Morgunblaðið - 16.01.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1987
Sameiningarviðræður bankanna:
Mat á fastafjármunum
bankanna til umræðu
í GÆR var von á bráðabirgða-
mati á fastafjármunum þeirra
banka sem að undanförnu hefur
verið til umræðu að sameina, að
sögn Geirs Hallgrímssonar seðla-
bankastjóra.
Geir sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hann byggist við því að
þetta bráðabirgðamat á fastafjár-
munum Útvegsbankans, Iðnaðar-
bankans og Verzlunarbankans yrði
rætt á næsta viðræðufundi, sem
verður að líkindum í dag.
Kvaðst Geir vænta þess að ein-
hverra fregna af viðræðunum yrði
að vænta í upphafi næstu viku, en
hann sagði að ekki yrði upplýst
hvert bráðabirgðamat fastafjár-
munanna væri, fyrr en það hefði
verið rætt á fundi viðræðuaðila.
íslenska óperan:
Operan Aida
frumsýnd í kvöld
ÍSLENSKA óperan frumsýnir í
kvöld óperuna Aidu eftir Gius-
eppe Verdi. Er þetta alstærsta
og viðamesta verkefni íslensku
óperunnar til þessa. Þessi við-
burður tengist 5 ára sýningaraf-
mæli Óperunnar í Gamla bíói sem
Fjölmörg
okurmál
falla niður
„ÞAÐ verður fallið frá ákærum
varðandi þau lán sem voru veitt
eftir 11. ágúst 1984,“ sagði Björn
Helgason saksóknari, en hann end-
urskoðar nú málatilbúnað ákæru-
valdsins í okurmálunum.
Bjöm sagði að fjölmörg mál myndu
faila alveg niður, en kvaðst ekki geta
sagt til um það strax hve mörg þau
yrðu. „Ég er enn að vinna úr fjöldan-
um og skipta þessu niður. Þegar því
er lokið fer ég yfír mál Hermanns
Björgvinssonar."
var formlega tekið í notkun sem
óperuhús 9. janúar 1982.
Aida hefur verið nefnd eitt mesta
stórvirki óperubókmenntanna. Hún
var samin sérstaklega fyrir vígslu
óperuhússins í Kairó og frumflutt
þar á aðfangadag 1871.
í sýningu íslensku óperunnar nú
taka þátt um 170 söngvarar, dans-
arar og tónlistarmenn. Þar af er
99 manna kór og 7 einsöngvarar.
Hljómsveitarstjóm er í höndum
Gerhards Deckert úr Vínarborg og
er þetta þriðja óperan sem hann
stjórnar hér. Bríet Héðinsdóttir leik-
stýrir nú sinni annarri ópem á sviði
íslensku óperunnar. Leikmynd er
unnin af Unu Collins. Hún hefur
einnig haft hönd í bagga með gerð
leikbúninga, en hönnun þeirra ann-
ast Hulda Kr. Magnúsdóttir með
henni.
Með_ helstu sönghlutverk í Aidu
fara Ólöf Kolbrún Harðardóttir,
Garðar Cortes, Sigríður Ella Magn-
úsdóttir, Kristinn Sigmundsson,
Viðar Gunnarsson, Hjálmar Kjart-
ansson, Hákon Oddgeirsson og
Katrín Sigurðardóttir.
Sjá blað B
Islensk getspá:
Sami seð-
illinn tví-
stimplaður
Hækka vinningar
um 200 þúsund?
ÚTLIT er fyrir að vinningshafar
í Lottó 3. janúar siðastliðinn geti
átt von á tæplega 200 þúsund
krónum til viðbótar við þau tæp-
Iega 800 þúsund sem réttur seðill
gaf, eftir að í Ijós kom að einn
seðlanna var stimplaður tvisvar.
Sú sérkennilega staða hefur
komið upp að hjón, sem fýlltu út
tvo seðla og létu stimpla þá á
bensínstöð, fengu annan seðilinn,
sem reyndist vera með réttar tölur,
stimplaðan tvisvar, en hinn ekki.
Skömmu áður en dregið var bað
maðurinn um leiðréttingu. Reyndi
þá afgreiðslumaðurinn að leiðrétta
mistökin með því að afturkalla aðra
færsluna og stimpla hinn seðilinn í
staðinn.
Leiðrétting á tvístimplaða seðlin-
um komst hinsvegar ekki til skila
á réttan hátt áður en dráttur fór
fram. Bensínstöðin var því orðin
handhafi annars vinningsins.
Starfsmenn stöðvarinnar rituðu þá
stjóm íslenskrar getspár bréf og
skiluðu miðanum um leið og þeir
fóru fram á að vinningnum yrði
deilt niður á vinningshafana fjóra.
Stjóm íslenskrar getspár hefur fall-
ist á þá lausn en ákvað að greiða
vinninginn ekki út fýrr en kæm-
frestur, sem er fjórar vikur, er
liðinn.
Kaupfélag Svalbarðseyrar:
Morgunblaðið/Kr. Ben.
Atkvæði greidd um alltland
Fundir og atkvæðagreiðslur um hina nýgerðu kjarasamninga
sjómanna hófust þegar síðdegis í gær og er búist við að hægt
verði að telja atkvæði síðar í dag og aflýsa verkfalli verði samn-
ingarnir samþykktir. Meðal annars flaug flugvél Landhelgis-
gæslunnar TF-SÝN með átta samningamenn til Egilsstaða að
tilhlutan ríkisstjórnarinnar. Myndin sýnir ungan sjómann greiða
atkvæði um sjómannasamningana í Grindavík í gær.
Fyrstí skiptafund-
Sala á Gaut GK rædd
á ríkisstjórnarfundi
VÆNTANLEG sala á togaranum
Gaut GK frá Garði var tekin upp
á ríkisstjórnarfundi í gær að til-
hlutan Matthiasar Á. Mathiesen
utanrikisráðherra.
„Sú staðreynd að verið er að
selja Gaut úr Garðinum, vitandi það
að í Garðinum eru aðilar sem vilja
fá skipið keypt til að tryggja
vinnslustöðvunum hráefni, varð til
þess að ég tók þetta mál upp í ríkis-
stjórninni,“ sagði Matthías. Hann
sagði að þingmenn kjördæmisins
væru í samstarfi við Atvinnumála-
nefnd Suðurnesja og hreppsnefnd
Gerðahrepps og að hann ásamt for-
sætisráðherra og formanni sveitar-
stjómar hefðu rætt við bankastjóra
Útvegsbankans vegna þessa máls.
„Ég vona að hreppsnefndin fái
tækifæri til þess að meta þessi
kauptilboð og tryggt verði að skipið
verði ekki selt úr sveitarfélaginu,"
sagði Matthías. „Það er hinsvegar
enginn að ætlast til að eigandinn
fái ekki sitt og ekki verði gerð skil
við lánardrottna."
Sjá bls. 28.
Húsavík.
í ÞROTABÚI Kaupfélags Sval-
barðseyrar var fyrsti skipta-
fundur settur á Húsavík í gær
þrotabúinu
og haldinn af skiptaráðanda,
Halldóri Kristinssyni sýslu-
manni, að viðstöddum skipuðum
„Tristan og Isold“:
Sonur Bergmans
aðstoðarleiksti óri
nA\TTI?T 1 * r» h * . „ . ..
DANIEL Bergman, sonur hins
þekkta leikstjóra Ingmars
Þingflokkur Framsóknarflokksins:
Reiði í garð Þor-
steins Pálssonar
ÞINGFLOKKUR Framsóknar-
flokksins ræddi m.a. á þing-
flokksfundi sínum í fyrradag þá
vandræðalegu stöðu sem kom
upp á milli stjórnarflokkanna,
þegar Þorsteinn Pálsson formað-
ur Sjálfstæðisflokksins lýsti því
yfir á Alþingi á þriðjudag að
gefa bæri samningsaðilum i sjó-
mannadeilunni tækifæri til þess
að reyna samningaleiðina til
þrautar. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins kom fram
ákveðin reiði í garð Þorsteins
fyrir það að hann hafði ekkert
samráð við forsætisráðherra,
áður en hann sté í pontu og lýsti
þessari skoðun sinni.
Þingmenn Framsóknarflokksins
munu hafa lýst þeirri skoðun sinni
á þessum fundi, að eðlilegt hefði
verið að Þorsteinn ráðfærði sig við
forsætisráðherra, áður en hann
tæki til máls, og aflaði sér upplýs-
inga um hvað væri að gerast. Telja
þeir að ef hann hefði gert það, þá
hefði hann fengið þær upplýsingar
hjá forsætisráðherra að fundir
samningsaðila væru hafnir af fullri
alvöru og að Bolli Bollason frá Þjóð-
hagsstofnun sæti með þeim á
lokuðum fundi, þeim til aðstoðar.
Segja framsóknarmennimir að
ef Þorsteinn hefði ráðfært sig við
forsætisráðherra, þá hefði aldrei
komið til „þessa vandræðaástands,"
eins og þeir nefna það.
Bergman, verður aðstoðarleik-
sljóri í kvikmynd Hrafns
Gunnlaugssonar „Tristan og
ísold“, sem kvikmynduð verður
síðar á þessu ári.
Daniel er 26 ára gamall, kvik-
myndaleikstjóri að mennt, og
hefur hann meðal annars aðstoðað
föður sinn við gerð kvikmynda.
Síðast vann hann með föður sínum
að kvikmyndinni „Fanny og Alex-
ander.
Hrafn Gunnlaugsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að þeir
Daniel hefðu hist í New York í
byrjun desember til að ráða ráðum
sínum og væri hann væntanlegur
til landsins í apríl nk,. Hann var
einnig hér á landi yfir jólahátíðina
og fram yfír áramótin. „Daniel
fékk að kynnast sumum af þeim
leikurum sem leika í myndinni,
við fórum yfír vinnsluna á henni
og náðum við mjög vel saman.
Ég held að það verði mjög spenn-
andi að hafa svona kraftmikinn
og lifandi mann með sér í þessu.
Ég sé sjálfan mig í honum fyrir
10 árum,“ sagði Hrafn að lokum.
búsljóra, Hafsteini Hafsteins-
syni hæstaréttarlögmanni.
Einnig mættu í réttinum 9 lög-
fræðingar og margir bændur
af viðskiptasvæði kaupfélags-
ins.
Kaupfélag Svalbarðseyrar var
tekið til gjaldþrotaskipta 28. ágúst
sl. og var þá gefínn kröfulýsingar-
frestur til 10. desember.
Alls hafa 583 kröfuhafar lýst
kröfum sem nema samtals um 293
milljónum króna. Þær skiptast
þannig í stórum dráttum: laun og
slíkar forgangskröfur 13,4 milljón-
ir, veðkröfur 112,6 milljónir og
almennar kröfur 166,7 milljónir.
Stærstu kröfuhafar eru: Sam-
vinnubankinn 102,4 milljónir,
ríkissjóður, opinber gjöld 31,8
milljónir, Samband íslenskra sam-
vinnufélaga 22,9 milljónir, Áburð-
arverksmiðjan 21,8 milljónir,
Iðnaðarbankinn Akureyri 13,4
milljónir og Byggðastofnun 9,7
milljónir.
Ýmsar athugasemdir og mót-
mæli komu fram í skiptaréttinum
sem stóð í um 5 klukkustundir.
Fundurinn kaus Hafstein Haf-
steinsson hrl. til að fara áfram
með stjóm búsins. Frestur til að
skila rökstuðningi í sambandi við
mótmæli og athugasemdir var gef-
inn til 17. febrúar og næsti skipta-
fundur ákveðinn 19. mars. Bústjóri
taldi sig ekki geta gefið upp mat
eigna nú en það mundi liggja fyrir
á næsta fundi.
Þetta mun vera stærsta gjald-
þrotamál sem komið hefur fyrir
skiptarétt Þingeyjarsýslu.
Fréttaritari.