðu við að ljúka undirbúningi
sínum fyrir upptöku kennitölukerf-
isins.
Hagstofan samdi á sínum tíma
við Skýrsluvélar Ríkisins og
Reykjavíkurborgar og Reiknistofu
Háskóla Islands um að þessir aðilar
mundu annast skráningu nafn-
númera og kennitalna á segulbönd
og disklinga fyrir fyrirtæki og
stofnanir. Upplýsingar um þessa
þjónust eru gefnar af SKÝRR,
Reiknistofnun Háskólans og Hag-
stofunni.
Kennitölur fyrirtækja, félaga og
stofnana eru birtar í prentaðri fyrir-
tækjaskrá Hagstofunnar, en kenni-
tölur einstaklinga og lögaðila
verður að fínna á skattframtölum,
og þeim mun ennfremur fylgja sér-
stakt blað með upplýsingum um
kennitöluna.
Hagstofan vill hvetja alla sem
beita auðkennistölum þjóðskrár og
fyrirtækjaskrár við tölvuvinnslu og
ekki hafa enn gert nauðsynlegar
ráðstafanir vegna breytinganna, til
að hefjast þegar handa við undir-
búning þeirra. Hið sama á við um
þá aðila sem skrá auðkennistölur í
viðskiptum sínum, svo sem á eyðu-
blöð og bókhaldsgögn.
4WDSKUTBILL
Sa tyrsti fra Jjapan
meö sítengt aidrif,
sem hægt er aö iæsa
O Stööug spyrna á öll hjói
O Engin skipting milli fram-
og afturhjóla.
O Viöbragð og vinnsla ísérflokki.
O Mikið buröarþol.
O Nýtískulegt og stílhreint útlit.
HF
Laugavegi 170-172 Simi 695500